Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Síða 25
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
33
Fréttir
Útgerðarmenn æfir vegna rækjuveiðisamnings:
Ráðuneytið
sendi einn mann
óundirbúinn til
ráðstefnunnar
- segir útgerðarmaður rækjuskipa á Flæmska hattinum
„Þetta eru stórundarleg vinnu-
brögð sjávarútvegsráðuneytisins.
Það er sendur einn maður til ráð-
stefnunnar með umboð til að skrifa
undir samning. Sá virðist hafa farið
nánast óundirbúinn til þessa leiks,“
segir Pálmi Stefánsson, útgerðar-
stjóri Básafells hf. á ísafirði, vegna
samnings um sóknarmarksdaga á
Flæmska hattinum sem íslendingar
undirrituðu á ráðstefnu NAFO,
Norður-Atlantshafs-fiskveiðiráðsins,
þann 15. september.
Samningurinn gerir ráð fyrir að 18
íslensk fiskiskip fái að stunda veiðar
á þessum slóðum í ákveðinn daga-
fjölda.
Pálmi gerir út tvö fiskiskip á þessar
slóðir, frystitogarana Guðmund Pét-
urs ÍS og Hafrafell ÍS, en alls stunda
um 18 íslensk skip veiðar á Flæmska
hattinum. Það þýðir að samkvæmt
samningnum verður um fækkun ís-
lenskra fiskiskipa að ræða. Hann
segir samninginn vera gerðan án alls
samráðs við þá sem starfa í greininni
og útgerðarmenn hafi heyrt af hon-
um í fréttum eftir að hann var gerð-
ur.
„Ráöuneytið virðist láta stjórnast
af þeirri einu hvöt að koma böndum
á þá sem eru að bjarga sér utan lög-
sögunnar," segir Pálmi.
Snorri Snorrason, útgerðarmaður
á Dalvík, sem á Dalborgina EA, tekur
í sama streng og Pálmi. Hann segist
enn ekki hafa fengið stafkrók um
þennan samning en hafi þó gert út á
Flæmska hattinn í tvö ár.
„Ég hafði ekki heyrt orði minnst á
þennan samning fyrr en ég sá lög-
fræðing sjávarútvegsráðuneytisins
lýsa þessum gjörningi í sjónvarps-
fréttum. Mér kemur þetta mál ótrú-
lega spánskt fyrir sjónir.
Hann segir að svo virðist sem
Landssambandi íslenskra útvegs-
manna hafi heldur ekki verið kunn-
ugt um máhð.
„Ég hitti lögmann LÍÚ að máli í
síðustu viku og hann minntist ekki
einu orði á að það stæði neitt til á
þessum slóðum," segir Snorri.
Hann gagnrýnir aö ráðuneytiö
sinni ekki málefnum þeirra sem gera
út á Flæmska hattinn, sem gefi af sér
á þriðja milljarð árlega, af sama
þunga og þeim málum sem snúa að
Smugunni og Síldarsmugunni.
„Það eru heilu sendinefndimar á
vettvangi þegar um er að ræða þau
mál. Þegar kemur að Flæmska hatt-
inum fer aðeins einn maður til samn-
inga þrátt fyrir þá miklu hagsmuni
sem þarna er um að ræða,“ segir
Snorri. -rt
Samþykkt um veiðistjóm á Flæmska hattinum:
Gagnrýni útgerðar-
manna byggð
á misskilningi
- segir Þorsteiim Pálsson sjávarútvegsráðherra
„Þetta er samþykkt sem gerð var
innan NAFO. Þetta er eins og gerist
í alþjóðlegum samtökum og einstak-
ar þjóðir eru ekki bundnar af sam-
þykktum kjósi þær að mótmæla. i
þessu tilviki er þó ekki um það að
ræða,“ segir Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra vegna gagnrýni
útgerðarmanna á samkomulag um
rækjuveiðar á Flæmska hattinum.
„Við höfum barist fyrir því í rúmt
ár að ná samkomulagi um veiði-
stjóm. Við náðum því ekki fram í
fyrra. Niðurstaðan varð sú að settar
voru á sóknartakmarkanir sem
tryggja vel okkar hlut. Á hinn bóginn
lítum við á þetta sem rnjög óhag-
kvæmt kerfi og að það stuðh ekki að
nægjanlegri vernd,“ segir Þorsteinn.
„Þetta er ákvörðun sem gildir í eitt
ár og við munum halda áfram að
berjast fyrir því að fá okkar sjónar-
mið viðurkennd varðandi heildar-
kvóta sem skiptist á einstök ríki,“
segir Þorsteinn.
Þorsteinn segir gagnrýni útgerðar-
mannanna byggða á misskilningi.
„Það er búið að hggja lengi fyrir
að við höfum barist fyrir því að sett-
ur yrði kvóti. LÍÚ hefur gengið mjög
hart fram í því að það yrði komið á
stjórnun á svæðinu. Það er okkur
tiltölulega hagstætt að það skufi vera
komið á stjómun á þessum tíma-
punkti," segir Þorsteinn.
-rt
Súðavík:
Erlent lán til að
kaupa húsin?
„Ríkisstjórnin mun að sjálfsögðu
standa við það sem hún hefur sagt
og lofað í þessu efni,“ sagði Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra við DV
um málefni Ofanflóðasjóðs og óskir
Súðvíkinga um aö 55 hús, sem era á
hættusvæði í Súðavík, verði keypt
af þeim svo þeir geti byggt á nýjum
stað. Kostnaðurinn við það yrði um
700 mifijónir króna.
Páll sagði hér um mikla peninga
að ræða, sem ekki yrðu gripnir úr
handraðanum hjá ríkissjóði.
„Því tel ég víst að taka þurfi lán til
að ljúka verkefninu. Það kann að
vera að slíkt lán liggi á lausu hér
heima en mér þykir það frekar
ósennilegt þannig að leita verði því
til útlanda eftir láni,“ sagði félags-
málaráðherra.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 551 1200
Stóra sviðió
ÞREK OG TÁR
ettir Ólaf Hauk Simonarson
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Leikmynd: Axel H. Jóhannesson.
Búningar: María Ólafsdóttir
Tónlistarstjórn: Egill Ólafsson
Dansstjórn: Ástrós Gunnarsdóttir
Leikstjórn: Þórhallur Sigurösson
Leikendur: Hilmir Snær Guðnason,
Edda Heiðrún Backman, Jóhann
Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir,
Gunnar Eyjólfsson, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Bessi Bjarnason,
Þóra Friðriksdóttir, Örn Árnason,
Vigdís Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ól-
afsdóttir, Stefán Jónsson, Egill Ól-
afsson, Magnús Ragnarsson, Sig-
ríður Þorvaldsdóttir og Sveinn Þór-
irGeirsson.
Undirleik annastTamlasveitin: Jón-
as Þórir Jónasson, Stefán S. Stef-
ánsson, Björn Thoroddsen, Ásgeir
Óskarsson, Eirikur Pálsson, Gunn-
ar Hrafnsson, Egill Ólafsson.
Frumsýning i kvöld, uppselt, 2. sýn. Id. 23/9,
örfá sætl laus, 3. sýn. fid. 28/9, nokkur sætl
laus, 4. sýn. Id. 30/9, örlá sætl iaus.
STAKKASKIPTI
eftir Guðmund Steinsson
Föd.29/9, ld.7/10.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt, fíd. 28/9,
Id. 30/9, uppselt, md. 4/10, sd. 8/10.
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR TIL 30.
SEPTEMBER
6 leiksýningar
Verð kr. 7.840
5 sýningar á stóra sviðinu
og 1 að eigin vali á litla sviðinu
eða smíðaverkstæðinu
Einnig fást sérstök kort á litlu sviöin
eingöngu,
- 3 leiksýningar kr. 3.840.
Mlðasalan er opin trá kl. 13-20 alla daga
meðan á kortasölu stendur. Einnig sima-
þjónusta frá kl. 10 virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
Simi miðasölu: 551 1200
Simi skrifstofu: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓDLEIKHÚSIÐ!
Tilkyimingar
íslandsmót í atskák
Dagana 22. og 23. september verða haldn-
ar undanrásir vegna íslandsmótsins í
atskák 1996. Teflt verður í Reykjavik, á
Akureyri og Vestfjörðum. í Reykjavík
hefst mótið kl. 19 fostudaginn 22. sept-
ember. Tefldar verða 4 umferðir á fóstu-
dag og 5 á laugardag og hefst taflið þá
kl. 13. Teflt verður í Faxafeni 12, Reykja-
vík.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 30. september.
Fimm sýningar aðeins 7200 kr.
Stóra sviðiökl. 20.30
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Á morgun 23/9 kl. 14, fáein sæti laus,
sunnud. 24/9 kl. 14, fáein sæti laus, og
sunnudag kl. 17, laugard. 30/9 kl. 14, fáein
sæti laus.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
í kvöld 22/9, á morgun 23/9, örfá sæti laus,
fimmtud. 28/9, fáein sæti laus, lös. 29/9.
TAKMARKAÐUR SYNINGARFJOLDI.
Litla svið
HVAÐ DREYMDI ÞIG,
VALENTÍNA?
eftir Ljúdmílu Razumovskaju.
Þýöandi: Árnl Bergmann
Lelkmynd: Steinþór Slgurðsson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttlr
Lýsing: Elfar Bjarnason
Lelkstjórl: Hlín Agnarsdóttir
Leikarar: Ásta Arnardóttlr, Guðrún Ás-
mundsdóttir og Slgrún Edda Björnsdóttlr.
Frumsýning sunnudaginn 24/9, uppseit,
þriðjud. 26/9, uppselt, miðv. 27/9, uppselt,
lau. 30/9, uppselt.
Miðasalan verður opin alla daga trá
kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur.
Tekið er á móti miðapöntunum i síma
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Þann 22. júh voru gefin saman í
hjónaband í Lágafellskirkju af séra
Pálma Matthíassyni Eydís Gunnars-
dóttir og Þorsteinn Benonýsson.
Heimili þeirra er að Dvergabakka 26,
Reykjavík.
Ljósmyndast. Sigríðar.Bachmann.
Hjónaband
Þann 20. maí voru gefin saman í
hjónaband í Lágafellskirkju af séra
Braga Friðrikssyni Hrafnhildur
Sveinsdóttir og Einar Sveinn Magn-
ússon. Heimiii þeirra er að Greni-
byggð 29, Mosfells'bæ.
Ljósm. Lára Long.
Þann 20. júlí voru gefin saman í
hjónaband í Háteigskirkju af séra
Hjalta Guðmundssyni Kristín Ragn-
arsdóttir og Lárus Kr. Jónsson. Þau
em til heimihs í Reykjavík.
Ljósmyndast. Sigríðar Bachmann.
§g|l||
DV
904-1700
Verð aöeins 39,90 mín.
1) Fótbolti
2 j Handbolti
3 [ Körfubolti
4 Enski boltinn
5 : ítalski boltinn
6 j Þýski boltinn
. 7 [ Önnur úrslit
8 NBA-deildin
lj Vikutilboð
stórmarkaðanna
2 j Uppskriftir
1 Læknavaktin
2 jApótek
3 j Gengi
lj Dagskrá Sjónvarps
j 2 j Dagskrá Stöðvar 2
3 j Dagskrá rásar 1
4 [ Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
Myndbandagagnrýni
ísl. listinn
-topp 40
7] Tónlistargagnrýni
8} Nýjustu myndböndin
=L wMBMmír
lj Krár
2 I Dansstaöir
3 j Leikhús
41 Leikhúsgagnrýni
■5J Bíó
6 Kvikmyndagagnrýni
g«ii.i.ii.iiM.nlBHa
II Lottó
'2 \ Víkingalottó
3 j Getraunir
904-1700
Verö aðeins 39,90 mín.