Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 6
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 JL>"V
Stuttar fréttir
JarðskjáHtiíJapan
Jarðskjálfti, sem mældist 5,6
stig á Richterkvarða, skók Japan
í gær. Skemmdir voru óverulegar
en varað var viö öflugri skjálft-
um.
Friðurekkitryggður
Richard
Iíolbrookc,
sendifulltrúi
Sameinuðu
þjóðanna, var-
aði við að
vopnahlés-
samningur í
Bosniu þýddi
aö friður kæmi
fyrrum Júgóslavíu. Þúsundir
króatískra hermanna hafa farið
inn í Bosníu undanfarið og nálg-
ast Bihac, vigi Serba.
Claessætiákæru
Hæstiréttur í Belgíu hefur tjáð
þinginu að Willy Claes ætti að
sæta ákæru í tengslum víð Aug-
osta-þyrluhneysklið.
Frelsafanga
ísraelar sögðust ætla að láta
1.200 palestlnska fanga lausa í
næstu viku en konur yrðu ekki
náðaðar. PLO segir það brot á
samningunum um sjálfstjórn á
Vesturbakkanum.
Sprengjutilræði í París
Sprengja sprakk í öskutunnu á
götu i París og særði 12 manns
litillega, skömmu eftir að meint-
ur múslímskur sprengjuvargur
var jarðaður.
Páfigagnrýnir
Páfi sagði í
ræðu í New
York aö banda-
rískt þjóðfélag
væri aö sundr-
ast vegna álags
sem fylgdi
skilnuðum og
fjölda fjöl-
skyldna einstæðra foreldra.
Hann sagði velmegunina ekki
hylja þjáningar fjölda Banda-
ríkjamanna.
SkotiðíTokyo
Skotum var hleypt af utan við
höfuöstöðvar sórtrúarsafnaðar-
ins Æösta sannleiks í Tokyo þeg-
ar mannfjöldi safnaðist saman til
að fylgjast með handtökum.
Mýkri gagnvart Kúbu
Clinton Bandaríkjaforseti til-
kynnti að hann mundi slaka á
hömlum gagnvart Kúbu í von um
að auka viðskipti milli landanna.
Heilsa gísla versnar
Heilsufar vestrænu gíslanna
sem eru í haldi skæruliöa i Kash-
mir fer versnandi með kólnandi
veðri og auknu andlegu álagi.
EHruðepli
Rannsókn í Danmörku sýnir aö
fjórða hvert epli er eitrað af völd-
um skordýraeiturs. Keuter
Vöruverð erlendis:
Bensínið á
niðurleið
Dow Jones hlutabréfavísitalan í
New York hækkaöi lítillega á
fimmtudag eftir lækkun þrjá daga í
röð. Lækkunin var til komin vegna
ótta fjárfesta við slakar afkomutölur
fyrirtækja á þriðja ársfjóröungi en
tiltrúin á markaðinn jókst á fimmtu-
dag með fyrrgreindum afleiðingum.
Overulegar breytingar urðu á
hlutabréfavísitölum annarra helstu
kauphalla heims. Þó náði Hang Seng
vísitalan í Hong Kong sögulegu há-
marki sínu sl. miðvikudag þegar hún
fór í 9939 stig. Bensín á heimsmark-
aði lækkaði nokkuð í vikunni, eink-
um92og98oktanabensín. -Reuter
Réttað í morðmáli aldarinnar 1 Englandi:
Misnotuðu stúlkur og
myrtu sér til ánægju
Ógnvænlegar upplýsingar komu
fram í morðmáli Rosemary West, 41
árs móður sem ákærð er fyrir að
hafa misnotað og myrt tíu ungar
stúlkur og stúlkubörn, í rétti í Win-
chester á Englandi í gær. Saksóknari
lýsti í smáatriðum hvernig West og
fyrrum eiginmaður hennar, sem
hengdi sig í fangaklefa sínum sl. ný-
ársdag, misnotuðu sér til ánægju og
myrtu ungar stúlkur, hjuggu síðan
líkin í parta og grófu þau víðs vegar
um húsið eða úti í garði. Þegar morð-
máli aldarinnar í Bandaríkjunum
virðist lokið tekur ekki betra við í
Englandi.
Saksóknari sagði að síðustu stund-
irnar sem stúlkurnar voru á lífi
hefðu þær veriö fórnarlömb kynferð-
islegra fýsna West-hjónanna sem
virtust takmarkalausar. Meðan
stúlkumar voru misnotaðar voru
þær bundnar og keflaðar. Líkin voru
grafin eins og hvert annaö rasl í
kjallaranum, á baðherberginu eða í
garðinum.
Morðferill Rosemary er talinn hafa
byrjað 1977, þegar hún.var 15 ára, en
þá drap hún Charminu, 8 ára stjúp-
dóttur sína sem hún þoldi ekki. Ann-
að fómarlamb er Heather, dóttir
West-hjónanna, sem sást síðast á lífi
1978, þá 16 ára gömul. Þau sögðu
nágrönnunum að hún hefði flust að
heiman en lík hennar fannst í bak-
garðinum.
Hryllingurinn í réttarsalnum náði
hámarki þegar upplýst var aö eitt
fórnarlambanna, leigjandi þeirra
hjóna, hefði verið komið níu mánuði
á leið. Nágranni West-hjónanna segir
þau hafa rætt um ungar stúlkur sem
þau rændu og að enginn mundi
sakna puttalinga. Líkamsleifar sviss-
neskrar stúlku, sem var á ferðalagi
í Englandi, fundust í kjallara húss-
ins.
Þær stúlkur sem voru auðmýktar
og svo hræddar að þær þorðu ekki
að segja frá sluppu lifandi úr klóm
MAL ROSEMARY WEST
Cromwellstræti 25,
Gloucester
í Englandi eru hafin málaferli yfir Rosemary West
sem ákærð er fyrir að hafa myrt tíu ungar konur
og barnungar stúlkur. Líkin fundust grafin
heima hjá West-hjónunum í Gloucester í
vesturhluta Englands.
Staðsetning líkanna að Cromwellstræti nr. 25
KJALLARI
(Undir upphallegri byggingu)
Niðurgrafinn að hluta.
Fimm lík fundust
undir steingólfi
VIÐBYGGING
Byggð ólöglega
á síðastliðnum
20 árum
BAÐHERBERGI
Gömlum bílskúr breytt
í baðherbergi. Eitt lík
fannst undir steingólfi
STÉTTI' BAKGARÐI
Þrjú lík fundust undir
gangstéttarhellum
Þrjú lik fundust á lyrrum
heimilum West-hjónanna
1. Shirley Hubbard
2. Juanita Mott
3. Carol Ann Cooper
4. Therese Siegenthaler
5. Lucy Partington
6. LyndaGough
7. Alison Chambers
8. Shirley Robinson
9. HeatherWest
REUTER
West-hjónanna. Þær sem voru illa
farnar eftir misnotkunina eða hót-
uðu að segja frá voru myrtar.
Caroline Owens lenti í klóm West-
hjónanna en slapp þar sem hún lof-
aði að kjafta ekki frá. En hún fór
rakleiðis til lögreglunnar og kærði
hjónin. Það var þó ekki fyrr en
nokkrum árum seinna að uppgröftur
lögreglunnar á lóö hjónanna hófst
og hryllilegar staðreyndir blöstu við
lögreglumönnum.
West segist saklaus af ákærunum
og felldi stöku tár meðan lestur sak-
sóknara fór fram. En hreinan hryll-
ing mátti hins vegar lesa úr andlitum
kviðdómenda, átta karla og fjögurra
kvenna.
Hillir undir lok valdatíma breska Ihaldsflokksins?
Blair sigurviss eftir
vel heppnað f lokksþing
Mikil sigurvissa einkenndi flokks-
þing breska Verkamannaflokksins
sem lauk í gær. Voru þingfulltrúar
vissir um að Verkamannaflokkurinn
kæmist loks til valda eftir 16 ára
stjórnartíð íhaldsflokksins.
Fyrir flokksþingið var búist við mik-
illi óánægju úr herbúðum vinstriarms
flokksins þar sem mönnum fannst Bla-
ir fara helst til geyst inn á miðju stjórn-
málanna og kasta sósíalískum gildum
gamalla foringja fyrir róða. En Blair
varð ekki fyrir einu einasta áfalli og
stóð uppi sem sigurvegari. Þingið
studdi stefnu Blairs í launamálum,
skólamálum og tillögur um breytta
kosningalöggjöf.
John Prescott, varaformaður
flokksins, gerði lítið úr John Major
forsætisráðherra, sagði að honum
væri nær að flýta sér heim í kjör-
dæmið sitt og undirbúa sig fyrir
stjórnarandstöðuna. Reyndar er
búist við mikilh bjartsýni á flokks-
þingi íhaldsflokksins í Blackpool um
næstu helgi þrátt fyrir að flokkurinn
sé 20 prósentustigum undir Verka-
mannaflokkknum i skoðanakönnun-
um. En það kann að ergja íhalds-
menn að Geoffrey Howe, fyrrum ráð-
herra í ríkisstjórn Majors, sagði aö
það yrði erfitt að sigra Verkamanna-
flokkinn í kosningum. Þá birtist vin-
samleg blaðagrein úr herbúöum
íhaldsmanna þar sém formaður
fjölmiðlafyrirtækisins Associated
Newspaper gaf i skyn að' blað hans,
Daily Mail, mundi styðja Verka-
mannaflokkinn. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
4800 lonpti
4^14700
Framfaraflokk*
urinn klofnar
Pia Kjærsgaard, fyrrum form-
aður Framfaraflokksins í Dan-
mörku, hefur sagt skilið við
flokkinn ásamt þremur öðrum
þingmönnum og stofnað nýjan
stjórnmálaflokk. Hinn nýi flokk-
ur heitír Danski þjóðarflokkur-
inn. Klofningurinn verður eftir
langa valdabaráttu þar sem
harðlinumenn og hófsamir hafa
tekist á.
Mogens Glistrup stofnaði
Framfaraflokkinn sem var einn
fyrsti sfjóramálaflokkurinn í
Evrópu sem Iiafði það að megin-
markmiði að berjast gegn skött-
um. Pia Kjærsgaard, sem velti
Glistrup úr formannsstólnum
1992, er fulltrúi hófsamari arms
flokksins.
Leigumál
Juppesskoðuð
Rannsókn
saksóknara á
leigumálum
Alains Juppes,
forsætisráð-
herra Frakk-
lands, skók
fjármálamark-
aði í París og
London en lögmenn Juppes full-
yrtu að rannsóknin þyrfti ekki
að leiða til ákæru. Rannsóknin
er framkvæmd eftir að samtök
skattgreiðenda kærðu Juppe fyr-
ir brot á iögum þar sem hann
hafði lækkað leigu á húsnæði
sonar síns og leigt sjálfur íbúð af
Parísarborg á sama tima og hann
var fjármálastjóri borgarinnar. í
gær átti að yfirheyra fyrrum
embættismann borgarinnar sem
fullyrðir að Juppe hafi haft bein
afskipti af leiguupphæð á fiölda
ibúða í eigu Parísarborgar, þar á
meðal á sinni eigin íbúð.
Einkamál gegn
OJ.Simpson
Faöir Rons Goldmans, þess sem
myrtur var ásamt Nicole Brown
Simpson, hefur ákveðið að höfða
einkamál gegn ruðningshetjunni
O. J. Simpson þar sem hann verð-
ur ákærður fyrir óréttlátan
dauða Rons og Nicole. Slík mála-
ferh geta kostað Simpson milijón-
ir dollara. Verjandi Simpsons,
Johnnie Cochran, hvatti fiöl-
skyldur Nicole og Rons til að falla
frá áformum um höfðun einka-
máls en faðir Rons lætur sér ekki
segjast. Simpson á ekki fangelsi
yfir höfði sér í einkamáli en hann
gæti orðið tilneyddur til að bera
vitni og þarf að vera meira en
yfir ailan vafa hafinn til að sann-
færa kviðdóm um sakleysi sitt.
Aðstandendur Nicole ætla ekki
að höfða einkamál gegn Simpson
þar sem slík málaferli gætu kom-
ið niður á sonum hans og Nicole.
Skarsjálfuraf
sérliminn
Tæplega sjötugur maður, sem
sagði lögreglu í New York að vænd-
iskona hefði skoríö af sér liminn
vegna þess að hann neitaði að
borga henni, viðurkenndi í gær að
sagan væri uppspuni. Sannleikur-
inn er að hann slysaðist til að skera
sjálfur af sér liminn en þorði ekki
að segja neinum frá því af ótta viö
að vera talinn geðveikur.
Maðurinn býr tU gítara í ibúð
sinni og hafði veríð að tálga gítar-
liáls þegar flugbeittur hnífurinn
rann til og hafnaði milli fóta hans.
Maðurinn var færður á sjúkra-
hús en lögregla fann hvorki
vændiskonuna né hinn afskorna
likamshluta. Það var ekki fyrr en
bróðir mannsins fann iiminn í
matvælakassa heima hjá honum
að í fiós kom hvernig í öllu lá.
Skundaði bróöirinn á sjúkrahús-
ið en þá var orðið um seinan að
framkvæma ágræðslu. Reutcr