Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 JL>"V Stuttar fréttir JarðskjáHtiíJapan Jarðskjálfti, sem mældist 5,6 stig á Richterkvarða, skók Japan í gær. Skemmdir voru óverulegar en varað var viö öflugri skjálft- um. Friðurekkitryggður Richard Iíolbrookc, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna, var- aði við að vopnahlés- samningur í Bosniu þýddi aö friður kæmi fyrrum Júgóslavíu. Þúsundir króatískra hermanna hafa farið inn í Bosníu undanfarið og nálg- ast Bihac, vigi Serba. Claessætiákæru Hæstiréttur í Belgíu hefur tjáð þinginu að Willy Claes ætti að sæta ákæru í tengslum víð Aug- osta-þyrluhneysklið. Frelsafanga ísraelar sögðust ætla að láta 1.200 palestlnska fanga lausa í næstu viku en konur yrðu ekki náðaðar. PLO segir það brot á samningunum um sjálfstjórn á Vesturbakkanum. Sprengjutilræði í París Sprengja sprakk í öskutunnu á götu i París og særði 12 manns litillega, skömmu eftir að meint- ur múslímskur sprengjuvargur var jarðaður. Páfigagnrýnir Páfi sagði í ræðu í New York aö banda- rískt þjóðfélag væri aö sundr- ast vegna álags sem fylgdi skilnuðum og fjölda fjöl- skyldna einstæðra foreldra. Hann sagði velmegunina ekki hylja þjáningar fjölda Banda- ríkjamanna. SkotiðíTokyo Skotum var hleypt af utan við höfuöstöðvar sórtrúarsafnaðar- ins Æösta sannleiks í Tokyo þeg- ar mannfjöldi safnaðist saman til að fylgjast með handtökum. Mýkri gagnvart Kúbu Clinton Bandaríkjaforseti til- kynnti að hann mundi slaka á hömlum gagnvart Kúbu í von um að auka viðskipti milli landanna. Heilsa gísla versnar Heilsufar vestrænu gíslanna sem eru í haldi skæruliöa i Kash- mir fer versnandi með kólnandi veðri og auknu andlegu álagi. EHruðepli Rannsókn í Danmörku sýnir aö fjórða hvert epli er eitrað af völd- um skordýraeiturs. Keuter Vöruverð erlendis: Bensínið á niðurleið Dow Jones hlutabréfavísitalan í New York hækkaöi lítillega á fimmtudag eftir lækkun þrjá daga í röð. Lækkunin var til komin vegna ótta fjárfesta við slakar afkomutölur fyrirtækja á þriðja ársfjóröungi en tiltrúin á markaðinn jókst á fimmtu- dag með fyrrgreindum afleiðingum. Overulegar breytingar urðu á hlutabréfavísitölum annarra helstu kauphalla heims. Þó náði Hang Seng vísitalan í Hong Kong sögulegu há- marki sínu sl. miðvikudag þegar hún fór í 9939 stig. Bensín á heimsmark- aði lækkaði nokkuð í vikunni, eink- um92og98oktanabensín. -Reuter Réttað í morðmáli aldarinnar 1 Englandi: Misnotuðu stúlkur og myrtu sér til ánægju Ógnvænlegar upplýsingar komu fram í morðmáli Rosemary West, 41 árs móður sem ákærð er fyrir að hafa misnotað og myrt tíu ungar stúlkur og stúlkubörn, í rétti í Win- chester á Englandi í gær. Saksóknari lýsti í smáatriðum hvernig West og fyrrum eiginmaður hennar, sem hengdi sig í fangaklefa sínum sl. ný- ársdag, misnotuðu sér til ánægju og myrtu ungar stúlkur, hjuggu síðan líkin í parta og grófu þau víðs vegar um húsið eða úti í garði. Þegar morð- máli aldarinnar í Bandaríkjunum virðist lokið tekur ekki betra við í Englandi. Saksóknari sagði að síðustu stund- irnar sem stúlkurnar voru á lífi hefðu þær veriö fórnarlömb kynferð- islegra fýsna West-hjónanna sem virtust takmarkalausar. Meðan stúlkumar voru misnotaðar voru þær bundnar og keflaðar. Líkin voru grafin eins og hvert annaö rasl í kjallaranum, á baðherberginu eða í garðinum. Morðferill Rosemary er talinn hafa byrjað 1977, þegar hún.var 15 ára, en þá drap hún Charminu, 8 ára stjúp- dóttur sína sem hún þoldi ekki. Ann- að fómarlamb er Heather, dóttir West-hjónanna, sem sást síðast á lífi 1978, þá 16 ára gömul. Þau sögðu nágrönnunum að hún hefði flust að heiman en lík hennar fannst í bak- garðinum. Hryllingurinn í réttarsalnum náði hámarki þegar upplýst var aö eitt fórnarlambanna, leigjandi þeirra hjóna, hefði verið komið níu mánuði á leið. Nágranni West-hjónanna segir þau hafa rætt um ungar stúlkur sem þau rændu og að enginn mundi sakna puttalinga. Líkamsleifar sviss- neskrar stúlku, sem var á ferðalagi í Englandi, fundust í kjallara húss- ins. Þær stúlkur sem voru auðmýktar og svo hræddar að þær þorðu ekki að segja frá sluppu lifandi úr klóm MAL ROSEMARY WEST Cromwellstræti 25, Gloucester í Englandi eru hafin málaferli yfir Rosemary West sem ákærð er fyrir að hafa myrt tíu ungar konur og barnungar stúlkur. Líkin fundust grafin heima hjá West-hjónunum í Gloucester í vesturhluta Englands. Staðsetning líkanna að Cromwellstræti nr. 25 KJALLARI (Undir upphallegri byggingu) Niðurgrafinn að hluta. Fimm lík fundust undir steingólfi VIÐBYGGING Byggð ólöglega á síðastliðnum 20 árum BAÐHERBERGI Gömlum bílskúr breytt í baðherbergi. Eitt lík fannst undir steingólfi STÉTTI' BAKGARÐI Þrjú lík fundust undir gangstéttarhellum Þrjú lik fundust á lyrrum heimilum West-hjónanna 1. Shirley Hubbard 2. Juanita Mott 3. Carol Ann Cooper 4. Therese Siegenthaler 5. Lucy Partington 6. LyndaGough 7. Alison Chambers 8. Shirley Robinson 9. HeatherWest REUTER West-hjónanna. Þær sem voru illa farnar eftir misnotkunina eða hót- uðu að segja frá voru myrtar. Caroline Owens lenti í klóm West- hjónanna en slapp þar sem hún lof- aði að kjafta ekki frá. En hún fór rakleiðis til lögreglunnar og kærði hjónin. Það var þó ekki fyrr en nokkrum árum seinna að uppgröftur lögreglunnar á lóö hjónanna hófst og hryllilegar staðreyndir blöstu við lögreglumönnum. West segist saklaus af ákærunum og felldi stöku tár meðan lestur sak- sóknara fór fram. En hreinan hryll- ing mátti hins vegar lesa úr andlitum kviðdómenda, átta karla og fjögurra kvenna. Hillir undir lok valdatíma breska Ihaldsflokksins? Blair sigurviss eftir vel heppnað f lokksþing Mikil sigurvissa einkenndi flokks- þing breska Verkamannaflokksins sem lauk í gær. Voru þingfulltrúar vissir um að Verkamannaflokkurinn kæmist loks til valda eftir 16 ára stjórnartíð íhaldsflokksins. Fyrir flokksþingið var búist við mik- illi óánægju úr herbúðum vinstriarms flokksins þar sem mönnum fannst Bla- ir fara helst til geyst inn á miðju stjórn- málanna og kasta sósíalískum gildum gamalla foringja fyrir róða. En Blair varð ekki fyrir einu einasta áfalli og stóð uppi sem sigurvegari. Þingið studdi stefnu Blairs í launamálum, skólamálum og tillögur um breytta kosningalöggjöf. John Prescott, varaformaður flokksins, gerði lítið úr John Major forsætisráðherra, sagði að honum væri nær að flýta sér heim í kjör- dæmið sitt og undirbúa sig fyrir stjórnarandstöðuna. Reyndar er búist við mikilh bjartsýni á flokks- þingi íhaldsflokksins í Blackpool um næstu helgi þrátt fyrir að flokkurinn sé 20 prósentustigum undir Verka- mannaflokkknum i skoðanakönnun- um. En það kann að ergja íhalds- menn að Geoffrey Howe, fyrrum ráð- herra í ríkisstjórn Majors, sagði aö það yrði erfitt að sigra Verkamanna- flokkinn í kosningum. Þá birtist vin- samleg blaðagrein úr herbúöum íhaldsmanna þar sém formaður fjölmiðlafyrirtækisins Associated Newspaper gaf i skyn að' blað hans, Daily Mail, mundi styðja Verka- mannaflokkinn. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis 4800 lonpti 4^14700 Framfaraflokk* urinn klofnar Pia Kjærsgaard, fyrrum form- aður Framfaraflokksins í Dan- mörku, hefur sagt skilið við flokkinn ásamt þremur öðrum þingmönnum og stofnað nýjan stjórnmálaflokk. Hinn nýi flokk- ur heitír Danski þjóðarflokkur- inn. Klofningurinn verður eftir langa valdabaráttu þar sem harðlinumenn og hófsamir hafa tekist á. Mogens Glistrup stofnaði Framfaraflokkinn sem var einn fyrsti sfjóramálaflokkurinn í Evrópu sem Iiafði það að megin- markmiði að berjast gegn skött- um. Pia Kjærsgaard, sem velti Glistrup úr formannsstólnum 1992, er fulltrúi hófsamari arms flokksins. Leigumál Juppesskoðuð Rannsókn saksóknara á leigumálum Alains Juppes, forsætisráð- herra Frakk- lands, skók fjármálamark- aði í París og London en lögmenn Juppes full- yrtu að rannsóknin þyrfti ekki að leiða til ákæru. Rannsóknin er framkvæmd eftir að samtök skattgreiðenda kærðu Juppe fyr- ir brot á iögum þar sem hann hafði lækkað leigu á húsnæði sonar síns og leigt sjálfur íbúð af Parísarborg á sama tima og hann var fjármálastjóri borgarinnar. í gær átti að yfirheyra fyrrum embættismann borgarinnar sem fullyrðir að Juppe hafi haft bein afskipti af leiguupphæð á fiölda ibúða í eigu Parísarborgar, þar á meðal á sinni eigin íbúð. Einkamál gegn OJ.Simpson Faöir Rons Goldmans, þess sem myrtur var ásamt Nicole Brown Simpson, hefur ákveðið að höfða einkamál gegn ruðningshetjunni O. J. Simpson þar sem hann verð- ur ákærður fyrir óréttlátan dauða Rons og Nicole. Slík mála- ferh geta kostað Simpson milijón- ir dollara. Verjandi Simpsons, Johnnie Cochran, hvatti fiöl- skyldur Nicole og Rons til að falla frá áformum um höfðun einka- máls en faðir Rons lætur sér ekki segjast. Simpson á ekki fangelsi yfir höfði sér í einkamáli en hann gæti orðið tilneyddur til að bera vitni og þarf að vera meira en yfir ailan vafa hafinn til að sann- færa kviðdóm um sakleysi sitt. Aðstandendur Nicole ætla ekki að höfða einkamál gegn Simpson þar sem slík málaferli gætu kom- ið niður á sonum hans og Nicole. Skarsjálfuraf sérliminn Tæplega sjötugur maður, sem sagði lögreglu í New York að vænd- iskona hefði skoríö af sér liminn vegna þess að hann neitaði að borga henni, viðurkenndi í gær að sagan væri uppspuni. Sannleikur- inn er að hann slysaðist til að skera sjálfur af sér liminn en þorði ekki að segja neinum frá því af ótta viö að vera talinn geðveikur. Maðurinn býr tU gítara í ibúð sinni og hafði veríð að tálga gítar- liáls þegar flugbeittur hnífurinn rann til og hafnaði milli fóta hans. Maðurinn var færður á sjúkra- hús en lögregla fann hvorki vændiskonuna né hinn afskorna likamshluta. Það var ekki fyrr en bróðir mannsins fann iiminn í matvælakassa heima hjá honum að í fiós kom hvernig í öllu lá. Skundaði bróöirinn á sjúkrahús- ið en þá var orðið um seinan að framkvæma ágræðslu. Reutcr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.