Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 JLj"V Gerðu rannsókn á kynlífi ungs fólks: Karlar hafa meiri kynlífs löngun en konur - samkvæmt svörum fjögur hundruð háskóla- og framhaldsskólanema „Okkur langaöi að skoða mál tengd unglingum, sérstaklega sjálfs- mynd unglinga. Síðan þróaðist það í kynlíf ungs fólks og hvernig sjálfs- virðing og líkamsímynd tengdust því. Hópurinn var þó heldur eldri en við ætluðum í fyrstu en það var til að fá úrtak sem líkast til hefði einhverja kynlífsreynslu,“ segir Andrea Dofradóttir sem ásamt Mar- gréti Kristjánsdóttur, gerði BA rannsókn á 400 manns í framhalds- skólum og Háskóla ísland um kyn- líf, sjálfsvirðingu og líkamsímynd og tengslin þar á milli. Könnunin er BA-verkefni þeirra í sálfræði í Há- skóla íslands undir leiðsögn dr. Friðriks H. Jónssonar og dr. Þorláks Karlssonar. „Fólkið í könnuninni var á aldr- inum sextán ára til þrítugs,“ segir Andrea. „Það reyndist ekkert erfitt að fá fólk til að svara spurningun- um. Við sóttum um leyfi til tölvu- nefndar og leyfið var veitt gegn því að könnunin yrði nafnlaus og ómerkt umslag fylgdi með spurn- ingalistanum. Síðan fórum við í skólana og báðum fólk að svara. Það gekk mjög vel. Meðal annars fórum við inn á fyrirlestur í Háskólabíói og fengum nemendur til að svara spurningunum í lok tímans. Reynd- ar átti kvikmyndasýning að hefjast i salnum um flmmleytið og því var tíminn naumur. Það endaði með því að dyravörður bíósins þurfti að reka mannskapinn út en fólkið fór ekki fyrr en það var búið að svara öllum spurningunum. Við fengum því mjög jákvæð viðbrögð hjá þeim sem tóku þátt í rannsókninni.“ Sjálfsvirðing tengist kynlífsvirkni „Þar sem úrtakið er aðeins fjögur hundruð manns getum við ekki al- hæft um niðurstöðumar en könnun- in gefur ákveðnar vísbendingar,“ segir Andrea. „Það sem kom okkur kannski mest á óvart í niðurstööunum var að við gerðum ráð fyrir að líkamsí- mynd hefði meiri áhrif á virkni í kynlifi. Við mældum virknina í kynlífi með fjölda rekkjunauta og aldur við fyrstu kynmök. Líkamsí- mynd tengist ekki kynlífsvirkni en sjálfsvirðing gerir það aftur á-móti sterkt.“ Andrea segir að þær Margrét hafi haft ýmsar rannsóknir til grundvall- ar könnuninni. „Okkar könnun er þó fjölbreytilegri. Við lögðum áherslu á líkamsímynd og sjálfsvirð- ingu, tengsl við vini, fjölskyldu og ættingja. Einnig spurðum við um áfengisnotkun í sambandi við kyn- líf, um sjálfsfróun, viðhorf og róm- antíska þætti. Það kom t.d. í ljós að konur eru rómantískari í hugmynd- um sínum um kynlíf en karlar. Þær eru líka opnari að ræða kynlíf. Hins vegar virðast karlar hafa meiri kyn- lífslöngun, þeir eiga fleiri rekkju- nauta og stunda frekar sjálfsfróun. Karlmenn hafa ekki eins afgerandi afstöðu til kynlífs t.d. um vændi og framhjáhald. Þeim fannst reyndar rangt að stunda vændi og framhjá- hald en konum fannst það almennt mjög rangt. Þá kom í ljós að karlar voru neikvæðari gagnvart samkyn- Andrea Dofradóttir, nemi í sálfræði- deild Háskóla íslands, gerði könnun á kynlífshegðun ungs fólks á ís- landi. Könnunin var BA-verkefni hennar og Margrétar Kristjánsdótt- ur. DV-mynd GVA hneigðu fólki heldur en konur. Það mætti því álykta sem svo að konur hugsi meira um tilfinningalegu þættina sem tengjast kynlífi. Það má segja að könnunin sýni að það eru ólíkir þættir sem liggja til grundvallar kynlífi karla og kvenna.“ Öðruvísi könnun Andrea er að ljúka sálfræði í Há- skóla íslands og starfar á unglinga- sambýli en Margrét er í doktors- námi í Bandaríkjunum. Að sögn Andreu er það nokkuð algengt að nemendur vinni saman að rann- sóknum fyrir BA-ritgerð í sálfræði. „Það var hins vegar algengara áður fyrr að einn nemandi skrifaði heim- ildarritgerð en nú er þetta oft sam- vinna milli tveggja nemenda ef um rannsókn er að ræða.“ Andrea segir að þær kynlífskann- anir sem gerðar hafa verið séu með tilliti til áhættuþátta eins og al- næmi. í þessari könnun er meiri áhersla lögð á sálfræðiþáttinn eða eins og segir í inngangi verkefnis- ins: „Rannsóknir á kynlífi hafa flest- ar verið gerðar í þeim tilgangi að kortleggja kynlíf eða til að kanna áhættuhegðun sem getur leitt til kynsjúkdóma og ótímabærrar þung- unar. Aftur á móti hefur minna ver- ið gert af því að rannsaka tengsl kynlífs við sálfræðilega þætti á borð við sjálfsvirðingu og líkamsímynd. Ekki er ólíklegt að andleg líðan og sjálfsmynd hafi áhrif á kynlíf. Sýnt hefur verið fram á að lítil sjálfsvirð- ing hefur fylgni við ýmiss konar áhættuhegðun, eins og t.d. flkni- efnanotkun, ofdrykkju, afhrotahegð- un og áhættusamt kynlíf. Líkamsí- mynd tengist sjálfsvirðingu og hafa rannsóknir sýnt að líkamsímynd hefur áhrif á kynlíf.“ Meðalaldur fyrstu kynmaka 16 ár Samkvæmt könnun Andreu og Margrétar, sem ætti að gefa ein- hverja vísbendingu, höfðu konur að meðaltali minni sjálfsvirðingu held- ur en karlar. íþróttaiðkun var meiri hjá körlum en konum en konumar töldu sig frekar þurfa aö grennast. Þess ber að geta að úrtakið í könnuninni var aðeins 400 manns. Rúmlega 15% þeirra sem svömðu höfðu aldrei haft kynmök og vom karlar þar tveir af hveijum þremur. Meðal þeirra sem höfðu haft kyn- mök var meðalaldur við fyrstu kyn- Margrét Kristjánsdóttir vann að kyn- lífsrannsókninni með Andreu en hún er nú í doktorsnámi í Bandaríkj- unum. mök 16 ár og 2 mánuðir. Ekki reynd- ist munur á meðalaldri kynja við fyrstu kynmök en munur var á með- alaldri rekkjunauta kynjanna við fyrstu kynmök. Hjá konum var með- alaldur fyrsta rekkjunautar 18 ár og 2 mánuðir en hjá körlum var meðal- aldur fyrsta rekkjunautar 16 ár og 2 mánuðir. Sjö til átta rekkjunautar Ástæða fyrstu kynmaka reyndist ólík meðal kynja. Algengasta ástæða karla reyndist vera forvitni en önn- ur algengasta ástæðan að þeir vildu missa sveindóminn eða að þeir hafi verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Algengasta ástæða kvenna var forvitni en einnig að þær hafi verið ástfangnar. Önnur mikilvægasta ástæða kvenna fyrir fyrstu kynmökunum var að þau hefðu virst eðlileg framvinda í samskiptunum. Stærsti hópurinn eða 33,8% var hvorki ánægður né óánægður með sín fyrstu kynmök. Tæplega helm- ingur eða 47% var undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna við fyrstu kynmök og einungis 15% höfðu skipulagt þau. Þeir sem ekki voru undir áhrifum áfengis voru ánægðari með fyrstu kynmökin en hinir. Einnig var munur á sjálfs- virðingu kvenna sem höfðu verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna við sín fyrstu kynmök og þeirra sem voru alsgáðar. Fjöldi rekkjunauta var að meðal- tali sjö til átta hjá þeim sem höfðu þegar haft kynmök en helmingur þeirra 50% hafði þó aðeins sofið hjá einum til fjórum og 5% hafði átt fleiri en 20 rekkjunauta. Af þeim sem höfðu haft kynmök höfðu einungis 8% aldrei verið í fóstu sambandi en af þeim sem höfðu verið á fóstu höfðu 85,6% ver- ið í einu til þremur samböndum. Af þeim sem höfðu haft kynmök höfðu 25,3% aldrei haft skyndikynni, 34,4% haft ein til tvenn skyndikynni og 12,8% höfðu haft þrenn til fem skyndikynni. Um 10% höfðu haft fleiri en tíu skyndikynni. Karlar stunda frekar sjálfsfróun Rúmlega 30% svarenda stunduðu ekki sjálfsfróun en hlutfall kynj- anna var þarna gjörólíkt. 47% kvenna stunduðu ekki sjálfsfróun en einungis 19% karla. Karlar fró- uðu sér að meðaltali u.þ.b. einu sinni í viku en konur tvisvar til þrisvar í mánuði. Konur sem fróuðu sér höfðu meiri sjálfsvirðingu en konur sem gerðu það ekki. Langflestir þátttakendur eða 85,0% mátu eigin kynlífsframmi- stöðu fremur góða eða í meðallagi. Einnig reyndust flestir vera fremur ánægðir með kynlíf sitt en þó var þar munur á milli karla og kvenna. Konur eiga erfiðara með að fá full- nægingu en karlar og veldur því senniiega minni virkni þeirra í kyn- mökum samanborið við rekkjunaut því að þær fá síður fullnægingu en ef þær eru virkari. í samantekt þeirra Andreu og Margrétar kemur fram að niður- stöður sýni að ólíkir þættir liggi til grundvallar kynlífi karla og kvenna. Sjálfsvirðing virðist hafa mun meira vægi í kynlífsvirkni og kyn- lífsánægju karla en kvenna. í við- horfum til kynlífs virðist einnig vera skýr kynjamunur þar sem kon- ur virðast fremur meta kynlífssam- skipti á grundvelli tilfmninga en karlar á grundvelli líkamlegrar at- hafnar. Svo virðist vera að algengt sé að unglingar hér á landi byrji aö stunda kyn líf sextán ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.