Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 11
11
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
Bakarar verða með sértilboð á ýmsu góðgæti með sunnudagskaffinu í til-
efni af degi iðnaðarins.
Dagur iðnaðarins:
Opiðhúsí
ýmsum fyr-
irtækjum
endurvinnsla á plasti og litmynda-
prentun á plast.
í Faxafeni eru Max og Sjóklæða-
gerðin með tískusýningu á nýjasta
útivistar- og vinnufatnaðinum og
Brúnás í Ármúla sýnir íslenska inn-
réttingasmíði, þar á meðal glænýja
línu í baðinnréttingum.
Drykkir og matvæli eru síðan á
boðstólum hjá Sól í Þverholtinu en
við Hverflsgötu ræður leðurlyktin
ríkjum í kvennafyrirtækinu Leður-
iðjunni. Þar er hægt að skoða vör-
umar og sjá hvemig þær eru settar
saman.
Landsbyggðin
Þeir sem vuja hafa bíltúrinn í
lengri kantinum ættu að líta inn í
Járnblendiversksmiðjuna á Grund-
artanga. Gestinn er boðið að fara um
alla verksmiðjuna og skoða fram-
leiðsluferilinn.
Á ísafirði em Póls-rafeindavörur
með opið hús og verksmiðjan Stuðla-
flerg á Hofsósi. Á Akureyri taka fjög-
ur fyrirtæki þátt í deginum, auk hár-
greiðslufólks og bakara. Það em
Folda, Gúmmivinnslan, Kaffi-
brennsla Akureyrar og ölgerðin Vik-
ing.
A Egilsstöðum er opið hús hjá Mið-
ási. Á Suðurlandi er opið hjá Alpan
á Eyrarbakka, Kjörís í Hveragerði
og í byggðasafninu á Eyrarbakka
verður eldsmíöi.
Á Reykjanesi er opið hús hjá ís-
lenskum sjóefnum sem stunda salt-
framleiðslu en jarðhiti er notaður við
framleiðsluna.
»
E
Iðnfyrirtæki um allt land halda
sérstakan dag iðnaðarins á morgun.
Fjölskyldan ætti því að geta farið í
sunnudagsbfltúrinn milli hinna
ýmsu fyrirtækja og kynnt sér at-
vinnustarfsemina í landinu. Þetta er
í fyrsta skipti sem slíkur dagur er
haldinn en fyrirtækin verða opin al-
menningi milli klukkan 13 og 15.
fbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa
um tíu fyrirtæki að velja og á lands-
byggðinni eru jafnmörg opin. Þá
verða bakarameistarar með sértilboð
og einnig hársnyrtistofur á Norður-
landi.
Höfuðborgar-
svæðið
Á Ártúnshöfða verða sex fyrirtæki
opin. BM Vallá sýnir nýja steypu-
hlutaverksmiðju, skrúðgaröur
þeirra er opinn og landslagsarkitekt-
ar gefa góð ráð. í Hampiðjunni má
sjá veiðarfæragerð, framleiðslu á
girðingarstaurum úr endurunnu
plasti, börnin fá að gjöf sippuband
og foreldrarnir dráttartóg.
Málningaverksmiðjan Harpa sýnir
áfyllingu og pökkun um leið og
Spaugstofumenn grína. Marel, sem
er einn helsti framleiðandi á raf-
eindatæKjum fyrir matvælaiönað-
inn, sýnir háþróaða tölvutækni og
Prentsmiðjan Oddi verður með full-
an gang á bókbandi sínu og prentun.
í Plastprenti við Fossháls er hægt
að fylgjast með hvemig plastkorn
eru brædd og þeim breytt í alls kyns
plastumbúðir. Einnig verður kynnt
NYJUNGAR
VERÐA KYNNTAR!
að Bitruhálsi,
laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. okt.,
milli kl. 13 og 18.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE
Verið velkomin á Ostadaga um helgina þar sem kynntar verða ýmsar nýjungar í ostagerð.
Boðið verður upp á osta og góðgæti úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar auk þess sem
gestum gefst tœkifœri til að kaupa íslenska gœðaosta á sérstöku kynningarverði.
ÍSLENSKT GÆÐAMAT
Birtar verða niðurstöður íslenska gœðamatsins á ostunum sem teknir voru til mats nú í vikunni.
OSTAMEISTARI ÍSLANDS
Um helgina verður Ostameistari Islands útnefndur.
ALLTUMOSTA T
Ostameistaramir verða á staðnum og sitja fyrir svörum um allt það sem lýtur að ostum og
ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
I OSTARÁ KYNNINGARVERÐI
Gríptu tœkifœrið og kauptu þér íslenska afbragðsosta!
OPIÐ HÚS