Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 12
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
12 erlend bóksjá
Metsölukiljur
1 ••••••••••••••«
Bretland
ÍSkáídsögur:
1. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
2. Tom Clancy:
Debt of Honour.
3. Maeve Blnchy:
The Glass Lake.
4. Patrlcia D. Cornwell:
The Body Farm.
5. Barbara Taylor Bradford:
Everythlng to Gain.
6. Stephen Klng:
Insomnla.
7. Josephlne Cox:
A Llttle Badness.
8. John Irving:
A Son of the Clrcus.
9. Robert James Waller:
The Bridges of Madison County.
10. Danlelle Steel:
Accldent.
Rit almenns eölis:
: 1. lan Botham:
Botham: My Autobiography.
i 2. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
3. Blll Bryson:
Made ln Amerlca.
4. Rlchard Preston:
The Hot Zone.
5. Alan Bennett:
Wrlting Home.
6. Jung Chang:
Wlld Swans.
7. Blll Bryson:
The Lost Contlnent.
8. Peter de la Billiére:
Looklng for Trouble.
9. Stephen Hwklng:
A Brlef Hlstory of Tlme.
10. J. Lowell & J. Kluger:
Apollo 13.
(Byggt á Tho Sunday Tlmes)
Danmörk
1. Jung Chang:
Vllde svaner.
2. Barbara Vine:
Astas bog.
3. Robert J. Waller:
Broerne I Madlson County.
4. Allce Hoffmann:
Lysenes nat.
5. Francesco Alberonl:
Erotlk.
16. Peter Hoeg:
De máske egnede.
7. Llse Norgaard:
Kun en pige.
(Byggt á Polltlken Sondag)
Fimm skáldsögur
í leit að Booker
Það hefur vakið verulega athygli í
Bretlandi síðustu daga að dómnefnd
eftirsóttustu bókmenntaverðlauna
landsins, sem kennd eru við Booker-
fyrirtækið, töldu einungis 5 af 141
nýrri skáldsögu ársins þess virði að
komast í úrslit keppninnar — en
venjulega hafa sex skáldsögur verið
valdar í þann úrvalsflokk. Einkum
þótti þetta merkilegt vegna þess að
ein umtalaðasta skáldsaga ársins,
The Information eftir Marin Amis,
er ekki meðal þeirra fimm sem vald-
ar voru.
En það eru sumsé fimm skáldsög-
ur sem keppa um verðlaunin, sem
jafngilda rúmum tveimur milljón-
um íslenskra króna. í hópi höfund-
anna er ein kona og tveir fyrrver-
andi Booker-verðlaunahafar.
Rushdie og
Unsworth
Þar ber fyrstan að nefna Salman
Rushdie, sem verið hefur i felum
síðustu árin vegna dauðadóms sem
erkiklerkar í íran kváðu upp yfir
honum vegna skáldsögunnar Söngv-
ar Satans.
Rushdie hlaut Booker-verðlaunin
árið 1981 fyrir fyrstu skáldsögu
sína, Midnight Children. Nú er
hann tilnefndur fyrir nýjasta rit-
verk sitt, The Moor’s Last Sigh, sem
sagt var frá í Erlendri bóksjá fyrir
skömmu. Margir spá honum líka
sigri að þessu sinni.
Annar fyrrverandi Booker-verð-
launahafl á líka skáldsögu í úrslita-
keppninni að þessu sinni. Það er
Barry Unsworth sem var annar
tveggja sigurvegara árið 1992 fyrir
sögu um þrælaverslun, Sacret Hun-
Salman Rushdie: flestir spá því að
hann hljóti Booker-verðlaunin
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
ger. Unsworth, sem er 65 ára, fædd-
ist í breskum námubæ en býr nú
ásamt konu sinni á Ítalíu. Nýja sag-
an hans nefnist Morality Play, ger-
ist á fjórtándu öld, fjallar um rann-
sókn á morði á ungum dreng og sið-
laust réttarfar í því máli.
Skáldsaga um
fyrra heimsstríð
Pat Barker er eina konan í þess-
um flmm manna hópi. Hún er 52 ára
og starfaði sem framhaldsskóla-
kennari áður en hún fór að skrifa
sögur. Hún hlaut verðlaun breska
blaðsins Guardian árið 1993 fyrir
skáldsöguna The Eye in the Door.
Barker er nú tilnefnd fyrir The
Ghost Road, sem er þriðja skáldsaga
hennar sem gerist í fyrri heims-
styrjöldinni. Höfuðpersónurnar eru
liðsforingi í breska hernum og sál-
fræðingur sem hefur hann til með-
ferðar.
Hinir tveir höfundarnir koma úr
ólíkumattum.
Annar er Justin Cartwright, en
skáldsaga hans nefnist In Every
Face I Meet. Hann fæddist í Suður-
Afríku, hlaut menntun sina í Banda-
ríkjunum og Oxford, en hefur nú að-
setur í London ásamt konu sinni og
tveimur börnum þeirra. Saga hans
segir frá hversdagslegum Englend-
ingi sem lendir í hræðilegri
martröð.
Hinn er Tim Winton, 35 ára að
aldri, fæddur í Perth í Ástralíu og
býr með konu sinni og þremur
börnum í afskekktu sjávarþorpi þar
í landi. Hann hefur þegar sent frá
sér 13 bækur, þar af nokkrar skáld-
sögur og smásagnasöfn. í tilnefndu
sögunni, sem nefnist The Riders, er
sagt frá Fred Scully sem ætlar að
flytja ásamt konu sinni og dóttur frá
Ástralíu til Irlands. En konan mæt-
ir ekki á flugvöllinn með dótturina
og þegar Scully fer að leita þeirra
víða um Evrópu áttar hann sig á því
hversu lítið hann þekkir i raun eig-
inkonu sína.
Booker-verðlaunin verða afhent 7.
nóvember næstkomandi.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Sidney Sheldon:
Nothlng Lasts Forever.
2 Patrlcla Cornwell:
The Body Farm.
3. Stephen Klng:
Insomnla.
4. Carol Shlelds:
The Stone Dlaries.
5. Celeb Carr:
The Alienlst.
6. Danlelle Steel:
Wings.
7. Tom Clancy:
Debt of Honor.
8. Judlth Mlchael:
A Tangled Web.
9. Phllllp Margolin:
| The Last Innocent Man.
j 10. K.E. Woodlwlss og ftelri:
| Three Weddings and a Klss.
(11. Roger MacBride Allen:
Showdown at Centerpoint.
12 John Grlsham:
ÍThe Chamber.
13. Sandra Brown:
Prime Tlme.
14. Ellzabeth George:
Playlng for the Ashes.
15. John T. Lescroart:
The 13th Juror.
Rit almenns eölis:
1. Tim Allen:
Don’t Stand to Close
To a Naked Man.
2. Richard Preston: The Hot Zone.
3. Mary Plpher:
Reviving Ophella.
4. Thomas Moore:
Care of the Soul.
5. Caleb Carr: The Allenlst.
6. J. Lovell & J. Kluger: Apollo 13.
7. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
8. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
9. LouAnne Johnson:
Dangerous Minds.
10. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird Sings.
< 11. Jill Ker Conway:
True North.
12. Delany, Delany & Hearth:
Havlng Our Say.
13. Balley Whlte:
Mama Makes up Her Mind.
14. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
15. Lao Tzu:
Tao Te Ching.
(Byggt á New Vork Tlmes Book Revlew)
| Svínamergurinn góður
IVísindamönnum hefúr tekist
að fá prímata, en maðurinn
tilheyrir þeim, sem fékk
beinmerg úr svíni græddan í sig,
til að lifa í þrjú hundruð daga.
Það er met. Þetta opnar dyrnar
fyrir nýrri tækni svo að hægt
verði að græða líffæri úr
svínum í menn.
„Þó svo að miklar rannsóknir
séu framundan benda gögnin til
þess að aðferð okkar geti leitt til
öruggrar lausnar á bráðum
1 skorti á líffærum fyrir sjúklinga
; sem þurfa lífsnauðsynlega á
þeim að halda,“ segir David
i Sachs, yfirmaður
líffræðirannsókna á líf-
færaflutningadeild Massachu-
setts sjúkrahússins í Boston.
Til þessa hefur aðeins tekist
að halda þeim, sem hafa fengið
; liffæri úr öðrum tegundum, á
lífl í tuttugu daga.
Þröngum æðum
að kenna
Finnskur læknir, Leena
: Kaúppila, segir að þröngar æðar
kunni að vera orsökin fyrir
; verkjum í mjóhrygg. Slíkir
verkir kosta fyrirtæki mikið fé
i vegna fjarvista starfsmanna.
Leena, sem er
meinafræðingur við
Helsinkiháskóla, segir að
■ krufning hafi leitt í Ijós að æða-
þrengingar séu algengari hjá
i þeim sem höfðu kvartað undan
bakverkjum í lifanda lifi.
Frá þessu var skýrt í breska
: læknablaðinu Lancet.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Síþreytan tengd of
lágum blóðþrýstingi
Síþreyta er dularfullur sjúkdóm-
ur sem lengi hefur valdið vísinda-
mönnum heilabrotum. Eins og
nafnið bendir til eru þeir sem
af honum þjást sífellt þreytt-
ir og í versta falli rúm-
liggjandi. Nú hafa komið
fram vísbendingar um
að síþreytan kunni að
tengjast algengum
kvilla sem veldur
því að líkaminn
stýrir blóðþrýst-
ingnum ekki rétt. (
Vísindamenn
við Johns Hopkins
háskólann i
Bandaríkjunum
rannsökuðu 23
sjúklinga sem þjáð-
úst af síþreytu en 22
þeirra höfðu of lágan
blóðþrýsting. Sextán
þeirra sýndu batamerki
við meðferð sem fólst í
aukinni salt- og vökvainn-
töku til viðbótar við hefð-
bundin lyf til að koma lagi
blóðþrýstinginn.
„Það er mjög sterkt samband
þarna á milli,“ segir Hugh Calkins,
aðalhöfundur greinar sem birtist
um rannsóknina.
Níu sjúklinganna, sem tóku þátt í
rannsókninni, skýrðu frá því að ein-
kenni þeirra hefðu horfið með öllu.
Margir sjúklinganna sögðust hafa
forðast salt til að bæta mataræði sitt
en að sögn vísindamanna kann það
að hafa átt þátt í blóðþrýstingsvand-
ræðunum.
Hugh Calkins varar við því að
niðurstöður rannsóknarinnar séu
aðeins til bráðabirgða. Því þurfi að
fá þær staðfestar í viðameiri rann-
sókn áður en farið verði að beita að-
ferðinni til að lækna síþreytusjúk-
linga í Bandaríkjunum. Um ein
milljón Bandaríkjamanna þjáist af
kvillanum.
Ef niðurstöður vísindamannanna
við Johns Hopkins eru sann-
reyndar munþu þær stað-
festa að ákveðinn hópur
manna eigi á hættu að fá
síþreytueinkenni
vegna þess að líkami
þeirra stjórnar blóð-
þrýstingnum ekki
rétt.
Síþreytan hefur
gjarnan verið
nefnd
„uppaflensa". Það
er oft ungt fólk
sem verður fyrir
barðinu á henni
þegar það er að ná
sér eftir einhvern
veirusjúkdóm. Sjúk-
lingar verða þreklitlir,
vankaðir og eiga erfitt
með að einbeita sér. Sí-
þreyta varir, samkvæmt
skilgreiningu, í að minnsta
kosti sex mánuði en plagar sjúk-
linga þó oft í mörg ár.
Ekki hefur fundist nein veira sem
veldur sjúkdómnum þrátt fyrir
margar tilraunir vísindamanna um
heim allan til að leita hennar. Þess-
ar nýju uppgötvanir munu þó áreið-
anlega verða til þess að margar til-
gátur munu verða settar fram og
prófaðar.
100 desíbel
hættulaus
Mikill hávaði er ekki einasta
hvimleiður heldur getur hann
; einnig skaðað heyrnina. Hins
vegar er hægt að þjálfa upp
mótstöðuafl heyrnarinnar.
Þannig er heym unglinga, sem
hlusta á tónlist, betri en þeirra
sem ekki hlusta.
| „Skýringuna er að finna í
| innra eyranu þar sem hægt er
í að bæta vöðvastarfsemi ákveð-
inna heyrnarfrumna,“ segir
| sænski heyrnarfræðingurinn
Per-Anders Hellström í Gauta-
I borg.
Hann segir að hljóðstyrkur
allt að 100 desíbelum sé ekki
skaðlegur þótt fullorðið fólk
eigi kannski erfitt með að skilja
það þar sem það njóti ekki há-
værrar tónlistar. Hellström seg-
ir að unglingarnir þoli vel og
njóti tónlistar sem er tíu desí-
belum háværari en það sem
hinir fullorðnu þola.
Dýna afstýrir
legusárum
Norskur verkfræðingur,
Audun Haugs, hefur fundið upp
nýja tegund rúmdýnu sem kem-
ur í veg fyrir að sjúklingar fái
legusár.
Dýna þessi er gerð úr plötu af
járnbentum einingum og er lag
af loftrýmum ofan á. Þegar
; rýmin eru fyllt af lofti sveigist
; dýnan en hún flest svo út þegar
loftið er tæmt af. Sjúklingarnir
geta sjálfir stjórnað hreyfingun-
um í undirlaginu.
Uppfinningamaðurinn segir'
að dýnan sé ómetanleg fyrir þá
| sjúklinga sem fá umönnun á
eigin heúnili.