Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Page 17
JL>V LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
17
(Group Teka AG)
blöndunartæki í úrvali
s Frábær vara á gódu verði
Eldhús blöndunartæki einnar handar
Verð frá kr: 5.400.-
Eldhús blöndunartæki
tveggja handa
Verd frá kr: 2.450.-
Antique útlitfyrir böö
handlaugar og eldhtís
króm/gull eöa hvítt/guU
Blöndunartæki fyrir handlaugar með
lyftitappa og botnventli einnar handar
Verð frá kr: 5.400.-
Blöndunartæki fyrir handlaugar með
lyftitappa og botventli tveggja handa
verð frá kr: 3.750.-
Blöndunartæki fyrir böð eða
sturtur tveggja handa
verð frá kr: 3.350.-
Blöndunartæki fyrir bað i
eða sturtu einnar handa jl
verð frá kr: 5.380.-
Ttygging Jyrir Icígu rerði f
Síðumúla 34, Fellsmúlamegin Sími 588 7332
Opnunartími mánudaga 9-18 laugardaga 10-16
Vatnsheimur á Geldinganesi:
Skapar þrjú hundruð
manns vinnu í nokkur ár
„Við leggjum til að byggður verði
vatnsheimur. Talið er að helsti vaxt-
arbroddurinn felist í fjölgun er-
lendra ferðamanna hérlendis og það
vantar alla afþreyingu fyrir þá, eins
og tívolí, vatnaveröld eða eitthvað
slíkt,“ sagði Höm Hrafnsdóttir þeg-
ar hún kynnti tillögu sína, Bergþóru
Kristinsdóttur og Elínar Eggerts-
dóttur.
Vatnsheimurinn á að vera stað-
settur á Geldinganesi og kostnaðar-
áætlun gerir ráð fyrir að hann kosti
rúmlega 12 milljarða og að jafnaði
munu 300 manns vinna við verkið á
verktímanum. Nauðsynlegt er að
finna lausn á einu vandamáli áður
en vatnsheimur rís 'en það er að
honum sé ætluð staðsetning á skipu-
lögðu iðnaðarsvæði.
Líkt og aðrar tillögur er um
glerjað stálgrindarhús að ræða en
samtals milljón lengdarmetrar af
stálprófílum verða í burðargrind
hússins og glerið verður þrefalt ör-
yggisgler. Hitabeltisgróður mun
verða undir þakinu en innréttingar,
sem felast að mestu í sundlaugum,
rennibrautum og öðru slíku, en er
að mestu ómótað, munu kosta 3,3
milljarða sem jafngildir sex Árbæj-
arlaugum. Möguleiki er að hafa lít-
inn píramída við hlið þess stærri
þar sem yrði hótel. Sáu menn þar
hliðstæðu í Keili og Litli-Keilir væri
þar við hliðina.
Verkáætlun gerir ráð fyrir að
framkvæmdir hefjist um mitt ár
1997 og þeim verði lokið utanhúss
um mitt ár 1999 en innanhúss í
ágúst 2001. Vatnsheimur mun hins
vegar ekki verða opnaður fyrr en
laugardaginn 4. maí 2002.
Við kynningu á tillögunni sáu
menn strax þjóðhagslega hag-
kvæmni í henni sem felst í fækkun
utanlandsferða og léttari lund land-
ans.
-PP
Spilavíti í Fossvoginum:
Skautasvell á einni hæð af sjö
Ari Guðmundsson, Hörður Gauti
Gunnarsson, Ragnar Jónsson og
Þórður Sigfússon hönnuðu
píramída sem staðsetja skal í leirun-
um í Fossvogi. Einn ókostur var
strax sjáanlegur en mannvirkið er
440 feta hátt og er það innan örygg-
ismarka vegna flugumferðar um
svæðið.
„Þegar við fórum að skoða svæðið
betur sáum við að mannvirkið
myndi fegra svæðið þótt það þekji
rúmlega 50 þúsund fermetra. Heild-
argólfdötur er hins vegar 157 þús-
und fermetrar á 7 hæðum, með 20
metra lofthæð. Nauðsynlegt er að
steypa 81 sökkul til að halda mann-
virkinu uppi. Burðarvirkið sam-
anstendur af 95 kílómetrum af stál-
bitum og er yfirborðið litað öryggis-
gler,“ sagði Hörður Gauti er hann
kynnti tillöguna sem kostar 16,2
milljarða með virðisaukaskatti.
Hörður og félagar leggja til að
spilavíti verði starfrækt í húsakynn-
unum. í ljósi þess að slíkur rekstur
er ekki löglegur hér á landi og jafn-
framt að hér er um jafn atvinnu-
skapandi verkefni að ræða og raun
ber vitni lögðu hann og félagar hans
til að ráðherra eða þingmaður yrði
fenginn í byggingarnefndina. Auk
spilavítisins var lagt til að þarna
yrði verslun, veitingastaðir, íþrótta-
aðstaða og skautasvell á einni hæð.
Þarna verður því allt fyrir fjölskyld-
una að fmna og jafnframt verður
sjálfsagt fyrir útlendinga að kíkja í
Fossvoginn.
Lagt er til að framkvæmdir hefjist
haustið 2000 og þeim ljúki í júní
2003. Opnunarveisla er tímasett í
áætlunum Harðar og á hún að hefj-
ast 13. júní kl. 17. Upphæðir í kostn-
aðaráætlun fyrir framkvæmdir sem
þessar eru í hærri kantinum fyrir
hvern meðaljón. Þannig kosta inn-
réttingar og annar búnaður 785
milljónir, loftræstikerfi 981 milljón,
tryggingar 78,5 milljónir og opnun-
arhátíðin ein er tekin með í reikn-
inginn og kostar rétt tæpar 100
milljónir. Þá kostar umsjón og eftir-
lit með verkinu tæplega 200 milljón-
ir.
Athyglisvert er að einingarverð á
píramída, samkvæmt áætlun Harð-
ar og félaga, er um 103 þúsund krón-
ur á fermetra sem er svipað og verð
á fermetra dýrrar tveggja herbergja
íbúðar.
-PP
Hva6 ec klukkan? >e
1. október 1995 - þriggja stafa þjónustunúmer Pósts og síma póstur og simi
tekin í notkun til samræmis við önnur lönd Evrópu. 04 breytist í 155.