Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 21
S' V LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
21
^Skák
Yfirburðir
Kasparovs
í New York
Garrí Kasparov tók svo sannar-
lega við sér í einvíginu við Anand í
New York eftir að hann tapaði ní-
undu skákinni. Eftir auðveldan sig-
ur hans í þeirri tíundu var engu lík-
ara en að sjálfstraust Anands hefði
brostið.
Af fimm næstu skákum í einvíg-
inu vann Kasparov fjórar og gerði í
raun út um það hver myndi hampa
heimsmeistaratitlinum.
Staðan að loknum fimmtán skák-
um var 9-6 Kasparov í vil og nægði
honum einn vinningur til viðbótar
til að hreppa sigurlaunin. Fimmt-
ánda skákin var tíðindalaus; Anand
gerði ekki alvarlega tilraun til þess
að vinna með hvítu mönnunum
gegn leynivopni heimsmeistarans -
drekaafbrigðinu alræmda af Sikil-
eyjarvörn. Eftir aðeins 16 leiki og
nokkurra mínútna taflmennsku
sættust kapparnir á jafntefli. E.t.v.
eru þetta merki þess að einvíginu
muni ljúka á sama hátt og það hófst.
Fyrir fjórtándu skákina átti An-
and enn von en fór þar illa að ráði
sínu í góðri stöðu. Fyrst gaf hann
Kasparov færi á að flækja taflið, tók
svo ekki áskoruninni þegar
Umsjón
Jón L. Árnason
Kasparov bauð upp á athyglisverða
riddarafórn og í tímahrakiriu tefldi
hann veikt.
Taflið var enn ekki ljóst í fertug-
asta leik en þá lék Anand tilgangs-
lausan hróksleik og kaus að gefast
upp í næsta leik.
Þetta var ein fjörugasta skákin í
einvíginu til þessa og trúlega sú sem
ræðúr endanlega úrslitum þegar
upp er staðið.
Fjórtánda einvígisskákin
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Viswanathan Anand
Skandinavíski leikurinn.
1. e4 d5 2. exd5 Dxd5
Byrjendum er kennt að forðast
drottningarflan snemma tafls en An-
and kærir sig koflóttan. Aðalatriðið
er að sneiða hjá heimavinnu
Kasparovs og manna hans.
3. Rc3 Da5 4. d4 Rf6 5. Rf3 c6 6.
Re5 Be6!?
Anand teflir þessa fornu byrjun
með nútímalegum hætti eins og
þessi og næsti leikur hans gefa til
kynna.
7. Bd3 Rbd7 8. f4 g6 9. 0-0 Bg7
10. Khl Bf5 11. Bc4 e6 12. Be2 h5
13. Be3 Hd8 14. Bgl
Fimm leikir með biskupunum
bera vott um heldur ráðleysislega
taflmennsku hvíts, enda má svartur
nú vel við una.
14. - 0-0 15. Bf3 Rd5 16. Rxd5
exd5 17. Bf2 Dc7 18. Hcl f6?!
Betra er 18. - Rc8 með hugmynd-
inni að hertaka e4-reitinn með ridd-
ara.
19. Rd3 Hfe8 20. b3 Rb6 21. a4
Rc8 22. c4 Df7 23. a5 Bf8 24. cxd5
cxd5 25. Bh4 Rd6 26. a6 b6 27.
Re5!?
Djörf taflmennska hvíts í síðustu
leikjum hefur ekki skilað tilskildum
árangri. Nú leggur Kasparov allt á
eitt spil því að annars er hætt við að
veikleikarnir í hvítu stöðunni færu
að segja til sín.
27. - De6?
Eftir aðeins 45 sekúndna umhugs-
un! Svartur virðist komast upp með
27. - fxe5 28. Bxd8 Hxd8 29. fxe5 Re4.
28. g4! hxg4 29. Rxg4 Bg7 30.
Hc7! Re4 31. Re3 Bh3 32. Hgl g5
33. .Bg4!?
Mögulegt er 33. fxg5 fxg5 34.
Hxa7!, því að 34. - Rc3 strandar þá á
35. Hxg7+! Kxg7 36. Hxg5+ Kf8 37.
Dgl með sterkri sókn.
33. - Bxg4 34. Dxg4 Dxg4 35.
Hxg4 Rd6
Ekki gengur 35. - gxh4 þvi að
biskupinn á g7 yrði þá i uppnámi.
36. Bf2 Rb5 37. Hb7 He4 38. f5
Hxg4?!
Betra virðist 38. - Hxd4 39. Hxd4
Rxd4 40. Hxa7 Rxb3 og góðir mögu-
leikar á jafntefli.
39. Rxg4 Hc8?! 40. Hd7 Hc2?
Þessi tilgangslausi leikur gefur
svörtum strax tapað tafl. Á hinn
bóginn væru úrslitin langt því frá
ráðin eftir 40. - Hc3 41. Hxd5 Hxb3
o.s.frv.
41. Hxd5 og Anand kaus að gef-
ast upp. Áfram gæti teflst 41. -
Rc7 42. Hd8+ Kh7 43. Hd7 Kg8 44.
h4 og virk staða hvíts og peð
meira ættu að tryggja honum ör-
uggan sigur.
Sveit Taflfélags Reykjavíkur
mætti stórsveit Empor Berlinar í 1.
umferð Evrópukeppni taflfélaga í
Clichy í Frakklandi í síðasta mán-
uði og varð að lúta í lægra haldi fyr-
ir ofureflinu. Jóhann Hjartarson
tapaði fyrir Kramnik, Hannes Hlífar
Stefánsson tapaði fyrir Sírov, Karl
Þorsteins og Lobron gerðu jafntefli
og sömuleiðis Helgi Áss Grétarsson
og Luther. Þröstur Þórhallsson tap-
aði fyrir Muse og Benedikt Jónas-
son fyrir Volke.
Berlínarbúar héldu áfram upp-
teknum hætti og stóðu að lokum
uppi sem siguvegarar í riðlinum.
TR-menn urðu hins vegar að sætta
sig við að tefla um 5.-8. sæti og
gerðu það með sóma.
í 2. umferð voru skákmenn Boa-
vista í Portúgal lagðir að velli með
3,5 vinningum gegn 2,5 (Jóhann og
Antunes gerðu jafntefli á 1: borði,
Hannes vann Galego, Helgi Áss
vann Damaso, Þröstur vann Frois,
Benedikt tapaði fyrir Silva og Magn-
ús Örn Úlfarsson tapaði fyrir
Ribeiro).
í 3. umferð komust íslendingar
síðan á flug með sigr'i gegn Slough
Chess Club í Englandi, þar sem
Helgi Áss missti einn skák sína í
jafntefli en aðrir liðsmenn unnu. Jó-
hann vann Hodgson á 1. borði og
Hannes vann Arkell á 2. borði.
Hætt er við að þátttaka íslendinga
í Evrópukeppni taflfélaga verði ekki
sveipuð jafnmiklum Ijóma að ári,
eins og síðustu tvö skipti, því að
raðir liðsmanna TR hafa nú þynnst.
í deildakeppni Skáksambandsins,
sem fram fer nú um helgina í Faxa-
feni, teflir Jóhann Hjartarson á 1.
borði fyrir Taflfélag Garðabæjar og
Hannes Hlifar leiðir sveit Hellis.
-JLÁ
Canon
Canon BP26-D
Bleksprautureiknivél
10 stafir í glugga
9.9DD
P| IRRI R
RÉTTVERÐ: 12.950 J E T
Canon FC230
Ljósritunarvél - 4 bls/mín
64.5DD
RÉTTVERÐ: 69.900
Opið
laugamaga
10-14
Caiion
I0pnei^1
VORULISTINN A INTERNETINU:
http://www.nyherji.is/vorur/
Canon
Canon
BJC-4000
4 bls/mín - 720 dpi upplausn
1100 bl. arkamatari - 2 hylkja kerfi
2 9.5 □ □
RÉTT VERÐ: 34.500
9
Canon BJC-70
720 dpi litaprentari
4 bls/mín - 2 hylkja kerfi
30 blaða arkamatari
Svart og litur samtímis
2 4.5 □ □
RÉTTVERÐ: 29.500
Canon
Canon T20
Faxtæki
Símtól - 3 m rúlla
Sjálfvirkur skiptir
32.9DD
Canon
Im-í-úM’-
Canon B360
Faxtæki - Sími - Prentari
Myndskanni - Tölvufax
Ljósritunarvél
1 1 4.5DD
RÉTTVERÐ: 145.500
_ O - f ^ ^ •
1 kéé t G <S G i fað'-j.
:
Vandaðu valið
og veldu Canon
- þú þekkir Canon - þú þekkir Nýherja\
■ Trust
TÖLVUBÚNAÐUR
Kvikunnar!
20 stk. diskettur og hágæða
videóspóla
RÉTT VERÐ: 2.450
TTUSt DX2/80 PCI
8 MB minni - 850 MB diskur
Margmiðlunarbúnaður - 240 W hátalarar
Rekstrarvörur
rifaitík
1 3 9.9 □ □
Dufthylki í HP laser frá kr: 6.450,-
HP 5125/6 Litur/SV.: 2.950,-
Prentborði í OK1 182/192: 495,-
Dufthylki í OKI 400/800: 2.950,-
Dufthylki í Lexmark 4019/29: 13.950,-
57mm tvöfaldar pappírsrúllur: 1.990,-
kufcM' lí
>NÝHERJA budW' irMA,F5T6A9H780Ð024
ÖLL VERÐ ERU STCR. VERÐ M/VSK - TILBOÐSVERÐ CILDfl TIL 14. OKT. EÐA MEÐflN BIRCÐIR ENDflST