Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 23
U \T LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1995
sviðsljós
Lauren og Jim eru hin hamingjusömustu og hyggja á giftingu en hjónaband
ið verður að bíða þar til kaupmálinn er undirritaður.
, Ástamál Jims Carreys og Lauren Holly:
í upphafi skyldi endirinn skoða
- hjúskaparáform stranda af ótta við afleiðingar skilnaðar
Heitasta parið í Hollywood um
þessar mundir eru Jim Carrey og
Lauren Holly sem landinn þekkir
líklega betur sem Maxine Steward í
þáttunum Lögverðir sem sýndir
voru í Sjónvarpinu fyrir nokkru.
Samband þeirra er ekki bara í
brennidepli því bæði hafa þurft að
kljást við fyrri maka sína.
Sjónvarpið og
raunveruleikinn
Lögverðir fjölluðu um lífið og til-
veruna með öOum sínum vandamál-
um, ástinni, trúnni, veikindum, fjöl-
skyldulífi og peningum. Velgengni
þáttanna má líklega skýra með því
að fólk sá sjáift sig
í mörgum þeim
persónum sem þar
komu fram. Max-
ine, sem Lauren
túlkaði, lék ákafan
lögregluþjón sem
átti það til að láta
tilfinningarnar
ráða og oftar en
ekki hlaupa með
sig í gönur.
Eftir að Lauren
kynntist Jim Car-
rey við tökur á
myndinni Vitlaus,
vitlausari hefur
einkalif Lauren
ekki síður verið
viðburðaríkt. Þau
urðu strax ástfang-
in upp fyrir haus
hvort af öðru og
fóru ekki leynt
með að hjúskapur
væri á næsta leiti.
En leiðindin eru
aldrei langt undan því fyrrum mak-
ar þeirra hafa krafið þau um mikla
peninga í kjölfar skilnaðanna.
Lauren var gift syni Antonys
Quinns, Danny, og við skilnaðinn
varð að samkomulagi að hún
greiddi honum 240 þúsund krónur
mánaðarlega. Það eru þó smámunir
í samanburði við þær 350 milljónir
sem Melissa, eiginkona Jim Car-
reys, krefst af spaugaranum með
andlitin þúsund.
„Lauren og Jim eru eins og sköp-
uð hvort fyrir annað en bæði eru
mörkuð af fyrri samböndum. Þegar
þau ganga upp að altarinu er ljóst
að þau verða að vera fjárhagslega
nægjusöm í framtíðinni og jafn-
framt að vera með öll mál er svona
lagað varðar á hreinu," lét vinur
parsins hafa eftir sér.
„Ég er bálskotinn í Lauren en ég
mun ekki stinga höfðinu í gin ljóns-
ins aftur,“ segir Jim Carrey og á þar
við fyrirsjáanlegt fjárhagslegt skip-
brot sitt eftir fyrra hjónabandið sem
skilur þó eftir sig fleira en skuldir
því saman eiga
þau Melissa 7 ára
dóttur, Jane.
Lauren hefur sett
sem skilyrði að
áður en þau Jim
giftist skrifi hann
undir kaupmála
sem tekur fyrir all-
ar efasemdir í pen-
ingamálum ef
hjónabandið fer út
um þúfur.
„Jim tók þessu
eins og hverju
öðru gríni því
hann þénar tífalt
meira en hún,“
sagði áðurnefndur
vinur skötu-
hjúanna.
„Ég hef sagt við
Jim að hann verði
að skrifa undir
kaupmálann, sem
lögfræðingurinn
minn hefur útbú-
ið, áður en við giftum okkur," hefur
Lauren látið hafa eftir sér.
Jim er harmi sleginn yfir kröfu
Lauren. Hann óskar þess af öllu
hjarta að ganga að eiga stúlkuna
kröfuhörðu en hjúskaparáform
þeirra hafa verið sett á ís um tíma
eða þar til þau hafa komist að sam-
komulagi um hver skuli borga'hvað
komi til skilnaðar.
reglumanninn tilfinningasama,
Maxine Steward. Hún hefur sýnt
að hún er ekki síður tilfinninga-
söm í raunveruleikanum.
MUNIÐ NYTT SIMANUMER
550 5000
FIMM FIMMTÍU FIMMÞÚSUND
INNBYGGT
ÖRYGGl FYRIR BÖRNIN!
Innbyggði barnabílstóllinn í Renault 19 veitir barninu öryggi
án þess að vera fyrir þegar barnið er ekki í bílnum. En
Renault 19 RN er fleiri góðum kostum búinn:
Aflstýri, rafdrifnum rúðum, fjarstýrSri samlœsingu á hurSum,
fjarstýrSu útvarpi og segulbandstœki meS þjófavörn, tviskiptu
niSurfellanlegu aftursœti meS höfuSpúSum og styrktarbitum í
hurSum svo fátt eitt sé taliS.
Renault 19 RN er því örugglega góður kostur fyrir alla
fjölskylduna því verðið er nú aðeins 1.265.000 kr.
kominn á götuna.
OPIÐ í DAG, LAUGARDAG KL. 10-17.
RENAULT
fer á kostum
ÁRMÚLA 13
SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
Með einu handtaki lyftist barna-
stóllinn upp og barnið getur
notað bílbeltið ð öruggan hátt.
KOMIÐ OG REYNSLUAKIÐ.