Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 25
DV LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 25 Hyggur hann á f orsetaf ra mboð? Það er ekki bara á íslandi sem menn eru að velta fyrir sér hugsan- legum forsetaframbjóðendum. í Bandaríkjunum verða forsetakosn- ingar næsta haust og hefur Colin Powell, fyrrum formaður bandaríska herráðsins og öryggisráðgjafi Reag- ans forseta, verið orðaður við fram- boð. Nýlega gaf Powell, sem er 58 ára gamall hershöfðingi á eftirlaunum, út endurminningar sínar, Ferð mín um Bandaríkin, og hafa menn veriö í vafa um hvort taka beri bókinni sem hverri annarri ævisögu eða vís- bendingu þess að Powell hyggi á frekari frama í Hvíta húsinu. i bók- inni segir Powell meðal annars frá ferð sinni um Bandaríkin haustið 1962, ásamt eiginkonu sinni, en þau voru þá nýgift. Enginn hafi viljað hýsa þau á leið þeirra frá Massachu- „Þessi maður er svo heppinn að vera hann sjálfur," sagði vinur Pow- ells um hann. setts til herstöðvarinnar Fort Bragg í Noröur-Karólínu. Þau hafi þurft að ferðast í Volkswagen-rúgbrauði sínu og gera þarfir sínar á víðavangi þeg- ar þau fundu ekki salerni fyrir þel- dökka og fleira í þeim dúr. Segir hann í viðtali við bandaríska vikurit- iö People að Bandaríkin séu nú mjög frábrugðin því sem var þegar kyn- þáttaaðskilnaðarstefnan réð ríkjum. I raun er breytingin svo mikil að það eru fáir bæir rúmlega 30 árum seinna sem ekki þætti heiður að taka á móti herra og frú Powell og spyrja í leið- inni hvort hann hygði ekki á forseta- framboð. Undanfamar vikur hefur Powell ekki svarað spurningunni af- dráttarlaust. Alls staðar aufúsugestur Hann er nins vegar aufúsugestur alls staðar þar sem hann kemur, nema kannski þar sem andstæðingar fóstureyðinga ráða ríkjum því hann hefur lýst yfir stuðningi við rétt Colin Powell bjargaði nokkrum mönnum eftir að ein af þyrlum Bandaríkjahers brotlenti í Víetnam árið 1968. Colin Powell í nærmynd kvenna til að taka ákvörðun um fóst- ureyðingar. Svo vinsæl er bók Pow- ells að fólk beið í um kílómetra langri röð nýlega tii að fá áritun hans á bókina og að loknu dagsverki höfðu 3.300 lesendur fengið ósk sína upp- fyllta. Powell gerði hermennsku að ævi- starfi sínu en hann var fyrsti þel- dökki fjögurra stjörnu hershöfðing- inn. Foreldrar hans em innflytjend- ur frá eyju í Karíbahafinu en sjálfur er Powell fæddur í Bronx-hverfi í New York. Hershöfðinginn á fundi með þáverandi forseta Bandarikjanna, George Bush. Powell varð þess heiðurs aðnjótandi, meðan hann gegndi herþjón- ustu í Þýskalandi árið 1958, að hitta Presley nokkurn sem þá var liðþjálfi í Bandaríkjaher. A LEIÐ TIL BETRI LÍFSKJARA Til þess að lífskjör á íslandi verði sambærileg eða betri en lífskjör í nágrannalöndunum er grundvallaratriði að koma ríkisfjármálum í gott horf. Enn eru gjöld ríkissjóðs meiri en tekjur og halli er á ríkisrekstrinum. Það gengur ekki. Enginn vill láta börnin greiða fyrir eyðslu foreldranna. Stöðva verður skuldasöfnun ríkisins. Ekki dugar að skrifa áfram á reikning þeirra sem erfa landið. Lífskjör komandi kynslóða, og okkar, eru í húfi. Um tvær leiðir er að velja, leið S Með sparnaði eða leið ■ Án aðgerða Afkotna ríkissjóðs Verölag 1995 Hagvöxtur 1995 áætlun 1996 áætlun 1997 áætlun 1998 áætlun 1999 áætlun I Meö sparnaöi 81 Án aögeröa Hagvöxtur heldur áfram Afkoma ríkissjóðs batnar Náist jafnvægi í ríkisfjármálum mun hagvöxtur á íslandi halda áfram að aukast. Hagvöxturinn verður sambærilegur við það sem best gerist í Ríkissjóður verður rekinn með fjögurra milljarða króna halla á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Miðað er við að jafnvægi náist í rikisfjármálum árið 1997. Verði ekkert að gert, blasir við 16 milljarða króna halli á ríkisrekstrinum á árinu 1999. Aukning kaupmáttar Vis 'itala er 100 áriö 1994 Vaxtagreiðslur lækka t Meö sparnabi ■ Án aöger&a Ef tekst að draga úr eftirspurn ríkisins á lánamarkaði með auknu aðhaldi geta vextir lækkað. Ef vextir lækka um 1 % léttist greiðslubyrði fjögurra manna fjölskyldu sem skuldar 5 milljónir króna um 50 þúsund krónur á ári. Ríkið greiðir í ár vexti sem svarar til nær 190 þúsund króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Ef ekkert er að gert hækkar sú tala í 270 þúsund Kaupmáttur heimilanna eykst Fólk fær meira fyrir peningana sína nú en áður. Kaupmáttur hefur aukist umfram hagvöxt'síðustu tvö ár og eykst enn á næsta ári með sparnaði í ríkisrekstrinum. I lok næsta árs hefur kaupmáttur fjögurra manna fjölskyldu með 200 þúsund króna ráðstöfunartekjur aukist um 9.500 krónur á mánuði. TÖKUM ABYRGÐ A FRAMTIÐINNI Ríkisstjórnin hefur valið sparnaðarleiðina. Leiðina til betri lífskjara. Gert er ráð fyrir að halli á ríkissjóði 1996 verði minni en hann hefur verið í tíu ár og árið 1997 verði jafnvægi náð. Slíkur sparnaður er vissulega erfiður, en hann er forsenda Framsóknarflokkurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.