Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 26
26 tónlist LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 Topplag ÍÞetta er fimmta vikan í röð sem breska súperhljómsveitin Blur situr á toppi íslenska list- ans með lag sitt, Country Hou- se. Það tók lagið ekki nema þrjár vikur að ná toppnum. Helsti ógnvaldurinn um topplagið verður að teljast nýja lagið hjá Jet Black Joe, I Know. Hástökkið Hástökk vikunnar er lagið Gangsta Paradise með hljóm- sveitinni Coolio Featuring LV. Það lag hefur undanfamar vik- ur setið í efsta sæti bandaríska listans en það stekkur nú úr 25. sæti í það 14. á íslenska listan- um. Hæsta nýja lagið Það gerist ekki oft að hæsta nýja lagið á íslenska listanum komist alla leið í þriðja sætið fyrstu viku sína á lista. Það af- rekar þó íslenska hljómsveitin Jet Black Joe með lag sitt, I Know, og það er varla hægt að ímynda sér annað en aö það nái toppsætinu. Guðs milda hönd Liðsmenn hljómsveitarinnar Catherine Wheel lentu í kröpp- um dansi á leið sinni til Ham- borgar á dögunum. Á ferð þeirra i Belgíu gerði eiturlyfjasjúkiing- ur, leiður á lifmu, sér lítiö fyrir og stökk í veg fyrir bifreið hljóm- sveitarinnar. Við áreksturinn þeyttist maðurinn í gegnum framrúðu bílsins en á einhvern óskiljanlegan hátt lifði hann slysiö af og enginn af liðsmönn- um Catherine Wheel slasaðist alvarlega. Uppgefinn á poppinu Líf poppstjamanna er enginn dans á rósum eins og mýmörg dæmi sanna. Þannig hefur nú Paul McGuigan bassaleikari í stórsveitinni Oasis neyðst til að taka sér frí frá störfum fr am að áramótum vegna þreytu. Maður myndi sosum skOja þetta ef um væri að ræða gamalmenni á borð við öldungana í Rolling Stones en ekki unga pilta eins og í Oasis. Engu að síður hafa talsmenn Oasis tilkynnt að Scott McLeod, fyrrum bas- saleikari The Ya Ya’s, muni leysa McGuigan af hólmi þar til hann hefur náð kröftum á ný. mSBBL í boði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00 ■r t .aLI kuna 7.10 TINN NR. 138 Kynnir: Jón Axel Ólafsson ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM TOiPI* 4® CD r: 7 COUNTRY HOUSE BLUR CD 4 nr 5 POUR QUE TU M’AIMES ENCORE CELINE DION CD tz 1 - NÝTT Á LISTA ••• I KNOW JET BLACK JOE 5 5 8 ONLY WANNA BE WITH YOU HOOTIE & THE BLOWFISH 5 2 2 5 ISOBEL BJÖRK ■C6) 7 12 7 BABY, NOW THAT I FOUND YOU ALISON KRAUSS 7 3 3 5 ROLL WITH IT OASIS CD 11 16 5 FAIRGROUND SIMPLY RED 9 6 4 6 BAD TIME JAYHAWKS (To 14 23 3 VINGER LA VERDI Cm) 13 31 5 I COULD FALL IN LOVE SELENA GD 16 - 2 HOOK BLUES TRAVELER (3D 1 DUB-I-DUB ME & MY 14 25 25 3 — HÁSTÖKK VIKUNNAR - GANGSTA PARADISE COOLIA 15 8 7 7 VÍSINDASPUNI ÚR ROCKY HORROR 16 15 15 8 SEI LA PIU'BELLA DEL MONDO RAF GD 1 STAYING ALIVE N-TRANCE 18 9 9 6 ALL OVER YOU LIVE 19 24 30 3 (I WANNA TAKE) FOREVER TONIGHT PETER CETERA/CRYSTAL BERNHARD 20 17 18 4 FANTASY MARIAH CAREY 21 10 6 9 MISSING EVERYTHING BUT THE GIRL 22 27 - 2 TRY ME OUT CORONA 23 12 8 9 YOU ARE NOT ALONE MICHAEL JACKSON 24 18 19 3 ROCK'N ROLL IS DEAD LENNY KRAVITZ 25 23 28 3 BLEEDING LIKE A STAR CIGARETTE 26 28 _ 2 EITT OG EITT SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 22 1 YOU OUGHTA KNOW ALANIS MORISETTE 28 22 24 4 THIS HOUSE IS NOT A HOME THE REMBRANTS 29 26 33 3 DO YOU SLEEP LISA LOEB & NINE STORIES 30 20 11 12 '74-'75 CONNELS 31 19 13 5 DREAM A LITTLE DREAM/LES YEUX OUVERTS BEAUTIFUL SOUTH (3D 35 - 2 CARNIVAL NATALIE MERCHANT 33 J 1 CLOSE TO YOU WHIGFIELD 34 21 14 6 THIS IS A CALL FOO FIGHTER (35) 36 - 2 THIS SUMMER SQUEEZE 36 29 38 6 HAPPY JUST TO BE WITH YOU MICHELLE GAYLE 37 39 - 2 THAT'S WAY (YOU GO AWAY) MICHAEL LEARNS TO ROCK 38 j^j 1 ANOTHER CUP OF COFFEE MIKE & THE MECHANIES (39) 40 mi 1 TIME SUPERGRASS 1 LIKE LOVERS DO LLOYD COLE Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi í DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt i vali "World Chart'' sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard. GOTT UTVflRPI Loveá leið til Hollywood Sú alræmda kona, Courtney Love, hefur mörg jám í eldinum að vanda og er þeirrar skoðunar, líkt og margar poppstjömur, að hún hljóti að vera stórkostlegt efni í kvikmyndastjörnu. Að minnsta kosti hefur hún sótt það stíft um nokkra hríð að fá bita- stætt hlutverk í Holly wood og nú virðist sem draumurinn ætli að rætast, að minnsta kosti hvað varðar hlutverk í Hollywood. Hins vegar er spuming hversu bitastætt það geti talist að bjóð- ast hlutverk I mynd um Larry Flynt, einn af klámkóngum Bandaríkjanna, en hann gefur meðal annars út hið umdeilda „herrablað", The Hustler. Á það ber aftur á móti að líta að Love hefur sýnt umtalsverða hæFdeika og tilhneigingu til að fækka föt- um á sviði og er því kannski vel að hlutverkinu komin. Flying Medallions í banaslysi Breska hljómsveitin The Flying Medallions lenti í hörmu- legu bílslysi á tónleikaferð í Frakklandi á dögunum. Rúta hljómsveitarinnar lenti utan veg- ar eftir að dekk hafði hvellspr- ungið og köstuðust tveir liðs- menn hennar út úr bílnum. Ann- ar þeirra, bassaleikarinn Dougie Palomo, lést af sárum sínum en hinn, söngvarinn Stuart Steph- ens, liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi í Lille. Plötu- fréttir Pearl Jam piltamir em komn- ir í hljóðver að nýju ásamt upp- tökustjóranum Brendan O’Brian og vélstjóranum Nick DiDia. Vonast er til að ný plata líti dags- ins ljós í byrjun árs 1996...Hljóm- sveitin Tindersticks er þessa dag- ana önnum kafin í hljóðveri að hljóðrita efhi á nýja plötu undir leiðsögn upptökustjórans Neil Capale...Og gamla vinsældalista- tröllið, Nik Kershaw, er nú sest- ur hinum megin við upptöku- boröið og hefur tekið að sér að stjóma upptökum á næstu plötu drengjanna í Let Loose... -SÞS Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson " '• : ' . :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.