Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 Bás Pósts og síma á Telecom 95 í Genf hefur vakið feiknaathygli og reiknað með að hátt í 2 þúsund manns staldri þar við. Hallgrímur Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Asks, kynnir upplýsingaturn- inn fyrir Geoff Hall frá Teleglobe í Kanada sem sýndi Aski mikinn áhuga. Hluti starfsmanna Pósts og síma á sýningunni fyrir framan kynningarskjá um Cantat-3 sæstrenginn. Frá vinstri Guðmundur Björnsson, aðstoðarpóst- og símamálastjóri, Karl Bender, yfirverkfræðingur, Kristján Bjartmarsson, yfirverkfræðingur í gervitunglafjarskiptum, Halldór Guðmundsson, yfir- tæknifræðingur á fjölsímasviði, og Jódís Birgisdóttir, ritari póst- og síma- málastjóra. A myndina vantar Hilmar Ragnarsson yfirverkfræðing og Jón Valdimarsson tæknifræðing, sem hafði veg og vanda af undirbúningi þátt- töku Pósts og síma á Telecom. Gestir Telecom gátu virt íslenska póst- og símamálstjórann vel fyrir sér á stórum skjá þegar tekið var við hann viðtal í myndveri France Telecom. annarra þjóða á f]arskiptasviði,“ sagði Halldór. Eitt af baráttumálum Halldórs er að gera Póst og síma að hlutafélagi, til að byrja með í eigu ríkisins. „Þegar ég var á þessari sýningu fyrir fjórum árum var aðeins eitt símafyrirtæki í Vestur-Evrópu orð- ið einkafélag. I öðrum löndum var málið í biðstöðu eða undirbúningi. í dag eru flest Evrópulöndin búin að breyta símafyrirtækjunum í hlutafé- lög sem starfa sjálfstætt og óháð fjárlögum viðkomandi lands. Við erum að þessu leyti að dragast aftur úr. Þetta undirstrikar þýðingu þess sem ég er að berjast fyrir, að breyta rekstrarformi Pósts og síma. Ég sé fyrir mér að það verði hlutafélag í eigu rikisins. Að öðrum kosti mun fyrirtækið ekki hafa nægjanlega vaxtarmöguleika. Ég vona að á Tel- ecom 1999 verði Póstur og sími kynntur sem jafnoki annarra fyrir- tækja í þessu sambandi en ekki sem saltstaur," sagði Halldór. Póstur og sími verði ekki saltstaur 1999 Ólafur Tómasson, póst- og síma- málastjóri, hefur að sjálfsögðu verið á sýningunni. Hann sagði við DV að Póstur og sími væri á sýningunni fyrst og fremst til að sjá framtíðar- sýn framleiðenda og þjónustuaðila. „Fjarlægðir í heiminum eru smám saman að hverfa vegna góðra fjarskipta. Á nánast engum tíma kemst þú í viðskipti við mann t.d. í San Francisco. Hann gæti þess vegna verið í næsta herbergi hvað gagnaflutninga varðar,“ sagði Ólaf- ur. Ólafur sagði að markmið þátttöku Búist við 133 þúsund gestum á Telecom 95 í Genf, stærstu tæknisýningu heims: Helmingur mannkyns hefur aldrei talað í síma - margmiðlun upplýsinga með nýjustu tækni mál málanna Telecom 95, alþjóðlega fjarskipta- og simatæknisýningin, hófst í Genf í Sviss á þriðjudag og henni lýkur á miðvikudag. Alþjóðasímastofnunin, ITU, í Genf stendur fyrir sýning- unni sem haldin hefur verið á fjög- urra ára fresti frá 1971. Fjarskipta- hugbúnaður er í öndvegi á sýning- unni þar sem tölvur og nýjasta tækni í margmiðlun er notuð til hins ýtrasta. Flestir helstu framleið- endur fjarskiptahugbúnaðar í heim- inum sýna tæki sem ekki enn eru komin á markað, heldur væntanleg á næsta ári eða síðar. Yfirskrift sýningarinnar er „Tengdu!“ og ekki að ástæðulausu. 1 opnunarræðu Nelsons Mandela, for- seta Suður-Afríku, kom fram að helmingur mannkyns hefur aldrei talað í síma. Markmið ITU er að koma fleiri jarðarbúum í samband og nota til þess nýjustu tækni. Horfa menn helst til fjarskipta um gervi- hnetti í því sambandi. Frá siðustu sýningu 1991 hafa orð- ið stökkbreytingar í fjarskiptum með útbreiðslu farsímakerfisins og síðar Internetsins. Enda er ekki sá maður með mönnum á sýningunni sem ekki er með GSM-síma í annarri hendinni og fartölvu í hinni. 640 milljónir síma- lína í heiminum Eins og áður sagði er helmingur mannkyns án símatækninnar. Gríð- arlegt verkefni bíður ITU að koma vanþróuðu rikjunum í samband. Yflr 640 milljónir símalína í heimin- um eru tengdar, þar af 15 milljónir farsímalína. Reiknað er með að far- símalínum fjölgi um 300—400 millj- ónir á næsta áratug en farsíminn var vart þekktur fyrir 15 árum. Af eitt þúsund sýnendum frá 50 löndum er Póstur og simi með 50 fermetra bás á sýningunni af alls 15 þúsund fermetra plássi í Palexpo- sýningarhöllinni. Básinn hefur vak- ið feiknaathygli og gróflega má reikna með að um 200 manns hafi staldrað við í básnum daglega. Mið- að við níu daga sýningu munu því hátt í 2 þúsund manns kynna sér af alvöru fjarskiptatæknina á íslandi. Mestur áhugi hefur verið á Cantat sæstrengnum og hvernig símkerfið er uppbyggt hér á landi. Þá bauð Póstur og sími Skýrsluvélum rikis- ins og Reykjavíkurborgar, Skýrr, að kynna upplýsingakerfið Ask á sýn- ingunni. Þegar DV var á sýningunni í vik- unni voru Norðurlöndin með uppá- komur í básum sínum, en sýnend- um var skipt niður eftir þjóðemi. Halldór Blöndal samgönguráðherra var gestur sýningarinnar af því til- efni. „Það skilar okkur kannski ekki svo miklu að vera á einni sýningu. Það sem skilar er að vera alltaf vak- andi fyrir nýjungum sem eru að koma upp hverju sinni og hvernig þær færast út á markaðinn. Þetta hefur Pósti og síma tekist síðustu árin og veldur því, annars vegar, að við erum með lægri þjónustugjöld en víðast annars staðar og hins veg- ar að við erum fyllilega jafnokar Pósts og síma á Telecom væri fyrst og fremst að kynna þá möguleika sem ísland hefði til að taka þátt í þróun alheimsmargmiðlunar, t.d. með því að tengja saman Evrópu og Ameríku með Cantat-3 og að halda ráðstefnur. „Cantat-3 verður okkar lífþráðui tO útlanda en við höfum einnij svigrúm til að selja öðrum þjóðun aðgang að strengnum með aukinn afkastagetu hans,“ sagði Ólafur. Askur í harðri samkeppm Hallgrímur Thorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Asks, fór á Telecom 95 í vikunni til að kynna upplýs- ingakerfið og viða að sér fróðleik um það nýjasta sem er að gerast í þeim geira. „Sýningin í Genf sannar að marg- miðlunin er orðin staðreynd í at- vinnulífinu. Aðaláherslan liggur í margs konar farsímakerfum og þessari ATM-tækni, flutningsaðferð fyrir margmiðlun á neti. Það var gaman að fara þarna út og sjá sam- keppnina við Ask frá t.d. Olivetti, Nec og IBM, þessum risum í tölvu- heiminum. Við þekkjum til þeirra upplýsingaturna og höfum verið í samkeppni við þá um verkefni í Englandi. Núna er mikilvægt að nýta okkur þann styrk sem við höf- um og þróa okkar sérstöðu í sam- keppninni. Askur á bjarta framtíð fyrir sér,“ sagði Hallgrímur. -bjb Póstur og sími setti upp gamla símstöð á Telecom 95 sem vakið hefur gríðarlega athygli gesta, svo mikla að nokkr- ir aðilar hafa lýst yfir áhuga á að kaupa hana. Símtæki voru tengd við stöðina, annað frá 1932 og hitt frá 1995. Hér hringir Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, úr gamla símanum í Halldór Blöndal samgönguráðherra. Hjá þeim stendur Þorvarður Jónsson, framkvæmdastjóri fjarskiptasviðs Pósts og síma. DV-myndir Björn Jóhann Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.