Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Side 31
LAUGARDAGUR 7. OKTOBER 1995 trimm 39 Á:V í''' Hópur lífsglaðra eldri borgara í Kópavogi iðkar leikfimi í sundlaug Kópavogs. Eldri borgarar í Kópavogi í vatnsleikfimi: DV-mynd S Missi helst ekki af leikfiminni Öskjuhlíðarhlaupið: Aflýst vegna veðurs Öskjuhllðarhlaupinu sem fara átti fram í samnefndri hlíð síðastliðinn laugardag var aflýst vegna veðurs. Oddný Árnadóttir, sem annaðist skráningu í hlaupið, sagði að enginn hefði komið á staðinn en rúmlega 30 manns hefðu hringt til að kanna hvort af hlaupinu yrði. Oddný sagði að þótt hlaupið hefði ekki farið fram væru aðstandendur hvergi bangnir og ætti það að fara fram í haust en það yrði nánar auglýst síðar. Fyrir þá sem eru að reyna að rifja upp hvernig veðrið var á laugardaginn dag er rétt að upplýsa að í Reykjavík voru suðvestan 7—9 vindstig og rigning. „Ég væri ekki jafngóð til heils- unnar og ég er í dag ef ekki væri leikfimin sem hefur gert mér óskap- lega gott,“ sagði Kristrún Jónsdóttir í samtali við Trimmsíðuna. Kristrún og maður hennar, Valdi- mar Lárusson, eru meðal þeirra fé- laga í Félagi eldri borgara í Kópa- vogi sem stunda reglulega leikfimi í Sundlaug Kópavogs. Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, stundvíslega klukkan hálftíu, er blásið til leiks og 25-30 eldri borgar- ar gera saman leikfimiæfingar und- ir stjórn Kristrúnar. Hver tími stendur í hálftíma en síðan er farið í heita pottinn og lífsgátan leyst. Öll- um er frjálst að mæta og taka þátt í leikfiminni og Kristrún segir að all- ir séu velkomnir hvort sem þeir eru félagar i samtökum eldri borgara eða ekki. Hún vill reyndar taka fram að hún sé aðeins varaþjálfari fyrir Jóhönnu Arnórsdóttur sem er upphafsmaður leikfimitímanna og jafnframt formaður Félags eldri borgara. „Þetta hefur gert mér afskaplega gott. Ég er hjartasjúklingur og var skorin fyrir 11 árum og fyrst þegar ég fór að mæta í leikfimina fékk ég alltaf verk fyrir hjartað og fékk mér stundum sprengitöflu. Nú er ég Umsjón Páll Ásgeir Ásgeirsson steinhætt því og finn aldrei fyrir neinu í leikfiminni, hvort sem heitt eða kalt er í veðri. Maður verður all- ur liðugri og hraustari af þessu sprikli. Ég var, eins og fleira fólk á mínum aldri, ósynd þegar við byrj- uðum í leikfiminni en nú syndi ég um allt og finnst óskaplega gaman. Ég hef alltaf haft gaman af leikfimi." Kristrún segir að þau þrjú ár sem leikfimin hefur verið með regluleg- um hætti hafi alltaf einhver úr hópnum séð um að stjórna æfingum og enginn sundkennari hafi leið- beint þeim en fleiri en hún hafa lært að synda í leikfimitímunum. „Þetta eru svipaðar æfingar og þær sem gerðar eru í leikfimi á þurru landi. Við reynum að velja bestu æfingarnar sem henta til þess að gera þær í vatni. Það kemur fyr- ir um háveturinn að leikflminni er aflýst vegna veðurs en margir í hópnum vilja helst ekki missa dag úr og ég segi fyrir mig að ég missi helst ekki af leikfiminni. Það er meiri árangur af þessu en ég hefði trúað en það gerist ekki strax. Það tekur ár en þetta heldur mér ungri,“ sagði Kristrún sem vildi ekkert segja um meðalaldur hópsins sem mætir í leikfimina. „Við erum ekkert að spyrja um aldur fólks. Allir sem geta verið með eru velkomnir.“ Alltaf aðæfa Tímaritið Men’s Health benti nýlega lesendum sínum á frá- bæra gjöf fyrir líkamsræktar- manninn sem á allt. Sjónvarps- fjarstýring með áföstu nettu handlóði sem vegur eitt kiló (The Couch Potato Cross Trainer). Með slíka fjarstýringu í hendi er tryggt að æfingafíkill- inn verður jafnvel enn æstari í að flakka milli rása í sjónvarp- inu en hann er nú. Blásandi og hvásandi í kirkjugarðinum Trimmsíðan hefur heyrt ýmsa gagnrýna það hvernig nýi gangstíg- urinn (Markúsarstígur), sem liggur fyrir flugvallarendann og áfram inn Fossvoginn, er látinn liggja í gegn- um kirkjugarðinn í Fossvogi. Skokkarar sem Trimmsíðan heyrði slúðra um þetta mál töldu það geta raskað grafarhelgi garðsins að menn hlypu blásandi og hvá- sandi í gegnum garðinn. Einnig væri vísast að másandi pervertar lægju í leyni bak við leiði og biðu þess að hremma einmana kvenskokkara. Við þessu er svo sem ekkert að segja annað en að ráð- leggja fólki að hlaupa nógu hratt í gegnum garðinn og vera ekkert að dóla við að lesa á legsteinana. Við þetta tækifæri setti vaskur stuðn- ingsmaður R-listans fram þá kenn- ingu að með þessari staðsetningu á stlgnum væri verið að búa misskild- um minnihlutahóp, þ.e. pervertum, viðunandi vinnuumhverfi í skugg- sýnum kirkjugarði með gnótt felu- staða í vöxtulegum trjágróðri. Við þessu er svo sem ekkert að segja annað en að þetta er varla prenthæf gamansemi. Meira slúður Ragnar Sigurjónsson, hundatemj- ari og ljósmyndari, sem var meðal þeirra sem valinn var einn af hátt- vísustu stuðningsmönnum ársins af KSÍ er ekki bara boltamaður. Ónei. Ragnar er vaskur hlaupari sem hef- ur oft keppt í Reykjavíkurmaraþoni og fengið viðurkenningar fyrir skrautlegasta klæðnaðinn. Hann er félagi í hlaupahópi sem heitir Lund- fetar og er meðal háttvísustu skokk- ara. Gott hjá Ragnari hinum prúða. t aftti þer muöa t v vit kl 2o.‘o á jaugítrdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.