Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 7. OKTOBER 1995
trimm
39
Á:V í'''
Hópur lífsglaðra eldri borgara í Kópavogi iðkar leikfimi í sundlaug Kópavogs.
Eldri borgarar í Kópavogi í vatnsleikfimi:
DV-mynd S
Missi helst ekki
af leikfiminni
Öskjuhlíðarhlaupið:
Aflýst
vegna
veðurs
Öskjuhllðarhlaupinu sem
fara átti fram í samnefndri hlíð
síðastliðinn laugardag var
aflýst vegna veðurs.
Oddný Árnadóttir, sem
annaðist skráningu í hlaupið,
sagði að enginn hefði komið á
staðinn en rúmlega 30 manns
hefðu hringt til að kanna hvort
af hlaupinu yrði. Oddný sagði
að þótt hlaupið hefði ekki farið
fram væru aðstandendur hvergi
bangnir og ætti það að fara
fram í haust en það yrði nánar
auglýst síðar.
Fyrir þá sem eru að reyna að
rifja upp hvernig veðrið var á
laugardaginn dag er rétt að
upplýsa að í Reykjavík voru
suðvestan 7—9 vindstig og
rigning.
„Ég væri ekki jafngóð til heils-
unnar og ég er í dag ef ekki væri
leikfimin sem hefur gert mér óskap-
lega gott,“ sagði Kristrún Jónsdóttir
í samtali við Trimmsíðuna.
Kristrún og maður hennar, Valdi-
mar Lárusson, eru meðal þeirra fé-
laga í Félagi eldri borgara í Kópa-
vogi sem stunda reglulega leikfimi í
Sundlaug Kópavogs. Á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum,
stundvíslega klukkan hálftíu, er
blásið til leiks og 25-30 eldri borgar-
ar gera saman leikfimiæfingar und-
ir stjórn Kristrúnar. Hver tími
stendur í hálftíma en síðan er farið
í heita pottinn og lífsgátan leyst. Öll-
um er frjálst að mæta og taka þátt í
leikfiminni og Kristrún segir að all-
ir séu velkomnir hvort sem þeir eru
félagar i samtökum eldri borgara
eða ekki. Hún vill reyndar taka
fram að hún sé aðeins varaþjálfari
fyrir Jóhönnu Arnórsdóttur sem er
upphafsmaður leikfimitímanna og
jafnframt formaður Félags eldri
borgara.
„Þetta hefur gert mér afskaplega
gott. Ég er hjartasjúklingur og var
skorin fyrir 11 árum og fyrst þegar
ég fór að mæta í leikfimina fékk ég
alltaf verk fyrir hjartað og fékk mér
stundum sprengitöflu. Nú er ég
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
steinhætt því og finn aldrei fyrir
neinu í leikfiminni, hvort sem heitt
eða kalt er í veðri. Maður verður all-
ur liðugri og hraustari af þessu
sprikli. Ég var, eins og fleira fólk á
mínum aldri, ósynd þegar við byrj-
uðum í leikfiminni en nú syndi ég
um allt og finnst óskaplega gaman.
Ég hef alltaf haft gaman af leikfimi."
Kristrún segir að þau þrjú ár sem
leikfimin hefur verið með regluleg-
um hætti hafi alltaf einhver úr
hópnum séð um að stjórna æfingum
og enginn sundkennari hafi leið-
beint þeim en fleiri en hún hafa lært
að synda í leikfimitímunum.
„Þetta eru svipaðar æfingar og
þær sem gerðar eru í leikfimi á
þurru landi. Við reynum að velja
bestu æfingarnar sem henta til þess
að gera þær í vatni. Það kemur fyr-
ir um háveturinn að leikflminni er
aflýst vegna veðurs en margir í
hópnum vilja helst ekki missa dag
úr og ég segi fyrir mig að ég missi
helst ekki af leikfiminni. Það er
meiri árangur af þessu en ég hefði
trúað en það gerist ekki strax. Það
tekur ár en þetta heldur mér ungri,“
sagði Kristrún sem vildi ekkert
segja um meðalaldur hópsins sem
mætir í leikfimina.
„Við erum ekkert að spyrja um
aldur fólks. Allir sem geta verið með
eru velkomnir.“
Alltaf
aðæfa
Tímaritið Men’s Health benti
nýlega lesendum sínum á frá-
bæra gjöf fyrir líkamsræktar-
manninn sem á allt. Sjónvarps-
fjarstýring með áföstu nettu
handlóði sem vegur eitt kiló
(The Couch Potato Cross
Trainer). Með slíka fjarstýringu
í hendi er tryggt að æfingafíkill-
inn verður jafnvel enn æstari í
að flakka milli rása í sjónvarp-
inu en hann er nú.
Blásandi og hvásandi
í kirkjugarðinum
Trimmsíðan hefur heyrt ýmsa
gagnrýna það hvernig nýi gangstíg-
urinn (Markúsarstígur), sem liggur
fyrir flugvallarendann og áfram inn
Fossvoginn, er látinn liggja í gegn-
um kirkjugarðinn í Fossvogi.
Skokkarar sem Trimmsíðan
heyrði slúðra um þetta mál töldu
það geta raskað grafarhelgi garðsins
að menn hlypu blásandi og hvá-
sandi í gegnum garðinn. Einnig
væri vísast að másandi pervertar
lægju í leyni bak við leiði og biðu
þess að hremma einmana
kvenskokkara. Við þessu er svo sem
ekkert að segja annað en að ráð-
leggja fólki að hlaupa nógu hratt í
gegnum garðinn og vera ekkert að
dóla við að lesa á legsteinana. Við
þetta tækifæri setti vaskur stuðn-
ingsmaður R-listans fram þá kenn-
ingu að með þessari staðsetningu á
stlgnum væri verið að búa misskild-
um minnihlutahóp, þ.e. pervertum,
viðunandi vinnuumhverfi í skugg-
sýnum kirkjugarði með gnótt felu-
staða í vöxtulegum trjágróðri. Við
þessu er svo sem ekkert að segja
annað en að þetta er varla prenthæf
gamansemi.
Meira slúður
Ragnar Sigurjónsson, hundatemj-
ari og ljósmyndari, sem var meðal
þeirra sem valinn var einn af hátt-
vísustu stuðningsmönnum ársins af
KSÍ er ekki bara boltamaður. Ónei.
Ragnar er vaskur hlaupari sem hef-
ur oft keppt í Reykjavíkurmaraþoni
og fengið viðurkenningar fyrir
skrautlegasta klæðnaðinn. Hann er
félagi í hlaupahópi sem heitir Lund-
fetar og er meðal háttvísustu skokk-
ara. Gott hjá Ragnari hinum prúða.
t aftti þer muöa t v vit kl 2o.‘o á jaugítrdaginn.