Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 34
unglingaspjall
Skiptinemi í Venesúela
Þegar maður er ungur og í blóma
lífsins er margt sem mann langar að
gera. Flestir eru fullir af hugmynd-
um um framtíð sína, hvað þeir ætla
að starfa o.s.frv. Ég hef alltaf verið
staðráðinn í að starfa við eitthvað
sem gefur mér möguleika á að ferð-
ast um og skoða heiminn.
Útþráin byrjaði snemma.
Sumrunum eftir 8. og 9. bekk eyddi
ég í Bandaríkjunum hjá frænda
mínum og fjölskyldu hans. Hann er
flugmaður og við gátum þess vegna
ferðast mikið um á ódýrum fargjöld-
um. Við heimsóttum ein tíu fylki,
fórum m.a. til Hollywood og ókum
svo þaðan niður til Mexíkó.
Hollywood heimsótt
Hollywood er veröld út af fyrir sig
en engan veginn eins og maður sér
í bíómyndum eða ímyndar sér. Ég
hélt að ég sæi fræga fólkið á gangi í
„stjörnugötunni" og að versla á Rod-
eo Drive. Svo var þó ekki. Til að
bæta sjálfri mér það upp að hafa
ekki hitt frægt fólk lét ég taka mynd
af mér og pappaspjaldi af Tom Cru-
ise. Síðan sagði ég náttúrlega öllum
vinum mínum að ég hefði hitt hann
og þeir biðu spenntir eftir að sjá
myndina.
Eftir tíunda bekk lá leið mín svo
til Venesúela þar sem ég dvaldi eitt
ár á vegum skiptinemasamtakanna
AFS. Hjá okkur skiptinemum stend-
ur AFS fyrir „Another Fat Student"
því flestir ef ekki allir koma heim
nokkrum kílóum þyngri en þegar
þeir fóru.
Árið mitt í Venesúela var yndis-
legt út í gegn. Ég var heppin með
allt og alla. Fólkið þarna er svo ein-
lægt, allir vilja kynnast manni og
gera allt fyrir mann.
Ég átti stóra fjölskyldu í Venesú-
Kristín Björk Þorvaldsdóttir, 19 ára, nemandi í Fjölbraut í Breiðholti.
DV-mynd GS
ela — tala alltaf um mömmu, pabba
og systkini mín þar. Mamma mín
var nokkurs konar „sálfræðinorn".
Hún spáir fyrir fólki með því að púa
vindlinga. Ég varð mjög undrandi
fyrst, skildi þetta alls ekki þótt fólk-
ið reyndi að útskýra þetta á
spænsku. Ég sagði bara si, si (já, já)
og hélt að þau væru biluð.
Lærdómsríkt ár
Ég gæti skrifað heila bók um all-
ar þær frábæru stundir sem ég upp-
lifði í Venesúela. Ég tel nauðsynlegt
fyrir alla að búa einhvem tíma í
öðru landi, kynnast annarri menn-
ingu og upplifa lifnaðarhætti ann-
arra þjóða. Maður verður miklu
opnari og lítur öðrum augum á líf
sitt. Ég lærði t.d. að meta hvað við
höfum það í rauninni gott hér
heima á íslandi miðað við marga
aðra. í Venesúela er mikil fátækt,
fólk býr í kofum sem haldið er uppi
með fjórum spýtum. Fólkið lætur
ekki eymdina buga sig, lifir hvern
dag fyrir sig, hamingjusamt og alltaf
brosandi. Svona er Venesúela í dag.
Við erum alltaf að leita að ein-
hverju spennandi í lífinu, viljum
prófa eitthvað nýtt. Þess vegna mæli
ég eindregið með því að fara á fjar-
lægar slóðir. Ekki hika við það.
Kristín Björk Þorvaldsdóttir,
nemi í Fjölbraut í Breiðholti
hin hliðin
Áhugamálið er hestamennskan
- segir Unnur Steinsson, aðstoðarmaður Hemma Gunn
„Þegar ég var að vinna sem þula
í Sjónvarpinu sl. vetur fylgdist ég
oft með vinnslunni á þáttum
Hemma Gunn og kynntist bæði
honum og Agli Eðvarðssyni. Það
var í framhaldi af því sem mér
bauðst að aðstoða Hemma í þess-
um nýja þætti, Happ í hendi,“ seg-
ir Unnur Steinsson, flugfreyja og
nú nýr dagskrárgerðarmaður hjá
Sjónvarpinu. „Mér fannst þetta
spennandi enda hef ég alltaf verið
óhrædd að takast á við nýja hluti.
Ég er viss um að þessir þættir eiga
eftir að njóta vinsælda meðal
fólks,“ segir Unnur sem sýnir hina
hliðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Unnur Steinsson.
Fæöingardagur og ár: 27. aprU
1963.
Maki: Vilhjálmur Skúlason.
Börn: Þau eru þrjú. Unnur
Birna, sem er 11 ára, Steinar Torfi,
9 ára, og Vilhjálmur Skúli, 3ja ára.
Bifreið: Pajero jeppi, árgerð
1989.
Starf: Flugfreyja og nú að-
stoðarkona Hemma Gunn.
Laun: Samkvæmt taxta
Flugfreyjufélags íslands.
Áhugamál: Hestamennska
fyrst og fremst. Fjölskyldan
stundar hestamennskuna allt
árið um kring en einnig reynum
við að komast á skíði.
Hefur þú imnið í happdrætti
eða lottói? Nei, aldrei. Ég hef því
miður ekki orðið svo heppin.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Vera með fjölskyldunni.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Vera í vaskahúsinu.
Uppáhaldsmatur: Ætli það sé
ekki villibráð.
Uppáhaldsdrykkur: Sódavatn.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstnr í dag? Það er hand-
boltakappinn Valdimar Gríms-
son.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf.
Hver er fallegasti karl sem þú
hefur séð fyrir utan eiginmann-
inn? Það er enginn - ég er svo
ánægð með hann.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig
mest að hitta? Ætli þaö sé ekki
O.J. Simpson.
Uppáhaldsleikari:
Mel Gibson.
Uppáhalds-
leikkona:
Judie
Foster.
Uppáhaldssöngvari: Ég get
ekki gert upp á milli Bjögga og
Bubba.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Davíð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Grín
myndir.
Uppáhaldsveitingahús: Ég fer
mjög sjaldan út að borða og get því
ekki svarað þessari spurningu.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Ég var að klára bókina Þetta
er allt að koma eftir Hallgrím
Helgason.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? Rás tvö og Bylgjan. Ég
skipti nokkuð jafnt á milli þeirra.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Bjarni Dagur.
Hvort horfir þú meira á Sjón-
varpið eða Stöð 2? Ég horfi álíka
mikið á báðar, vel bara það besta
hverju sinni.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Ég verð nú að spgja Hemmi
Gunn.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Ég fer ekki mikið út að
skemmta mér en hef kikt inn
á Kaffi Reykjavík.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
KR.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtiðinni? Að
standa mig vel í því sem ég geri
hverju sinni.
Hvað gerðir þú í sumarfrí-
inu? Fjölskyldan ferðaðist um
landið, um Vestfirði, fór í Ásbyrgi
og um Suðurland.
Við ferðumst um
landið á hverju
sumri en þann
tima viljum við
ekki nota til ferða-
laga til útlanda.
Unnur Steins-
son mun að-
stoða Hemma
Gunn í vetur.
DV-mynd
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 3C>
Sylvester Stallone og kærastan,
Jennifer Flavin, í réttu fötunum.
Allir eru
stjömur í
Planet
Hollywood
Þeir eru opnaðir hver af öðrum,
Planet Hollywood staðirnir. Nú ný-
lega var enn einn staðurinn opnað-
ur og nú í Beverly Hills, sá tuttug-
asti og áttundi sem opnaður er í
heiminum. Planet Hollywood er
hamborgarastaður, ekki ósvipaður
Hard Rock. Eigendur eru hins vegar
heimsfrægir, Sylvester Stallone,
Arnold Schwarzenegger, Bruce
Willis og eiginkona hans, Demi
Moore.
Unglingum þykir mjög skemmti-
legt að heimsækja Planet Hollywood
og sjálfsagt hafa nokkrir íslenskir
unglingar komið inn á slíkan stað.
Einn er t.d. í London og hefur hann
öðlast miklar vinsældir.
Þegar staðirnir eru opnaðir er
það hins vegar fræga fólkið sem
kemur fyrst á vettvang og ekki er
dónalegt að klæðast þá flík sem
merkt er staðnum. Það eru ótrúlega
margir minjagripir sem fylgja
Planet Hollywood: bolir, húfur,
jakkar, kjólar, hálsmen og ýmis
merki.
Meðal gesta í Planet Hollywood
17. september, þegar staðurinn var
opnaður í Beverly Hills, voru Elton
John, körfuboltasnillingurinn
Shaquille O'Neal, leikkonan Geena
Davis, sjónvarpskonan Oprah Win-
frey, fyrirsætan Cindy Crawford,
popparinn Rod Stewart og kona
hans, Rachel Hunter, leikarinn Pat-
rick Swayze, auk margra annarra.
Hvar skyldi næsti Planet Hollywood
staðurinn verða opnaður - varla hér
á landi - og þó, það er aldrei að vita.
Pabbi
unglingaþáttanna
í Hollywood. Ástæða þess er sú að
hann fann upp og skrifaði þættina
Beverly Hills 90210 og Melrose
Place. „Það var frekar auðvelt að fá
hugmyndirnar að þessum þáttum
þar sem ég er í raun að skrifá um
mitt eigið líf,“ segir hann. „Ég
minnist þess gjarnan hvers konar
menningarsjokk það var að flytja til
Kalifomíu frá Maryland, þar sem ég
bjó sem barn. Ég lét því Brandon og
Brendu upplifa það sama,“ segir
Darren sem hefur keypt villu þá er
Clark Gable átti á sínum tíma.
Eftir að þættirnir Beverly Hills
90210 náðu þessum gífurlegu vin-
sældum fékk Aaron Spelling Darren
til að skrifa líka handrit að Melrose
Place sem áttu þó að vera öðruvísi.
„Nú hef ég skrifað um táninga og
ungt fólk svo kannski ég eigi eftir
að skrifa um fólk á mínum aldri í
næsta sinn,“ segir Darren sem er
ókvæntur og barnlaus.
Darren Star er 34 ara gamall og er
einn af þeim sem eru mest áberandi
Demi Moore hefur látið tattóvera
Planet Hollywood á öxlina á sér.
Geena Davis í Planet Hollywood
kjól ásamt Matthew Modine.