Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 37
I>v LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER.1995
fréttir,
■ ' '
Það gerði hitabeltisskúr þegar franskir hermenn leiddu málaliðann Bob Denard á brott á fimmtudag eftir að valda-
rán hans og málaliða hans var brotið á bak aftur. simamynd Reutei
höndinni, leynilegum félagsskap sem
var þekktastur fyrir árásir sínar á
frjálslynda Frakka sem studdu kröf-
una um sjálfstæöi Marokkós.
Undir árslok 1954 tók Denard þátt
í misheppnuðu tilræði gegn Pierre
Mendes France, sem þá var forsætis-
ráðherra Frakklands og vildi losa
tökin á nýlendunum. Fyrir tiltækið
var Denard dæmdur í Qórtán mán-
aða fangelsi.
í þjónustu
föðurlandsins
Franski blaðamaðurinn Pierre Pé-
an segir í bók sinni Affaires Africai-
nes, eða Afríkumálefnum, að Bob
Denard hafi í tæp tuttugu ár unnið
beint eða óbeint fyrir frönsk stjórn-
völd og leyniþjónustuna án þess þó
að nafn hans kæmi neins staðar
fram. Stjómvöld hafi fengið hann til
að fremja ýmis myrkraverk, en gert
hann síðan að blóraböggli þegar
þurfa þótti og látið hann taka á sig
alla reiði stjómarandstöðunnar og
fjölmiðlanna.
Fréttaljós
á laugardegi
Bob gekk í lið með Moise Tsjombe
og aðskilnaðarsinnum í hinu mál-
mauðuga Katanga-héraði í þáver-
andi Kongó upp úr 1960 og gat sér
gott orð í baráttu gegn Mobutu, nú-
verandi forseta Saír, og liðsmönnum
hans. Hann sveik svo aðskilnaðar-
sinna og gekk í lið með Mobutu. Árið
1967 tók hann svo virkan þátt í seinni
uppreisninni í Katanga og í þetta
sinn sveik hann Mobutu.
Á áttunda áratugnum hafði Bob
Denard aðsetur í Gabon og á þeim
áratug tók hann þátt í mörgu mi-
sjöfnu þar í landi, þar á meðal morð-
inu á þekktasta stjórnarandstæð-
ingninum, Germain M’Ba, í septemb-
er 1971.
Frá annarri plánetu
Eftir skilorðsbundna dóminn árið
1993 héldu allir að þessi frægi stríðs-
maður heíði nú loksins sest í helgan
stein á æskuslóðum, í þorpinu Gray-
an-et-l’Hopital.
íbúar þorpsins héldu Bob Denard
veislu við heimkomuna og þá lét
h'ánn þessi orð falla: „Ég er búinn
að vera á löngu ferðalagi og spyr
sjálfan mig hvort ég sé ekki að koma
frá annarri plánetu. Ég er kominn
aftur heim á vit róta minna."
Annað kom þó á daginn. Það hefur
sjálfsagt ekki verið nógu spennandi
að skrifa endurminningarnar, taka
þátt í gerð sjónvarpsmyndar um
sjálfan sig og gera drög að rekstri
líkamsræktarstöðvar. Kómoreyjar
voru enn á sínum stað og óvinsæll
forseti við völd.
Núna hlýtur Bob þó ætla að hafa
hægt um sig, eða hvað?
„Er ég þesslegur að ég fari að setj-
ast í helgan stein?“ svaraði Bob Den-
ard -aðspurður á fimmtudag,
skömmu áður en hann gaf sig
frönsku sérsveitunum á Kómoreyj-
um á vald. „Þetta er ekki uppgjöf."
Reuter o.fl.
-sem
Bob Denard er bara einn margra
nafntogaðra, eða öllu heldur al-
ræmdra, máialiða sem hafa skiiið
eftir sig blóði drifna slóð um Afríku
þvera og endilanga. Nöfn eins og
„brjálaði Mike“ Hoare og Callan
ofursti, sem var stríðsnafn Kýp-
urbúans Costasar Georgious, koma
upp í hugann þegar dauðateygjur
nýlenduveldisins í Afríku eru
skoðaðar og öll ólgan sem fylgdi í
kjölfarið.
Á blómaskeiði málaliðanna voru
mestu harðnaglarnir kallaöir „les
affreux”, eða hinir hræðilegu.
„Gegn greiðslu tóku þeir að sér aö
gera skítverkin sem Afríkubúar
gátu ekki gert sjálfir,” segir David
Lamb i bók sinni The Afrícans.
missti marga menn fallna þegar
hann reyndi fyrir sér í Angóla áriö
1976. Sjálfur var hann handsamað-
ur og tekinn af lífi. Valdaránstil-
raunir málaliöa geta einnig snúist
upp í skrípaleik, eins og misheppn-
uð valdaránstilraun btjálaða Mi-
kes á Seychelles-eyjum árið 1982.
Misjafn sauðurinn er í mörgu fé.
Og þar eru málaliðar engin undan-
tekning, nema síður sé. í hópi
þeirra, sem létu glepjast af dýrðar-
ljómanum og ölium peningunum
sem má þéna í þjónustu stríðsherra
í þriðja heirainum, má finna fyrr-
um hermenn úr frönsku útlend-
ingaherdeildinni, breska fállhlífar-
hermenn, útlæga Ródesíubúa, Suö-
ur-Afríkumenn. Svo og Belga og
Portúgala sem hörmuðu endalok
nýlendustefnunnar.
Sjálfsagt hafa margir sitthvað að
athuga við síðferðiskennd málalið-
anna. Engu að síður hefur einhvers
konar dýrðarljómi löngum verið
um störf þeirra, og bæði kvik-
myndir og sönglög hafa veriö gerð
þeim til dýrðar. Meðal frægra
mynda um málaliða og ævintýri
þeirra er Wild Geese, með þeim
Richard Burton og Roger Moore i
aðalhlutverkunum.
Hémaðaraögerðir málaliða end-
uöu oft með ósköpum. Ágætt dæmi
um það eru örlög Callans, sem
íeqn
og menn hans börðust í
Angóla fyrir skæruliðalireyfingu
Holdens Robertos, FNLA, gegn
keppinautunum í MPLA, sem nutu
stuðnings Kúbustjórnar, þegar
keppst var um völdin eftir að Port-
úgalar yfxrgáfu landið árið 1975.
Aö sögn þeirra sem til þekkja var
Callan ekki með öllum mjalla. í
bókinni The New Mercenaries eftir
Anthony Mockler segir að eitt sínn
hafi Callan viljaö prófa nýja hagla-
byssu. Hann kallaöi þá á nærstadd-
an hermann FNLA, skipaði honum
að standa í réttstöðu, stakk byssu-
hlaupinu upp i hann og hleypti af.
Menn Callans gerðu uppreisn en'
hann lét taka 14 þeirra af lífi fyrir
hugleysi. Stjórnarhermenn handt-
óku hann síðar og tóku af lifi,
ásamt með öörum málaliöum.
Brjálaði Mike Hoare, snyrtilegur
íri, lét fyrst að sér kveða i Afríku
á sjöunda áratugnum þegar hann
fór fyrir málaliðum sem börðust í
borgarastyrjöldinni í Kongó. Hami
var síðan í fararbroddi valdaráns-
manna á Seychelles-eyjum árið
1977. Hann gerði aðra valdaránstil-
raun árið 1982 en þá fór heldur illa
fyrir honum.
Hoare og menn hans komu með
áætlunarflugi frá Suður-Afríku og
þóttust þeir vera félagar í svall-
klúbbinum Hinni fornu reglu
froðublásaranna. Tollarar fundu
hins vegar vopn þeirra innan um
bamaleikföng. Málaliðarnir rændu
þá flugvél frá Air India og létu
flytja sig aftur til Suður-Afríku þar
sem þeim var stungið inn um
stundarsakir.
Gullöld málaliðanna í Afríku er
að baki en þó geta þeir sem hafa
burði og áhuga á fundið sér eitt-
hvað viö sitt hæfi. Fréttir herma
að flokkar málaliða haíi veriö send-
ír til Sierra Leone þar sem upp-
lausnarástandríkir. Reutcr
Opnað hefur:
Sálfræðistofan Andartak
(Skúlagötu 63, Reykjavik)
Sálfræðingar: Simar:
Guðrún íris Þórsdóttir 5881619
Jón Sig. Karlsson 553 6695/5688765
Kolbrún Baldursdóttir 568 2488
Lárus H. Blöndal 567 6048
Loftur Reimar Gissurarson 566 7747/5621383
^ Innrömmun -gjafavarah
Listaverkaeftirprentanir
Sérverslun með innrammaðar myndir
eftir ísl. og erl. listamenn
ítalskir rammalistar - Falleg gjafavara
p /
S* J 1/lLZO ínnrömmunarþjónusta
^_________V_______Fákafeni 9 - sími 5814370. f
Höfum opnað 04 fpemánöi veitingastað
að Laugavegi 72.
Við sérhæfum okkur í mat frá fyiðí<íd&hk<4fou,
en aðaluppistaðan er ýmiss konar keUkétth
Síðan getur þú valið meðlæti af salatbarnum
okkar sem samanstendur af bæði hefbundnu
salati og líka öimifi 04 $ou)Mk$H.
Kíkið inn og verið velkomin.
Ó[muHtotifoohitU
Opið mánud.-fimmtud. 11.30-22.00.
Föstud.-laugard. 11.30-23.30. Sunnud. 14.00-22.00.
MATTHÍASAR
v/Miklatorg
Opin aftur
Mazda E-2200 dísil ’86, ek. 88 Toyota Corolla sedan 1,6 GLI ’93,
þús. km, skiptl mögul. á ód. Verð ek. 31 þús. km. Verð 1.150.000.
470.000.
Mazda 323 F '91, ek. 52 þús. km, Nissan Sunny ’90, ek. 72 þús. km,
skipti mögul. á ód. Verð 890.000. skipti mögul. á ód. Verð 610.000.
Vantar allar gerðir bíla á skrá
og á staðinn.
Útvegum bílalán.
Sími 562-4900
Ingi Garðar Friðrikss. og Björgvin Harðars.