Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 50
58 ftfmæli LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 DV Björn G. Björnsson Björn G. Björnsson, fyrrv. forstjóri Sænska frystihússins, til heimilis að Hrafnistu við Skjólvang í Hafn- arfirði, er niræður í dag. Starfsferill Björn fæddist á Vatneyri við Pat- reksíjörð en flutti tólf ára með for- eldrum sínum í Borgarnes. Hann lauk nám frá Verslunarskóla ís- lands 1925 og stundaði framhalds- nám við verslunarskóla í Kaup- mannhöfn 1928-29. Björn var verslunarmaður í Borgarnesi 1918-27, starfaði á skrif- stofu Nathan og Olsen í Kaup- mannahöfn 1927-29, var verslunar- maður í Borgarnesi 1929-31 og síð- aníReykjavík. Björn var aðalbókari við Sænska frystihúsið í Reykjavík 1932-38 og forstjóri þess 1938-42 er það var selt hf. Frosti og var meðeigandi og forstjóri hf. Frosts frá stofnun þess. Þá stofnaði Björn umboðs- og heildverslunina Björn G. Björns- son sf. sem hann starfrækti í mörg ár ásamt fóstursyni sínum, Óskari. Björn gekk í Oddfellow-regluna og var einn af stofnendum stúku nr. 12, Skúla fógeta. Hann gegndi einu af æðstu embættum reglunnar um árabil. Þá var hann einn af sex- tíu og einum Oddfellow-bróður sem keyptu Urriðavatnslandið í Heið- mörk og gáfu Oddfellow-reglunni 1957. Fjölskylda Björn giftist 1.8.1932 Ástu Stef- ánsdóttur, f. 15.7.1905. Þau skildu. Sonur Björns og Ástu er Reynir, f. 17.7.1933, búsettur í Reykjavík. Seinni kona Björns var Ragnhild- ur Kristjánsdóttir, f. 7.7.1913, d. 13.3.1982, húsmóðir. Hún var dóttir Kristjáns Jónssonar, netagerðar- manns á ísafirði, og k.h., Jóhönnu Benónýsdóttur húsmóður. Ragnhildur átti þrjú börn sem Björn gekk í fóðurstað. Þau eru Erla, f. 25.6.1935, auglýsingateikn- ari í Bandaríkjunum; Ágústa, f. 23.12.1939,hárgreiðslumeistarií Kópavogi, gift Úlfari Sigurðssyni, starfsmanni hjá Flugleiðum, og eiga þau þrjú börn; Oskar Gísh, f. 23.12.1939, forstjóri í Garðabæ, kvæntur Sóleyju Sigurjónsdóttur og eiga þau íimm börn. Systkini Bjöms: Ingibjörg Emma, f. 5.7.1903, fulltrúi í Reykjavík; Pétur Emil Júlíus, f. 25.7.1904, d. 26.11.1991, verkfræðingur hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur; Þuríður Jenný, f. 13.1.1907, húsmóðirí Reykjavik; Karl Leó, f. 22.2.1908, d. 6.7.1941, verslunarmaður í Reykjavík; Jórunn, f. 6.9.1913, kaupkona og húsmóðir í Borgar- nesi; Anna, f. 19.5.1915, bókavörður í Hafnarfirði og á Selfossi; Margr- ét, f. 14.11.1917, húsmóðir í Reykja- vík. Hálfbróðir Björns, samfeðra: Ing- ólfur Theodór, f. 3.12.1905, verslun- armaður og stjórnarráðsfulltrúi í Reykjavík. Foreldrar Björns voru Guðmund- ur Björnsson, f. 5.12.1873, d. 4.6. 1953, sýslumaður Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, og k.h., Þóra Leopold- ína Júlíusdóttir, f. 26.8.1879, d. 26.1. 1967, húsmóðir. Ætt Bróðir Guðmundar var Kristján, faðir Þuríðar, prófessors í KHÍ. Guðmundur var sonur Björns, b. á Svarfhóli, Ásmundssonar, ogÞur- íðar Jónsdótturljósmóður, systur Málfríðar ljósmóður, móður Málm- fríðar Einarsdóttur rithöfundar. Þóra var systir Halldórs sýslu- manns. Þóra var dóttir Júlíusar, læknis á Blönduósi, Halldórssonar, yfirkennara í Reykjavík, Friðriks- sonar, bróður Ólínu, langömmu Snæbjarnar Jónassonar, fyrrv. vegamálastjóra. Móðir Þóru var Ingibjörg, systir Björns, afa Bjöms Sigfússonar háskólabókavarðar, föður Sveinbjörns háskólarektors. Ingibjörg var dóttir Magnúsar, prests og læknis á Grenjaðarstað, Jónssonar, bróður Guðnýjar, ömmu Haraldar Níelssonar pró- fessors. Önnur systir Magnúsar Björn G. Björnsson. var Margrét, amma Ólafs Friðriks- sonar. Móðir Ingibjargar var Þór- vör Skúladóttir, prests í Múla, Tómassonar, bróður Einars, föður Hálfdanar, langafa Helga Hálfdan- arsonar þýðanda. Móðir Þórvarar var Þórvör Sigfúsdóttir, prófasts og skálds á Höfða, Jónssonar, og Guðrúnar Ketilsdóttur, prests f Húsavík, Jónssonar. Móðir Guð- rúnar var Guðrún Magnúsdóttir, systir Skúla landfógeta. Björn er að heiman á afmælisdag- inn. 95 ára Friede P. Briem, Bergstaðastræti 69, Reykjavík. 80 ára Rögnvaidur S. Möller, Hornbrekku, Ólafsflrði. Ásta Einarsdóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Gunnar Sigurðsson, Leiralækjarseh 1, Álftaneshreppi. 75 ára Ingveldur Þórarinsdóttir, Geirastööum, Bolungarvik. ErlendurPálsson, Móaflöt 20, Garðabæ. Ragnar Ólafsson, Bimufelli, Fellahreppi. 70ára Sigríður Einarsdóttir, Runnum II, Reykholtsdalshreppi. Eiginmaður Sig- ríðarerÞorvald- urPálmason kennari. Tekiðverðurá mótigestumífé- lagsheimilinu Logalandií kvöld, laugardag inn 7.10., frákl. 20.30. Guðmundur Kristinsson, bóndi að Grímsstöðum II, Reyk- holtsdalshreppi. Hann tekur á móti gesíum í félags- heimilinu Logalandi, laugardags- kvöldið 7.10. kl. 20.30. Bergsteinn Jónsson, Sólvangi, Hálshreppi. Grétar Magnósson, Eskiholti9, Garðabæ. Kristrún Guðmundsdóttir, Frostafold 117, Reykjavík. Elísabet Hrefna Jónsdóttir, Ghtvangi 29, Hafnarfirðí. Eygló Ebenesersdóttir, Engjaseli 11, Reykjavík. Sigríður Kristjánsdóttir, Oddagötu 6, Reykjavík. Guttormur V. Þormar, Eikjuvogi 5, Reykjavík. Sigurður Jónsson, Hammersminni3, Djúpavogs- hreppi. 60 ára Vilborg Bj örgvinsdóttir, Kópavogsbraut90, Kópavogi. Steinunn Pálsdóttir, Austurvegi 4, Mýrdalshreppi. 50 ára Erlingur Friðgeirsson, Meltúni, Mosfellsbæ. 40ára Helga Ellen Sigurðardóttir, Heiðarbraut 9 B, Keflavík. Þórunn Sveinsdóttir, Suðurhólum 2, Reykjavík. ~ Sigurlaug Lára Eiríksdóttir, Heiðarbóli 15, Keilavík. — Eyvindur Albertsson, Bæjartúni 9, Kópavogi. Nanna Ingibjörg Jónsdóttir, Fellsmúla 2, Reykjavik. María Guðmunda Kristinsdóttir, _ Vallholti 7, Akranesi. ': Janus Friðrik Guðlaugsson, Austurtúni 3, Bessastaðahreþpi. Tryggvi Ásgrímsson, Furugrund 40, Akranesi. Menningarsjóður útvarpsstöðva auglýsir Stjórn Menningarsjóðs útvarpsstöðva hefur lokið úthlutun styrkja eftir umsóknum sem bárust 1994 og 1995. Umsækjendur, sem ekki var úthlutað styrkj- um, geta nálgast umsóknir sínar á skrifstofu Bjarna Þórs Óskarssonar hdl. að Laugavegi 97, Reykjavík, fyrir 20.10. 1995. Þeir sem hyggjast sækja umsóknir sínar eru vinsamiega beðnir að tilkynna það með eins dags fyrirvara í síma 552 7166. Gyða Brynjólfsdóttir Gyða Brynjólfsdóttir, Gautlandi 5, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Gyða fæddist að Ormsstöðum í Breiðdal í Suður-Múlasýslu og ólst þar upp. Hún kom til Reykjavíkur 1940 þar sem hún m.a. starfaði í bakaríi. Auk húsmóðurstarfa hef- ur Gyða starfað á skrifstofu Sóln- ingar hf. sl. fimmtán ár. Gyða hefur starfað mikið með Kvenfélagi Grensásóknar og stundað sjáltboðavinnu við félags- starf eldri borgara á vegum Reykja- víkurborgar. Fjölskylda Eiginmaður Gyðu var Skúh A. Steinsson, f. 7.12.1924, d. 1980, for- stjóri. Hann var sonur Steins Ás- mundssonar og Valgerðar Jónas- dóttur. Böm Gyðu og Skúla eru Bryndís Skúladóttir, f. 10.3.1945, sérkennari í Hafnarflrði, gift Páli Arnasyni framleiðslustjóra; Gunnsteinn Við- ar, f. 31.1.1947, framkvæmdastjóri í Garðabæ, kvæntur Sigrúnu Gunnarsdóttur leirlistarkonu; Guðlaug Skúladóttir, f. 7.1.1955, húsmóðir í Keflavík, gift Vilberg Skúlasynikjötiðnaðarmanni; Sigr- ún Skúladóttir, f. 19.2.1956, tækni- teiknari í Reykjavík, gift Jóni Sverrissyni húsasmið; Halldór Skúlason, f. 5.8.1960, skrifstofu- maður í Kópavogi, kvæntur Jónu Ágústu Helgadóttur húsmóður og eiga þau þrjár dætur. Systkini Gyðu: Guðmundur Þór- arinsson, nú látinn, búsettur í Reykjavík, var kvæntur Ragnheiði Guðmundsdóttur og eru börn þeirra tvö; Sigríður, nú látin, b á Ormsstöðum, og eignaðist hún eina dóttur; Guðný Helga, húsmóðir í Reykjavík, gift Birni Jónssyni og eiga þau tvo syni; Guðrún, hús- móðir á Reyðarfiröi, gift Valtý Sæ- Gyða Brynjólfsdóttir. mundssyni og eiga þau fjögur börn> Foreldrar Gyöu voru Brynjólfur Guðmundsson, bóndi á Omrsstöð- um í Breiðdal, og Guðlaug Eiríks- dóttir húsfreyja. Gyðaererlendis. Heimir Lárusson Fjeldsted Heimir Lárusson Fjeldsted kaup- maður, Hjarðarhaga 17, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Heimir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk nám í mjólkurfræði frá Dalum mejeri- skole í Odense 1968, framhalds- námi frá sama skóla 1969 og síðar námi við Útflutnings- og markaðs- skólann. Heimir réðst til starfa hjá Mjólk- ursamlaginu í Búðardal að námi loknu og var þar til 1977, lengst af sem mjólkursamlagsstjóri. Auk þess var hann fréttaritari Ríkisút- varpsins. Þá starfrækti hann fast- eignasöluí Reykjavík um árabil. Heimir var sérfræðingur í hrein- lætismálum hjá Framleiðslueftir- hti sjávarafurða og síðar Ríkismati sjávarafurða en þar hafði hann yf- irumsjón með vinnsluleyfaveiting- um til flskvinnslustöðva. Hann var framkvæmdastjóri Rækjuvinnsl- unnar á Skagaströnd í rúm tvö ár og gegndi jafnframt framkvæmda- stjórastöðu Marska hf. á sama tíma. Þá sat hann í hreppsnefnd Höföahrepps og var þar varaodd- viti. Heimir starfaði síðan að sjálf- stæðri sölu- og markaðsráðgjöf um árabil auk þess að vinna að útflutn- ingi sjávarafurða. Þau hjónin keyptu svo matvöraverslunina Kvöldúlf við Bræðraborgarstíg fyr- ir rúmum tveimur árum og starf- rækja hana. Heimir hefur tekið virkan þátt í ýmsum félagsmálum og skrifað fjölda greina í blöð og tímarit. Fjölskylda Heimir kvæntist 14.10.1966 Sig- ríði Jónasdóttur, f. 30.11.1946. Hún er dóttir Jónasar Sólmundssonar húsgagnasmíðanjeistara, og Nikol- ínu Ehnar Guðmundsdóttur hús- móður. Heimir og Sigríður skildu. Börn Heimis og Sigríðar eru Ingi- björg Sif, f. 29.5.1970, skrifstofu- maður í Reykjavík, en unnusti hennar er Aðalsteinn Elíasson frá ísafirði; Jónas Már, f. 15.12.1972, verslunarmaður í Reykjavík. Heimir kvæntist 14.8.1993 Guð- rúnu Guðmundsdóttur, f. 16.9.1952, kaupmanni. Foreldrar hennar: Guðmundur Brynjólfsson frá Ormsstööum í Breiðdal sem er lát- inn, og Ragnheiður Guðmunds- dóttirhúsmóöir. Systkini Heimis eru Björn Rík- arður, f. 7.11.1942, húsgagnasmíða- meistari í Hafnarfirði; Hrafnhild- ur, f. 18.8.1944, læknir í Lundi í Svíþjóð; Eggert, f. 20.5.1948, doktor í jarðvísindum, veðurfréttamaður og kennari í Reykjavík; Birgir, f. 12.11.1951, kaupmaður í Reykjavík; Heimir Lárusson Fjeldsted. Sigurbjörn, f. 14.7.1956, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Heimis: Lárus Harrý Eggertsson Fjeldsted, f. 22.6.1910, d. 7.4.1991, oglngibjörgBjömsdótt- ir,f. 22.8.1911. Þau hjónin bregða sér af bæ á afmæhsdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.