Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 7. OKTOBER 1995 afmæli Bjarni Þórarinn Ólafsson Bjarni Þórarinn Ólafsson, fyrrv. bóndi að Neðri-Rauðsdal á Barða- strönd, nú til heimilis í Kambi, húsi eldri borgara á Patreksflrði, er níræður í dag. Starfsferill Bjarni fæddist á Hlaðseyri við Patreksfjörð og ólst þar upp fyrstu árin. Hann var þriggja ára er hann missti foður sinn og fór þá í fóstur að Haga á Barðaströnd til hjónanna Hákonar J. Kristóferssonar og Bjargar Einarsdóttur. Þar var þá móðurbróðir hans, Samúel Guð- mundsson vinnumaður. Bjarni ólst upp við öll almenn sveitastörf á Haga og stundaði síðan landbúnað- arnám á Blikastöðum í Mosfells- sveit. Að námi loknu var Bjarni ráðs- maður og bústjóri á Haga þar til hann gerðist bóndi og flutti, ásamt fjölskyldu sinni, að Vaðli 1930. Þau fluttu ári síðar að Hærri-Vaðli þar sem þau voru í sjö ár en þaðan að Moshlíð 1938. Loks flutti Bjami með fjölskyldu sína að Neðri- Rauðsdal 1945 þar sem hann stund- aði búskap þar til þau hjónin fluttu til Patreksfjarðar 1986. Bjarní var forðagæslumaður í sinni sveit um árabil. Fjölskylda Bjarni kvæntist 2.3.1929 Sigríði Valdísi Ehasdóttur, f. 16.9.1909, d. 1994, húsfreyju. Hún var dóttir El- íasar Bjarnasonar, b. á Neðra-Vaðli á Barðaströnd, og k.h., Elínar Kristínar Einarsdóttur húsfreyju. Börn Bjarna og Valdísar eru Svanhvít, f. 8.12.1929, húsmóðir á Patreksfirði, gift Sigurjóni Árna- syni vélsmið og eiga þau fimm börn og tíu barnaböm; Elías Kjartan, f. 26.8.1933, d. 1985, b. í Neðri-Rauðsd- al, var kvæntur Bjarnheiði Ragn- arsdóttur og eignuðust þau seinn son sem drukknaði í Glerá 1989, þá sjö ára; Ásgeir Valdimar, f. 22.5. 1935, dó sex ára; Björg, f. 25.7.1936, húsmóðir á Patreksfirði, gift Karli Höfðdal verkamanni og eiga þau sex börn og fjórtán bamabörn; Samúel, f. 11.6.1938, flokkstjóri hjá Reykjavíkurborg, í sambúð með Kolbrúnu Ingólfsdóttur og á hann sex börn, eina fósturdóttur ogfjórt- án barnabörn; Elsa, f. 11.9.1941, húsfreyja að Stóra-Fjarðarhorni, gift Sigurði Jónssyni bónda og eiga Anna Kristinsdóttir Anna Kristinsdóttir húsmóðir, Víðilundi 6E, Akureyri, er áttræð í dag. Starfsferill Anna fæddist á Jaðri áDalvík og ólst upp á Dalvík. Hún flutti til Akureyrar 1933 þar sem hún hefur átt heima síðan. Anna stundaði lengst af húsmóðurstörf en eftir að hún varð ekkja vann hún lengst við Kjötiðnaðarstöð KEA. Hún hef- ur starfað lengi með Kvenfélaginu Hlíf. Fjölskylda Anna giftist 2.6.1934 Valdimar Haraldssyni, f. 15.9.1912, d. 29.2. 1964, pylsugerðarstjóra hjá KEA. Hann var sonur Haralds Þorvalds- sonar verkamanns og Ólafar Sig- uröardóttur húsmóður. Börn Önnu og Valdimars eru Haraldur Óh, f. 17.12.1934, slátur- hússtjóri KEA á Akureyri, kvænt- ur Ólínu Sigurjónsdóttur og eiga þau þrjár dætur; Edda Líney, f. 6.12. 1937, húsmóðir á Akureyri, gift Hallgrími Baldvinssyni ketil- og plötusmið og eiga þau fjögur börn; Sigurður Viðar, f. 14.1.1946, mat- reiðslumaður á Dalvík, og á hann tvo syni; Valdemar, f. 17.7.1952, matreiðslumaður við Fjórðungs- sjúkrahús Akureyrar, kvæntur Þuríði Árnadóttur og eiga þau einn son. Barnabörn Önnu eru nú tíu tals- ins, langömmubörnin fjórtán og eitt langalangömmubarn. Anna átti þrjá bræður og tvær hálfsystur sem öh em látin. Þá á hún hálfbróður, Arngrím Kristins- son, f. 11.4.1935, matsvein á Dalvík. Foreldrar Önnu vora Kristinn Hallgrímsson, f. 6.10.1889, d. 4.6. 1973, sjómaður á Dalvík, og Snjó- laug Jónsdóttir, f. 26.8.1891, d. 10.10. Anna Kristinsdóttir. 1928, húsmóðir. Anna tekur á móti gestum í Starfsmannasal KEA, Sunnuhlíð, í dagfrákl. 16.00-19.00. Halldóra Steinunn Bjarnadóttir Halldóra Steinunn Bjarnadóttir, húsmóðir og starfskona við fram- reiðslustörf, Vesturgötu 7, en áður aö Háagerði 55, Reykjavík, verður níræð á morgun. Fjölskylda HaUdóra fæddist á Rófu í Miðfirði og ólst upp í Miðfirðinum. Auk húsmóðurstarfa stundaði hún framreiðslustörf, lengst af í Odd- fellow-húsinu við Tjarnargötu. Halldóra Steinunn giftist 14.5. 1927 Ólafi Jónssyni, f. 24.3.1903, d. 1983, símamanni. Hann var sonur Jóns Ólafssonar og Sigurbjargar Jónsdóttur. Börn HaUdóru Steinunnar og Ól- afs eru Sigurður, póst- og símstöðv- arstjóri í Borgarnesi, kvæntur Guðbjörgu Þorleifsdóttur; Sigrún, skrifstofustjóri, gift Hilmari Guð- mundssyni; Birgir byggingameist- ari sem lést 1972, var kvæntur Ól- ínu Þorsteinsdóttur; Einar, for- stjóri í Bandaríkjunum, kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur. Foreldrar Halldóru Steinunnar voru Bjarni Danival Kristmunds- son, bóndi á Gafli í Miðfirði, og Sig- urborg Sigrún Einarsdóttir hús- freyja. Áfmælisbarnið tekur á móti gest- um í Félagsmiðstöðinni að Vestur- götu 7 afmæhsdaginn, sunnudag- inn8.10.,kl. 15.30-18.00. Halldóra Steinunn Bjarnadóttir. þau einn son; Sigfríður, f. 7.9.1945, dó sexára. Systkini Bjarna: Sigríður, nú lát- in, húsmóðir í Reykjavík, var gift Steingrími Steingrímssyni verk- stjóra og eignuðust þau eina dótt- ur; Ólafur, nú látinn, verkstjóri á Patreksflrði, var kvæntur Ólafíu Þorgrímsdóttur húsmóður og eign- uðust þau fjögur börn. Hálfsystkini Bjarna, sammæðra: Jóhanna, nú látin, húsmóðir í Reykjavík, var gift Guðjóni Guð- mundssyni og eignuðust þau tvo syni; Magnús, sjómaður á Bakka- firði, kvæntur Járnbrá Einarsdótt- ur húsmóður og eiga þau sex böm. Foreldrar Bjarna voru Ólafur Gísli Bjarnason, bóndi á Hlaðseyri, og k.h., Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja. Bjarni Þórarinn Olafsson. Bjarni tekur á móti gestum á heimili sínu í dag kl. 15.00-18.00. Til hamingju með afmælið 8. október 90 ára Ágústa Ágústsdóttir, Svínadal, Skaftárhreppi. Hólabraut4, Hrísey. Kristbjörg Nína Hjaltadóttir, Hátúni 10 A, Reykjavík. Álfheiður Kjartansdóttir, Háteígsvegi42, Reykjavik. 80 ára Pálína Vigfúsdóttir, frá Flatey á Breiöaflrði, Fannborg 1, Kópavogi. Pálínatekurá mótigestumá heimihsonar sínsogtengda- dóttur, Hryggj- arseli 10, Reykja- vík, sunnudaginn 8.l0.frákl. 15.00- 18.00. Þórður Elíasson, Hólshúsum, Gaulveijabæjar- hreppi. Þórðureraöheiman. 75ára ÓlöfSigurðardóttir, Hátúni 10, Reykjavík. Stefán Ólafsson, Ólafsvegi 2, Ólafsfírði. 70 ára 50ára Halla Hallgrímsdóttir, Baldursbrekku 16, Húsavík. Ámi V. Sigurðsson, Fiúðaseh 90, Reykjavík. Erna Hannesdóttir, Mýrarási 4, Reykjavík. Sigrún Þormóðsdóttir, Mýrargötu41, Neskaupstað. Hafsteinn Tómasson, Hamragerðí 9, Reykjavík. 40ára Jónas Garðarsson, Vesturási 25, Reykjavík. Bryndís Kristinsdóttir, Víði, Mosfellsbæ. Hulda María Þorbjörnsdóttir, Brekkustíg 17, Njarðvík. Guðmunda Vigfúsdóttir, Skólabraut5, Seltjamarnesi. Ragnhildur Ragnarsdóttir, Djúpavogi 7, Höfnum. Jónanna Guðrún Björnsdóttir, Skaftalúíð 9, Reykjavík. Guðrún Baldvinsdóttir, Menning Tranan og furutréð Ut er komin geislaplatan Tranan og furutréð, kínversk tónlist undir sindrandi norðurljósum. Það er Kínversk-íslenska menningarfé- lagið sem gefur plötuna út. Á plötunni er að finna ýmis kín- versk lög og tónverk, en einnig þrjú alþekkt íslensk lög: Fughnn í fjör- unni eftir Jón Þórarinsson, Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kalda- lóns og þjóðlagið Austankaldinn á oss blés. Lögin á plötuna voru vahn af Amþóri Helgasyni. Alls eru á plötunni 17 tónverk og verða þau ekki öll talin upp hér, en látið nægja að stikla á stóru. Fjölbreytnin er mikil, bæði hvað varðar stíl og hljóðfæraskipan. Gaman er að heyra íslensku lögin leikin á kínversk hljóðfæri, þótt hljómarnir í þeim séu á stundum á annan veg en við höfum vanist til þessa. Það eru hljóðfæraleikarar úr hinni þjóölegu hljómsveit frá Jinan og hljóðfæraleikarar úr Hljómsveit kvikmyndaversins í Beijing sem leika á plötunni og er ljóst að hér er ekki um neina aukvisa að ræða. Tæknimenn voru þeir Hreinn Valdimarsson, Runólfur Þorláks- son og Bjarni R. Bjarnason, en Arn- Tónlist Áskell Másson þór Helgason sá um stjórn í hljóð- veri. Eitt fegursta verk plötunnar er vafalaust Máninn speglast í tjöm- inni, sem er leikið á hina seiðandi tveggja strengja Erhu-fiðlu. Sem dæmi um mikla hljóðfærasnilh, má nefna lagið Fyrirsát á alla vegu, sem leikið er á Pipa, sem er peru- laga kínversk lúta, með fjórum strengjum. Hér er dæmigerð kín- versk hermitónhst þar sem morar af hljóðlíkingum, t.d. af hneggi hesta, vagnaskrölti og vopnagný. Einnig má nefna Vor á Himingjöh- um sem leikið er á Pipa og sem lýsir vorkomu með snjóleysingum og fossandi lækjum. í hinu þrungna fljóti, sem leikið er á Guan, htla tveggja blaða hljóðpípu, og Zheng, sem er margstrengja hljóðfæri með rétthyrndan hljómbotn, trúir kona ólgandi fljóti fyrir raunum sínum og í Drukknum skylmingamanni er klaufskum hreyfingum lýst á munnorgelið Sheng. Fyrir undirrituöum er tónhstin á þessari plötu bráðskemmtileg og frábærlega er hún leikin, á því er ekki vafi. Útlit plötunnar er einstaklega fallegt, en um hönnun þess sá F.mil Bóasson og eru greinargóðar upp- lýsingar þar um innihaldið. !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.