Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Side 56
r>-
LOKI
Er þá ekki Óskar Magnússon
loksins kominn í valdastöðu?
i
Mánudagur
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995.
Tveir 12 ára drengir urðu fyrir miklu áfalli:
Fundu kanínu <
sína skorna á :
háls í búrinu
t
- óhuggulegt, segir móðir
i
„Viö komum hérna vinirnir og
sáum karldýrið liggja einhvem veg-
inn meö höfuðið beygt í gatinu á
kanínubúrinu. Ég hélt fyrst að kan-
ínan væri sofandi en þegar ég lyfti
upp hleranum og virti hana betur
fyrir mér sá ég að hún var dauð. Ég
tók hana upp og sá far eftir hníf á
hálsinum og gerði mér fljótlega grein
fyrir að hún hafði verið drepin,"
sagði Grímur Aspar Birgisson, 12
ára, annar eigandi kanínubúrs, sem
varð skelfmgu lostinn ásamt Óðni
Eggertssyni, félaga sínum og jafn-
aldra, þegar þeir uppgötvuðu að önn-
ur kanínan þeirra, sem var í búri
fyrir utan heimili Óðins í Suðurhlíð-
um, hafði verið skorin á háls.
Sigrún Grímsdóttir, móðir Gríms,
sagði að drengjunum heföi orðið
mjög mikið um og hefðu báðir misst
matarlyst um kvöldið eftir atburð-
mn.
„Ég er slegin óhug og veit ekki
hvað býr að baki þessu. Grímur var
lengi að jafna sig. Ég sagði við lög-
regluna að mér fyndist óhuggulegt
að einstaklingur sem gerir svona
gengi laus. Ég er fyrst og fremst
skelfingu lostin að svona lagað geti
yfir höfuð gerst. Sá sem framkvæmir
svona ódæðisverk við dýr getur einn-
ig gert fólki mein,“ sagði Sigrún.
Eggert Ólafsson, faðir Óðins, sagði
það umhugsunarefni að lítið barn
heföi verið látið sofa úti í vagni á
nánast sama stað og kanínan var
drepin. „Það er spurning hvort mað-
ur þorir það núna,“ sagði Eggert.
Óðinn og Grímur höfðu átt kanín-
urnar tvær í einn mánuð. Sú sem
„lifði af ‘ er nú geymd annars staðar
en í garðinum þar sem búrið er.
-Ótt
J
)
J
í
i
Forstjórí Hag
I
kaupsí búskap
l
„Ég neita því ekki að ég sé búandi ingjafólk sitt sem brá sér í nokkurra
hér. Það má segja að ég sé að kynna
mér landbúnaðarmálin frá þessari
hlið en meira er ekki um málið að
segja,“ sagði Óskar Magnússon, for-
stjóri Hagkaups, í samtali víð DV þar
sem hann var staddur að Valdastöð-
um í Kjósarsýslu.
Óskar annast ásamt fjölskyldu
sinni búskapinn að Valdastöðum í
Kjósarsýslu þar sem hann gengur til
aúra verka svo sem að mjólka kýr
og fóðra hænsn. Þetta ástand er þó
ekki til langrar framtíðar samkvæmt
heimildum DV, heldur eru Óskar og
fjölskylda hans að leysa af kunn-
vikna frí frá bústörfunum.
Þetta er engin rólegheitavinna því
bústofninn samanstendur af 15 kúm
í fjósi, 180 fjár og nokkur þúsund
hænsnum. Eftir því sem DV kemst
næst hefur Óskar ekki áður fengist
við bústörf. Kona Óskars, Hrafnhild-
ur Sigurðardóttir, er aftur á móti
ættuð úr sveit og þekkir því vel til
slíkra starfa. Þá hefur 12 ára sonur
hans, Magnús, verið í sveit að Valda-
stöðum.
Fjölskyldan mun dveljast að Valda-
stöðumnæstuþrjárvikurnar. -rt
(
í
Veöriö á suimudag og mánudag:
Smáskúrir eða slydduél
Á morgun verður norðlæg átt, víða kaldi eða stinningskaldi. Rigrnng eða slydda á Norðurlandi og Vestfjörðum en úrkomulítið
annars staðar. Hiti 1 til 7 stig.
Á mánudaginn verður vestlæg átt og smáskúrir eða slydduél með norður- og norðausturströndinni en að mestu þurrt í öðrum
landshlutum. Hiti 0 til 6 stig en víða næturfrost.
Veðrið 1 dag er á bls. 61
Sunnudagur
Kartöflu-
garðar á floti
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kartöflugarðar í Eyjaflrði eru nán-
ast á floti þessa dagana eftir hinar
miklu rigningar að undanförnu og
engin leið að fara um þá til að taka
upp það sem bændur eiga eftir af
kartöflum í jörðu.
„Menn eiga ekki eftir að taka mjög
mikið upp, en þó er það misjafnt.
Þessa dagana er engin leið að vinna
í görðunum því þeir eru vatnssósa,"
segir Sveinberg Laxdal, kartöflu-
bóndi á Svalbarðsströnd. Hann segir
að þaö sem bændur óttist mest þessa
dagana sé að í kjölfar rigninganna
frysti skyndilega, en þá verður
hreinlega ekki hægt að taka upp það
sem eftir er. „Við höfum talsverðar
áhyggjur af því að þetta ástand skap-
ist en ef styttir upp og birtir til þá
bjargast þetta,“ segir Sveinberg.
Uppskera í Eyjaflrði er undir með-
allagi þegar á heildina er litið. Þö
mun hún misjöfn eftir því hvernig
einstöku kartöflugarðar liggja.
Þýskikvótinn:
Ennekkiákært
Ríkissaksóknari hefur enn ekki
tekið afstöðu til þess hvort ákært
verður vegna kvótans sem Ósvör hf.
leigði þýska fyrirtækinu Lubbert.
Rannsóknarlögregla ríkisins sendi
málið frá sér fyrir nokkrum vikum
eftiraðhafalokiörannsóknþess. -rt
Búvörusamningur:
Auka búnaðarþing
Búnaðarþing hefur boðað til auka-
fundar þriðjudaginn 10. október um
nýjan búvörusamning. Ari Teitsson
mun þar gera þeim 39 fulltrúum sem
þar sitja grein fyrir breytingum sem
gerðar voruásamningnum. -rt
PT-7000
Merkivél
m/íslensku letri
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443
á háls í búrinu fyrir utan heimili Óðins en þeir höfðu verið með tvær kanínur
í garðinum um eins mánaðar skeið. Með honum á myndinni er hundurinn
Prins. DV-mynd BG
Akureyri:
■■■■
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur í vikunni upplýst ljölda inn-
brota sem framin hafa verið í bæn-
um og utan hans á undanfórnum
dögum og inánuðum.
Að sögn Daníels Snorrasonar rann-
sóknarlögreglumanns komu 6 aðilar
að þessum innbrotum og voru ekki
afltaf sömu menn að verki þótt þeír
tengist í sumum innbrotanna. Menn-
irnir brutust m.a. inn í skrifstofu
Sálarrannsóknafélags Akureyrar, í
geymsluskúra, i matvöruverslun,
húsnæði Skógræktarfélags Eyfirð-
inga í Kjamaskógi og Flutningamið-
stöð Norðurlands. Verðmæti þeirra
hluta sem stolið var nemur á aðra
mifljón króna.