Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Qupperneq 56
r>- LOKI Er þá ekki Óskar Magnússon loksins kominn í valdastöðu? i Mánudagur FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú Sbendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995. Tveir 12 ára drengir urðu fyrir miklu áfalli: Fundu kanínu < sína skorna á : háls í búrinu t - óhuggulegt, segir móðir i „Viö komum hérna vinirnir og sáum karldýrið liggja einhvem veg- inn meö höfuðið beygt í gatinu á kanínubúrinu. Ég hélt fyrst að kan- ínan væri sofandi en þegar ég lyfti upp hleranum og virti hana betur fyrir mér sá ég að hún var dauð. Ég tók hana upp og sá far eftir hníf á hálsinum og gerði mér fljótlega grein fyrir að hún hafði verið drepin," sagði Grímur Aspar Birgisson, 12 ára, annar eigandi kanínubúrs, sem varð skelfmgu lostinn ásamt Óðni Eggertssyni, félaga sínum og jafn- aldra, þegar þeir uppgötvuðu að önn- ur kanínan þeirra, sem var í búri fyrir utan heimili Óðins í Suðurhlíð- um, hafði verið skorin á háls. Sigrún Grímsdóttir, móðir Gríms, sagði að drengjunum heföi orðið mjög mikið um og hefðu báðir misst matarlyst um kvöldið eftir atburð- mn. „Ég er slegin óhug og veit ekki hvað býr að baki þessu. Grímur var lengi að jafna sig. Ég sagði við lög- regluna að mér fyndist óhuggulegt að einstaklingur sem gerir svona gengi laus. Ég er fyrst og fremst skelfingu lostin að svona lagað geti yfir höfuð gerst. Sá sem framkvæmir svona ódæðisverk við dýr getur einn- ig gert fólki mein,“ sagði Sigrún. Eggert Ólafsson, faðir Óðins, sagði það umhugsunarefni að lítið barn heföi verið látið sofa úti í vagni á nánast sama stað og kanínan var drepin. „Það er spurning hvort mað- ur þorir það núna,“ sagði Eggert. Óðinn og Grímur höfðu átt kanín- urnar tvær í einn mánuð. Sú sem „lifði af ‘ er nú geymd annars staðar en í garðinum þar sem búrið er. -Ótt J ) J í i Forstjórí Hag I kaupsí búskap l „Ég neita því ekki að ég sé búandi ingjafólk sitt sem brá sér í nokkurra hér. Það má segja að ég sé að kynna mér landbúnaðarmálin frá þessari hlið en meira er ekki um málið að segja,“ sagði Óskar Magnússon, for- stjóri Hagkaups, í samtali víð DV þar sem hann var staddur að Valdastöð- um í Kjósarsýslu. Óskar annast ásamt fjölskyldu sinni búskapinn að Valdastöðum í Kjósarsýslu þar sem hann gengur til aúra verka svo sem að mjólka kýr og fóðra hænsn. Þetta ástand er þó ekki til langrar framtíðar samkvæmt heimildum DV, heldur eru Óskar og fjölskylda hans að leysa af kunn- vikna frí frá bústörfunum. Þetta er engin rólegheitavinna því bústofninn samanstendur af 15 kúm í fjósi, 180 fjár og nokkur þúsund hænsnum. Eftir því sem DV kemst næst hefur Óskar ekki áður fengist við bústörf. Kona Óskars, Hrafnhild- ur Sigurðardóttir, er aftur á móti ættuð úr sveit og þekkir því vel til slíkra starfa. Þá hefur 12 ára sonur hans, Magnús, verið í sveit að Valda- stöðum. Fjölskyldan mun dveljast að Valda- stöðumnæstuþrjárvikurnar. -rt ( í Veöriö á suimudag og mánudag: Smáskúrir eða slydduél Á morgun verður norðlæg átt, víða kaldi eða stinningskaldi. Rigrnng eða slydda á Norðurlandi og Vestfjörðum en úrkomulítið annars staðar. Hiti 1 til 7 stig. Á mánudaginn verður vestlæg átt og smáskúrir eða slydduél með norður- og norðausturströndinni en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig en víða næturfrost. Veðrið 1 dag er á bls. 61 Sunnudagur Kartöflu- garðar á floti Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Kartöflugarðar í Eyjaflrði eru nán- ast á floti þessa dagana eftir hinar miklu rigningar að undanförnu og engin leið að fara um þá til að taka upp það sem bændur eiga eftir af kartöflum í jörðu. „Menn eiga ekki eftir að taka mjög mikið upp, en þó er það misjafnt. Þessa dagana er engin leið að vinna í görðunum því þeir eru vatnssósa," segir Sveinberg Laxdal, kartöflu- bóndi á Svalbarðsströnd. Hann segir að þaö sem bændur óttist mest þessa dagana sé að í kjölfar rigninganna frysti skyndilega, en þá verður hreinlega ekki hægt að taka upp það sem eftir er. „Við höfum talsverðar áhyggjur af því að þetta ástand skap- ist en ef styttir upp og birtir til þá bjargast þetta,“ segir Sveinberg. Uppskera í Eyjaflrði er undir með- allagi þegar á heildina er litið. Þö mun hún misjöfn eftir því hvernig einstöku kartöflugarðar liggja. Þýskikvótinn: Ennekkiákært Ríkissaksóknari hefur enn ekki tekið afstöðu til þess hvort ákært verður vegna kvótans sem Ósvör hf. leigði þýska fyrirtækinu Lubbert. Rannsóknarlögregla ríkisins sendi málið frá sér fyrir nokkrum vikum eftiraðhafalokiörannsóknþess. -rt Búvörusamningur: Auka búnaðarþing Búnaðarþing hefur boðað til auka- fundar þriðjudaginn 10. október um nýjan búvörusamning. Ari Teitsson mun þar gera þeim 39 fulltrúum sem þar sitja grein fyrir breytingum sem gerðar voruásamningnum. -rt PT-7000 Merkivél m/íslensku letri Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 á háls í búrinu fyrir utan heimili Óðins en þeir höfðu verið með tvær kanínur í garðinum um eins mánaðar skeið. Með honum á myndinni er hundurinn Prins. DV-mynd BG Akureyri: ■■■■ Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri: Rannsóknarlögreglan á Akureyri hefur í vikunni upplýst ljölda inn- brota sem framin hafa verið í bæn- um og utan hans á undanfórnum dögum og inánuðum. Að sögn Daníels Snorrasonar rann- sóknarlögreglumanns komu 6 aðilar að þessum innbrotum og voru ekki afltaf sömu menn að verki þótt þeír tengist í sumum innbrotanna. Menn- irnir brutust m.a. inn í skrifstofu Sálarrannsóknafélags Akureyrar, í geymsluskúra, i matvöruverslun, húsnæði Skógræktarfélags Eyfirð- inga í Kjamaskógi og Flutningamið- stöð Norðurlands. Verðmæti þeirra hluta sem stolið var nemur á aðra mifljón króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.