Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1995, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÖBER 1995
Fréttir
x>v
Barátta skipafélaganna um þjóðvegina:
Samskip vilja kaupa eða reka
okkur úr Landflutningum
- segir Kári Svavarsson á Egilsstöðum
„Samskipamenn hafa verið eins
og grenjandi Ijón hérna um alit.
Þeir hafa hringt oft í Svavar Sig-
urðsson sem er fyrir þessu fyrir-
tæki. Síðast hringdu þeir um helg-
ina með þær hótanir að gengjum
við ekki að kröfum þeirra um að
selja þá yrði þetta fyrirtæki rekið
úr Landflutningum," segir Kári
Svavarsson, starfsmaður flutn-
ingafyrirtækis Svavars og Kol-
brúnar á Egilsstöðum. Hann segir
að Samskipamenn hafi lengi legið
í forsvarsmönnum fyrirtækisins til
að ná tii sín fyrirtækinu.
Eins og DV skýrði frá í síðustu
viku á sér nú stað mikið kapphlaup
mUli risanna tveggja, Eimskips og
Samskipa, um flutninga á þjóðveg-
um landsins. Báðir þessir aðilar
hafa komið sér fyrir á Egilsstöðum.
Kári Svavarsson segir að hótunin
um að vísa fyrirtækinu úr Land-
flutningum hf. sé furðuleg.
„Máhð er það að Samskip eiga
ekki beinan hlut í Landflutningum.
Þessi stöð var byggð upp af bíistjór-
unum sem þar keyra,“ segir hann.
Kári segir að svo virðist sem
Landsbankinn standi að baki Sam-
skipa i þessu máli.
„Það er mjög undarlegt að þeir
skuli hafa sagt að þegar Svavar
væri tilbúinn til aö selja þá yrði
bara farið í Landsbankann og geng-
iö frá þessu þar. Er Landsbankinn
að púkka undir þetta fyrirtæki og
keppa við sína eigin kúnna? Ég
veit ekki betur en öll velta þessa
fyrirtækis fari í gegnum Lands-
bankann. Þeir virðast ganga í okk-
ar peninga í bankanum og nota þá
til að keppa við okkur,“ segir Kári.
Hann segir að fyrirtækið hafi
þjónað Austfirðingum í tvo áratugi
og fólk sé síður en svo ánægt með
þessa ásókn í fyrirtækið.
„Þetta snýst um það að einhverjir
karlar suöur í Reykjavík ætla að
drottna yfir þessu og peningaflæðið
fer beint suður. Fólk hér fyrir aust-
an er mjög óánægt með þessar að-
ferðir,“ segir Kári.
-rt
Ragnar Guðmundsson, deildarstjóri Samskipa:
Segjum hlut-
ina eins og
þeireru
- búnir aö semja um meirihluta í Landflutningum
„Kári hefur verið að reyna að þyrla
upp einhverju moldviðri. Ástæðan
fyrir því er sú að hann er sjálfur að
reyna að kaupa upp reksturinn í
samkeppni við okkur. Við höfum átt
fjölda funda með þessum aðilum þar
sem nánast var samkomulag um
samstarf eða kaup. Síðan virðast
fleiri hafa fengiö áhuga á fyrirtæk-
inu,“ segir Ragnar Guðmundsson,
deildarstjóri innanlandsdeildar
Samskipa, vegna ásakana Kára
Svavarssonar um að Samskip sé með
öllum ráðum að reyna að ná flutn-
ingafyrirtæki Svavars og Kolbrúnar
undir sig.
Ragnar segir áhugann á fyrirtæk-
inu stafa af því að Svavar og Kolbrún
hafi áratugareynslu í flutningum á
landi. Varðandi það að Samskip hafi
hótað að vísa fyrirtækinu úr Land-
flutningum þá segir Ragnar að hann
hafi tamið sér að segja umbúðalaust
sannleikann þegar um viðskipti sé
að ræða.
„Viö segjum hlutina eins og þeir
eru. Við erum búnir að semja um það
við stóran hluta hluthafa að kaupa
meirihluta hlutabréfa í Landflutn-
ingum hf. Það veldur ákveðnum
vandkvæðum, ef við sameinum af-
greiðslu Samskipa innanlands og
Landfiutninga hf., ef það eru tveir
aðilar að móttaka vörur á sama stað.
Við höfum þó ekki hug á að fara á
bak viö gerða samninga í þeim mál-
um eða brjóta rétt á mönnum," segir
Ragnar.
Hann vísar því á bug að Lands-
bankinn fjármagni fyrir Samskip
uppkaup á fyrirtækjum.
„Viö höfum ekki fengið neina pen-
inga að láni hjá Landsbankanum til
slíkra hluta hingað til og það stendur
ekki til,“ segir Ragnar.
Hann segir að enn sé alls ekki úti-
lokað að samstarfsgrundvöllur finn-
ist. -rt
ForsetiAlþingis:
í upphafl þingfundar í gær á- ing aö þingmenn þurfi aö sinna
minnti Ólafur G. Einarsson, forseti brýnum erindum annars staðar en
Alþingis, þingmenn fyrir skróp á þá ber þeim jafhframt að tilkynna
þingfundum. Hann sagði aö síðast- sig. Þingmönnum til hagræðis hef-
liðinn fóstudag hefði þingfundur ur komist á sú venja að safna at-
hafist klukkan 10.30 eins og venja kvæðagreiðslum saman og láta
er um þingfundi sem haldnir eru á þær fara fram í upphaii þingfund-
fóstudögum. Þingfundurinn hefði ar, alla jafnan. En þegar ekki er
verið kynntur í starfsáætlun Al- heldur hægt aö láta atkvæöa-
þingis og um hann heföi því ölium greiðslur fara fram á þeim tíma
þingroönnum mátt vera kunnugt. verður að minna á skyldur þing-
„Þrettán alþingismenn boðuðu manna í þessu efni. Forseti væntir
forföll þennan dag með veruu- þessaðhérverðibreytingá," sagði
bundnum hætti, Jétu skrifstofuna Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
vita um fórföil sín. Eigi að síður þingis.meðalannarsíræðusinni.
var ekki unnt að hafa atkvæða- Hannminntiþingmennáaðsam-
greiðslu um fyrsta dagskrármáliö kvæmt þingskaparlögum væri
á fúndinum þvd oinungis 25 þing- þingmönnum skylt að sækja alla
menn voru viðupphafþingfundar- þingfundí nema nauðsyn banni.
ins. Forseti finnur að því að þing- Forfðll beri að tilkynna forseta svo
menn ræki ekkí fundarskyldu sína. fljótt sem unnt er og meti hann
Forseti hefur þó á því góðan skiln- nauðsynina.
Karl Olafsson við nýuppteknar kartöflur.
DV-mynd Jón Ben
Sæmileg kartöfluupp-
skera á Suðurlandi
Jón Benediktsson, DV, Suðurlandi;
Kartöfluuppskera er sæmileg á
Suðurlandi að sögn Karls Ólafsson-
ar, kartöflubónda í Þykkvabæ. Hann
sagði aö ekki hefði Utið vel út með
sprettu í sumar en úr hefði ræst í
september. Þá stækkuðu kartöflur
vel þar sem grös féllu ekki. Karl taldi
að uppskeran á landinu væri ekki
næg og flytja þyrfti inn kartöflur.
Forathugun á rekstri ylræktarvers 1 Svartsengi:
Líf rænt ræktað græn-
meti til útf lutnings
- markaöurinn er stór
Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum;
„Markaðurinn er mjög stór þarna
úti fyrir lífrænt ræktað grænmeti.
Við erum að tala um tvo 40 feta gáma
vikulega af tómötum til aö byrja
með,“ sagði Friöjón Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofu Reykjanesbæjar.
Skrifstofan er þessa dagana ásamt
Hitaveitu Suöumesja, Grindavík-
urbæ og Gjögri hf. í Reykjavík að
vinna að forathugun á rekstri og
byggingu ylræktarvers sem yrði í
Svartsengi.
Heildarkostnaður viö bygginguna
er áætlaður 330 milljónir og er gert
ráð fyrir að 40 manns fái starf þar.
Ylræktarverið mun fá alla orku í
Svartsengi.
Að sögn Friðjóns yrði aðallega
stefnt að útflutningi. Hann segir að
til að byrja með veröi ræktaðir tóm-
atar fyrir markað í Vestur-Evrópu
sem er mjög stór. Stefnt er aö því að
niðurstaða í málinu liggi fyrir 1. fe-
brúar á næsta ári.
Nauðgunítogara:
Gæsluvarð-
haldtilmán-
aðamóta
Breskur togarasjómaður hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 31. október vegiia nauðg-
unarmáls sem upp kom um helg-
ina. Sjómaðurinn var að
skemmta sér í Reykjavík með ís-
lenskri konu um fimmtugt að-
faranótt sunnudags.
Að sögn Rannsóknarlögregl-
unnar munu þau hafa farið á
milli skemmtistaða í miðbænum
áður en haldið var um borð í is-
lenskan togara í Reykjavíkur-
höfn. Konan kærði manninn fyrir
nauðgun eftir veruna í togaran-
um. Vaktmaður um borð kom
henni til hjálpar.
Bretinn er sjómaður á breskum
togarasemiétúrhöfnígær. -GK
Tilvísanakerfið:
Ekki á dagskrá
„Ég tel, eftir að hafa kynnt mér
álit nefndarinnar, að ef við náum
sambærilegum samningum við
lækna í þessu máli og við höfum
gert sé tilvísanakerfíð ekki leng-
ur á dagskrá, Ég ætla ekki að
fullyrða að það sé úr sögunni um
aldur og ævi en það er ekki á
næsta leiti, náist samningar,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra um nýtt nefnd-
arálit um tilvísanakerfiö sem tal-
íð er að jarði þá hugmynd.
Hún tók skýrt fram aö þaö væri
bundið þvi að samningar næðust
við lækna að tilvísanakerfið yrði
ekki sett á og sagðist vongóð um
aö slfkir samningar tækjust.
KeflavíkurflugvöUur:
Áttalögreglu-
mennráðnir
Ægir Már Kárasan, DV, Suöumesjum;
„Það hefur alltaf verið skoríö niö-
ur hjá okkur og nú þurfti að flölga
lögreglumönnum. Það er mjög
ánægjulegt og nauösynlegt. Það er
ekki endanlega búið að ganga frá
hvernig þetta verður,“ sagði Sævar
Lýðsson, fulltrúi sýslumannsins á
Keilavíkiirílugvelli.
Búið er að fastráöa tvo nýja lög-
reglumenn við embætti sýslu-
mannsins á Keilavíkurflugvelli.
Að sögn Sævars verða mjög lík-
lega sex í viðbót ráðnir á næst-
unni. Sumir þeirra hafa verið
lausráðnir og aðrir umtið við
afleysingar í sumar.