Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1995, Page 26
30
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995
903 • 5670
Hvernig á
að svara
auglýsingu
í svarþjónustu
Þú hringir í síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara smáauglýsingu.
Þú slærö inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
' Þá heyrir þú skilaboð
auglýsandans ef þau eru fyrir
hendi.
Þú leggur inn skilaboð að
loknu hljóömerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
Þá færð þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægð/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur
þú talað þau inn aftur.
Hvernig á að
svara atvinnu-
auglýsingu
í svarþjónustu
Þú hringir í síma 903-5670 og
eftir kynninguna velur þú 1 til
þess að svara
atvinnuauglýsingu.
>7 Þú slærð'inn tilvísunarnúmer
auglýsingar, alls 5 stafi.
^ Nú færö þú að heyra skilaboö
auglýsandans.
>7 Ef þú vilt halda áfram ýtir þú á
1 og heyrir þá spurningar
auglýsandans.
yf Þú leggur inn skilaboð að
loknu hljóðmerki og ýtir á
ferhyrninginn að upptöku
lokinni.
^ Þá færö þú að heyra skilaboðin
sem þú last inn. Ef þú ert
ánægð/ur með skilaboðin
geymir þú þau, ef ekki getur þú
talað þau inn aftur.
Þegar skilaboöin hafa verið
geymd færö þú uppgefið
leyninúmer sem þú notar til
þess að hlusta á svar
auglýsandans. Mikilvægt er að
skrifa númerið hjá sér því þú
ein(n) veist leyninúmeriö.
Auglýsandinn hefur ákveðinn
tíma til þess að hlusta á og
flokka svörin. Þú getur hringt
aftur í síma 903-5670 og valiö
2 til þess að hlusta á svar
auglýsandans.
Þú slærö inn leyninúmer þitt
og færð þá svar auglýsandans
ef þaö er fyrir hendi.
Allir í stafræna kerfinu
með tónvalssíma geta
nýtt sér þessa þjónustu.
903 • 5670
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama
verð fyrir alla landsmenn. |
Smáauglýsingar - Sími 550 5000
Makalausa línan 904 1666. ípónusta fyr-
ir þá sem vilja lifa lífinu lifandi, láttu
ekki happ úr hendi sleppa, hringdu
núna. 904 1666. 39,90 mín.
Skemmtanir
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar.
Haustfagnaðir, árshátíðir, jólatrés-
skemmtanir, þorrablót.
Tónlist og skemmtun við allra hæfi.
Bókunarsími 587 2228.
+/+ Bókhald
Bókhald - Ráðgjöf.
Skattamál - Launamál.
P. Sturluson - Skeifunni 19.
Sími 588 9550.
0 Þjónusta
Gerum við steyptar þakrennur, múr- og
sprunguviðgerðir, háþrýstiþvottur,
steining o.fl. S. 565 1715 eða 893 9177.
25 ára reynsla. Sigfús Birgisson._
Raflagnir, dyrasímaþjónusta. Tek að
mér raflagnir, dyrasímaviðg. og loft-
netslagnir. Visa/Euro. Löggiltur raf-
virkjameistari. S. 553 9609 og 896
6025.
J3 Ræstingar
Nú ertækifæriö!
Tilboð á teppahreinsun: fermetrinn á
130 kr. 100% árangur. Hringið og fáið
upplýsingar í síma 587 4799.
■ft, Tilbygginga
Ódýrt þakjárn. Odýrt þakjám og
veggkiæðning. Framl. þakjám og fal-
legar veggldæðningar á hagstæðu
verði. Galvaniserað, rautt/hvítt/koks-
grátt.
Timbur og stál hf., Smiðjuv. 11, Kóp.,
s. 554 5544 og 554 2740, fax 554 5607.
Bændur. Bændur. Fjárhúsamotturnar
er komnar, hagstætt verð. 1 l/4”x4” er
á leiðinni til landsins. 7/8”x5”- 8” móta-
timbur nýkomið, frábært verð. Smiðs-
búð Garðabæ, s. 565 6300.
£ Spákonur
Les I bolla, tarotspil og víkingakortin.
Löng reynsla. Kem í hús ef pantað er
fyrir 2 eða fleiri. Pantanir í síma 586
1181. Geymið auglýsinguna.______
Les í lófa og spil, spái í bolla,
ræð einnig drauma. Löng reynsla.
Upplýsingar í síma 557 5725. Ingirós.
Geymið auglýsinguna.____________
Spái í spil og bolla, ræö drauma
alla daga vikunnar, fortíð, nútíð og
framtíð, gef góð ráð. Tímapantanir í
síma 551 3732. Stella.____________
Er byrjuö aftur aö spá.
Guðný í síma 555 4202.
4$ Stjörnuspeki
Nýtt! Bók gerö sérstaklega um þig af
Gunnlaugi Guðmundssyni. Lýsir per-
sónuleika þínum, tilfinningum, heim-
ili, ást, samskiptum og vinnu. Stjömu-
spekistöðin, Laugav. 59, s. 561 7777.
Mundu Serta-merkiö því þeir sem vilja
lúxus á hagstæðu verði velja Serta og
ekkert annað. Komdu og prófaðu amer-
ísku Serta-dýnumar sem fást aðeins í
Húsgagnahöllinni, s. 587 1199.
fl iffiix Irolta
icmut íatn 1
Verslun
Persónulegar jólagjafir. Sérstakur afsl.
í okt. Fáið sendan ókeypis myndalista.
Sendum í póstkr. Euro/Visa. Mynd-
saumur, Hellisgötu 17, Hafnarf., s. 565
0122, kl. 9-21.
Nýkomnar 5 tegundir af gæruskinns-
jökkum. Verð frá kr. 16.900. Troðfull
búð af nýjum vörum. Leðurlínan,
Laugavegi 66, sími 552 3560.
Hitaveitur, vatnsveitur: Þýskir
rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn.
Boltís s/f, símar 567 1130, 566 7418
og853 6270.
^ Bátar
4,4 tonna opinn bátur meö veiöiheimijd til
sölu, útbúinn til ígulkeraveiða. Ymis
skipti koma til greina. Upplýsingar í
sfma 472 1153 á kvöldin.
Þessi bátur, sem er 7,3 tonn, er til sölu.
Báturinn er með aflaheimild og útbú-
inn á ígulkera- og skelveiðar. Uppl. í
síma 451 2462 á kvöldin.
^ Varahlutir
Brautarholti 16 - Reykjavik.
Vélavarahlutir og vélaviögeröir.
• Original vélavarahlutir í úrvali.
• Endurbyggjum bensín- óg dísilvélar.
• Plönum hedd og blokkir. Rennum
sveifarása og ventla. Bomm blokkir.
• Varahlutir í vélar frá Evrópu, USA
og Japan, s.s. Benz, BMW, Scania,
VW, Volvo, GM, AMC, Toyota, MMC.
• Höfum þjónað markaðnum í 40
ár.» Uppl. í s. 562 2104 og 562 2102.
Jg Bílartilsölu
MMC L-300 4WD Minibus, árg. ‘90, ek.
120 þús., turbo, dísil. Verð 1300.000
þús. Ath skipti. Bílasala Brynleifs,
Keflavík s. 421 4888, hs. 421 5131.
Fréttir
Karfaflökin mega ekki snertast á beltinu. Starfsfólk raðar allt að einu tonni
á klukkustund. DV-mynd Ómar
Vestmannaeyjar:
Lausfrystir í
ísfélaginu
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Nýlega yar tekinn í notkun laus-
frystir í ísfélaginu. Nú getur það
framleitt frystar afurðir sem fara
beint á neytendamarkað. Lausfryst-
irinn og flokkunarbúnaður kosta um
30 milljónir en á móti kemur að verð-
mæti framleiðslunnar eykst um 15%
til 20%. Mikil eftirspurn er eftir laus-
frystum fiski.
Jón Ólafur Svansson framleiðslu-
stóri segir að frumvinnslan sé með
heföbundnum hætti, fiskurinn er
flakaður og flökin skorin og snyrt á
flæðilínunum samkvæmt pökkunar-
reglum.
„Meginmunurinn er sá að áður var
flökkunum pakkað í öskjur og þær
frystar í pönnutækjum. í lausfryst-
ingu er hverju flaki fyrir sig raðað á
belti þar sem þau mega ekki snert-
ast. Starfsfólk sér um að raða á belt-
ið og getur það raðað allt að einu
tonni á klukkustund, en það eru af-
köst lausfrystisins. Beltið flytur flök-
in inn í lausfrystinn og tekur ferlið
í honum um 45 mínútur og þegar
flökin koma út er frostið í þeim -30°C.
Hvert flak fer í hólf þar sem vatni
er sprautað á það og myndast við það
íshúð á flakinu. Getur íshúðin verið
5% til 7%, eða allt eftir óskum kaup-
enda,“ sagði Jón Ólafur en þetta er
gert til að varan varðveitist betur og
þorni ekki.
Að lokinni íshúðun fara flökin inn
á samvalsvog sem getur flokkað þau
í allt að tólf mismunandi stærðir.
„Með þessu erum við að svara kröf-
um um meiri fullvinnslu og færa
hana heim. Þetta er vara sem fer
beint í verslanir og virðisaukinn er
um 15% til 20%,“ sagði Jón Ólafur.
Jón Ólafur sagði að ekki þyrfti
fleira fólk við framleiðsluna en vin-
nutíminn lengdist.
„Fólkið færist til og fjölbreytni í
störfum eykst. Fiskvinnslufólki líkar
þetta vel og reynslan t.d. í Granda
af þessari framleiðslu sýnir að því
fmnst það nú loksins vera að fram-
leiða raunveruleg verðmæti," sagði
hann.
Lausfrystirinn kemur frá Frigo-
scandia í Svíþjóð en annar búnaður
er framleiddur af Marel hf.
Stöðvum fjölgað í
Fjölvarpi Stöðvar 2
Daníel Ólafeson, DV, Akianesi:
Á döfinni er að fjölga rásum í Fjöl-
varpi Stöðvar 2. Átta stöðvar á sjö
rásum eru í Fjölvarpinu núna: Disco-
very, CNN, Eurosport, Sky News,
MTV, BBC, TNT og Cartoon Netw-
ork. Áð sögn forráðamanna Stöðvar
2 hefur Super Channel bæst við ný-
lega.
Stöð 2 hefur sótt um fleiri rásir til
Fjarskiptaeftirlitsins en enn sem
komið er hefur ekki borist svar við
því. Þá er á döfinni að bæta skilyrði
Fjölvarpsins og er verið að mæla
styrkinn víðs vegar um borgina og
eftir þær mæhngar verður ákveðið
hvar þarf að setja upp endurvarpa
til að bæta skilyrði Fjölvarpsins.
Ford Econoline 250,351 ER, árg. ‘93, ek.
25 þús., vínrauður, mikið breyttur bíll,
stórglæsilegur. Verð 3.650.000 þús.
Ath skipti. Bílasala Brynleifs, Keflavík
s. 421 4888, hs. 421 1531.
Jeppar
Utsala, útsala. Ford Bronco XLT II ‘86,
sjálfskiptur, 6 cyl., 36” dekk, ljóskastar-
ar, aukatankur o.m.fl. Þarfnast smá-
viðgerðar. Verð 700 þús. staðgr.
Visa/Euro raðgr. eða skuldabréf.
Upplýsingar í síma 588 2227.