Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1995, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995
10
Bjarni Jónasson er útvarpsstjóri í Eyjum:
Utvarp
Vestmannaeyjar
í heimahúsi
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Fjölmiölaflóran í Vestmannaeyj-
um er mun fjölbreyttari en gerist og
gengur í bæjum af svipaðri stærð.
Þar koma vikulega út tvö blöð, Dag-
skrá og Fréttir, auk þess sem þar er
rekin útvarpsstöð allt árið um
kring. Á útvarpsstöðinni, sem heitir
ÚV FM 104, ræður Bjarni Jónasson
ríkjum. Hann byrjaði rekstur út-
varpsstöðvarinnar fyrir hálfu öðru
ári og útvarpar fjóra daga í viku, frá
fimmtudegi til sunnudags.
„Á fimmtudögum og fostudögum
er ég í loftinu í rúman klukkutíma
og góða þrjá tíma á laugardögum og
sunnudögum,“ sagði Bjarni þegar
hann var spurður um hvernig
rekstrinum væri háttað.
„Ég byggi dagskrána upp á viðtöl-
um og tónlist og í viðtölum er ég
ekkert að klippa á menn þegar þeir
eru komnir I góðan gír heldur skipti
ég efninu niður.“
Bjami er eini starfsmaður ÚV
sem er í einu herbergi á heimili
hans. Þar er að fmna þann búnað
sem þarf til útsendinga.
„Ég hef leyfí fyrir 100 vatta sendi
og það er nægur styrkur til að út-
sendingin náist í Vestmannaeyjum.
Stöðin er fjármögnuð með auglýs-
ingum. Fyrsta árið kom ekkert inn
en núna er þetta að koma. Ég stað-
greiddi allan búnaðinn og það hefur
létt reksturinn en ég þarf aö borga
Stefgjöld, leyfisgjald og svo kosta
spólurnar sitt. Ég er farinn að fá
upp í þennan kostnað en kaup er ég
ekki farinn að sjá enn þá.
Dagskráin byggist upp á viðtölum
við bæjarbúa, eins og áður er komið
fram, en í einum þætti fær Bjarni
Odd Júlíusson til liðs við sig. Þar
fara þeir yfir blöð sem gefin em út i
Vestmannaeyjum. Kallast þátturinn
Rýnt í sortann og vísar nafnið til
prentsvertunnar.
„Tónlistin, sem ég spila, er í eldri
kantinum og ég veit að hún er vin-
sæl hjá húsmæðrum. Alla vega láta
þær mig vita ef þeim finnst of mik-
ið um talað mál. Þeim flnnst nota-
legt að hlusta á gömlu rómantísku
lögin þegar þær eru að elda á
sunnudögum. Þá upplifa þær gömlu
góðu dagana," segir Bjarni að lok-
um.
Litla lúðrasveitin lék fyrir fullu húsi á afmælishátíð DV. DV-mynd RaSi
Kristófer og Viktor, lengst til hægri á myndinni, og með þeim eru fjölskyldur þeirra og nokkrir vinir. DV-mynd Ómar
Söluturn varð kermikverkstæði:
Oryrkjar fundu
vinnu við hæfi
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Við Bárustíg í Vestmannaeyjum
stendur hús sem flestir Eyjamenn
þekkja sem Blaðatuminn en þar var
í áratugi rekin sjoppa. Nú hefur
Blaðatuminn fengið nýtt hlutverk
og kallast í dag Vinastaðir þar sem
tengdafeðgarnir Kristófer Guðlaugs-
son og Viktor Þór Reynisson og fjöl-
skyldur þeirra reka smíða- og ker-
amikverkstæði.
Kristófer og Viktor eru báðir ör-
yrkjar og geta ekki gengið í hvaða
störf sem er. Eftir að hcifa árangurs-
laust reynt að fá vinnu kviknaði hjá
þeim hugmynd um að stofna hand-
verksverkstæði. Smíða þeir ýmis-
legt smálegt og selja.
„Fólk virtist kunna vel að meta
það sem við vorum að smíða og í
framhaldi af því kom upp hugmynd-
in að keramikverkstæðinu. Hvort
tveggja hefur'gengið framar öllum
vonum. Hingað kemur fólk og málar
keramikstyttur sem við erum með á
lager. JJúna eru það einkum munir
sem tengjast jólunum og er oft mik-
ið fjör hjá okkur,“ sagði Kristófer að
lokum.
Kvenfélagiö Líkn í Vestmannaeyjum:
Nýársfagnaðir í sjötíu ár
Ómar Garðarsson, DV Vestmamnaeyjum:
Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyj-
um á sér langa sögu en það var
stofnað 14. febrúar 1909 og er því að
nálgast níræðisaldurinn. En félagið
ber aldurinn vel og það geta Vest-
mannaeyingar vitnað um, ekki síst
þeir sem njóta góðs af starfi þess.
„Tilgangurinn með stofnun Líkn-
ar var, eins og nafnið bendir til, að
sinna sjúkum og þeim sem áttu í
einhverri neyð eða máttu sín
rninna," sagði Klara Bergsdóttir,
formaður Líknar, í samtali við DV.
„í félaginu eru um 130 konur og
eru um 70 þeirra virkar. Við höfum
reynt að halda uppi merki stofnend-
anna og styrkjum ýmis góð málefni.
Þar má nefna sjúkrahúsið, vistheim-
ili aldraðra að Hraunbúðum,
Þroskahjálp og síðustu misseri höf-
um við styrkt fjölskyldur sem á ein-
hvern hátt hafa átt í erfiðleikum,
Kvenféiagskonur í Líkn sáu um allar
veitingar á afmælishátíð DV í Vest-
mannaeyjum. DV-mynd RaSi
t.d. vegna veikinda bama.“
Klara segir að andinn í Líkn sé
mjög góður.
„Þetta er skemmtilegur félags-
skapur og gefur manni mikið. Við
höldum fundi einu sinni í mánuði
en fram undan er okkar stærsti dag-
ur en það er 1. desember. Þá bjóðum
við bæjarbúum upp á kaffi og með’í
og höldum jólabasar. Félagið hefur
haldið þessum sið frá árinu 1938 og
er hann mjög vinsæll hjá bæjarbú-
um.“
Nýársfagnaður eldri borgara, sem
Líkn stendur fyrir í janúar ár hvert,
á sér enn lengri sögu.
„Nýársfagnaðurinn var fyrst
haldinn árið 1926 og hefur ekki fall-
ið niður síðan. Verður hann haldinn
í 70. skiptið í janúar á næsta ári. Þá
er öllum Eyjamönnum 60 ára og
eldri boðið til fagnaðar, þar sem er
borðað, farið í leiki, boðið upp á
skemmtiatriði og dans. Er aÚtaf
rosastuð á þessum skemmtunum,”
segir Klara að lokum.
Dans á rósum í Vestmannaeyjum:
Af pöbbum í poppmessur
Litla lúðrasveitin í Vestmannaeyjum:
Utanlandsferð
næsta sumar
Lffið er dans á rósum hjá félögunum sem spila á pöbbum og í poppmess-
um. DV-mynd Ómar
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Litla lúðrasveitin er skólahljóm-
sveit Tónlistarskólans í Vestmanna-
eyjum og blés hún af miklum móð á
afmælishátíð DV í Eyjum.
Hljómsveitin var stofnuð 22.
febrúar 1978 og hefur frá upphafi
verið undir stjórn Hjálmars Guðna-
sonar tónlistarkennara. Hljómsveit-
in er venjulega skipuð um 20 ung-
mennum og sagðist Hjálmar líta á
hana sem uppeldisstofnun fyrir
Lúðrasveit Vestmannaeyja.
„Hún er líka stór hluti af skóla-
starfmu og þarna fer fram gott
æskulýðsstarf sem börnin eiga eftir
að njóta góðs af þegar þau komast til
fullorðinsára," sagði Hjálmar.
Sveitin kemur fram við ýmis
tækifæri og á skólatónleikum Tón-
listarskólans sem eru haldnir
tvisvar á ári.
„Þetta er skemmtilegt og gefandi
starf að vinna með krökkunum. Við
höfum frá stofnun sveitarinnar sótt
landsmót skólahljómsveita þangað
til í fyrra en því réðu ýmsar ástæð-
ur. En núna erum við að safna fyrir
utanlandsferð sem fara á í sumar.
Er mikil eftirvænting í hópnum fyr-
ir þessari ferð,“ sagði Hjálmar að
lokum.
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin Dans á rósum í
Vestmannaeyjum er skipuð þeim
Viktori Ragnarssyni, sem leikur á
bassa, Eðvald Eyjólfssyni, sem slær
trommurnar, Þórarni Ólafssyni
söngvara og Eyvindi Steinarssyni
gítarleikara. Allt eru þetta þraut-
reyndir menn í tónlistinni og það
fengu gestir á afmælishátíð DV á
laugardaginn að kynnast.
Þessi útgáfa af hljómsveitinni hef-
ur starfaö frá því um áramót og er
markaðssvæði þeirra Vestmanna-
eyjar þar sem þeir hafa spilað á böll-
um og á pöbbunum við miklar vin-
sældir, auk þess sem þeir eru að
ryðjast inn á einkaböllin.
En Dans á rósum á sér aðra hlið
og hana þekkja þeir sem sækja
poppmessur í Landakirkju sem
haldnar eru einu sinni í mánuði og
eru sóttar af allt að 500 manns.
Hljómsveitin sér um tónlistarflutn-
inginn í poppmessunum og fær þá
þrjá söngvara til liðs við sig. Ekki er
nóg með það því þama kemur hún
fram undir öðru nafni og kallast
Prelátamir.
Þessi þáttur i starfseminni hefur
vakið mikla athygli og er ákveöiö að
þeir fari upp á fastalandið 1. helgina
í mars á næsta ári og munu þeir
spila í einum fjórum poppmessum í
feröinni.