Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Síða 9
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995 9 ■ Utlönd Karl Bretaprins í sálarkreppu: í viðtal til geð- læknis Díönu Karl Bretaprins hefur leitað að- stoðar sama geðlæknis og hjálpaði Díönu þegar hún átti í sem mestum erfiðleikum í hjónabandi sínu, varð fórnarlamb lotugræðgi og martraða sem einkenndust af ólgusjó og sæsk- rímslum. Karl hefur átt erfitt eftir að Díana kom fram í klukkustundar löngu sjónvarpsviðtali á dögunum þar sem hún sagði opinskátt frá framhjáhaldi sínu með öðrum manni og sagðist enn fremur efast um hæfni eiginmanns síns til að taka við krúnunni. Samkvæmt bresku dagblaði var mikil leynd yfir heimsókn Karls til geðlæknisins. Sá er 90 ára gamall sálkönnuður sem leggur mikla áherslu á þýðingu drauma. Öryggis- verðir réðust að ljósmyndara sem átti leið fram hjá aðsetri geðlæknis- ins í þann mund sem Karl kom það- an út en ljósmyndarinn fór strax til blaðanna. Talsmenn bresku hirðarinanr neituðu að tjá sig um málið í gær. Samkvæmt heimildum innan hirð- arinnar hefur geðlæknirinn þekkt Karl í um 10 ár. Karl treystir lækn- inum fullkomlega enda tókst honum að lina þjáningar Díönu þegar sálar- háski hennar var sem mestur. Heimildirnar segja að fullyrðingar Díönu um vanhæfni Karls sem arf- taka krúnunnar hafi sært hann mjög. Þá þykir ekki bæta úr skák að Karl, sem nú er 47 ára og hefur ver- ið í fréttum vegna samtala sinna við blóm og jurtir, hefur þurft að hægja á ferðinni í hefðbundnum karlaí- þróttum og ævintýrum. Þannig hafi karlmennskuímynd hans beðið hnekki. Ritzau Joseph Robladt, 87 ára, eftir að hafa tekið við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló í gær. Símamynd Reuter Friðarverölaun Nóbels afhent í Ósló: Engin gagnrýni á kjarnorkutilraunir Það var lítillega minnst á kjarn- orkutUraunir Frakka í Kyrrahafi og alls ekki á tilraunir Kínverja neðan- jarðar í þeim ræðum sem haldnar voru við afhendingu friðarverð- launa Nóbels í Ósló í gær. Sendi- herrar Frakka og Kínverja, sem við- staddir voru afhendinguna, önduðu þvi léttar að henni lokinni. Það voru hinn 87 ára Joseph Ro- bladt, sem er pólskur að uppruna, og Pugwash-stofnunin, sem hann stofnsetti ásamt fleirum, sem skiptu með sé friðarverðlaununum, um 70 milljónum króna, fyrir áralanga baráttu gegn gerðeyðingarvopnum. Robladt sagði í ræðu sinni að það yrði að vera hluti af siðareglum vís- indamanna að þeir kæmu upp um misnotkun á vísindunum og allir vísindamenn ættu að neita að vinna að gerð gereyðingarvopna. „Það er hrein og bein heppni en ekki beinskeytt forusta eða skynsam- leg ögun sem gert hefur stórveld- unum kleift að ramba á barmi kjarn- orkuhyldýpisins í 40 ár án þess að detta ofan í. Hætturnar sem eru til staðar í dag eru jafn ógnvænlegar og þær hættur sem stofnendur Pugwas- h-stofnunarinnanr stóðu andspænis í skugga kaldastrísðins 1950,“ sagði John P. Holdren, stjórnarformaður Pugwash-stofnunarinnar. NTB Helmingi minni fjárlagahalli Fjárlagahallinn í Færeyjum lítur út fyrir að verða meira en helmingi minni en búist var við í upphafi árs, eða um 950 milljónir króna í stað 2.300 milljóna. Ástæða þessa er fyrst og fremst auknar tekjur í formi beinna og óbeinna skatta. í kjölfarið hefur landstjórnin samþykkt að létta skattheimtuna á færeyskum al- menningi um 1.100 milijónir króna. Færeyska landstjórnin hefur gert samkomulag við Dani um að fjár- lagahallinn minnki markvisst fram til ársins 1998 en þá á að vera kom- ið jafnvægi í færeyskum ríkisfjár- málum. Ritzau r;; • v _ I TÖLVUSKJÁRIN ’ 'Xf.,! v ’J; > TOLVUSKJAIRNIR FRA SAMSUNG HAFA FENG- IÐ VIÐURKENNINGAR OG : SÉRLEGA GÓÐA DÓMA í ERLENDUM FAGBLÓÐ- UM, EINS 0G SÉST HÉR : TIL HLIÐAR. ; M.A. HEFUR SAMSUNG- TÖLVUSKJÁR FENGIÐ HÆSTU EINKUNN HINS VIRTA TÍMARITS: *PC- PR0FESSI0NELL í ÞÝSKALANDIIAPRÍL '95. STÆRÐIRNAR ERU 15", 17 OG 20" OG VERÐIÐ ER HREINT FRÁBÆRT. I SJÓN ER SÖGU RÍKARI! Sími: 5 886 886 Flest okkar viljum hafa myndbands- úr garði gert að það sé í allri notkun og ekki sérfræðiaðstoð þegar eitthvað bjátar á. Panasonic SD200 myndbandstækið er einmitt þannig úr garði gert, frábær myndgæði, [Super Drive, Ai Crystal viewj allar aðgerðir koma fram á skjá, innstilling stöðva sjálfvirk ásamt langu'ma upptöku- minni og þess háttar búnaði sem okkur þykir sjálfsagður nú til dags. BRAUTARHOLTI 2 OG KRINGLUNNI SÍMI 562 5200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.