Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995 Fréttir Hassleit áHöfn Lögreglan á Höfn í Hornaflrði lagði hald í liðinni viku á áhöld til fíkniefnaneyslu og fáeina skammta af hassi. Farið var í þrjú hús þar sem grunur var um að eiturlyfja væri neytt. Fíkni- efnalögreglan aðstoðaði við leit- ina. -GK LJOMA I.jónwndi laleilk VINNINGSHAFAR 9. DESEMBER 1995 KITCHENAID HRÆRIVEL Guðlaug Bjarnþórsdóttir, Kambahrauni 37, Hverageröi ELDHUSVOGIR Lára Björg Jónsdóttir, Heiðarvegi 14, Reyðarfirði Eygló Alexandersdóttir, Hæðarg. 8, Reykjavík SODASTREAM TÆKl Björn Þór Reynisson, Vallarbraut 3, Akranesi Sigríður B. Steinþórsd., Hala Suðursveit, Hornarfjörður Halla G. Torfadóttir, Álfaheiði 26, Kópavogi 24 L AE SAFA AÐ EIGIN VALI Nína Þrastardóttir, Bugðutanga 3, Mosfellsbæ Steinunn Ólafsdóttir, Furugrund 8, Akranesi Danlel Stefánsson, Rauðási 7, Reykjavík Ellsabet Guðmundsdóttir, Háseylu 33, Njarðvík Ólöf Guðmundsdóttir, Grænuvöllum 5, Selfossi Lára Halldórsdóttir, Ásbúðartröð 3, Hafnarfirði Guðrún Eiríksdóttir, Asparlundi 5, Garðabæ Drífa Garðarsdóttir, Klukkubergi 15, Hafnarfirði Elín Arnarsdóttir, Laxakvísl 31, Reykjavík Anna Magnúsdóttir, Hverfisgötu 41, Reykjavík VINNINGA MÁ VITJA í SÓL HF., ÞVERHOLTI 19-21, SÍMI 562 6300 ijoivA Ljómandi jóIaleiWr VINNINGSHAFAR 10. DESEMBER 1995 KITCHENAID HRÆRIVEL Haraldur Pálsson, Höfðavegi 65, Vestmannaeyjum ELDHUSVOGIR Ólöf J. Þórarinsdóttir, Búhamri 3, Vestmannaeyjum Rebekka Benjamlnsdóttir, Borgarvík 18, Borgarnesi SODASTREAM TÆKI Margrét Erna Þorgeirsdóttir, Veghúsum 13, Reykjavík Erla Bára Gunnarsdóttir, Ásbúð 22, Garðabæ Hulda Smáradóttir, Eyjabakka 4, Reykjavík 24 L AF SAEA AÐ EIGIN VAEI Jónlna Sigurbergsdóttir, Smárahlíð 6B, Akureyri Þuríður Hermannsdóttir, Fossvöllum 2, Húsavík Emilía Sveinsdóttir, Flétturima 16, Reykjavík Kristín Þórmundsdóttir, Reykjabyggð 19, Mosfellsbæ Geirrún Tómasdóttir, Bröttugötu 9, Vestmannaeyjum Sigrún Þorláksdóttir, Fjólugötu 5, Vestmannaeyjum Margrét Harðardóttir, Gnoðarvogi 56, Reykjavík Árni Grétarsson, Hverafold 10, Reykjavík Sigrlður Friðgeirsdóttir, Bæjargili 80, Garðabæ Ragna Erlendsdóttir, Hjallabraut 14, Þorlákshöfn VINNINGA MÁ VITJA í SÓL HF., I»VERHOLTI 19-21, SÍMl 562 6300 Héraðsdómur Vestfjarða: Krókakarli stefnt fyr- ir fiskveiðilagabrot - reri á banndegi ásamt 15 öðrum DV, ísafirði: Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Sveinbimi Jóns- syni, trillukarli á Suðureyri, fyrir meint fiskveiðibrot og krafist- þess að hann verði dæmdur til refsingar. Sveinbjörn reri til fiskjar og lagði línu 7. apríl sl„ sem var banndagur krókabáta, en þann dag rem sam- tals um fimmtán trillur frá Suður- eyri, Bolungarvík og Flateyri. Trillukarlarnir töldu sig í fullum rétti tU þess að veiða steinbít og aðr- ar tegundir utan kvóta en Fiskistofa kærði málið tU lögreglu og hélt því fram að allar veiðar á banndögum væru óleyfilegar. Mál Sveinbjarnar var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða i gær. Athygli vekur að gefin er út ákæra á hendur Sveinbirni einum en ekki neinum hinna sem reru sama dag. Það bendir tU þess að ákærúvaldið telji vafa leika á um úrslit og vilji því láta á það reyna í prófmáli. Sveinbjörn hefur lengi verið í for- ystusveit þeirra sem berjast fyrir mannréttindum trillukarla. Lög- maður hans er Tryggvi Gunnarsson hrl. í ákærunni er Sveinbjörn sakað- ur um „fiskveiðibrot, með því að Hrafn Bragason, forseti Hæstaréttar, til hægri, tok við fyrsta eintakinu af domasafni Hæstaréttar fyrir árin 1982-1994 á tölvutæku formi við athöfn sem haldin var á Grand Hótel á fimmtudag. Þetta mun auðvelda leit að Hæstaréttardóm- um til muna fyrir þá sem á þurfa að halda. Stofnáskriftarverð er 139 þúsund krónur en fyrir notendur tölvuneta kost- ar safnið 250 þúsund krónur. Með Hrafni á myndinni eru Sigurður Tómas Magnússon, skrifstofustjóri í dómsmála- ráðuneytinu, og Þorgeir Baldursson, forstjóri Odda, sem gefur safnið út ásamt ísflex hf. DV-mynd BG hafa, föstudaginn 7. apríl 1995, róið til fiskjar frá Suðureyri í Nesdýpi út af Vestijörðum á m/b Sæstjörnunni ÍS-188, skipaskrárnúmer 2106, sem er 5,76 brl. að stærð, en þann dag voru veiðar krókabáta bannaðar, og að hafa lagt þar línu og veitt 131 kg af steinbit, sem landað var á Suður- eyri sama dag.“ -HÞM Þórshöfn: Ráöu- neytið staðfesti úrskurð- inn DV, Akureyri: Félagsmálaráöuneytið hefur staðfest að sveitarstjórn Þórs- hafnarhrepps hafi verið i fullum rétti þegar hún leysti fjallskila- og riðunefnd hreppsins frá störf- um og yfirtók starfsemi nefndar- innar. Miklir samstarfsörðugleikar og ósætti voru innan nefndar- innar og hafði verið um nokkurn tíma og var hún nánast óstarfhæf af þeim sökum. Hluti nefndarmanna vildi ekki una ákvörðun sveitarstjórnarinnar um að leysa nefndina frá störf- um og kærði þann úrskurð til ráðuneytisins. Sveitarstjórnin hefur því yfirtekið starf nefndar- innar tímabundið a.m.k. -GK Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, fulltrúi stúdentaráös í stjórn LÍN: Verið að vega að hugtak- inu um jafnrétti til náms - vísum því á bug að verið sé að ýta barnafólki úr námi, segir Gunnar I. Birgisson í könnun sem Hagstofan lauk í október sl. kemur fram að mati námsmanna staðfesting á því sem þeir hafa haldið fram. Það er að segja að barnafólk teljist til þess hóps námsmanna sem einna helst þarf lán til að framfleyta sér. Þegar barnafólki fækki meðal lánþega fækki því einnig meðal námsmanna yfirhöfuð. Fulltrúar ríkisvalds halda því fram að námsmönum í lánshæfu námi hafi fjölgað en færri taki lán. í könnuninni kemur fram að lán- þegum LÍN í íslenskum skólum með börn á framfæri fækkaði um 640 við gildistöku laganna um LÍN 1992. Enn fremur að námsmönnum með börn á framfæri fækkaði um 476 á sama tíma. Það túlka námsmenn þannig að meginhluti barnafólks sem hætti að taka lán við gildistöku laganna hafi endanlega hrakist út námi. Heildarfækkunin var 518 námsmenn, þar af 471 með börn á framfæri. Barnafólki í námi hefur fækkað um yfir 500 frá haustinu 1991 til haustsins 1994 en þangað nær könnunin. Ekki nægjanlegt svigrúm Að mati námsmanna veita nýju lögin ekki nægjanlegt svigrúm. Eft- irágreiðslur námslána hafi reynst barnafólki of erfiðar. Tekið er dæmi af einstæðri móð- ur með tvö börn, samkvæmt út- reikningum námsmanna, og gert ráð fyrir að henni takist að ljúka 100% árangri í námi á haustmisseri en ekki nema 75% árangri á vormisseri. Hún verður þá að taka haustpróf næsta haust. Að því loknu skuldar hún 122.322 krónur vegna þess að hún fær ekki fullt lán nema skila 100% árangri en hefur lifað á yfirdrætti í banka. „Ráðherraskipuð nefnd, þar sem námsmenn eiga fulltrúa, er að kanna hvað hægt er að gera. Hún átti að skila af sér tillögum um breytingu á lögunum um áramót en það dregst til loka janúar. Aðal- stefnumál okkar námsmanna eru að endurgreiðslubyrði námslána verði skoðuð í samræmi við húsnæðis- kerfi og skattkerfi, komið verði á samtímagreiðslum á lánunum og svigrúm verði aukið í náminu. Þetta er þannig núna að ef t.d. dauðsfall verður í fjölskyldu og námsmaður getur ekki af þeim sök- um skilað 100% árangri í námi þarf hann að koma með læknisvottorð um eigið heilsufar til að það sé tek- ið gilt hjá LÍN,“ sagði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, fulltrúi Stúdentaráðs í LÍN. Liðkað til fyrir barnafólki Gunnar I. Birgisson, formaður sjórnar LÍN, segir að þau dæmi, sem stúdentar komi með um að barnafólk hafi hrakist úr námi, séu ekki rétt. „Það varð óeðlilega mikil fjölgun barnafólks í námi síðustu árin áður en lögunum var breytt 1992. Fjöldi námsmanna með böm 1994 og 1990 var sá sami. Þær tölur sem stúdentar eru að gefa upp eru ekki réttar. Lánþegahugtakinu var breytt með nýju lögunum. Sá sem ekki skilaði árangri í námi þurfti að greiða tU baka þau lán sem hann hafði fengið, það var oft mjög erfitt. í endurskoðun laganna nú er ekki talað um að breyta gagnvart barna- fólki. Það hefur verið liðkað til fyr- ir því á ýmsan hátt. Barnabætur skerða ekki rétt til námslána. Við vísum því á bug að verið sé að ýta barnafólki úr námi. 96% barnafólks í námi skila 100% árangri. Það bendir ekki til að verið sé að fara illa með það,“ sagði Gunnar. -ÞK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.