Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Sljórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftan/erð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. Skynsemi en ekki skærur Dagsbrúnarmenn standa við uppsögn kjarasamninga. Þar með bættist öflugt verkalýðsfélag í hóp þeirra sem kjósa uppsögn þegar samningstímabilið er tæplega hálfn- að. Þótt þorri verkalýðsfélaga fylgi forystu Alþýðusam- bandsins og niðurstöðu launanefndar um að ekki sé til- efni til uppsagnar standa fimm félög þar fýrir utan. Vinnuveitendasambandið hyggst svara þessum verka- lýðsfélögum strax í dag og stefna þeim fyrir Félagsdóm. Brátt er að vænta niðurstöðu í máli Baldurs á ísafirði sem fyrst sagði upp samningum. Sá dómur verður stefnumarkandi. Falli dómur verkalýðsfélögunum i óhag standa þau frammi fyrir tveimur kostum. Fara að lögum og undirbúa næstu samningalotu, eftir rúmt ár, eða grípa til aðgerða. Þær aðgerðir, sem félögin eða félagar innan þeirra vébanda gripu til, yrðu væntanlega ólögleg- ar. Formaður Hlífar í Hafnarfirði hefur lýst því yfir að nauðsyn brjóti lög. Hann hefur því boðað skærur. Tapi verkalýðsfélögin fyrir Félagsdómi verða þau að taka því. Ástandið nú réttlætir ekki ólöglegar aðgerðir. Skynsamlegra er að nota tímann og undirbúa næstu samningagerð. Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur ákveðið að gera samanburð á verslunarmönnum í Reykjavík og K^aupmannahöfn. Formaður félagsins hefur sagt að niðurstaðan verði notuð við gerð næstu samn- inga. Hann bendir á að vinnuveitendur vilji búa við svip- uð kostnaðarleg skilyrði og samkeppnisfyrirtæki í öðr- um löndum. Það sé rétt en ekki sé nóg að horfa aðeins á skatta, orkumál og annan kostnað en sleppa laununum. Sé launamunur, verði að jafna hann sem fyrst. Jafnvægi í íslenskum efnahagsmálum hefur bætt sam- keppnisstöðu fyrirtækja. Þar hafa launamenn lagt fram drjúgan skerf með þjóðarsáttarsamningum undangeng- inna ára. Stefnan hlýtur að vera sú að launamenn búi við svipuð kjör og gerist í nágrannalöndunum og svipaðan vinnutíma. íslendingar hafa unnið lengri vinnudag en flestir aðrir. Auka þarf afköstin. Skila þarf verki á styttri tíma og fá þá greitt í samræmi við það. En fleira ræður afkomu launamanna og heimila en bein laun. Þar ræður skattakerfið miklu. Almenn óá- nægja er með það kerfi. Tekjuskatturinn er óréttlátur. Virðisaukaskattkerfið átti að koma í-veg fyrir svarta at- vinnustarfsemi og undanskot en það hefur brugðist. Það er því vert að leggja eyrun við nýrri hugmynd Gunnars Birgissonar, formanns bæjarráðs í Kópavogi. Gunnar setur fram hugmynd sína í blaði sjálfstæðismanna í Kópavogi, Vogum. Hann bendir flokksbróður sínum, fjár- málaráðherra, á það að skattar hérlendis séu aflt of háir og hættulega lítið verði eftir af launum fólks til ráðstöf- unar. Jaðarskattar verði til þess að dugmikið fólk vinni minna, framleiði minna og taki ekki áhættu. Þekkt er að almenningur tekur þátt í nótulausum við- skiptum og svartir peningar, taldir í milljörðum króna, eru í umferð. Hugmynd Gunnars Birgissonar er sú að neytendur með reikninga fyrir virðisaukaskattskylda þjónustu, svo sem viðgerðir og viðhald á húsum og bíl- um, geti nýtt sér greiddan virðisaukaskatt, að minnsta kosti að hluta, til lækkunar á tekjuskatti. Freistingin til að kaupa hlutina á lægra verði væri ekki lengur til stað- ar og ríkissjóður því ekki hlunnfarinn. Með þessu væri svarta starfsemin neydd fram í dagsljósið. Hugmynd sem þessi kemur inn í umræðu um nauð- synlega endurskoðun á öflu launa- og skattakerfi hér- lendis. Þetta ættu verkalýðsfélögin að grípa á lofti frem- ur en að íhuga skærur. Það er þörf á frjórri hugsun og nýsköpun. Það gefst ár til þess. Jónas Haraldsson „Pað gilda engin önnur lögmál um verslun með þessa vöru en aðrar verslunarvörur," segir Stefán m.a. í grein sinni. 75 ára einokun ÁTVR á innflutningi lokið: Mikilvægur áfangi Sögulegur áfangi náðist í versl- unarsögu íslensku þjóðarinnar á fullveldisdaginn, 1. desember síð- astliðinn. Þann dag lauk nærri 75 ára einokun ÁTVR á innflutningi og heildsöludreifingu áfengis. Inn- flytjendum var um leið heimilað að flytja inn og dreifa í heildsölu áfengi til þeirra sem leyfi hafa til smásölu á þeim varningi svo og til veitingahúsa. Umdeilt frá upphafi Einokun ÁTVR má rekja allt aft- ur til ársins 1909 þegar Alþingi samþykkti aðflutningsbann á áfengi. Varð Island um leið fyrsta þjóðin í heiminum sem samþykkti slíkt bann, finnska þingið hafði reyndar samþykkt slíkt nokkrum misserum fyrr, en Rússakeisari synjaði um staðfestingu. Bannið var umdeilt frá upphafi, en það voru hins vegar Spánverjar sem knúðu fram breytingu með upp- sögn verslunarsamninga. Neituðu þeir að kaupa íslenskan saltfisk, nema aðflutningsbanninu yrði af- létt. Það gerðist síðan 1922 þegar leyfður var innflutningur á léttum vínum. í kjölfarið var Áfengis- verslun ríkisins stofnuð. Annað áfengi fylgdi í kjölfarið 1933. Fræðsla, ekki boð og bönn Félag íslenskra stórkaupmanna fagnar þeim áfanga sem nú hefur náðst. Fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, á sérstakar þakkir skildar fyrir þá festu sem hann hefur sýnt við að kpma breyting- unum á. Hefur ráðherrann staðið af sér úrtölur forsvarsmanna bind- indishreyfingarinnar sem helst vilja hverfa aftur til bannlaganna Kjallarinn Stefán S. Guðjónsson framkvæmdastj. Félags íslenskra stórkaupmanna - félags milliríkja- verslunar og vörudreifingar sem giltu á millistríðsárunum. Fé- lagið getur vissulega tekið undir að áfengisneysla unglinga er og verður áhyggjuefni. Því vandamáli á hins vegar að mæta með aukínni fræðslu og for- varnarstarfi en ekki boðum og bönnum. Afleiðingar þeirra í gegnum árin tala sínu máli. Fyllilega treystandi Næstu skref hljóta að vera þau að einkaaðilum verði heimilað að reka smásöluverslun með áfengi og að ríkisvaldið dragi sig að fullu út úr þessum rekstri. Það gilda engin önnur lögmál um verslun með þessa vöru en aðrar verslun- arvörur sem þurfa sérstakrar með- höndlunar við. Má nefna í þeim samanburði lyf, sprengiefni, sýrur og skotvopn sem einkaaðilum er treyst til að versla með. Verslun er sú atvinnugrein sem síst af öllum ætti að vera ríkisrek- in. Þessi atvinnugrein krefst til- tölulega lítillar fjárfestingar miðað við flestar aðrar, þótt hún skapi fleiri störf og henti þess vegna einkaframtakinu best. Grundvall- aratriði í verslun er samkeppni og flutningur á boðum neytandans til framleiðenda vöru. Verslunar- rekstur í höndum ríkisins gengur að öllu jöfnu þvert á þessi grund- vallaratriði. íslenskum verslunarfyrirtækj- um er fyllilega treystandi til að annast dreifingu áfengis, eins og annarrar vöru. Og islenskir neyt- endur eiga kröfu á að eðlileg sam- keppni fái að njóta sín í þessari verslun, rétt eins og annarri. Stefán S. Guðjónsson „Einokur ÁTVR má rekja allt aftur til ársins 1909 þegar Alþingi samþykkti að- flutningsbann á áfengi. Varð ísland um leið fyrsta þjóðin í heiminum sem sam- þykkti slíkt bann . . .“ Skoðanir annarra Davíð þökkuð andstaðan „í afstöðu sinni tfl Evrópusambandsins túlkar for- sætisráðherra islenska hagsmuni og hefur haldið þannig á málum að full ástæða er til að þakka hon- um fyrir skelegga frammistöðu. í fyrirsjáanlegri framtíð á ísland ekki heima í Evrópusambandinu. Innganga í Evrópusambandið er okkur álíka nær- tæk og að sækja um aðild að Bandaríkjum Norður- Ameríku..íslenskir vinstrimenn sem renna hýru auga til Brussel ættu að rifja upp feril þeirra manna og kvenna sem fyrr á öldinni sóttu pólitíska sann- færinu lenga austur." Úr forystugreinum Vikublaðsina 8. des. Alhliða þjóðfélag óhagkvæmt „Um leið og verið er að ryðja tollmúrum úr vegi fyrir alþjóðlegum viðskiptum kemur í ljós aö það er mjög óhagkvæmt frá efnahagslegu sjónarmiði að reka alhliða þjóðfélag á íslandi með fjölbreyttri framleiðslu. Markaðurinn er lítill, vinnuafl er ekki sérhæft, öll ræktun í landbúnaði er erfið miðað við frjósamari héruð á suðlægari breiddargráðum, og rannsóknir í hinum litla Háskóla íslands eru svo óburöugar að þær geta tæpast orðið verulega frum- legar á alþjóðlega vísu nema þær tengist íslenskri menningu í víðasta skilningi; bókmenntum, sögu, málfræði, jarðfræði og náttúrufræði manna, dýra og plantna." Gfsli Sigurðsson í Alþ.bl. 7.des. Lýðræðið bandingi flokkanna „Stjórnmálaflokkar eru myndaðir til að treysta tök nokkurra manna á lýðræðinu í nafni íjöldans. Hlutverk flokkanna er að beisla félagsmenn sína í þágu þessara forystumanna. Þannig er fjöldinn lát- inn hlaða undir fámennið...Á meðan lýðræðið er bandingi flokkanna verður ekki hróflað við þeim, þrátt fyrir augljós þreytumerkin. Ekki nema for- ystumenn flokkanna búi svo um hnútana að við taki samskonar kerfi, sem ber flokkseigendur áfram á höndum sér.“ Ásgeir Hannes í Tímanum 8. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.