Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995
Fréttir
Hætta á jaröskjáiftum
- á höfuöborgarsvæöinuí'
Sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu setja
upp fjóra mæla í
samvinnu við Veður-
stofuna. Með mæling-
unum verður hægt
að segja fyrir um
skjálftavirkni og eld-
gos á Reykjanesskaga
og nágrenni
andskeiö %8ja»elli
Við Helgafell
53f
„Utkoma þessa disks
gaf mértækifæri
að grafa upp eldri útgáf-
urnarog bera þær ailar
saman, Það verður að segjast eins og er að þessi diskur sem er
til umfjöllunarhér, ber af."
ÚR GAGNRÝNI. SVEINN HARALDSSON Mbl.
„Mér fannst sýningin frábær
og ég held meira að segja
að ég steli nokkrum hugmynduni.“
Ummæli Ricliard 0' Brien
höfundar Rocky Horror
Sexý,fyndin og
dúndrandi kvöldskemmtun,
Úr gagnrýni
Sýningar á Rocky Horror milli jóla og nýárs.
Ath! Takmarkaöur sýningarfjöldi,
27. des. kl. 23:30
28. des. kl. 20:00 Örfá sæti laus.
Loff
iTAstÁ&Hki
Miðasala s: 5523000
Fjórir jarðskjálftamælar settir upp í nágrenni höfuðborgarsvæðisins:
Gostímabil get-
ur hafist í kjöl-
far jarðskjálfta
- segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur
Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu ætla að hefja samstarf við
Veðurstofuna um uppsetningu f]ög-
urra jarðskjálftamæla í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins til að fylgjast
með jarðskjálftahættu og afla gagna
til að meta hættu á eldgosum á
Reykjaneshrygg. Mælamir verða
settir upp á svæðinu frá Sandskeiði
upp að litlu kaffistofu, ekki langt frá
Helgafelli, við Selvog og nálægt
Nesjavöllum. Mælamir verða tengd-
ir við Veðurstofuna enda verður
unnið úr gögnunum þar.
„Við vonumst til að þetta gefi
betri mynd en við höfum haft hing-
að til. Með þessum mælum getum
viö kortlagt virkar sprungur á
svæðinu. Við fáum heilsteyptari
mynd af eðli svæðisins og verðum
næmari á breytingar,“ segir Ragnar
Stefánsson, jarðskjálftaffæðingur á
Veðurstofunni.
Kostnaðurinn við jarðskjálfta-
mælana og uppsetningu þeirra nem-
ur samtals tæpum sjö milljónum
króna. Rekstur þeirra kostar um 1,6
milljónir á ári fyrir utan vinnu við
rannsóknir gagna.
Sigurður Jónsson, jarðfræöingur
í Hafnarfirði, hefur óskað eftir styrk
frá Hafnarfjarðarbæ til að meta
hættu á jarðskjálftum og eldgosum í
nágrerini Hafnarfjarðar. Hann telur
hættu á því að eldgos geti orðið í ná-
grenni Hafnaríjarðar á Reykjanesi
og hraun geti jafnvel rannið yfir
nýju byggðina í Setbergslandinu
eða á framtíðarbyggingarsvæði bæj-
arins, til dæmis við Ásvelli.
„Það geta komið snarpir jarð-
skjálftar í 15 kílómetra fjarlægð frá
Reykjavík sem nauðsynlegt er að
rannsaka. Þessi orka getur leyst úr
læðingi gostímabil, svipuðu og var
um 950-1300 og var ansi virkt á
Reykjanesskaganum, ekkert ósvip-
að því sem skeði á Kröflusvæðinu
frá 1975. Við erum ekki að spá því
að þetta geti skeð á næstu áram en
það er ekkert óskaplega langt frá
svona tímabili,“ segir Ragnar.
„Svona getur komið fyrir aftur,
jafnvel á þeim tíma sem við lifum,“
segir hann.
-GHS
Brynjólfur Bjarnson, framkvæmdastjóri Granda hf., afhendir tólf þúsundasta nemandanum, Guðmundi Pálssyni í
Fellaskóla, bókina íslenskir fiskar en hjá þeim standa bekkjarfélagar Guðmundar og kennari, Valgerður Morthens.
Tólf þúsundasti grunnskóla-
neminn heimsækir Granda hf.
Arlegur Grandadagur var hald-
inn á 10 ára afmælisdegi fyrirtækis-
um m uggur f imiNU
ER RAKASTIGIÐ ORUGGLEGAILAGIA
ÞINNI SKRIFSTOFU EÐA ÞÍNU HEIMILI?
' RAKATÆKIN FRA BIONAIRE EIMA
VATNIÐ OG ÞVÍ ENGIN HÆTTA^Á SÝKLAMYNDUN.
úisömfim
Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni, Húsasmiðjan
Skútuvogi 3, Glóey Ármúla 19, Bílanaust Borgartúni
26. Kópavogur: Festa Hamraborg 14. Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs Skagabraut 6. Selfoss: Árvirkinn
Eyrarvegi 29. Akureyri: Hljómver Glerárgötu 32,
Raflagnadeild KEA Hafnarstræti 91-95. ísafjörður:
Straumur Silfurgötu 5.
ins 17. nóvember sl. Á Grandadegi
er öllum 11 ára nemendum í grunn-
skólum á höfuðborgarsvæðinu boð-
ið að koma og kynna sér nútíma
flskvinnslu.
Um tvö þúsund grannskólanemar
heimsóttu Granda að þessu sinni.
Bömin komu í fylgd kennara og
skoðuðu sögusýningu, vinnslusali
og kynjafiska og fengu að bragða á
fiskréttum.
Þennan dag kom tólfþúsundasti
grunnskólaneminn sem heimsótt
hefur Granda frá upphafi og fékk
henn bókina íslenskir fiskar aö gjöf.
SrGTJÆíRE - FYRTR ÞffJ.A KEn.SU
Völutoigtir 3, Mosfollsbær. Sfiffi 566 -8300
Samkomulag-
um leyndar-
kóðun
Bankamir og Reiknistofa bank-
anna annars vegar og EDI-félagið,
ICEPRO og Verslunarráð íslands
hins vegar hafa gengið frá sam-
komulagi um að Reiknistofan setji
upp miðstöð fyrir leyndarkóðun í
skjalasendingum milli tölva og
tölvuundirskriftir. Með þessu
samkomulagi skapast forsendur
fyrir auknu trausti i pappírslaus-
um viðskiptum innanlands og í
samskiptum við útlönd.
Samkvæmt samkomulaginu
mun Reiknistofa bankanna setja
upp miðstöð fyrir EDI-skeyti fyrir
bankakerfið og viðskiptavini þess.
Reiknistofan mun einnig setja
upp miðstöð fyrir leyndarkóðun
og tölvuundirskrift sem á að
verða landsmiðstöð fyrir útgáfu
leyndarkóðunarvottorða og skrán-
ingu á leyndarkóðunarlyklum. Þá
sér Reiknistofan um að á boðstól-
um verði nauðsynlegur notenda-
búnaður til að framkvæmda
leyndarkóðun.
Reiknistofa bankanna mun
kosta nauðsynlegan búnað vegna
þessa verkefhis.
-GHS