Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Side 33
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995
45
Fréttir
Færeyingar dýpka
Grindavíkurhöfn
DV, Suðurnesjum:
DV, Egilsstöðum:
og
bisplöntur
Hald var lagt á nokkrar kanna-
bisplöntur og um 200 lítra af bruggi
í uppsveitum Kópavogs í fyrra-
kvöld. Kópavogslögreglan og flkni-
efhadeildin stóðu saman aö málinu
og er það nú í rannsókn. -GK
Leiörétting
í DV í gaer var sagt að 464 nem-
endur hefðu innritast á tæknisvið
FB í haust. Hið rétta er að 464 nem-
endur innrituðust á tækni- og mat-
vælasvið.
Grindavíkurbær hefur samið við
færeyska verktakafyrirtækið J&P
Petersen um dýpkunarframkvæmd-
ir í höfninni. Fyrirhugað er aö
dýpka hjá viðlegukantinum í Eyja-
bakka og við löndunarbryggju
Fiskimjöls og lýsis. Þegar þessum
framkvæmdum er lokið verður dýp-
ið á þessum stöðum í höfninni sjö
metrar. Framkvæmdir hefjast 1.
apríl og á að ljúka 1. september
1996.
„Þá eiga loðnubátar og aðrir bát-
ar að geta farið um höfnina án þess
að eiga á hættu að stranda," sagði
Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri
í Grindavík.
Færeyingarnir voru með lægsta
tilboð í verkið, 93 millj. króna. Þeir
sögðu Jóni Gunnari að þetta væri í
fyrsta sinn sem færeykst verktak*"*-
fyrirtæki fengi verk utan Færeyja.
-ÆMK
Jólatréð er 12,5 metrar á hæð.
DV-mynd Sigrún
Egilsstaðir:
Stærsta
jólatré
landsins
Bókhaldsforrit Búnaðarbankans:
Viðskiptavinum
er mismunað
- segir Macintosh-eigandi
Stærsta íslenska jólatréð hefur
eins og undanfarin ár verið sett upp
við verslun Kaupfélags Héraðsbúa á
Egilsstöðum. Það er auðvitað
höggvið í Hallormsstaðaskógi og
tréð, sem þessi jól er helsta prýði
Egilsstaðabæjar, er 12,5 metrar á
hæð.
Kveikt var á því 2. desember að
viðstöddu fjölmenni og auðvitað
létu jólasveinamir sig ekki vanta.
Þeir sungu við undirleik hljómsveit-
ar frá tónskólanum og spjölluðu við
börnin. Ekki er þó hægt að segja að
veðrið hafi verið jólalegt - sunnan-
strekkingur og rigning.
-SB
Hólmavík:
Dýralæknis-
húsið selt
DV, Hólmavlk:
Húsið að Borgarbraut 13 á
Hólmavík, sem ríkissjóður keypti á
sínum tíma til þess að vera aðsetur
fyrir dýralækni sem þjónaði
Strandasýslu, hefur nú verið selt.
Frá 1989, þegar Guðbjörg Þor-
varðardóttir dýralæknir flutti sig
um set eftir 6 ára þjónustu við
Strandamenn, hefur húsið verið
leigt út og allar tilraunir til þess að
fá dýralækni til fastrar búsetu og
þjónustu hafa reynst árangurslaus-
ar.
Kaupandi að húsinu er Jón Ólafs-
son, kennari á Hólmavík, en fjöl-
skylda hans missti hús sitt í júní sl.
er það brotnaði niður þegar átti að
framkvæma lagfæringu á grunnin-
um. -GF
Tóku brugg
kanna-
„Ég er svekktur út af þessu. Ég
vil gjarnan fá þetta forrit og mér
finnst að það sé verið að mismuna
viðskiptavinum. Bankinn auglýsir
forritið stórum stöfum og að það sé
eitthvað sem viðskiptavinir Búnað-
arbankans eigi að geta notið góðs af.
Það er eins og að segja við Macin-
tosh-eigendur: Við afgreiðum ekki
rauðhærða hér,“ segir Edvard Fred-
riksen, Macintosh-eigandi og við-
skiptavinur Búnaðarbankans.
Búnaðarbankinn hefur að undan-
förnu boðið viðskiptavinum bank-
ans upp á heimilisbókhaldið Homer
fyrir heimili og fyrirtæki og fylgir
forritið ókeypis fyrir þá sem hafa
keypt aðgang að heimabanka Bún-
aðarbankans. Forritið kostar 450
krónur og er eingöngu fyrir PC-tölv-
ur en Ingi Örn Geirsson, forstöðu-
maður tölvudeildar, segir að forrit
fyrir Macintosh komj eftir áramót.
„Það hefúr ekki verið mikil eftir-
spum hjá eigendum Macintosh-véla
en það verður að skrifa forritið fyr-
ir Macintosh-umhverfi sérstaklega.
Það gerist vonandi á næsta ári, fljót-
lega eftir áramót,“ segir Ingi Örn.
Að sögn Sigurveigar Jónsdóttur
hjá íslandsbanka býður bankinn
sínum viðskiptavinum ekki upp á
neitt heimilisbókhaldsforrit en Þor-
steinn Þorsteinsson í Landsbankan-
um segir að slíkt forrit komi að öll-
um líkindum frá bankanum fyrir
jól, fyrst fyrir PC og skömmu síðar
fyrir Macintosh. -GHS
Árneshreppur:
Stólpagripur
sem fer um
allt í hreppnum
DV, Selfossi:
Mjög góð veðrátta var allan
nóvember í Árneshreppi á Strönd-
um en í byrjun desember gerði
hávaðarok. Séra Jón ísleifsson
ætlaði að messa á sunnudag, 2.
desember, en frestaði messunni
vegna veðurs til mánudagskvöld
og þá mætti fjöldi fólks í nýju
kirkjuna eins og alltaf þegar séra
Jón messar.
Stórbændurnir á Melum, Krist-
ján Albertsson og Björn Torfason,
fóru suður með jepparæfll nýlega
og seldu hann vel. Keyptu þeir
stóran og mikinn jeppabíl í stað-
inn, Nissan Patrol, fjórhjóladrif-
inn með meiru, sem kemst um allt
í hreppnum hvort sem kafsnjór er
eða ekki. Stólpagripur fyrir íbú-
ana og slíkur gripur hefði átt að
vera kominn í Árneshrepp fyrir
löngu. -Regenía
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, ein
ástsælasta óperusöngkona
landsins, er löngu hætt að fljúga.
Auk þess að syngja og kenna söng
gegnir Ólöf Kolbrún starfi
framkvæmdastjóra íslensku
óperunnar. En hefði hún ekki sjálf
sinnt því að breyta skráningu sinni
í Símaskránni til samræmis við
breytingar á högum sínum, gæti
hún enn haft þar starfsheitið
flugfreyja.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir
flugfreyja!
Símaskráin 1996 verður í einu bindi og mikil áhersla lögð á að
hún innihaldi sem réttastar upplýsingar. Rétthafar síma - jafnt
einstaklingar sem fyrirtœki - þurfa sjálfir að óska eftir öðrum
breytingum en þeim sem orsakast af flutningi.
Vinsamlegast athugið skráninguna og sendið inn breytingar ef
með þarf hið fyrsta. Eyðublað er á blaðsíðu 21 í nafnaskrá
Símaskrár 1995.
Upplýsingar eru veittar í síma 550 6620 og faxnúmer
er 550 6629.
Rétt skal vera rétt!
PÓSTUR OG SÍMI
Símaskrá |