Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Page 52
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
-Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995
Pottormar á Patró:
Slátra refum
í dagog
- borða
- í lágfótujafningi
„Við eru að fara að slátra fjórum
refum á Barðaströndinni á morgun
(í dag). Þetta verður síðan borðað í
vikunni. Við ætlum að reykja og
marinera og síðan munum við hafa
lágfótujafning," sagði Björn Jó-
hannsson, apótekari á Patreksfirði,
í samtali viö DV í gærkvöld.
Björn sagði að hér væri um að
ræða tillögu af hálfu fjögurra hug-
aðra pottorma - fólks sem stundar
heita pottinn á Patró síðdegis. Auk
sín væru það Eiður Thoroddsen,
rekstrarstjóri vegagerðarinnar, sem
verður kokkur, Sólrún Ólafsdóttir
hárgreiðslumeistari og Erlendur
. Kristiánsson rafvirkjameistari sem
inundu leggja sér rebbakjötið til
muns í vikunni.
„Við höfum frétt af fólki sem hef-
ur borðað þetta - þessi réttur er til
dæmis á veitingahúsum í Grikk-
landi. Kjötið er svipað kanínukjöti á
bragðið. Það eru helst lærin sem
eru borðuð. Ég get ekki sagt annað
en að það er dálítið gaman að
þessu,“ sagði Björn. -Ótt
Leitin að Ernu
árangurslaus
Leitin aö Ernu Arnardóttur, 35
ára gamalli konu úr Reykjavík sem
saknaö hefur verið frá því aðfara-
nótt fimmtudagsins, hefur enn eng-
an árangur borið. Leitað var i
Sundahöfn og fjörur og eyjar í Sund-
unum gengnar.
Dregið verður úr leit nema nýjar
vísbendingar komi fram um ferðir
hennar. -pp
Grindavík:
Stútur endaði
í húsagarði
Tveir ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur í Grindavík um helg-
ma. Annar ökumannanna endaði
för sína inni í húsagarði við Ása-
braut þar í bæ. Hann slapp þó
ómeiddur en ekki er hægt að segja
sömu sögu um fjórar hríslur í garð-
inum sem brotnuðu. Þá brotnaði
grindverk sem liggur umhverfis
garðinn. Bíllinn sem maðurinn ók
skemmdist talsvert. -pp
Laugalækj arskóli:
Laugar og lækir
Slökkvilíoið í Reylyavik var kall-
að að Laugalækjarskóla í hádeginu í
gær en töluvert vatn hafði safnast
fyrir í skólanum. Slökkviliðið dældi
tugþúsundum lítra úr skólanum og
kom þá í ljós að vatn seytlaði upp úr
sprungum á gólfi skólans. Síðdegis í
gær voru menn enn að hreinsa vatn
úr skólanum. -pp
ÞEIR ÆTLA SEMSÉ
AÐ BRAGÐA REFI!
Regin Grímsson í stórframleiðslu á íslenskri hönnun í Kanada :
Pantanir á bátum
upp a 700 milljonir
- umsvifin munu að líkindum aukast vegna áhuga Kanadamanna
Regin Grímsson, athafnamaður
í Kanada, hefur fengið pantanir
upp á andvirði um 700 miHjóna ís-
lenskra króna vegna smábáta, ís-
lenskrar hönnunar, sem hann hef-
ur framleitt þar í landi. Einn aðili
hefur staðfest pöntun á fyrstu fjór-
um af 50 bátum hjá honum en ann-
að fyrirtæki sendi honum símbréf
í fyrrinótt þar sem pöntun á fyrsta
bátnum af 20 var staðfest. Hver
bátur mun verða seldur á um tíu
milljónir íslenskra króna.
Regin hefur auk þess hafið
smíðar á um einum tug báta fyrir
aðila í Trinidad i Karíbahafinu.
Hann vildi í samtali við DV í gær
ekki gefa upp hverjir það væru
sem væru með tvær fyrrnefndar
stórpantanir en þar væri um að
ræða „önnur svæði“ en Trinidad.
Regin sagði að framleiðsla hans
á næsta ári muni tífaldast miðað
við árið sem nú er að ljúka. Stóra
málið væri síðan að Kanadamenn
hefðu rennt hýru auga til fram-
leiðslu hans á hinum hraðskreiðu
króka- og handfærabátum. Þar séu
mestu hagsmunirnir. Hann kvaðst
vera kominn í gott samband við
hinn kanadíska formann félags
smábátaeigenda sem reyndar er
nágranni hans ytra. Kanadamenn
hygðust færa út kvíarnar í veiði-
skap á smábátum með „vistvæn
veiðarfæri" enda sé þorsknum að
vaxa fiskur um hrygg í kanadískri
lögsögu eftir nokkurra ára friöun-
araðgerðir.
„Það hefur tekið langan tíma að
byggja þetta upp með þrotlausri
vinnu," sagði Regin sem rekur fyr-
irtæki sitt í Kanada þó að fjöl-
skylda hans búi hér á landi - eig-
inkona og sex börn, þar af funm
stúlkur og drengur sem fæddist á
laugardag.
-Ótt
Þúsundir manna og barna söfnuðust saman á Austurvelli síðdegis í gær þegar kveikt var á Óslóarjólatrénu með
viðhöfn. Egill Fivelstad kveikti á trénu í ár en hér stendur hann hreykinn fyrir framan tréð að loknu verki ásamt bróð-
ur sínum, Vébirni. Eftir á söfnuðust háir sem lágir saman og sungu jólalög undir öruggri stjórn jólasveinanna sem
fara óðum að tínast til byggða. DV-mynd JAK
Austurland:
Þrennt flutt í
sjúkrahús eft-
ir bílveltu
Þrennt var flutt í sjúkrahús eftir
bílveltu 5 til 6 kílómetra norður af
Egilsstöðum um helgina. Svo virðist
sem ökumaðurinn hafi misst stjórn
,á bO sínum með fyrrgreindum af-
leiðingum. Ekki voru sjáanlegir al-
varlegir áverkar á þeim sem í bíln-
um voru en bíllinn er talsvert
skemmdur. -pp
Sumarhiti:
15,2 stiga
hitiá
Vopnafirði
Þau tíðindi gerðust í gær, hálfum
mánuði fyrir jól, að hitastigið fór
upp í 15,2 gráður á Vopnafirði, 14,3.
gráður á Siglufirði og 11,5 gráður á
Akureyri. Þessar tölur eru vissu-
lega mjög háar miðað við meðalhita-
stig á landinu i desember sem er við
frostmark.
Að sögn veðurfræðings í gær-
kvöldi gerist það gjarnan að hitastig
hækkar verulega á Norðurlandi
þegar suðlægar áttir ríkja þó svo að
tölurnar í gær séu með því hæsta
sem sést á þessum árstíma.
Suðvestlæg átt verður á landinu í
dag en á morgun kólnar með norð-
anátt. Á miðvikudag snýst hins veg-
ar í suðvestlægar áttir á ný.
-Ótt
Veðrið á morgun:
Léttskýj'að
sunnan-
lands
Á morgun verður norðlæg
átt á landinu, nokkuð hvöss
norðaustan til en annars kaldi
víðast hvar. Snjókoma eða élja-
gangur verður norðanlands en
léttskýjað sunnan til.
Frost verður á bilinu 0-5
stig.
Veðrið í dag
er á bls. 60.
Grensðsvegi 'II
Sími: 5 886 886 Fox: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886 ,
K I N G
L0TT#
alltaf á
Miövikudögum