Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Qupperneq 10
1« minnisstæðustu atburðir á árinu 1995
-j
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 J3"V
Jóhanna Sigurðardóttir:
Stofnun Þjóðvaka
„Þaö er nú
margt sem stend-
ur upp úr á þessu
ári. í mínum
huga er það ekki
síst stofnun Þjóð-
vaka í janúar síð-
astliðnum og svo
að sjálfsögðu
kosningabaráttan
sem í hönd fór á eftir. Kosningaúr-
slitin ollu mér að vísu vonbrigðum
eins og fleiri. Þá standa líka upp úr
í minningunni þau hörmuleg slys
sem snjóflóðin á Vestfjörðum ollu á
árinu.
Varðandi árið sem er að koma
vænti ég þess að stjómarandstöðu-
flokkarnir beri gæfú til þess að
stíga fyrstu skrefm í átt til samein-
ingar. Það tel ég vera forsenduna
fyrir breytingum í þessu þjóðfé-
lagi.“ -S.dór
Halldór Ásgrímsson:
Kosningabaráttan
„Kosningabar-
áttan i vor er mér
einna minnis-
stæðust af atburð-
um ársins. Allir
þeir atburðir sem
þar áttu sér stað
og þau miklu
samskipti við
fólkið sem henni
tengdust em mjög minnisstæð og
standa upp úr í minningunni.
Ég er bjartsýnn á komandi ár.
Ég tel að við höfum fulla ástæðu til
að-vænta góðs af nýju ári.“
-S.dór
Páll Pétursson:
Minnisstæð
kosningabarátta
Einar Daníelsson:
Gleði og sorg
„Mér er náttúr-
lega minnisstæð-
ast að fá þennan
vinning og ég tala
nú ekki um það
að fara út með
dömunum. Við
fórum til Glasgow
og það var alveg
draumur. Al-
mennt séð var þetta slys á Flateyri
alveg hörmulegt en þar lést einn
kunningi minn. Það má því segja
að það hafi verið bæði gleði og
sorg á árinu. Það er líka minnis-
stætt að það skuli vera búið að
semja friö í fyrrum Júgóslavíu,“
segir Einar Daníelsson, skipstjór-
inn örláti á Suðumesjum.
„Mér líst vel á nýja árið. Verður
maður ekki bara að vera bjartsýnn
á framtíðina? Það þýðir ekkert
annað. Ég vona bara að árið verði
friðsælt og öllum til gleði.“
Kristín Halldórsdóttir:
Hestaferðir
sumarsins
„Hestaferðir
sumarsins era
alltaf toppurinn á
tilvemnni. Ég
eignaðist nýjan
gæðing í sumar,
son Sörla frá
Sauðárkróki, svo
nú hef ég þijá
góða til reiðar. í
pólitlkinni er mér minnisstæðust
glíman vegna bótagreiðslna til
þolenda ofbeldisafbrota sem ríkis-
stjómin hugðist svíkja þá um. Sú
glíma vannst ekki alveg en næstum
því,“ segir Kristín Halldórsdóttir,
þingkona Kvennalistans.
„Hvað næsta ár varðar vil ég
bara þrátt fyrir allt halda áfram að
trúa á hið góða og biðja um styrk
til að varast hið vonda. Svo vonast
ég til að fá tækifæri til að spretta
úr spori á þingeyskum heiðum
næsta sumar.“ -S.dór
Margrét Frímannsdóttir:
Fyrsta barnabarnið
„Það sem mér
er minnisstæðast
frá árinu sem er
að líða er það að
ég eignaðist mitt
fyrsta bamabam
5. febrúar. Þá
fæddist hún litla
nafna mín. Ég
fékk að vera við-
stödd fæðinguna og það er ógleym-
anlegt.
Ég hlakka til að takast á við ný
verkefni á komandi ári. Það verður
dálítið öðruvísi fyrir mig í nýju
starfi sem formaður Alþýðubanda-
lagsins. Ég hef þá tilfínningu að
við séum á leið upp úr lægðinni
sem verið hefur undanfarin ár.
Þótt ríkisstjómin hafi ekki áttað
sig á því held ég nú samt að það sé
að gerast,“ -S.dór
Ingibjörg Pálmadóttir:
Ráðherradómur
„Síðustu átta
mánuðir, síðan ég
tók við embætti
heilbrigðis- og
tryggingaráð-
herra, hafa að
sjálfsögðu verið
ógleymanlegir og
rísa upp úr í
minningunni um
atburði ársins hjá mér.
Varðandi komandi ár vænti ég
þess fyrst og fremst að velferðar-
kerfi landsins styrkist og dafni.
Fyrir mig persónulega er ég aðeins
farin að hugsa heim til mín. Ég hef
ekki haft mörg tækifæri til þess aö
undanfómu. Ég á þá ósk heitasta
að geta verið meira með fjölskyldu
minni á næsta ári en ég hef getað á
þessu ári.“ -S.dór
„Frá árinu sem
er að líða er mér
minnisstæðust
ákaflega skemmti-
leg kosningabar-
átta. Það var
gaman að vinna í
þessum kosning-
um. Það eina sem
skyggði á var hve
erfitt tíðarfarið var.
Varðandi komandi ár vona ég að
tíðarfarið verði gott. Ég vona að
við fáum ekki annan eins vetur og
var í fyrravetur og að sumarið
komi fyrr en það gerði á þessu ári.
Eins vona ég aö mér takist að
koma ýmsu í verk sem ég ætla
mér.“ -S.dór
Elísabet Sif Haraldsdóttir:
Keppnin í
„Mér er minn-
isstæðastur ár-
angurinn í
danskeppninni í
Blackpool í Bret-
landi í apríl. Þó
að við lentum í 1.
og 2. sæti í
London í haust
þá lentum við í 5.
sæti í Blackpool og það var i fyrsta
skipti sem við komumst í úrslit.
Það var það æðislegasta sem ég hef
upplifað," segir Elísabet Sif Har-
aldsdóttir dansari en hún náði góð-
um árangri á árinu með dansfélaga
sínum, Sigursteini Stefánssyni.
„Við ætlum pottþétt til Blackpool
í apríl og ætlum helst að ná þar 1.
sætinu. Það getur líka veriö að við
tökum þátt í danskeppni í Kaup-
mannahöfn i febrúar og þar setjum
við líka markið hátt,“ segir hún.
-GHS
Vigdís Grímsdóttir:
Gaman að spegla
sig í Sigfúsi
„Að sjálfsögðu
eru hamfarirnar
á Vestíjörðum of-
arlega í hugar-
fylgsnunum.
Núna síðustu vik-
umar hef ég lesið
ógrynni af bók-
um. Mér er mjög
minnisstæð ein
bók en það er Speglabúð í bænum
eftir Sigfús Bjartmarsson. Það var
gaman að spegla sig í henni. Síðan
var auðvitað skemmtilegt að fá
bókmenntaverðlaunin," sagði Vig-
dís Grímsdóttir rithöfundur.
Vigdís sagðist enn þá hafa „gam-
aldags væntingar" um að bóka-
skatturinn myndi hverfa á næsta
ári. Síðan sagði hún: „Það verður
spennandi að fylgjast með Dags-
brúnarfólkinu, hvort það komi nú
upp almennilegt baráttugengi.
Gaman væri ef það gerðist á árinu
1996 að atvinnuleysi færi. Ég þekki
allt of margt atvinnulaust fólk.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Ferðin til Kína
„Öllum íslend-
ingum hljóta að
vera minnisstæð-
astir þeir sorg-
legu atburðir sem
átta sér stað í
Súðavík og á Flat-
eyri. Þeir skyggja
á allt annað. í
persónulegu lífi
mínu er mér minnisstæðust ferð
mín til Kína,“ segir Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri.
„Ég er bjartsýn varðandi nýja
árið. Mér íinnst ýmis teikn á lofti
um að þjóðin sé að komast upp úr
öldudalnum. Ég hef það líka á til-
finningunni að vitsmunaleg póli-
tísk umræða eigi meiri möguleika
á næsta ári en því síðasta."
-JJ
Katrín Ósk Þráinsdóttir:
Lottóvinningur og
hörmungar
„Það er opnun
veitingastaðarins
míns og svo lottó-
vinningurinn sem
stendur upp úr
hvað mig varðar
persónulega. Ann-
ars standa upp úr
hörmungamar og
öll þessi slys sem
orðið hafa á ís-
landi á árinu. Utan úr heimi eru
það líka hörmungarnar þar,“ segir
Katrín Ósk Þráinsdóttir, lottóvinn-
ingshafi og veitingakona á Eyrar-
bakka.
„Ég vona að næsta ár verið gott
og blessað en ég ætla bara að halda
áfram að lifa lífinu. Ég set mér
ekki nein sérstök markmið eða
strengi áramótaheit."
KK:
Líf mitt hefur tekið
nýja stefnu
„Þetta hefur
verið viðburða-
ríkt ár hérlendis
og mikið dunið á
þjóðinni af hörm-
ungum. Af góðum
hlutum má nefna
að heimurinn
virðist vera að
taka sig á og lítur
vel út með frið um aldamótin ef
þjóðir heims einbeita sér að því.
Hvað varðar mig persónulega hefur
líf mitt tekið nýja stefnu sem er
mjög góð,“ segir Kristján Kristjáns-
son tónlistarmaður.
„Ég get ekki gert mér neinar
væntingar á nýju ári en ég vona að
ég verði betri maður og það hafí já-
kvæð áhrif á umhverfi mitt. Einnig
stefni ég á að gefa út margar góðar
plötur."
-bjb
-JJ
Björn Bjarnason:
Mýtt starf
„Ef ég nefni
það sem að mér
sýnr persónulega
þá er mér það
minnisstæðast frá
árinu sem er að
líða að ég tók við
starfi mennta-
málaráðherra
með litlum fyrir-
vai-a.
Væntingar mínar til ársins sem
er að koma era þær að við höldum
áfram á sömu braut, íslendingar.
Það hefur tekist að leggja grund-
völlinn að góðri framfarasókn og
ég vona að við höldum áfram á
þeirri braut og að áhrifin muni
skila sér út í þjóðlífið allt.“ -S.dór
Hjálmar Jónsson:
Bjartsýnn
„í lok ársins
hugsar maður til
þeirra fjölmörgu
sem hafa misst
ástvin á árinu og
eiga um sárt að
binda. Þar hugsa
ég einkum til
þorþanna tveggja
á Vestíjörðum.
Það jákvæða er
að hagur landsmanna fer batnandi
með auknum hagvexti, meiri at-
vinnu og fleiri tækifæmm og
möguleikum. Persónulega er mér
minnisstæðast að ég skipti um
starfsvettvang á árinu,“ segir
Hjálmar Jónsson, þingmaður og
prestur. Hann segist bjartsýnn á
betri tíma á komandi ári, betri
tima með auknum möguleikum.
„Það er mjög brýnt að við hefj-
um umræðu um þjóðmál og endur-
skoðum samfélagskerfið. í þjóðfé-
laginu eru býsnin öll af þekkingu,
tækni og góðum hugmyndum. Við
þurfum að beita öllu til að vinna
að betri framtíð.“
-sv
Hlynur Halldórsson:
Niðurstaða
silfurmálsins
„Að því er snýr
að okkur hér að
Miðhúsum þá
stendur nú niður-
staðan i silfur-
málinu upp úr.
Hún varð okkur
léttir eftir tölu-
vert erfiða tíma.
Ég vona að fram-
tíðin megi gefa að menn fari að
vinna af heilindum í þessu máli og
svona málum almennt," sagði
Hlynur Halldórsson, bóndi að Mið-
húsum, í samtali við DV. Hann
sagðist vona að mál þeirra Mið-
húsahjóna tæki enda á næsta ári.
-sv
Guðni Guðmundsson:
Uppgötvaði
ellina
„Það sem er
minnisstæðast er
aö hafa á árinu
uppgötvað að ég
væri orðinn svo
gamall að ég
mætti ekki vinna
lengur. Það var
óþægilegt að
standa allt í einu
frammi fyrir þvi þótt maður vissi
auðvitað alltaf af þessu,“ sagði
Guðni Þ. Guðmundsson en hann lét
af starfi rektors í MR á árinu.
Guðni sagðist vænta góðs af nýju
ári og að hann ætlaði að halda
áfram að láta sér þykja gaman að
vera til. -sv
Ólafur Egilsson:
Bróðurhugur
Færeyinga
„Einstæður
bróðurhugur Fær-
eyinga, þrátt fyrir
eigin erfiðleika, í
snjóflóðunum í
Súðavík og á Flat-
eyri er mér ofar-
lega í huga þegar
ég lít yfir árið.
Við heimsóttum
þá í september og það var einkar
ljúft. Þeir líta á íslendinga sem
bestu vini sína. í ár var 150. ártíð
Jónasar Hallgrímssonar og það var
gaman að einmitt á því sama ári
skyldi íslendingur vinna bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs.
Þá var ennfremur haldið upp á 50
ára afmæli flugs á milli Reykjavík-
ur og Kaupmannahafhar og það
setti svip á hátíðahöldin að þrír úr
áhöfn fyrsta flugsins gátu verið þar
viðstaddir," segir Ólafur Egilsson
sendiherra. Hann segir að á næsta
ári muni hann og Ragna kona hans
flytja heim eftir 9 ára viðburðaríka
dvöl í Moskvu, London og nú síð-
ast í Kaupmannahöfn.
„Við emm full tilhlökkunar að fá
að njóta aftur þess að vera á þeim
slóðum þar sem ræturnar liggja.“
-sv
Hrafn Gunnlaugsson:
Hermt
eftir Halldóri
„Tveir menn
sem ég hitti. Það
var þegar norski
listmálarinn Odd
Nerdrum færði
mér fisksúpu í
gamalli, stein-
runninni haus-
kúpu og við
ræddum væntan-
lega leikmynda-
gerð og þegar ég hitti þýska kvik-
myndaleikstjórann Werner Herzog
á aðalfundi Evrópsku kvikmynda-
akademíunnar í Berlín og við
sórumst í fóstbræðralag.
Að lokum minnist ég mér til
gamans að Thor Vilhjálmsson
skammaðist út í mig fyrir að
herma eftir Halldóri Laxness í út-
varpið þegar ég las þar litla
skemmtisögu. Thor virðist halda að
hann hafi einkarétt á að herma eft-
ir Halldóri. Ég held að þetta sé
misskilningur hjá Thor, það er öll-
um frjálst að herma eftir Halldóri,
jafnvel þó að Thor sé orðinn svo
fastur í eftirhermunni eftir alla
þessa áratugi að hann sé búinn að
gleyma að herma eftir sjálfum sér.
Ég dreg stórlega í efa að með því
hafi Thor tryggt sér einkaleyfið á
að herma eftir Halldóri." -ÞK
Hörður Guðmundsson:
Ný verkefni
á komandi árí
„Okkur Vest-
firðingum eru
efst í huga hörm-
ungarnar í Súða-
vík og á Flateyri.
Kosningamar í
vor eru líka
minnisstæðar.
Fyrir okkur per-
sónulega eru það
breytingamar en starfsemi Flugfé-
lagsins Emis leggst niður í núver-
andi mynd um áramótin," segir
Hörður Guðmundsson, flugstjóri og
framkvæmdastjóri Ernis.
„Mér líst ágætlega á nýtt ár og
trúi að það geti orðið okkur Vest-
firðingum gott ef við vinnum sam-
an að framfóram. Hjá mér er það
nýr starfsvettvangur því ég kem til
með að reka mitt fyrirtæki út frá
Reykjavík. í ársbyrjun fer ég í sam-
starf með Atlanta og hlakka til að
takast á við ný verkefni innan-
lands og utan.“