Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Page 22
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995
22 ■' sérstæð sakamál
J,, ’wP’' • — ,
Duíarfulla bréfið
Þann 21. desember 1986 lést séra
Samuel Baily áttatíu og sex ára. Allt
fram á síðasta dag var hann andlega
hress og ósjaldan glímdi hann við
þá gátu sem varð honum og öðrum
mikið umhugsunarefni. Hún tengist
bréfi sem hann fann í Biblíunni
sinni í apríl 1941. Um það sagði
hann við blaðamann rúmum þrem-
ur áratugum síðar:
„Ég hef enga skýringu á því sem
gerðist. Ég hafði aldrei heyrt um
Thomas Nowry, sem virðist hafa
skrifað undir bréfið. Ég er fyrir
löngu kominn á þá skoðun að
Nowry hafi á einn eða annan hátt
tekist að koma til mín boðum úr
gröfinni. Mér er það gáta hvers
vegna hann valdi mig, en staðreynd-
irnar tala sínu máli.“
Bréfið
Staðreyndirnar voru óvenjulegar.
Um það verður ekki deilt, og þær
urðu upphaf einhverrar furðuleg-
ustu rannsóknar sem breska lög-
reglan hefur nokkru sinni þurft að
standa fyrir.
Snemma sunnudagsmorgun einn
í apríl 1941 kom séra Bailey inn í
vinnuherbergi sitt til þess að leggja
síðustu hönd á predikun sína. í
Biblíunni fann hann þá bréf, sem
var vandlega skrifað með upphafs-
stöfum og var á þessa leið:
„John Pinney og James Daugher-
ty rændu mig og drápu. Síðan grófu
þeir mig á akri nærri Kirkham.
Láttu þá kom fyrir dómara." Nafnið
undir bréfinu var Thomas Dowry.
Séra Bailey hafði aðeins þjónað
kirkjunni í Blackburn, Lancashire,
í tvö ár, en hann kannaðist vel við
John Pinney, enda var hann einn
þeirra sem sóttu kirkjuna reglulega.
Hin tvö nöfnin í bréfinu kannaðist
hann ekki við. Þegar kona hans
vaknaði sýndi hann henni það. Hún
kannaðist ekki við nöfnin tvö, og
það gerði öldruð móðir hans heldur
ekki.
Skriftin hverfur
Meðal kirkjugesta þennan sunnu-
dagsmorgun var Philip Ricks, full-
trúi í rannsóknarlögreglunni, en
hann þekkti séra Bailey vel. Hálfum
mánuði áður hafði hann skírt dótt-
ur hans. Eftir messu bað séra Bailey
Ricks að ræða við sig. Hann tók
fram bréflð, en honum til mikillar
furðu var blaðið þá autt. Ekkert
stóð á því, og í pappírnum voru ekki
einu sinni rákir sem bentu til þess
að á hann hefði verið skrifað.
Séra Bailey sagði Ricks fulltrúa
sögu sína. Fulltrúinn hlustaði á
hana, og hefði einhver annar en
sóknarpresturinn átt i hlut hefði
hann ef til vill hafnað þvi sem hann
heyrði eins og hverjum öðrum hug-
arburði. En Ricks þekkti prest af
góðu einu og ákvað að kanna málið.
í ljós kom að farandsali að nafni
Thomas Nowry var á lista yfir fólk
sem hafði horfið sporlaust. Kona
hans, Daphne, hafði tilkynnt hvarf
hans, eftir að hann sneri ekki heim
til hennar fóstudagskvöld eitt í
ágúst 1938. Þau höfðu þá búið í
Blackpool. Thomas fór um og seldi
vörur á afborgunum. Húsmæður
sem skiptu við hann borguðu í
fyrstu inn á það sem þær festu kaup
á, en hann fór síðan reglulega til
þeirra til að innheimta afborganir.
Hafði hann verið í slíkri innheimtu-
ferð daginn sem hann hvarf.
Fingraför
Ricks fulltrúi sá í lögregluskýrsl-
um að bíll Nowrys hafði fundst á að-
alveginum milli Blackbum og
Blackpool, nærri Kirkham, en Now-
ry hafði aldrei fundist. Tæknimenn
lögreglunnar höfðu leitað fingrafara
í bílnum og höfðu flest reynst vera
af Nowry, eins og við hafði mátt bú-
ast. En að auki höfðu fundist fingra-
för tveggja annara manna, en þau
höfðu hvergi verið á skrá og því
hafði ekki tekist að upplýsa af
hverjum þau voru.
Ricks fulltrúi komst að því að
annar mannanna sem tilgreindur
var í bréfinu, John Pinney, vann i
verksmiðju sem smíðaði hergögn.
Þá komst Ricks að því að nánasti
vinur hans hét James Daugherty.
í samráði við yfirmenn verk-
smiðjunnar var sett á svið innbrot í
hana. Tilgangurinn var að fá tæki-
færi til að taka fingrafór allra starfs-
mannanna, en þeim var sagt að úti-
loka þyrfti að einhver þeirra hefði
átt hlut að máli. Þau voru tekin og
kom þá í ljós að fingrafór þeirra
Pinneys og Daughertys komu heim
og saman við þau sem fundist höfðu
á stýri og hurð bíls Nowrys.
Handtaka og yfirheyrsla
Pinney og Daugherty voru nú
teknir höndum og færðir á lögreglu-
stöð. Var hvorugum sagt að hinn
hefði verið handtekinn. Við fyrstu
yfirheyrslur neituðu báðir að geta
varpað nokkru ljósi á hvarf Thomas
Nowry, enda sögðust þeir engan
hafa þekkt með því nafni. Þegar
þeir voru hins vegar beðnir að gefa
á því skýringu hvers vegna
fingraför þeirra hefðu fundist í bíl
hans féll Daugherty saman. Hann
gaf nú þá skýringu að þeir hefðu
fengið far með Nowry, en hann
hefði neitað því að þekkja hann af
því honum hefði verið kunnugt um
hvarf hans og ekki viljað tengjast
því.
Erfitt hefði verið að sýna fram á
að Daugherty segði ósatt hefði ekki
komið til að við húsleit. á heimili
hans fannst vasaúr sem á stóð „Til
Toms, með ástarkveðju. Daphne. 13.
1. ’37“. Úrið hafði verið gjöf Daphne,
konu Thomas Nowry, til hans á sex-
tugsafmæli hans.
Pinney lýsti yfir því að hann
hefði keypt úrið af Nowry kvöldið
sem þeir Daugherty hefðu fengið far
með honum. Daugherty, sem fékk
ekki að heyra nema hluta af því sem
fram kom í yfirheyrslunum yfir
Pinney, sagðist hins vegar ekkert
vita um kaup félaga síns á úrinu.
Ný frásögn
Pinney varð að taka alla frásögn
sína til endurskoðunar þegar hon-
um var sýnt fram á að frásögnum
þeirra Daughertys bæri ekki saman.
Pinney sagði nú eftirfarandi: „Við
Jim (Daugherty) fengum okkur neð-
an í því. Við vissum að gamli mað-
urinn var vanur að fara í inn-
heimtuferð á fostudögum. Við geng-
um því út frá því að hann yrði með
talsverða peninga á sér og ákváðum
að ræna hann.“
Pinney sagði að þeir félagar hefðu
farið á mótorhjóli út á veginn við
Kirkham, en þeir hefðu vitað að
Nowry færi um hann. Þegar þeir
hefðu séð til hans hefðu þeir veifað
og hann stöðvað bíl sinn. Þeir hefðu
þá sagt honum að mótorhjólið hefði
bilað og beðið hann um að aka öðr-
um þeirra til Kirkham til að ná í
viðgerðarmann.
Nowry tók vel í það, að sögn Pin-
neys. En á nær sama augnabliki
sagði hann Daugherty hafa dregið
fram járnstöng sem hann hefði
geymt uppi i erminni og slegið Now-
ry í höfuðið. Hefði hann látist sam-
stundis.
Hvor um sig ásakar hinn
„Ég hafði ekki hugmynd um að
Daugherty ætlaði að drepa gamla
manninn," sagði Pinney. „Það var
heldur ekki tilgangurinn. Við ætl-
uðum bara að ræna peningunum af
honum.“
Pinney sagði þá félaga hafa dreg-
ið Nowry út úr bílnum og grafið lík-
ið utan vegar en síðan haldið burt á
mótorhjólinu.
Þegar Daugherty var skýrt frá
játningu Pinneys neitaði hann að
hafa slegið Nowry og sagði að Pinn-
ey hefði gert það. Bauðst hann til að
sýna lögreglunni hvar líkið væri
grafið. Það fannst svo um fimmtíu
metra utan vegarins sem bíll
Nowrys hafði fundist á.
Þegar málið kom fyrir rétt var
því haldið fram af hálfu saksóknara
að i raun skipti engu refsingarinnar
vegna hvor þeirra Pinneys og Daug-
hertys hefði banað Nowry. Báðir
yrðu að teljast jafnsekir, því þeir
hefðu skipulagt árásina og ránið.
Kviðdómur var aðeins tæpar tíu
mínútur að komast að niðurstöðu,
og var hún á þá leið að báðir teldust
mennirnir sekir. Voru þeir dæmdir
til dauða, en dauðarefsing var þá
enn í gildi í Bretlandi.
Aftakan
Móðir Pinneys og eiginkona hans
hófu undirskriftasöfnun til þess að
reyna að fá liflátsdóminum breytt í
fangelsisdóm. Töldu þær að ef þeim
tækist að fá ekkju Thomas Nowry
til að skrifa undir beiðnina yrði
meira mark tekið á henni en ella.
En svar Daphne Nowry var á þessa
leið:
„Ég léti mér ekki til hugar koma
að skrifa undir slíka beiðni. Þessir
tveir menn gerðu mig að ekkju með
því að drepa manninn sem ég
elskaði og hafði verið hamingjusam-
lega gift í nærri fjörutíu ár. Mér er
sama þótt þeir fari beinustu leið til
vítis. Og þvi fyrr því betra.“ Svo
skellti hún hurðinni á konumar
tvær.
Sjö vikum síðar voru báðir menn-
irnir teknir af lífi.
Rannsóknir á bréfinu
Nú var aðeins eftir að upplýsa á
hvern hátt séra Bailey hafði borist
bréfið sem hann hafði fyrst lesið
einn en síðan með konu sinni.
Tæknimenn reyndu öll þekkt ráð til
að kalla fram horfnu skriftina á
blaðinu en án árangurs. Og það var
ekki aðeins reynt einu sinni, heldur
í hvert sinn sem ný tækni á þessu
sviði kom fram. Aldrei tókst hins
vegar að sýna fram á að nokkru
sinni hefði nokkuð verið skrifað á
þetta blað.
„Ég notaði Biblíuna mína á laug-
ardagskvöldinu þegar ég samdi
predikunina," sagði sér Bailey. „Þá
var ekkert bréf í henni. Og hvorugt
okkar hjónanna lagði það í hana. Þá
voru útidyrahurðirnar læstar og all-
ir gluggar lokaðir. Það er því aðeins
einn maður sem gat komið bréfinu i
Biblíuna, Thomas Nowry, sem gat
ekki fúndið frið fyrr en morðingjum
hans yrði refsað og hann jarðsettur
í vígðum reit.“
Þar við situr, og ólíklegt þykir að
önnur skýring fáist á bréfinu sem
upplýsti skýrum stöfum það sem
gerðist, en varð svo að auðu blaði.