Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Blaðsíða 17
16
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
25
íþróttir
Fraser vill að
Riley sé refsað
Dawn Fraser frá Ástralíu,
einn frægasti sundmaður heims
á sjötta og sjöunda áratugnum,
lýsti því yfir í gær að landa
hans, sunddrottningin Samantha
Riley, ætti að fá hámarksrefs-
ingu, tveggja ára bann. Riley
varð uppvís að notkun ólöglegs
verkjalyfs á heimsmeistaramót-
inu í sprettsundi sem fram fór í
Brasilíu í desember. Riley og
þjálfari hennar segja að um al-
gert slys hafi verið að ræða og
þjálfarinn hafl látiö hana fá vit-
lausa töflu viö höfuðverk.
„Ef Riley sleppur, þá koma
Kínverjarnir og allir aðrir sem
staðnir hafa verið að verki og
segja að þetta sé allt þjálfurun-
um að kenna,“ sagði Fraser.
Skömmu eftir yfirlýsingu Fra-
sers barst sú frétt að Riley hefði
sloppið með skrekkinn. Hún
fékk stranga viðvörun en þjálf-
ari hennar var dæmdur í tveggja
ára bann.
Forest og Spurs
Leikur Nottingham Forest og
Tottenham í ensku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu verður leik-
inn næsta miðvikudag, 28. febrú-
ar. Honum var frestað í fyrra-
kvöld vegna snjókomu en þetta
var fyrsta frestun á bikarleik hjá
Tottenham í 89 ár.
Dumitrescu og
Hottiger bíða
Ilie Dumitrescu frá Rúmeníu
og Mark Hottiger frá Sviss þurfa
að bíða enn um sinn eftir því að
fá að leika með sínum nýju lið-
um í ensku knattspymunni,
West Ham og Everton.
Þeim var á dögunum neitað
um ný atvinnuleyfi, á þeim for-
sendum að þeir hefðu ekki leikið
nægilega mikið með sínum fyrri
liðum, Tottenham og Newcastle.
Breska atvinnumálaráðuneytið
ákvað í gær að setja öll viðskipti
með leikmenn frá löndum utan
Evrópubandalagsins í biðstöðu
þangað til skýrari reglur um þau
lægju fyrir.
ÍBA gaf leikinn
ÍBA hefur gefið síðasta leik
sinn í 1. deild kvenna í hand-
knattleik en hann var gegn
deilda- og bikarmeisturum
Stjörnunnar í Garðabæ. Stjarn-
an telst því hafa sigrað, 10-0, og
ÍBA fær 20 þúsund króna sekt.
Ráöstefna um fjöl-
skyldu og frístundir
Samtökin íþróttir fyrir alla
halda ráðstefnu um fjölskylduna
og frístundir á morgun, fimmtu-
dag, á Scandic Hótel Loftleiðum
klukkan 14-16. Ráðstefnustjóri
er Lovísa Einarsdóttir en erindi
flytja sálfræðingarnir Kolbrún
Baldursdóttir og Einar Gylfi
Jónsson, Gauti Grétarsson,
sjúkraþjálfari, Snjólaug Stefáns-
dóttir, forstöðumaður unglinga-
deildar Félagsmálastofnunar í
Reykjavík, og Sigurður Magnús-
son, fræðslustjóri ÍSÍ. Ráðstefn-
an er öllum opin og aðgangseyr-
ir er enginn.
í kvöld
Handbolti - Nissandeildin:
Stjaman-ÍBV..............20.00
Grótta-KA................20.00
Haukar-KR................20.00
Valur-Selfoss ...........20.00
Afturelding-FH...........20.00
Víkingur-ÍR .............20.00
Handbolti -1. deild kvenna:
Haukar-Valur.............18.15
Körfubolti - 1. deild karla:
Selfoss-ÍH...............20.00
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Stockton náði sínu
öðru NBA-meti
- og Orlando sló heimaleikjametiö í deildinni
Tvö met féllu í NBA-deildinni í
nótt. John Stockton, hinn snjalli
bakvörður Utah, stal boltanum af
mótherja í 2.311. skipti þegar lið
hans vann auðveldan sigur á Boston
og Orlando Magic vann sinn 28.
heimaleik í röð í vetur og sló með
því 49 ára gamalt met Washington
Capitols.
Stockton átti fyrir NBA-metið í
stoðsendingum og sagði að það
hefði verið meiri pressa á sér í þetta
skipti. „Það er alltaf áhætta að
reyna að komast inn i sendingu. Ég
er ekki vanur að vera með bak-
þanka en ég fann fyrir slíku í þetta
sinn,“ sagði Stockton. Leikurinn
var stöðvaður rétt á eftir og
Stockton voru færð blóm, platti og
keppnisboltinn að gjöf.
Orlando fékk létta mótherja til að
slá heimaleikjametið, botnlið Phila-
delphiu, og sigurinn var auðveldur.
„Þetta er vissulega frábært og allt
það en við einbeitum okkur að því
að vinna meistaratitilinn og standa
okkur betur á útivelli. Það eru bara
léleg lið sem vinna ekki heimaleik-
ina,“ sagði Horace Grant, framherj-
inn reyndi hjá Orlando.
Úrslitin í nótt:
New York-Milwaukee .........87-92
Ewing 29 - Kobinson 27, Baker 23.
Orlando-PhUadelphia.......123-104
Shaq 24, Scott 20 - Ruffin 32.
Chicago-Cleveland..........102-76
Harper 22, Pippen 14, Jordan 14 -
Brandon 21.
Utah-Boston................112-98
Malone 24 -
LA Lakers-LA Clippers .... 121-104
Divac 29, Ceballos 21 -
Portland-San Antonio .... 105-108
- Elliott 21, Robinson 39.
Chicago fór létt með Cleveland,
sem hafði unnið átta leiki í röð.
Michael Jordan og Scottie Pippen
náðu sér hvorugur á strik en Ron
Harper var besti maður liðsins í
staðinn.
Magic Johnson tognaði á kálfa
snemma í leik Lakers gegn Clipp-
ers og lék ekki meira með en það
kom ekki að sök. Lakers vann auð-
veldan sigur, þann sjötta í röð.
Milwaukee vann óvæntan sigur í
New York en þetta var þó fjórði sig-
ur liðsins í röð í Madison Square
Garden.
-VS
Strákarnir
lögðu Norðmenn
íslenska U-16 ára landslið
drengja í knattspymu vann 2-0
sigur á Norðmönnum í síðasta
leik sínum á fiögurra þjóða mót-
inu í Portúgal í gær. Stefán
Gíslason úr Austra skoraði
bæði mörk íslenska liðsins, sitt
í hvorum hálfleik, og komu
bæði mörkin úr vítaspymum.
íslendingar hlutu fiögur stig á
mótinu og höfnuðu í 2. sæti á
eftir Portúgölum sem unnu alla
þrjá leiki sina.
Eoin Jess fór
til Coventry
Skoski landsliðsmaðurinn
Eoin Jess gekk í gær til liðs við
Coventry frá Aberdeen.
Coventry greiddi 200 milljónir
króna fyrir Jess en mörg lið
hafa verið á höttunum á eftir
honum.
Framherjar fresta
Áður auglýstum fundi Fram-
herja, sem halda átti í Fram-
heimilinu í kvöld, hefur verið
frestað um óákveðinn tíma.
Fundurinn verður auglýstur
síðar.
Reiter sigraði
Austurríkismaðurinn Mario
Reiter sigraði í svigi í tvíkeppni
karla á HM á skíðum í gær.
Marc Giradelli varð annar og
Frakkinn Yves Dimer hafnaði í
þriðja sæti.
Ókeypis í Víkina
Víkingar ætla að bjóða krökk-
um fæddum 1981 og yngri
ókeypis á leik sinna manna
gegn ÍR í Nissandeildinni í
handknattleik í kvöld. Meö
þessu vilja Víkingar fá enn
meiri stuðning enda liðið í mik-
illi fallbaráttu.
Snæfell vann
Tveir leikir vom í 1. deild
karla í körfuknattleik í gær.
Topplið Snæfells sigraði Leikni,
75-63, og ÍS lagði Stjörnuna,
73-66.
England í gær
Birmingham-Bamsley.........0-0
Huddersfield-Charlton........2-2
Sunderland-Ipswich...........1-0
Tranmere-Cr.Palace ..........2-3
Sheffield Utd-WBA ...........1-2
Michael Jordan og félagar í Chicago fóru létt með Cleveland í nótt, 102-76.
Jordan náði sér ekki á strik og ekki heldur féiagi hans, Scottie Pippen, en
það kom ekki að sök fyrir hið geysisterka Chicago-lið.
Kúbumaðurinn frábæri, Julian Duranona, er langmarkahæstur í 1. deildinni í handknattleik en hann hefur skorað 105 mörk
utan af velli og 58 til viðbótar úr vítaköstum.
Markaskor í 1. deildinni í handknattleik:
KA-menn markahæst-
ir í þremur stöðum
KA-menn eiga markahæstu leik-
menn 1. deildarinnar i handknattleik í
þremur stöðum af sex. Julian Dura-
nona er markahæsta skyttan vinstra
megin, Patrekur Jóhannesson er
markahæsti miðjumaðurinn og Jóhann
G. Jóhannsson er markahæsti hægri
hornamaðurinn í deildinni.
Sigurpáll Aðalsteinsson úr KR, Birg-
ir Sigurðsson úr Víkingi og Magnús
Sigurðsson úr Stjörnunni eru marka-
hæstir í hinum þremur stöðum útispil-
ara.
Hér á eftir eru fimm markahæstu
leikmennirnir í hverri stöðu og það
skal tekið fram að vítaköstin eru ekki
talin með þar sem þau skekkja mynd-
ina nokkuð.
Vinstra horn:
Sigurpáll Aðalsteinsson, KR...........84
Konráð Olavsson, Stjörnunni...........73
Davíð Ólafsson, Val ..................60
Páll Þórólfsson, Aftureldingu.........54
Björgvin Björgvinsson, KA.............51
Lína:
Birgir Sigurðsson, Víkingi...........75
Róbert Sighvatsson, Aftiu-eldingu...73
Gunnar Beinteinsson, FH.............71
Sigfús Sigurðsson, Val..............68
Jens Gunnarsson, Gróttu..............56
Hægra horn:
Jóhann G. Jóhannsson, KA............64
Björgvin Rúnarsson, Selfossi .......54
Sigurður Sveinsson, FH..............53
Valgarð Thorddsen, Val .... -s......51
Njörður Ámason, ÍR ..................50
Skyttur vinstra megin:
Julian Duranona, KA................105
Einar G. Sigurðsson, Selfossi........90
Gunnar B. Viktorsson, ÍBV ..........84
Sigurður Bjarnason, StjóTnunni......80
Hilmar Þórlindsson, KR...............76
Miðjumenn:
Patrekur Jóhannesson, KA............105
Aron Kristjánsson, Haukum............98
Juri Sadovski, Gróttu................83
Arnar Pétursson, ÍBV.................74
Guðjón Árnason, FH ..................66
Skyttur hægra megin:
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni........90
Valdimar Grimsson, Selfossi ..........82
Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu......80
Ólafur Stefánsson, Val................76
Halldór Ingólfsson, Haukum............68
Fjögur liðanna, Afturelding, Grótta,
KA og ÍBV, hafa leikið 17 leiki en hin
öll eru með 18 leiki.
Bjarni hefur varið flest skot í
deildinni
Bjarni Frostason, Haukum, hefur
varið flest skot í deildinni en Sigtrygg-
ur Albertsson úr Gróttu er skammt
undan og hefur leikið einum leik
minna. Þessir fimm hafa varið mest í
vetur, skot/vítaköst:
Bjarni Frostason, Haukum......... 276/13
Sigtryggur Albertsson, Gróttu .... 270/11
Reynir Reynisson, Vikingi ........258/16
Sigmar Þ. Óskarsson, ÍBV..........255/15
Magnús Signiundsson, ÍR ..........242/13
-VS
Borðtennis:
Guðmundur fékk gull
og silfur í Svíþjóð
Guömundur E. Stephensen vann bæði til gull- og silfur-
verðlauna á alþjóðlegu borðtennismóti unglinga sem fram
fór í Svíþjóð og lauk á mánudaginn.
Guðmundur lék í tvíliðaleik með sterkasta unglingalands-
liðsmanni Dana, Michael Mais, og þeir unnu alla andstæð-
inga sína af miklu öryggi. Þeir sigruðu Allan Nielsen og Jac-
ob Strömberg frá Danmörku í úrslitaleik, 21-14 og 21-12.
Stefnt er að því að þeir Guðmundur og Mais leiki saman í
Evrópukeppni unglinga og á Norðurlandamóti unglinga í
sumar.
Guðmundur lék síðan til úrslita í einliðaleik við Johan
Angby frá Svíþjóð og beið þar lægri hlut eftir harða baráttu.
Leikurinn fór 19-21, 21-14 og 19-21, þannig að í heild fékk
Guðmundur þremur stigum meira en sigurvegarinn.
-VS
Alfreð Gíslason:
Leggjum
ofurkapp
á að halda
Duranona
Það er ljóst að bikarmeistarar KA
verða fyrir gífurlegri blóðtöku
þegar Patrekur Jóhannesson
yfirgefur liðið eftir þetta tímabil
eins og kom fram í DV í gær
skrifaði hann undir tveggja ára
samning við þýska stórliðið Tusem
Essen. DV sló á þráðinn til Alfreðs
Gíslasonar, þjálfara KA, i gær og
spurði hann fyrst hvort fenginn
yrði maður til að fylla skarð
Patreks?
Stefnan er að tefla fram
jafnsterku liði
„Það er nógur tími til að spá í
þessi mál og við ætlum að leyfa
þessu aðeins að þróast. Það er alveg
eins líklegt að við reynum að
styrkja liðið og stefnan hefur verið
sú að tefla fram jafnsterku liði á
næsta keppnistímabili hvort sem
það tekst eða ekki,” sagði Alfreð.
„Það var ekkert sem kom okkur á
óvart þegar Patti ákvað þetta og við
vissum að fyrr en síðar færi hann
utan.. í dag leggjum við ofurkapp á
að halda í Duranona og ég er
bjartsýnn á að við náum því. Þessi
frétt sem kom í Morgunblaðinu á
dögunum um að hann væri að
auglýsa sig á Spáni er síðan fyrir
áramót og ég hef heyrt á Julian að
staðan sé breytt í dag og að hann
vilji vera hjá KA áfram.”
Fyrirspurnir frá erlendum
felögum
Það er engum ofsögum sagt að
Alfreð hefur gert stórvirki á
Akureyri hvað handboltann varðar
en undir hans stjórn hefur KA orðið
bikarmeistari tvö ár í röð og tapaði
naumlega fyrir Val úrslitum
íslandsmótsins á síðasta
keppnistímabili. En verður Alfreð
með KA liðið á næsta ári?
„Ég hef haft það sem vana að gera
bara samning til eins árs í senn og
eftir tímabilið í vor rennur
samningur minn út. Það er ekkert
farið að ræða næsta ár en ég tel það
mjög líklegt að ég verði áfram með
liðið. Ég mun ekki þjálfa neitt
annað lið á íslandi en KA en ég get
ekki neitað því að fyrirspurnir hafa
komið erlendis frá um þjálfun. Ég
held samt að ég sé ekki á leiðinni
út, alla vega ekki strax.
Með dómi Evrópudómstólsins í
máli knattspyrnumannsins Bosman
hafa reglur breyst í Þýskalandi
þannig að leikmenn frá löndum
innan EB, ísland sem dæmi, teljast
ekki erlendir. Þessi breyting hefur
orðið til þess að þýsk félög hafa
farið af stað og gott dæmi eru
félagaskipti Patreks.
Patti ekki sá eini sem fer út
„Ég spái því að Patti verði ekki
eini íslenski leikmaðurinn sem fer
til Þýskalands á þessu ári. Það eru
margir leikmenn sem koma til
greina og það er bara tímaspursmál
hvenær leikmenn eins og Ólafur
Stefánsson og Dagur Sigurðsson úr
Val fara út. Með þessum nýju
reglum er ég hræddur um að við
eigum eftir að missa leikmenn frá
okkur út sem er slæmt fyrir
deildina en gott fyrir landsliðið,”
sagði Alfreð að lokum.
-GH
Geir Sveinsson hjá Montpellier:
Búnir að tapa titlinum
Montpellier, lið Geirs Sveinsson-
ar landsliðsfyrirliða, er í þriðja sæti
í frönsku 1. deildinni í handknatt-
leik þegar fiórum umferðum er
ólokið. Marseille á meistaratitilinn
næsta vísan en liðið hefur fimm
stiga forskot á París SG. og er átta
stigum á undan Montpellier, sem
vann meistaratitilinn á síðustu leik-
tíð.
„Marseille hefur vart slegið feil-
nótu í vetur og hefur aðeins tapað
tveimur stigum á meðan við höfum
verið að tapa stigum á ódýran hátt.
Stefnan í dag er að ná öðru sætinu
en aðalatriðið er að verða í einu af
þremur efstu sætunum til að kom-
ast í Evrópukeppnina,” sagði Geir
við DV í gærkvöldi.
„Auðvitað eru það nokkur von-
brigði að liðið geti ekki endurheimt
titilinn en verður maður ekki bara
að segja að hann vinnist á næstu
leiktíð. Við höfðum verið ótrúlega
óheppnir með meiðsli í vetur og til
að mynda voru átta leikmenn úr lið-
inu meiddir á dögunum og við gát-
um ekki mannað 12 manna hóp”
sagði Geir sem verður áfram í her-
búðum Montpellier en hann gerði
tveggja ára samning við liðið.
-GH
J
ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA
HM landsliða í badminton:
Steinlágu fýrir Norðmönnum
íslenska karlalandsliðið tapaði fyrir
Norðmönnum, 1-4, í heimsmeistara-
keppni landsliða i badminton í gær og
er þar meö úr leik í keppninni eins og
kvennalandsliðið.
íslensku strákarnir náðu sér aldrei
á strik og léku langt undir getu en
þetta var úrslitaleikurinn í riðlunum.
Eini sigurleikurinn gegn Norð-
mönnum yar sigur Brodda Kristjáns-
sonar og Árna Þórs Hallgrímssonar í
tvíliðaleik en þeir lögðu andstæðinga
sína, Trond Wáland og Erik Lia, 15/8
og 15/9.
. í einliðaleiknum tapaði Broddi fyrir
Hans Sperre, 4/15 og 5/15 og var leik-
ur Brodda mjög slakur. Tryggvi Niel-
sen tapaði fyrir Erik Lia, 6/15 og 11/15
og Guðmundur Adolfsson tapaði fyrir
Börge Larsen 7/15 og 6/15. Þá töpuðu
Tryggvi og Þorsteinn Páll Hængsson
fyrir Hans Sperre og Jim Ronny í hin-
um tvíliðaleiknum, 11/15 og 4/15.
-GH
Samtökin ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA bjóða til
ráðstefnu um FJÖLSKYLDUNA OG FRÍSTUNDIR
fimmtudaginn 22. febrúar kl. 14-16.
Ráðstefnan er haldinn að Hótel Loftleiðum, Bíósal.
Enginn aðgangseyrir er að ráðstefnunni og er hún
öllum opin.
ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA
íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík.
Sími 581-3377, símbréf 553-8910.
_________________________________________r
íþróttir
Hækkar tilboðið
Breska blaðið Daily Mirror
skýrði frá því í gær að Kevin
Keegan, framkvæmdastjóri New-
castle, hefði hækkað tilboð sitt í
David Batty hjá Blackburn úr
340 milljónum í 380 milljónir
króna.
Blackburn hafnaði fyrra boð-
inu svo ný bíður Keegan við-
bragða við nýja tilboðinu.
Wright í leikbann
Ian Wright hjá Arsenal var í
gær dæmdur í tveggja leikja
bann sem tekur gildi annan mið-
vikudag, Wright var kominn
með 33 refsistig sem þýða
tveggja leikja bann.
Ghanabúi í skoðun
Ghanabúinn Ben Sylla hefur
undanfarna daga verið til
reynslu hjá Lundúnaliðinu Chel-
sea. Hann hefur vakið nokkra at-
hygli en það var enginn annar
en George Weah hjá AC Milan
sem mælti með honum við
Glenn Hoddle stjóra Chelsea.
Waddle að skoða
Chris Waddle fékk í gær tilboð
frá Burnley um að gerast fram-
kvæmdastjóri liðsins. Hann
sagði í viðtali á Sky Sport ekki
verða ákveðinn í því hvað hann
gerði.
„Ef tilboðið verður gott er
aldrei að vita hvað ég geri. Það
blundar auðvitað í mér að verða
einhvern tímann framkvæmda-
stjóri.
Collins frá Celtic?
Joe Royle stjóri Everton átti í
gær viöræður við forráðamenn
Celtic \im hugsanleg kaup enska
liðsins á einum besta leikmanni
skoska liðsins
John Collins. Kappinn hefur
þegar í höndunum tilboð frá
Celtic sem færir honum fimm
milljónir í mánaðarkaup. Collins
vill sjá hvað Everton hefur aö
bjóða áður en hann ákveður sig
endanlega.
Redknapp enn að
Harry Redknapp, fram-
kvæmdastjóri West Ham er ekki
hættur að kaupa leikmenn er-
lendis frá ef marka má frétt
breskra dagblaða í gær. Nú hafa
þeir ítalska varnarmanninn
Massimo Badowe hjá Atalanta
undirsmásjánni.
Redknapp er ekki ánægður
með Steve Potts í hægri bakverð-
inum og vill fá sterkan mann til
að leysa Potts af hólmi. Massimo
er 24 ára og hefur lýst yfir áhuga
að leika á Englandi.
Inter á eftir Helmer
Inter Milan er á höttunum á
eftir þýska landsliðsmanninum
Thomasii Helmer hjá Baeyrn
Munchen.
Frá þessu greindi ítalska
blaðið Corrierre deelo Sport í
gær. Fyrir nokkru átti Inter í
viðræðum við Ciriaco Sforza en
þær fóru út um þúfúr.
„Keisarinn”reiður
Franz Beckenbauer, sá er öllu
ræður hjá Bayern Munchen, var
afar reiður eftir tap liðsins gegn
Karlsruhe um helgina. Hann
hótar öllu illu ef leikmenn
liðsins taki sig ekki saman í
andlitinu. „Draumaliðið” eins og
liðið er kallað í Þýskalandi hefur
ekki staðið undir væntingum.
Beckenbauer segir að menn hafi
enn þrjá mánuði til að sýna hvað
í þeim býr. Ef ekki verður breyt-
ing á éfitir þann tíma verður að
stokka spilin upp að nýju.
-JKS