Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 Útlönd Forsetaslagur í uppnám eftir forkosningar repúblikana í New Hampshire: íhaldsmaðurinn Pat Buchanan hafði nauman sigur á öldungadeild- arþingmanninum Bob Dole í for- kosningum repúblikana í ríkinu New Hampshire í gær. Fékk Buchanan 27 prósent atkvæðanna á móti 26 prósentum Doles. Lamar Al- exander, fyrrum ríkisstjóri Ten- nessee og boðberi hófsamrar stefnu, fagnaði góðu fylgi, varð þriðji með 23 prósent atkvæðanna. Auðkýfing- urinn Steve Forbes virðist hins veg- ar ekki hafa náð hljómgrunni meðal kjósenda repúblikana en hann varð fjórði með einungis 12 prósent at- kvæðanna. Þykir ljóst að slagurinn sé á enda hjá Forbes sem reyndi að höfða til flokksmanna með nýstár- legum skattahugmyndum. Með úrslitunum er barátta repú- blikana fyrir útnefningu forseta- frambjóðanda komin í uppnám en Bob Dole hafði almennt verið' spáð sigri í New Hampshire. Kjósendur þar sneru baki við honum i þriðjá sinn en hann tapaði í forkosningum 1980 og 1988. En stjómmálaskýrend- ur vestra sögðu að þrátt fyrir ósig- urinn gæti Dole náð sér á strik þar sem hann hefði aðgang að digrum kosningasjóðum og kosningabarátta hans um öll Bandaríkin væri betur skipulögð en keppinautanna. Með sigrinum í New Hampshire hefur Pat Buchanan náð að treysta sig í sessi sem frambjóðandi sem taka verður alvarlega en fram til þessa hafa andstæðingarnir stimpl- að hann sem lítt marktækan andófs- mann sem fer hástemmdum orðum um kristið siðgæði. Buchanan þykir hafa náð eyrum miðstéttarfólks sem óttast um afkomu sína betur en keppinautamir. Hefur hann hamr- að á ójafnri samkeppnisstöðu bandarískra fyrirtækja i baráttunni við innflutning og ólöglega innflytj- endur. Hann krefst hárra skatta á innflutning frá Japan, Kína og öðr- um löndum, vill segja upp alþjóðleg- um viðskiptasamningum og stöðva innflytjendastrauminn næstu fimm ár. „Við viljum ná til þess fólks sem hefur séð störfum sínum fórnað á altari alþjóðasamninga. Þeir þjóna einungis alþjóðlegum fyrirtækjum sem sýna enga hollustu gagnvart þjóð vorri. Við munum á ný verða fullvalda þjóð,“ sagði Buchanan sig- Pat Buchanan gæddi sér á pitsu meðan úrslit forkosninganna í ríkinu New Hamspshire streymdu inn. Hann gat ver- ið glaður enda hafði hann sigur yfir Bob Dole. Símamynd Reuter urreifur í gærkvöldi. Dole er staðráðinn í að halda bar- áttunni áfram og er sannfærður um að hljóta útnefningu sem forsetaefni repúblikana í sumar. Hann sagði komandi baráttu skera úr um hvort repúblikanar yrðu flokkur óttans eða vonarinnar. Hinn hófsami Lamar Alexander hefur hvatt Dole til að draga sig út úr baráttunni og spáir einvígi sínu við Buchanan. Hann lýsir Dole sem útjöskuðúm stjórnmálamanni án framtíðarsýnar og hugmynda. Línurnar ættu að skýrast í næstu viku en þá verða forkosningar í Arizona og Suður- og Norður- Dakóta. Reuter Pat Buchanan fagnaði naumum sigri á Dole Deilt í Pakistan um heimsókn Díönu Deilur hafa nú risið í Pakistan vegna komu Díönu prinsessu þangað í dag. Pakistanskt dagblað sagði í forustugrein í morgun að prinsessan væri fífldjörf aö hætta á að blanda sér í deilumar um gestgjafa sinn, Imran Khan, fyrr- um krikketstjömu. Prinsessan og krikketleikarinn fyrrverandi hafa hins vegar bæði lagt áherslu á að heimsóknin sé einungis í þeim tilgangi að safna fé fyrir krabbameinssjúkrahús Imrans í borginni Lahore. „Hún hefur engin áform um að blanda sér í stjómmál á neinn hátt. Hún hef- ur tekið það skýrt fram. Þetta er aðeins einkaheim- sókn,“ hefur pakistanska blaðið eftir Jane Atkin- son, talsmanni prinsessunnar. Benazir Bhutto, forsætisráð- herra Pakistans, er sögð líta á Imr- an Khan sem hugsanlegan keppi- naut og ekki er gert ráð fyrir að hún hiti Díönu prinsessu að máli. Reuter Tsjetsjenía: Uppreisnarmenn hraktir burt Rússneskar hersveitir hafa náð vígi uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu á sitt vald eftir fimm daga bardaga en þeim mistókst þó að yfirbuga að- skilnaðarsinna sem talið er að séu allt að eitt þúsund. Yfirmaður rússneska hersins í Tsjetsjeníu sagði við Itar-Tass fréttastofuna að uppreisnarmenn- imir hefðu verið hraktir frá bænum Novogroznenskí sem er 60 kíló- metra austan við höfuðborgina Grosní. Hershöfðinginn sagði að til þessa hefðu aðeins fimm lík uppreisnar- manna fundist í bænum. Reuter Tengdasynirnir aftur komnir til Saddams Tveir tengdasynir Saddams Husseins íraksforseta og eiginkonur þeirra, dætur Saddams, snera aftur heim til Iraks síðdegis í gær, aðeins sex mánuðum eftir að þau flúðu heimahagana og fengu hæli í Jórd- aníu. Bandarísk stjómvöld standa agndofa frammi fyrir þessum um- skiptum. Tengdasynimir, þeir Hussein Ka- mel Hassan og bróðir hans, Saddam Kamel, og fjölskyldur þeirra fengu höfðinglegar móttökur þegar þau komu yfír landamærin síðdegis í gær. Nokkrum klukkustundum síð- ar tilkynntu fjölmiölar í írak að Saddam Hussein hefði náðað tengdasynina, eins og Hussein Kamel hafði óskað þremur dögum fyrr. Nicholas Burns, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði að þar á bæ tryðu menn vart sínum eigin eyrum. „Við komum hvergi nærri þessu. Við veittum honum enga ráðgjöf. Þetta er ekki okkar ákvörðun. Hann tók ákvörð- un. Þetta er mjög athyglisverð ákvörðun," sagði Burns við frétta- menn í Washington og vísaði jafn- framt á bug vangaveltum um að landflótti skyldmenna Saddams í fyrra hefði verið samsæri til að villa um fyrir Vesturlöndum. Þótt Saddam Hussein hafi náðað flóttamennina er framtíð þeirra ekki þar með gulltryggð þar sem flótti þeirra var á sínum tíma talinn vera móðgun við Saddam sem föð- ur. Flóttamennirnir skýrðu einnig frá íröskum hernaðarleyndarmál- um. íraskir fjölmiðlar kröfðust þess í fyrra að flóttamennirnir yrðu drepnir. Aldrei kom nein skýring á því hvað hefði valdiö brottför þeirra frá Bagdad. Hussein Kamel sagði aðeins nokkmm klukkustundum áður en hann sneri aftur heim að hann ætl- aði að berjast gegn þeim sem væru að brugga írak launráð. Flótta- mennirnir bjuggu í einni af höllum Husseins Jórdaníukóngs og herma fréttir að þeim hafi verið farið að hundleiðast undir það síðasta, auk þess sem Kamel hefði ekki tekist að skipa sér í fylkingarbrjóst andstæð- inga tengdafóður sins. Reuter Stuttar fréttir i>v Sprengjur fundnar Breska lögreglan sem rann- sakar sprengjutilræði IRA í London hefur fundið mikið magn sprengiefna og búnaðar til sprengjugerðar við húsleit í borginni. Spenna í Mostar Mikil spenna var milli múslíma og Króata í hinni tví- skiptu borg Mostar í Bosníu í gær þegar sameiginleg löggæsla þeirra átti að hefjast. Samningi fylgt Warren Christopher, utanríkisráð- herra Banda- rikjanna, sagði frétta- mönnum í gær að friðar- samkomulag- inu frá Dayton væri framfylgt þrátt fyrir spennuna sem kom upp í Mostar. Kínverjar með kröfur Kínversk stjómvöld hafa krafist þess að Evrópusamband- ið afleggi það sem þau kalla mis- munun á viðskiptasviðinu með því að setja takmarkanir á út- flutning Kínverja til ESB. Samper í skoðun Þingið í Kólumbíu hefur aftur hafið rannsókn á tengslum for- seta landsins við eiturkónga og er hugsanlegt að forsetinn verði sóttur til saka. Tyrkir reyna Flokkar íslamstrúarmanna og íhaldsmanna í Tyrklandi halda áfram viðræðum sínum um hugsanlega stjórnarmyndun. Kanar gagnrýna Bandai-ísk stjórnvöld hafa gagnrýnt kosningar í Bangla- dess og segja að framkvæmd þeirra hafi verið gölluð. Óveður í Evrópu Mikið óveður gekk yfir Evr- ópu í gær og olli miklum erfið- leikum í samgöngum og nokkrum dauðsfóllum. Öflugt NATO Javier Sol- ana, fram- kvæmdasfjóri NATO, og Bill Clinton Bandaríkja- forseti lýstu yfir ítrekuð- um stuðningi sínum í gær við þreifingar um stækkun bandalagsins. Réttarhöid flutt Dómari hefur ákveðið að flytja réttarhöldin yfir tilræðis- mönnunum á bak við sprengju- tilræðið í Oklahómaborg fyrir tæpu ári til Denver. Hann segir útilokað að þeir fái sanngjarna málsmeðferð í Oklahóma. Juppé óvinsæll Ný skoð- anakönnun í Frakklandi sýnir að 75 prósent Frakka eru ánægð með ríkisstjórn Alains Juppés forsætisráðherra. Nígeríumenn gera árás Nígeríumenn gerðu á ný skotárás á Kamerún en deilur ríkjanna um landsvæði kostuðu fjölda hermanna lífið fyrr í mán- uðinum. Hundruö í hættu Hundmð manna voru flutt frá heimilum sínum í Mexíkóborg eftir að sprenging í efnaverk- smiðju hafði losað hættulegar gastegundir úr læðingi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.