Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Síða 6
6 útlönd
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 UlV
Díana ævareiö yfir viðbrögðum úr Buckinghamhöll:
Hirðin leikur sér að
tilfinningum mínum
stuttar fréttir
Fagnað í Sarajevo
íbúar í Sarajevo fógnuðu afmæli
sjálfstæðis Bosníu í fyrsta skipti
meöan ffiður ríkir.
p|
Serbi ákærður
Stríðsglæpadðmstóil ákærði
i serbneskan liðsforingja fyrir stríðs-
glæpi meðan Sarajevo var hersetin
en talið er að 10 þúsund manns hafi
þá látið lífið.
Jeltsín frestar viðræðum
Borís Jeltsín
hefur frestað
viðræðum um
frið í Tsjetsjen-
| íu en hersveitir
hans hafa auk-
iö aðgerðir til
að flæma upp-
| reisnarmenn
úr lýðveldinu.
Vilja aukin samskipti
Leiðtogar Evrópu og Asíu
ákváöu á fundi sínum í Bangkok aö
efla samskipti landa álfanna þar
sem nýlendustefhan er dauð og
efnahagsþróun er ör eystra.
Morðingi felldur
Maður sem taiið er að hafi verið
fjöldamorðingi féll fyrir kúlum lög-
; reglu eftir að hafa herjað á norður-
ítalskan smábæ.
Keating sækir á
Þrjár stórar
skoðanakann-
anir í Ástralíu
sýndu að Paul
Keating forsæt-
isráðherra
sækir mjög á
. íhaldssaman
keppinaut sinn.
HM'ði hann
nær brúað biliö milli þeirra. Kosið
er í Ástraliu í dag.
Námsmenn mótmæla
Hundruð tyrkneskra náms-
manna lentu í átökum við lögreglu
í Istanbúl þar sem þeir mótmæltu
skólagjöldum yfirvalda.
Vilja reka fulltrúa
Yfirvöld í Grikklandi sögðust
vilja reka tvo erlenda sendimenn,
einn úr ítalska og annan úr hol-
lenska sendiráðinu, úr landi fyrir
að hafa hemaöarlega mikilvæg
gögn undir höndum.
Dole með forskot
Skoðanakannanir sýndu að Bon
Dole hafði dágott forskot á keppi-
naut sinn, Pat Buchanan, fyrir for-
kosningarnar i Suöur-Karólinu í
dag.
í hreinleikapróf
Víetnömsk yfirvöld, sem vilja
hreinsa landiö af erlendum áhrif-
um, munu krefiast þess aö meðlim-
ir rokkhljómsveita gangist undir
„hreinleikapróf'.
Deilt um fóstureyðingu
í pólska þinginu fara fram deilur
um hvort hunsa eigi kirkjuna og
leyfa fóstureyðingar. Reuter
Erlendar kauphallir:
Óvissa í Wall
Street
Óvissa um afgreiðslu fjárlaga og
undirbúning forsetakosninga hjá
repúblikum hafði þau áhrif á banda-
ríska fjárfesta að hlutabréfaverð í
Wall Street lækkaði í vikunni. Eftir
að Dow Jones hlutabréfavísitalan
náði sögulegu hámarki föstudaginn
23. febrúar, 5630 stigum, lækkaði
hún jafnt og þétt. Eftir viðskipti sl.
fimmtudag stóð talan í 5485 stigum.
Hlutabréfaverð í öðrum helstu
kauphöllum heims hefur verið að
lækka nema í Frankfurt í Þýska-
landi. Þar var sögulegt met slegið sl.
fimmtudag er DAX-30 vísitalan fór í
2473 stig. Staða dollars gagnvart
markinu styrktist mjög.
Óverulegar verðbreytingar urðu
á olíu og bensíni á heimsmarkaði
undanfarna viku. Sama er að segja
um verð á sykri og kaffi. -Reuter
Díana prinsessa er ævareið yfir
þeim viðbrögðum sem komið hafa
úr Buckinghamhöll eftir að hún
féllst á að skilja að lögum við Karl
ríkisarfa. Hún sakar hirðina um að
leika sér að tilfinningum hennar.
„Ég hef gefið þeim allt en þau eru
samt óánægð. Ég vildi ekki skilja en
féllst þó á það að lokum. Nú þvæla
þau mér bara fram og aftur,“ sagði
Díana I blaðaviðtali i gær.
Samningaviðræður lögmanna Dí-
önu og Karls hafa svipt hulunni af
því hatri sem virðist ríkja milli
Díönu og þeirra sem hún kallar
óvini sína innan hirðarinnar. Díana
sagði að ágreiningur um hvaða titil
hún mundi bera jafngilti því að
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum forseti
Sovétríkjanna, hefur ákveðið að
hunsa niðurstöður skoðanakannana
sem sýna miklar óvinsældir hans í
Rússlandi og bjóða sig fram í forseta-
kosningum sem fram fara 16. júní.
Gorbatsjov, sem er 65 ára í dag, sagði
að hann mundi tilkynna framboð sitt
formlega síðar.
Hann er ekki meðlimur í neinum
stjórnmálaflokki en segist vera val-
kostur við Borís Jeltsin og kommún-
istann Gennady Zyuganov. Gorbat-
sjov segir baráttu þeirra lausa við
saka hana um lygar. Díana segist
hafa gefið nafnbótina yðar konung-
lega hátign eftir vegna þrýstings frá
Elísabetu drottningu og Karli og
sem skilyrði fyrir samningaviðræð-
um um skilnaðinn. En úr Bucking-
hamhöll komu einungis þau skila-
boð að það væri alfarið hennar eig-
in ákvörðun að gefa nafnbótina eft-
ir.
Ólgan í kjölfar yfirlýsingar Díönu
á miðvikudag hefur orðið til þess að
Elisabet drottning hefur sent frá sér
yfirlýsingu þar sem hún hvetur
hlutaðeigandi til að sýna stillingu.
Óskar drottningin þess að gengið
verði frá skilnaðinum bak við lukt-
ar dyr og með vinsemd, ekki síst
alla alvöru og að bjóða verði fólki
nýtt val.
Gorbatsjov hvatti öll lýðræðisöfl í
landinu til að sameinast í viðleitni til
að leysa þá kreppu sem blasti við lýð-
ræðisþróun í landinu. „Lýðræðis-
sinnar verða að sameinast og vinna
forsetakosningarnar," sagði hann og
þótti gefa í skyn að hann drægi fram-
boð sitt til baka ef hann ynni ekki
stuðning lýðræðisaflanna sem eini
frambjóðandi þeirra.
Gorbatsjov tók við aðalritarastöðu
í Kommúnistaflokki Sovétríkjanna
vegna sona Díönu og Karls, þeirra
Vilhjálms og Harrys.
Lögmaður Díönu hótaði því í gær
að hætta öllum samningaviðræðum
yrði ekki staðið við þá samninga
sem Díana og Karl höfðu þegar gert
með sér. En talsmenn Buckingham-
hallar sögðu enga samninga í gildi
og semja yrði um alla þætti skilnað-
arins.
Díana frestaði þátttöku í góðgerð-
arsamkomum í gær og í dag og hélt
sig heima við. Það þótti ekki að
bæta ástandið þegar fréttist að liðs-
foringinn James Hewitt, sem Díana
átti í ástarsambandi við, hafði veitt
opinskátt sjónvarpsviðtal um sam-
band sitt við prinsessuna. Reuter
1985 og var á valdastóli til 1991. Hann
leiddi Sovétríkin í átt til umbóta með
perestrojku og glasnost, styrkti sam-
bandið við vesturveldin og náði að
brjóta klakabönd kalda stríðsins.
Hann fékk friðarverðlaun Nóbels
1990. Traust almennings á honum fór
þá dvínandi heima fyrir en fólki
þóttu umbæturnar of dýru verði
keyptar þar sem mikið var um sult
og fátækt. Gorbatsjov fór frá völdum
við fall Sovétríkjanna 1991 en margir
Rússar kenna honum um örlög þessa
gamla stórveldis. Reuter
Spánn:
Ungir kjósa
íhaldsmenn
Búist er við að kjósendur á
aldrinum 18-30 ára muni snúa
baki við sósialistum og veita
íhaldsmönnum atkvæði sitt í
| þingkosningum sem fram fara
um helgina. Þar með virðist 13
ára valdaferill sósíalista á enda.
Þó um fimmtungur kjósenda sé
jóákveðinn fýrir kosningarnar og
hart sé barist um atkvæði þeirra
virðist fátt geta komið í veg fyrir
( stórsigur Vinsældaflokksins, PP,
| sem Jose Maria Aznar leiðir. Síð-
ustu skoðanakannanir sýna að
j flokkur Aznars nái kannski ekki
hreinum meirihluta en fylgi
ungra kjósenda er þó talið
tryggja að hann verði réttu meg-
in við strikið. Sósialistar líða
hins vegar fyrir ýmis hneykslis-
og spillingarmál.
Woody Allen
gefur fé
til viðgerðar
óperuhúss
Leikstjórinn Woody Allen,
sem staddur er í Feneyjum, hef-
ur ákveðið að gefa ágóða af tón-
leikum, sem hann heldur í borg-
inni, til viðgerða á óperuhúsinu
sem brann til kaldra kola í lok
janúar. Woody Allen, sem leikur
á saxófón, var bókaður með tón-
leika í óperuhúsinu um þessar
mundir. Hann sagði brunann
vera hræðilegt áfall og hann
mundi veita aöstoð sína til að
hefja mætti viðgerð og endur-
byggingu hússins. Allen sagði að
framlag sitt væri aðeins dropi í
hafið en áætlað er að viðgerðar-
kostnaðurinn muni nema hátt í
sjö milljörðum króna.
Flugvélin fór
of hægt í loftið
Rannsóknir á gögnum úr flug-
ritanum eða svarta kassanum,
sem var um borð í Boeing 757
vélinni sem fórst undan strönd-
um Dóminíka lýðveldsins 6. febr-
úar með 189 manns, hafa leitt í
ljós að flugvélin fór ekki nógu
hratt í flugtakinu. Þegar vélin
var komin í rúmlega 2.200 metra
!: hæð heyrðist viðvörunarmerki.
Vélin hætti að klífa og snarlækk-
aði skyndilega flugið. Geta rann-
■ sóknaraðilar sér þess til að of lít-
il ferð hafi leitt til þess að vélin
stöðvaðist og hrapaði. Rannsókn-
ir á gögnum úr flugritanum
halda áfram.
I
Mótmæla út-
skúfun sam-
kynhneigðs
prests
Hópur kvenna umkringdi að-
: setur. erkibiskups rétttrúnaðar-
kirkjunnar í Morphou á Kýpur
í gær, veifaði mótmælaspjöld-
um og krafðist þess að kirkjan
afturkallaði þá ákvörðun að úti-
I l°ka prest nokkurn frá þátttöku
í biskupskosningum á þeim for-
sendum að hann væri hommi.
Innndyra undirbjuggu kirkj-
unnar menn biskupskosningar
sem fram fara á sunnudag. Þá
munu sóknarböm bæjarins
kjósa fulltrúa sem aftur velja
biskup.
Erkibiskupinn segir fólk
saka prestinn um að hafa kynnt
samkynhneigð fyrir nemanda
sínum og hefur leyst hann frá
störfum um sinn. íbúamir efast
hins vegar um réttmæti að-
geröa erkibiskups og styðja
384.7prest. Mörg sóknarbarn-
anna halda því fram að ásakan-
ir á hendur prestinum séu upp-
lognar svo erkibiskupinn getiö
komið „sinum manni“ í bisk-
upsembættið. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
DV
Víða sjást merki þess í Evrópu að ekki er langt í vorið. Hér hrista svissneskir drengir í bænum Zuos stórar kúabjöll-
ur. í sumum sveitum Sviss er hefð fyrir því 1. mars að klæðast þjóðlegum fötum, hringja kúabjöllum og hrópa og
kalla í þeim tilgangi að hrekja vetur konung á braut og hleypa tónum vorsins að._Símamynd Reuter
Gorbatsjov mun bjóöa
sig fram til forseta