Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Side 10
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996
o étlend bóksjá
Metsölukiljur
Hryðjuverkakonan
og sérsveitarmaðurinn
Bretland
Skáldsögur:
1. Kate Atklnson:
Behlnd the Scenes at the Museum.
2. John Grlsham:
The Ralnmaker.
3. Irvlne Welsh:
Tralnspottlng.
4. Irvlne Welsh:
Tralnspottlng.
5. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
6. Anne Tyler:
Ladder of Years.
7. George Dawes Green:
The Juror.
8. James Patterson:
Klss the Glrls.
9. Katle Fforde:
j The Rose Revlved.
10. Erica James:
A Breath of Fresh Alr.
Rlt almenns eðlls:
1. Wlll Hutton:
The State Welre In.
2. Ngalre Genge:
The Unofficlal X-files Companion.
3. Graham Hancock:
Flngerprlnts of the Gods.
i 4. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
5. Alan Bennett:
Wrltlng Home.
6. Ranfurly:
To War wlth Whltaker.
7. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
8. Brlan Lowry:
The Truth is Out There.
9. Jung Chang:
Wlld Swans.
10. Peter de la Bllllére:
Looklng for Trouble.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
j 1. Jane Austen:
Fornuft og felelse.
: 2. Jung Chang:
Vllde svaner.
3. Llse Nergaard:
Kun en plge.
4. Nat Howthorne:
Den flammende bogstav.
5. Terry McMillan:
Andened.
6. Lise Norgaard:
De sendte en dame.
7. Peter Heeg:
De máske egnede.
(Byggt á Polltlken Sandag)
Allt virðist mögulegt í heimi al-
þjóðlegrar bókaútgáfu þar sem
markaðskúnstin fellst einkum í að
gera nýjar bækur á einn eða annan
hátt fréttnæmar svo þær seljist
vegna afreka eða uppátækja höf-
unda sinna, hvað sem gæðunum líð-
ur.
Nýjasta dæmið um frumlegt fram-
tak af þessu tagi er væntanleg bók
um alræmt hryðjuverk og heims-
fræga björgunaraðgerð sérsveita
sem fylgdi í kjölfarið.
Það var árið 1977 þegar þýskir
hryðjuverkamenn á vegum Rote
Arme Faktion voru athafnasamir -
þótt helstu leiðtogar fyrirrennara
þeirra, svo sem Andreas Bader og
Gudrun Ensslin, væru í sérsmíðuðu
þýsku fangelsi ásamt nokkrum sam-
verkamönnum sínum.
Blóðbað i Mogadishu
Fjórir hryðjuverkamenn á vegum
palestínskra samtaka rændu far-
þegaþotu Lufthansa skömmu eftir
flugtak á Mallorca 13. október árið
1977 og kröfðust þess m.a. að þýsku
„kollegarnir" yrðu látnir lausir.
Vélinni var flogið víða með farþega
og áhöfn í gíslingu, m.a. til Aden
þar sem flugstjórinn var myrtrn-, en
lent að lokum í Mogadishu í Sómal-
íu.
Nokkrum dögum síðar, 18. októ-
ber, réðust sérþjálfaðar sveitir her-
manna til inngöngu í flugvélina,
skutu þrjá hryðjuverkamenn til
bana en særðu þann fjórða alvar-
lega. Það var kona, Souhaila
Andrawas, öðru nafni Suhaila al-
Sayeh, sem þá var 22 ára.
Þrátt fyrir að hafa fengið í sig fjöl-
margar byssukúlur lifði Suhaila af.
Hún var dæmd í 20 ára fangelsi í
Sómalíu og hlaut þar að sögn svo
illa meðferð að yfirvöld óttuðust um
Sérsveitarmaðurinn Barry Davis.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
líf hennar. Það er talin ástæða þess
að eftir eitt ár var henni sleppt í
kyrrþey. Og hún lét sig snarlega
hverfa.
Einn þeirra hermanna sem tók
þátt í árás sérsveitanna á Luft-
hansavélina í Mogadishu er Barry
Davis sem var lengi í bresku SAS-
sérsveitunum. Síðustu árin hefur
verið góður markaður fyrir reynslu-
sögur manna úr SAS-sveitunum;
slíkar bækur hafa verið á metsölu-
listum og sumar kvikmyndaðar.
Davis ákvað því að skrifa bók um
reynslu sína og þar átti árásin í
Mogadishu að vera helsti hápunkt-
urinn.
Húsmóðir í Osló
- Það kom Davís mjög á óvart, eins
og fleirum, þegar upplýst var árið
1994 að Suhaila, sem hafði verið
hátt í tvo áratugi i felum, hefði hin
síðari ár búið í Osló í Noregi ásamt
Hryðjuverkakonan Suhaila
Andrawas.
manni sínum og unglingsdóttur.
Hann sá strax í hendi sér það snjall-
ræði að heimsækja hryðjuverka-
konuna, sem hann hafði síðast séð
alblóðuga á flugvellinum í Mogadis-
hu árið 1977, og fá hana til að segja
söguna af flugráninu og björguninni
frá sinni hlið. Hann brá sér til Nor-
egs og bankaði upp á. Skemmst er
frá því að segja að með þeim tókst
gott samstarf og þau munu því
standa saman að væntanlegri bók.
Af Suhailu er það annars að frétta
að norsk stjómvöld ákváðu að fram-
selja hana til Þýskalands þar sem
hún hefur verið ákærð fyrir aðild
sína að flugráninu. Ekki er þó víst
að hún fái þungan dóm. Hún virðist
hafa gert samning við þýsk stjórn-
völd um að benda á og vitna gegn
þýskri konu sem á að hafa hjálpað
flugræningjunum við að smygla
vopnum um borð i Lufthansavélina.
Sú heitir Monika Haas og er 47 ára.
Hún neitar sakargiftum og sakar
Suhailu um að kaupa sér vægan
dóm með lygum.
Hvað sem réttarhöldunum líður
má telja líklegt að sameiginleg bók
hryðjuverkakonunnar og sérsveit-
armannsins gangi vel á markaðs-
torgi bókanna.
m mm
vismdi
Eldavél þekkir
potta
; Sú stund kann að vera ekki
1 langt undan að menn geti hætt
að hafa áhyggjur af því að matur-
iim sjóði upp úr eða brenni við.
I Vísindamenn hafa gert tilraunir
með „gáfaða“ og orkusparandi
j eldavél sem ber kennsl á potta og
| pönnur og veit hvemig á að fara
með þau.
Eldavélin er tengd við tölvu
sem geymir gögn um hvem pott
j og stjómar sjálf hversu mikla
orku hann þarf. Nemar í eldavél-
I inni bera ekki einasta kennsl á
I pottana heldur kanna þeir hita-
stig þess sem í þeim er.
Sólin tútnar út
af vatni
Stjarnvísindamenn í Arizona
hafa fundið vatn á sólinni. Þessa
| óvæntu uppgötvun gerðu þeir
þegar þeir beindu stjörnu-
sjónauka sínum að dökkum blett-
| um á yfirborði sólarinnar, þar
1 sem hitastigið er 3.600 gráður, og
sáu glögg merki vatnsgufu.
Þegar mikið vatn er í stjömu
| drekkur það í sig mikla varmaút-
geislun sem annars hefði horfið
út í geiminn. Það veldur því að
stjaman tútnar út og það gerir
sólin líka. Eftir nokkra ármiilj-
arða mun hún ná alla leiö að
sporbaug jarðarinnar.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Rannsókn á skrifum nunna vekur athygli:
Alsheimer gerir boð á
undan sér um tvítugt
inn. Aftur á móti reyndust næstum
allar kvennanna sem notuðu ekki
mjög flókna málfræðibyggingu og
skrifuðu einfaldar setningar þjást af
elliglöpum sex áratugum siðar. Vís-
indamennirnir komust að því að
þeir gátu notað skrif kvenn-
anna til þess að spá fyrir
um það með 90 prósenta
nákvæmni hver mundi
fá alsheimer. Og þá
vissu þeir að sjáíf-
sögðu ekki hver
urðu örlög höf-
undar skrifelsis-
ins sem þeir
voru að skoða.
Mest einkenn-
andi málþáttur-
inn var hug-
myndaauðgi en
það er mæliað-
ferð sem fengin
var að láni frá sál-
fræðilegum málvís-
indum og kannar
hversu margar hug-
myndir eru í ákveðnu rit-
verki. Mæliáðferð þessi var
notuð til að flokka textana eftir
því hversu erfitt var að lesa þá og
skilja.
Kosturinn við að rannsaka nunn-
urnar var sá að þær bjuggu í sama
umhverfi í sextíu ár og því höfðu
mataræði og önnur áhrif umhverfis-
ins lítil sem engin áhrif á hættuna á
að fá alsheimer. Allar voru
nunnurnar hvítar og komu úr svip-
uðu þjóðfélagsumhverfi.
Alsheimersjúkdómurinn, sem
alla jafna herjar aðeins á fólk á efri
árum, kann hins vegar að gera boð
á undan sér miklu fyrr, jafnvel þeg-
ar væntanleg fórnarlömb hans eru
um tvítugsaldurinn.
Vísindamenn vestur í Banda-
rikjunum komust að þessu þeg-
ar þeir rannsökuðu sjálfsævi-
sögulegar frásagnir ungra
kvenna sem voru að búa
sig undir að gerast
nunnur. í ljós kom að
ritstíll kvennanna
þegar þær voru rúm-
lega tvítugar spáði
fyrir um það með
ótrúlegri nákvæmni
hver þeirra yrði illa
haldin af alsheimer
sex áratugum síðar.
Frá þessu er sagt í
tímariti bandarísku
læknasamtakanna.
Níutíu og þrjár nunn-
ur voru með i rannsókn-
inni, allar fæddar fyrir árið
1917. Konurnar eru núna á ní-
ræðisaldri og hefur nærri þriðj-
ungur þeirra fengið alsheimer. Það
eru hlutfallslega jafn margir og
gengur og gerist úti í þjóðfélaginu.
Fjórtán kvennanna hafa látist og
voru heilar þeirra krufnir í leit að
ummerkjum eftir aisheimer.
Vísindamennirnir sem gerðu
rannsóknina bjuggust við því fyrir-
fram að menntun og sístarfandi
hugur veittu vemd gegn alsheimer.
Annað kom þó á daginn, þeim til
mikillar undrunar, að minnsta kosti
í þessum rannsóknarhópi. Þess í
stað komust þeir að því að als-
heimersjúk-
dómur-
inn kynni þegar að hafa gert vart
við sig um það leyti sem konumar
gengu í klaustrið.
Þær nunnur, sem skrifu mál-
fræðilega flóknar setningar með
mörgum hugmyndum þegar þær
voru um tvítugt, vom enn skýrar í
kollinum, komnar á niræðisaldur-
Metsöluksljur
i •*••••••♦♦♦••»•••»*#
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. John Grlsham:
The Rainmaker.
2. Robln Cook:
Acceptable Rlsk.
3. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
4. Julie Garwood:
For the Roses.
5. Barbara Delinsky:
Together Alone.
6. Terry McMillan:
Waltlng to Exhale.
7. LaVyrie Spencer:
Home Song.
8. Stanley Pottinger:
The Fourth Procedure.
9. Richard North Patterson:
Eyes of a Child.
10. Jane Austen:
Sense and Sensiblllty.
11. Robert James Waller:
Border Music.
12. James Patterson:
Kiss the Glrls.
13. P.D. James:
Orlglnal sin.
14. Tami Hoag:
Nlght Slns.
15. Fern Michaels:
Wlsh Llst.
Rit almenns eölis:
1. Mary Plpher:
Revlving Ophelia.
2. Helen Prejean:
Dead Man Walking.
3. Rlchard Preston:
The Hot Zone.
4. Thomas Moore:
Care of the Soul.
5. B.J. Eadle & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
6. Doris Kearns Goodwin:
No Ordlnary Tlme.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
8. Butler, Gregory & Ray:
Amerlca's Dumbest Crlmlnals.
9. Nicholas Negroponte:
Belng Dlgltal.
10. Clarissa Pinkola Estés:
Women Who Run wlth the Wolves.
11. Delany, Delany & Hearth:
Havlng Our Say.
12. Brlan Lowry:
The Truth Is out there.
13. Laurle Garrett:
The Coming Plague.
14. Tim Allen:
Don’t Stand to Close
To a Naked Man.
15. Paul Relser:
HnnnlphnnH
(Byggt á New York Times Book Review)
í'
I
Gamlar fiðlur
hljóma best
Það er alveg hárrétt hjá fiðlu-
leikurum að gamlar fiðlur
| hijóma best og leyndarmálið er
1 fölgið í því hversu oft er leikið á
þær. Þetta segja breskir verk-
£ fræðingar sem hafa kannað mál-
ið,
í grein i vísindaritinu Nature
| segja David Hunt og félagar hans
við háskóla í London frá því að
| þeir gerðu tilraunir með þallar-
við sem oft er notaður í fiðlur.
j Þeir komust að því að þeim mun
| meira sem þeir létu viðinn titra á
I sama riðafjölda og þegar leikið er
* á fiðlu dró úr raka í viðinum.
| Það þýðir að fiðla úr þessum viði
: hljómar æ betur eftir þvi sem
meira er á hana spilað.
Nýtt spendýr fund-
ið á Filippseyjum
Nýtt spendýr, sem vísinda-
menn höfðu enga vitnesKju um
I áður, hefur nú fundist á Filipps-
eyjum. Um er að ræða nagdýr
ekki ósvipað íkoma og er það á
ferli á nætumar. Dýrið, sem hef-
ur hlotið nafnið skýjahlaupari,
fannst þegar vísindamenn voru
að skrá öll dýr sem lifa í skóg-
I lendi á eyjunum en þau eru mjög
I á undanhaldi vegna ágangs
£ mannsins.
Skýjahlaupari þessi vegur um
eitt kíló, klifrar í trjám, er með
skott sem er lengra en skrokkur-
| inn og yfirgefur greni sitt varla
I nokkurn tíma að degi til. Dýrið
er ámóta stórt og íkominn í Am-
j eríku og lifnaðarhættir dýranna
eru mjög áþekkir.