Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996
erlendar fréttir
Díana féllst á skilnað við Karl ríkisarfa eftir 15 ára hjánaband:
Þegar Karl, ríkisarfi Breta,
gekk að eiga Díönu Spencer, tví-
tuga stúlku með rjóða vanga og
sakleysisleg augu, fyrir 15 árum
virtist hið fullkomna ævintýri
vera í uppsiglingu. Ekkert var til
sparað þegar þau játtust hvort
öðru í troðfullri Pálskirkjunni í
London og fyrir augum 500 millj-
óna sjónvarpsáhorfenda um heim
allan. En þegar upp var staðið
var ævintýrið of gott til að vera
satt. Ellefu árum síðar kom í ljós
að hjónabandið var að renna út í
sandinn og tilkynnt var um
skilnað að borði og sæng. Eftir
þriggja ára aðskilnað tilkynnti
Díana síðan á miðvikudag að
hún hefði fallist á lögskilnað frá
Karli. Ævintýrið sem heillaði
þúsundir um heim allan var úti.
Þegar horft er um öxl þykir
mega sjá ýmislegt sem benti til
að vandamál yrðu í hjónaband-
inu. Díana var sjálf skilnaðar-
barn og þótti afar ung og lítt
þroskuð fyrir 12 árum eldri eigin-
mann. Við brúðkaupið kvaddi
hún sakleysislega veröld ungrar
starfsstúlku á barnaheimili og
var dæmd til eilífrar umfjöllunar
fjölmiðla, nokkurs sem bugað
hefði konur fullar af þroska og
sjáifsöryggi.
Karl varð fyrir hálfgerðu áfalli.
Sem ríkisarfi var hann orðinn
vanur því að baða sig í sviðsljós-
inu en skyndilega
laut hann í lægri
haldi fyrir mun
yngri konu sem
ekki hafði
minnsta áhuga á
karlmannlegum
tómstundaiðkun-
um hans.
Uxuí
sundur
Það fór ekki
fram hjá neinum
að Karl og Díana
voru ólík og það
átti smám saman
eftir að grafa
undan hjóna-
bandi þeirra.
Díana óx í starfi
sínu sem
Díana og Karl ríkisarfi við athöfn sem haldin var við Windsorkastala sumarið 1992. Þá var hjónabandið í molum og hálfu
ári síðar tilkynnti John Major forsætisráðherra f breska þinginu að þau væru skilin að borði og sæng.
Símamyndir Reuter
Díana, frægasta kona heims, þjáðist
um tíma af alvarlegri lotugræðgi og
sjálfsmorðshugleiðingum.
prinsessa og góðgjörðarsendiherra og
virtist vinna hug og hjörtu allra,
bæði Breta og annarra. Karl birtist
almenningi hins vegar sem hálfgerð-
ur nöldurseggur sem kvartaði yflr
því að líf konungsfjölskyldunnar
væri orðið eins og sápuópera. Hann
virtist hafa meiri áhuga á að tala við
blóm og gerast bóndi.
Andstæðurnar eru hrópandi í dag.
Meðan hún, sem er 34 ára gömul,
hamast í likamsræktarsal og hlustar
á popptónlist í heyrnartólum situr
hann, 47 ára, heima og ræðir um
arkitektúr eða heimspeki. Eftir að
þau höfðu opinberað trúlofun sína
sagðist Karl furða sig á hugrekki
Díönu að játast sér og virtist létt að
hafa loks fundið konu sem sýndist
hæf til að verða eiginkona hans og,
það sem meira var, konu sem kunni
sig og hafði ekki átt í ástarsambönd-
um áður.
Dagblöð og æviskrárritarar,
hlynntir Díönu, sögðu síðar að
Díönu hefði verið fórnað á altari konung-
dómsins. Þörf hefði verið fyrir nýtt andlit
en afskaplega lítið hefði verið gert tO að að-
stoða Díönu við að aðlagast breyttum að-
stæðum. En eins og í öllum brostnum
hjónaböndum má leita orsaka skilnaðarins
hjá báðum aðilum.
Karl er afar ólíkur Díönu, talar við
blómin og hefur mikinn áhuga á að
gerast bóndi.
Framhjáhald
og afbrýðisemi
Síðast sáust Karl og Díana saman í vor, við hátíðahöld í
Hyde Park í London í tilefni af því að 50 ár voru liðin frá
lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Nú er ævintýrið sem
hófst með brúðkaupi aldarinnar 1981 á enda.
í bók um Díönu, sem kom út 1992, sagði
frá afbrýðiköstum hennar og hótunum
hennar um sjálfsmorð þegar henni fannst
Karl ekki sinna hjónabandsskyldum sín-
um. Ekki bætti úr skák þegar hana fór að
gruna að eitthvað væri að gerast milli
Karls og Camillu Parker Bowles. Tveimur
árum síðar viðurkenndi Karl að hafa átt í
ástarsambandi með Camillu og skömmu
síðar var upplýst í bók um Díönu að hún
hefði átt í ástarsambandi með liðsforingj-
anum James Hewitt. Við framhjáhaldið
bættist síðan alvarleg lotugræðgi og sjálfs-
morðshugsanir sem þjáðu Díönu.
Ástin sem í fyrstu virtist þrífast miUi
Karls og Díönu var horfln. í því sambandi
má ekki gleyma að frá upphafl voru efa-
semdir um einlægni Karls þegar hann bar
upp bónorðið undir kertaljósum. Hann hafi
fyrst og fremst verið að láta undan þrýst-
ingi um að útvega erfingja. Enda leið ekki
langur tími frá brúðkaupinu og þar til
Díana hafði fætt
Karli tvo syni,
Vilhjálm og
Harry.
Þegar Karl bað
Díönu fyrir rúm-
um 15 árum mun
hann hafa verið
yfir sig ástfang-
inn af þessari
fjarskyldu
frænku sinni.
Þau höfðu hist
sem börn en
hann tók ekki al-
mennilega eftir
henni fyrr en
hann hóf að vera
með systur henn-
ar, Söru.
Hróðugur sagði
Karl í sjónvarps-
viðtölum að hann
furðaði sig á að
Díana skyldi hafa
játast honum en hún muldraði einfaldlega að þau
væru ástfangin. En hana hefur kannski grunað
út í hvað hún var að fara því hún eftirlét fyrrum
herbergisfélögum sínum blaðsnepO þar sem stóð:
„í guðanna bænum, hringið í mig. Ég mun þurfa
á ykkur að halda.“
Karl giftist ekki aftur
í dag er Díana hins vegar sjálfstæð kona sem
virðist vita hvað hún vill. Hún virðist hafa lagt
vandlega á ráðin um yfirlýsingar og viðtöl og
hyggst nýta sér fjölmiðla til hins ýtrasta finnist
henni að hún muni bera skarðan hlut frá borði í
samningum um skilnaðinn. Þó ekki þurfi lengur
að ávarpa hana yðar konunglega hátign þá lítur
út fyrir að hún muni halda prinsessunafnbótinni
og fá að búa í Kensingtonhöll. Synirnir eru Díönu
allt og hún gerir kröfur um að vera með í öllum
ákvörðunum sem varða munu framtíð þeirra.
Um framhaldið vita fáir. Eitt virðist þó víst: að
Karl og Camilla Parker Bowles muni ekki giftast.
Camilla hefur reyndar fullan hug á að giftast
Karli en hann hefur lýst því yfir að hann muni
ekki giftast aftur. Ef hann, fráskilinn maðurinn,
giftist fráskilinni konu er óttast að kröfurnar um
að konungdæmið verði lagt af verði mjög hávær-
ar.
Augu Breta beinast því meira í átt að Vilhjálmi
prinsi og verðandi ríkisarfa. Hann hefur þegar
fengiö sinn skammt af fjölmiðlaumfjöllun og ef
hann sver sig í ættina á hann sjálfsagt eftir að
sjá bresku pressunni fyrir nægu umfjöllunarefni.
Reuter
Hjónabandssagan
2. júlí 1981
Charles Philip Arthur George
eða Karl ríkisarfi og Lady Diana
Spencer gefin saman í Páls-
kirkju.
21. júní 1982
Vilhjálmur
prins fæðist.
Fyrstu merki
um heilsu-
vanda Díönu
sem þjáðist af
fæðingar-
þunglyndi.
15. september 1985
Henry prins, kallaður Harry,
fæðist.
1985
Fyrstu fréttir um hjóna-
bandserfiðleika Karls og Díönu.
1986
Karl endur-
nýjar kynni
sín við
Camillu Park-
er Bowles,
„stóru ást-
ina“. Díana
þjáist af lotu-
græðgi og horast.
1987
Karl og Díana koma fram
saman við skyldustörf meðan
hvort hugsar sitt í einkalífinu.
Júní1992
Bókin „Diana - Her True
Story“, kemur út. Dregin er upp
mynd af ástlausu hjónabandi og
eiginkonu sem reyndi sjálfs-
morð í tilraun til að ná athygli
eiginmannsins.
Nóvember 1992
Karl og Díana fara í umtalaða
ferð til Suður-Kóreu. Þau litu
illa út og voru annars hugar.
Díana vildi ekki fara en lét und-
an þrýstingi úr Buckingham-
höll.
9. desember 1992
John Major
forsætisráð-
herra til-
kynnir í þing-
inu að Karl
og Ðíana séu
skilin að
borði og
sæng.
Janúar 1993
Endurrit segulbandsupptaka
af æsilegu símasamtali Camillu
Parker Bowles og Karls birt í
breskum dagblöðum.
30. júní 1994
Karl viðurkennir í sjónvarps-
viðtali að hafa haldið fram hjá
með Camillu Parker Bowles.
September 1994
Bókin „Princess in Love“
kemur út. Þar segir frá ástaræv-
intýri Díönu og hins myndar-
lega liðsforingja, James Hewitts.
Október 1994
The Sunday Times byrjar
birtingu kafla úr ævisögu Karls.
Þar er fjaliað ítarlega um einka-
líf hans.
20. nóvember 1995
Díana kemur fram í sjón-
varpsviðtali þar sem hún viöur-
kennir framhjáhald með liðsfor-
ingja og segist efast um hæfi-
leika Karls sem konungs.
20. desember 1995
Talsmenn Buckinghamhallar
staðfesta að Elísabet drottning
hafi skrifað Karli og Díönu bréf
þar sem hvatt er til skjóts lög-
skilnaðar.
21. desember 1995
Karl útilokar að hann muni
giftast aftur.
28. febrúar 1996
Díana fellst á lögskilnað.
Reuter