Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Page 38
46 LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 DV „Dópbæli! Það eru ekki einu sinni sprautur hérna inni. Ég sé nú ekki mikið á því fólki hérna inni að það sé í dópi. Ég sé dópbæli fyrir mér þar sem er sóðalegt lið með skítinn í kringum sig og sprauturnar hangandi í sér. Hér er hreint og fínt enda þrifið reglulega," segir Rúnar, sem hér situr í stofunni heima hjá sér. DV-myndir ÞÖK Litið inn í Mjölnishnltið þar sem löggan bankar ekki á dyrnar heldur brýtur þær: - segir Rúnar Maitsland sem hyggst flytja í rólegra húsnæði „Ég lít á þetta sem heimili en ekki dópbæli. Eins og þú sérð þá er allt hreint og flnt hér og þeir sem hér búa eru snyrtilegir til fara. Það liggja hér engir skítugir dópistar afvelta með nálina á kaf í handleggnum. Hér eru engin sterk efni. í mesta lagi stuð og smá spítt,“ seg- ir Rúnar Maitsland, íbúi í gömlu iðnaðarhúsi við Mjölnisholt sem í fjölmiðlum hefur verið fjallað um sem dópbæli og verustað glæpa- manna og misyndismanna. Fíkniefnadeild lögreglunnar og upp á síðkastið almenn deild lögreglunnar í Reykja- vík hefur undarrfarið setið um húsið og ruðst þar inn til að ganga úr skugga um hvort þar sé að finna þýfl og sölumenn sterkra eitur- lyfja. í DV 12. janúar sl. var sagt frá því að í þessum húsum, en um er að ræða nokkur samliggjandi iðnaðarhúsnæði, hafist við leiguliðar sem lifi af eiturlyfjasölu og sölu á þýfi- „Heimildarmaður blaðsins segir að þarna sé „skiptimarkaður" fyrir sterk eiturlyf og þýfi“. Eiturlyfjaneytendur komi á staðina til að fá eiturlyf og borgi oft með þýfi,“ segir jafn- framt í blaðinu. Þessu vísar Rúnar Maitsland á bug sem rakalausum þvættingi. Engin sterk efni „Hérna brýst löggan inn á nóttunni og seg- ir að hér búi ekki fólk. Þeir eru búnir að brjóta upp dyrnar oftar en einu sinni. Þeir labba hér um á þeim forsendum að um sé að ræða iðnaðarhúsnæði og því eigi enginn að búa hér. Það sér það hver maður að hér býr fólk enda eru tveir þeirra sem það gera með lögheimili hér. Það eru herbergi hér og rúm og fólk sofandi í þeim. Það getur verið að hér sé á stundum margt fólk en það er engin fikni- efnasala hér. Að minnsta kosti ekki eins og þeir segja. Það hafa engin sterk efni eins og kók og E-pillur(kókaín og ecstacy) fundist hér. Kannski stuð og spítt (hass og amfetamín)," segir Rúnar en honum finnst amfetamín ekki sterkt efni í samanburði við E og kók. Þráspurður að því hvort engin sala fikni- efna eigi sér stað á heimilinu segir hann svo ekki vera, nema kannski í byrjun og jú svo geti verið að það komi fólk í heimsókn sem sé að selja en hvorki hann né sambýlisfólk hans, en þau búa fimm þarna, stundi fikniefnasölu. „Það var mikið um þetta í byrjun en fyrir nokkrum vikum hætti þetta. Þetta bara hætti.“ Öflugt lögreglueftirlit Athugulir vegfarendur, sem leið hafa átt hjá húsinu við Mjölnisholt, hafa veitt því at- hygli að oft er bílum, sem í sitja tveir eða fleiri menn, lagt í nágrenni við innganginn. Um er að ræða ómerkta lögreglubila og þess eru einnig dæmi að merktir lögreglubílar hafi verið notaðir til eftirlits með húsinu. Rúnar segir að eitt sinn hafi tveir lögreglumenn ver- ið við dyrnar og leitað á öllum sem komu inn og út úr húsinu. Þannig hafi greiöabílstjóri, sem var að skila þvotti til Rúnars, verið tek- inn og „strippaður", eins og Rúnar kallar það, því menn héldu að hann væri að koma og kaupa fikniefni. Sömu sögu segir hann af af- drifum sendils af myndbandaleigu sem kom með spólur til hans einn daginn. „Mér finnst þetta tómt rugl. Eina nóttina vaknaði ég við að það var verið að lemja inn hurðina hjá mér. Ég fór til dyra til að gá hvað væri um að vera og þá stóð lögreglan fyrir utan dymar með stóra masterinn (nokkurs konar lykill sem gengur að öllum dyrum). Ég spurði þá hvað væri i gangi og þeir komu aft- ur með söguna um að enginn byggi þarna. Þeir höfðu þá rifið upp skúrdyrnar og voru að berja upp hurðina inn í íbúðina. Ástæðan fyr- ir jpví að þeir sögðust vera að koma voru slagsmál fyrir utan, sem var tómt kjaftæði. Ég hef þrisvar sinnum þurft að gera við útidyra- hurðina inn í íbúðina eftir að löggan hefur brotið hana upp. Ég er búinn að segja þeim að þeim sé guðvelkomið að líta hér við. Það eina sem þeir þurfi að gera er að ýta á bjölluna eða banka og ég hleypi þeim inn. Þeir kunna hins vegar enga mannasiði og láta bara vaða,“ seg- ir Rúnar. Rangar áherslur lögreglu Aðspurður af hverju hann telji lögguna láta svona við þá segir hann engan vafa leika á því að hún vilji hann og sambýlisfólk hans í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.