Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Síða 40
48 unglingaspjall Lýðskólinn - skemmtilegur og öðruvísi skóli: Afródans og Færeyjaferð Oddur Albertsson er skólastjóri Lýöskólans. DV-myndir GS Það er eitthvað spennandi að ger- ast í Lýðskólanum á hverjum ein- asta degi. Nemendurnir fara í leik- hús og bíó, heimsækja Keflavíkur- flugvöll, ferðast til Færeyja og dansa trylltan afródans. - En hvað er þessi Lýðskóli? „Þetta er skóli sem gengur út frá sömu hugmyndafræði og gamla, danska lýðháskólahreyfmgin. Hug- myndin var að virkja fólk í skóla á annan hátt en kerfið þá bauð upp á og segja má að það sé alveg sama á ferðinni i dag,“ segir Oddur Alberts- son, skólastjóri Lýðskólans. „Sá mannskilningur sem við erum að byggja á er mjög jákvæður. Við lítum á fólk sem afskaplega merkilegt fyrirbæri en ekki eins og kindur sem eru reknar í rétt og svo út aftur eftir fjögur ár og látnar passa inn í einhverja kassa. í lýð- skóla er einstaklingurinn tekinn al- varlega og látinn svara því hvað hann langar til að læra og verða. Allt sem við gerum á helst að vera afleiðing af hópumræðu og það er hópurinn sjálfur sem ákveður hvað á að gera. Þetta er allt mjög iýðræð- islegt." Lýðskólinn er sameiginlegt verk- efni Norræna hússins og Reykjavík- rn hliðin Ætla að stækka í framtíðinni - segir Linda Hrönn Blöndal Hrafnkelsdóttir Röskvukona ■ Linda Hrönn Blöndal Hrafnkels- Hver er fallegasta karl sem þú dóttir háskólanemi skipaði fyrsta hefur séð? Clark Gable á yngri sæti á lista Röskvu til kosninga árum. stúdentaráös nýlega. Ásamt félögum sínum vann Linda Hrönn kosningarnar enn eitt árið og mun næsta ár þvi fara í að berjast fyr- ir réttindum stúdenta hjá henni. Það er sfjórn- málafræðineminn Linda Hrönn sem sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Linda Hrönn Blöndal Hrafn- kelsdóttir. Fæðingardagur og ár: 22. janúar 1970. Maki: Enginn. Börn: Ekkert. Bifreið: Volkswagen Golf '82. Starf: Nemi. Laun: Námslán. Áhugamál: Rauðvín og hundar. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ég hef unnið utanlands- ferð og eplakassa í bingói. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?Hlusta á góða tón- list og vera í sólbaði. Hvað flnnst þér leið- inlegast að gera? Vakna snemma á morgnana. Uppáhaldsmatur: Ind- verskur. Uppáhaldsdrykkur: KafFi. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag, að þínu mati? Anna í þolfiminni. Uppáhaldstímarit: Vanity Fair. að hitta? Ommu á Akureyri. Uppáhaldsleikari: Robert De- Niro. Uppáhaldsleikkona: Sigorney Wever. Uppáhaldssöngvari: Elton John. Uppáhaldsstj órnmála- maður: Yasser Arafat. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Valur í Sval og Val. Uppáhaldssjónvarps- efni: Breskir sakamála- þættir. Uppáhaldsmatsölu- staður: Argentína. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Skóla- bækur sem ég hef trassað að lesa. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgj- Linda Hrönn Blöndal Hrafnkellsdóttir. Ertu hlynnt eða andvíg ríkis- stjóminni? Andvíg. Hvaða persónu langar þig mest www ma an. Uppáhaldsútvarps- maður: Margrét Blön- dal. Á hvaða sjónvarps- stöð horfir þú mest? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarps- maður: Sigríður Arn- ardóttir Uppáhaldsskemmti- staður: Koníaksstofa Argentínu. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Fram. Stefnir þú að ein- hverju sérstöku í framtíðinni? Stækkaá alla vegu. Hvað ætlar þú að DV-mynd S gera j sumarfríinu? Ég ætla til Möltu í sól- bað. -ból LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 Nemendur Lýðskólans fara í leikhús og bíó, heimsækja Keflavíkurflugvöll, ferðast til Færeyja og dansa trylltan afródans. urborgar. Skólinn tók til starfa í fe- brúar og stendur fram í miðjan maí. Tuttugu ungmenni á aldrinum 17 til 19 ára mæta í Norræna húsið á hverjum degi og eitt kvöld i viku er farið á einhvern menningarviðburð, í leikhús eða bíó. Krakkar sem hata skóla „Þetta eru allt krakkar sem hafa flosnað upp úr skóla og eru atvinnu- lausir, krakkar sem hata skóla og eru mjög hræddir við hann. Flestir eru búnir að hanga og gera ekki neitt í einhvem tíma. Við reynum að hjálpa þeim að komast aftur inn á brautina. Það eru margir sem lita á svona lýðskóla sem eins konar bensínstöð. Þú ferð af þjóðveginum og tekur þér frí, fyllir á tankinn og finnur sjálfan þig og ferð svo út á brautina aftur. Við erum ekkert að stela fólki frá þjóðfélaginu heldur að hjálpa fólki að virka í þjóðfélaginu," segir Oddur. í hverri viku einbeita nemend- umir sér að einhverju einu þema, svo sem skriftum eða listum. Inni í náminu er líka spennandi ferð til Færeyja og nemendumir ætla að gefa út blað eftir önnina sem dreift verður til allra framhaldsskóla- nema. „Dagurinn einkennist af skap- andi námskeiðavinnu. Það er ekki sest niður í hálftíma í þessu eða hinu faginu. Við erum mikið á ferð og flugi og leggjum mikið upp úr því að fá þekkinguna frá fleiri stöðum en bara úr bókunum," segir Oddur. „Þessa vikuna erum við til dæm- is að tala um stríð i heimspekilegri merkingu, forsendur, orsakir og af- leiðingar stríðs, ekki bara í Júgóslavíu eða við Persaflóa heldur líka inni á heimilunum. Við fáum til okkar fyrirlesara og fömm út í bæ, í afró til að kynnast stríðsdansi, út á Keflavíkurvöll til að tala um stöðu íslands í NATO og svo kynn- um við okkur braggcihverfið sem sett var upp út af Djöflaeyjunni." -ból Bjarki og Anton eru byrjaðir að vakna á morgnana og mæta í skólann en það var ekki auðvelt áður. DV-mynd GS Enginn heimalærdómur eða próf - og kennararnir eru nemendur líka, segja Bjarki og Anton „Það er enginn bóklegur lærdóm- ur, enginn heimalærdómur og eng- in próf. Kennaramir sögðu okkur í upphafi að þeir væm líka nemend- ur. Þetta er lýðræðislegur skóli þar sem við ráðum líka,“ segir Bjarki Rafn Jónsson, 16 ára. Hann byrjaði í Lýðskólanum í fe- brúar en var í Fjölbrautaskólanum í Ármúla fyrir áramót. Anton Gunn- arsson, 18 ára, tekur í sama streng og Bjarki. „Það gera allir jafnt hérna. Það er enginn einn sem ræður heldur hjálpast allir að. Það er ekki þannig að kennarinn láti krakkana hafa verkefni og fari síðan bara í kafii,“ segir Anton sem var í Iðnskólanum áður. Bjarki og Anton segja að fæstir viti hvað Lýðskólinn sé og sumir séu því vantrúaðir. „Það má segja að fólk sé hrætt við það sem það veit ekkert hvað er. Fólk veit ekki af þessum skóla en margir eru að spyrja mann hvað jpetta sé og sýna áhuga,“ segir Ant- on. „Þegar yngra fólkið heyrir að það sé enginn bóklegur lærdómur eða próf og að við séum aö fara til Kefla- víkurflugvallar og Færeyja þá öf- undar það mann og vill komast í þetta,“ bætir Bjarki við. Hann segir að hópurinn sé góður og samheldinn. „Þetta er miklu minni hópur en í fjölbrautaskólunum og maður kynn- ist betur. Þar ertu í íslensku með einhverjum krökkum og svo eru kannski ekki nema einn eða tveir úr þeim hópi með þér í ensku.“ - Hvað er skemmtilegast að læra? „Það er ekkert skemmtilegast. Þetta er allt jafn skemmtilegt," seg- ir Anton. Anton og Bjarki eru báðir ákveðnir í því að halda áfram í hefðbundnu námi eftir Lýðskólann. „Maður reynir sitt besta eftir þetta og fer alla vega að reyna að vakna í skólann," segir Anton. Bjarki, sem er búinn að vera hálf- utanveltu í skóla frá því hann var í 12 ára bekk, lítur einnig bjartari augum á framtíðina. „Ég lærði aldrei, var bara sofandi i tímum og mætti svo í próf og náði þeim. Svo gekk það ekki upp í Ár- múla enda grútféll ég. Maður fer kannski að læra eftir þetta enda lít- ur maður öðrum augum á þetta núna.“ -ból

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.