Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Page 46
54
iróttir
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996
minningu
Bobs Paisleys
Bob Paisley, mesti framkvæmda-
stjóri allra tíma í ensku knattspyrn-
unni, lést á dögunum.
Paisley var óvenju sigursæll fram-
kvæmdastjóri hjá Liverpool um langt
árabil.
Á árunum 1973 til 1984 vann Liver-
pool fjórtán stóra titia undir hans
stjórn. Óhætt er að segja að það sé ár-
angur sem seint verði bættur ef þá
nokkurn timann.
Paisley var tæplega áttræður þegar
hann lést. Hann var mjög vinsæll
framkvæmdastjóri, hvers manns hug-
ljúfi.
Paisley var lítið fyrir að ota sér í
sviðsljós fjölmiðla, hógværðin uppmál-
uð en náði jafnan betri árangri en þeir
framkvæmdastjórar sem alltaf voru
með munninn opinn i tjölmiðlum.
Hér að neðan segja þekktir kappar
og fyrrum félagar Paisleys nokkur orö
um hann að honum látnum.
-SK
„Bob Paisley átti stórkostlegan
feril hjá Liverpool. Hann gaf mér
mjög góð ráð þegar ég var að
hefja feril minn sem fram-
kvæmdastjóri og eins í seinni
tíð. Hann var að mínu mati alveg
einstakur persónuleiki. Ég
elskaði hann.’’.
Emlyn Hughes
„Paisley var framkvæmdastjóri
af eldri skólanum. Hann valdi liðið
og vann á vandamálum sem upp
kömu. í þá daga var ekki aðstoðar-
maður á hverju strái. Þrátt fyrir að
fáir viti það var Bob Paisley mjög
fyndinn maður og við hlógum oft
saman. Bob Paisley var yndislegur
maður.”
„Ég var enn leikmaðúr þegar
Paisley ákvað að ég yrði þjálfari. Ég
var 25 ára og tregur að hætta sem
leikmaður. Hann hlýtur að hafa
komið auga á eitthvað í fari mínu
og í dag er ég honum innilega þakk-
látur. Ég hefði aldrei orðið fram-
kvæmdastjóri Liverpool án hans
stuðnings.”
Ray Clemence
„Allir sem unnu hjá Liverpool
þegar Paisley var þar vita hve
mikið hann gerði fyrir félagið.
Hans persóna var aldrei aðalmálið
heldur árangur félagsins. Árangur
hans með Liverpool verður aldrei
jafnaður eða bættur.”
Sheryl með barn hennar og Gassa, sveinbarnið Regan sem kom í heiminn á dögunum. Sheryl segist hafa vonast
eftir Gassa fram á síðustu stundu er hún ól barnið á sjúkrahúsi en hetjan lét ekki sjá sig.
Fyrrum kærasta Pauls Gascoignes:
Elskar barnið
rr
en ekki mig"
Knattspyrnumaðurinn
Paul Gascoigne er enn í
sviðsljósinu. Nú hefur
fyrrum kærasta hans alið
honum barn og Gassi vill
ekki mikið af því vita.
Hann hefur þó undan-
farna daga sýnt veik
merki um væntumþykju
til handa sveinbarninu en
áhuginn fyrir hinni glæsi-
legu Sheryl Failes er ekki
fyrir hendi.
Kvennamál Gassa hafa
verið í fréttum undanfar-
ið enda maðurinn ekki
við eina íjöl felldur í þeim
efnum. Vikulega skjóta
konur upp kollinum í
breskum blöðum og segja
sínar farir ekki sléttar eft-
ir „helgarviðskipti” við
knattspyrnuhetjuna.
Þessar konur gefa sig
fram við bresk blöð og
vilja selja ástarsögu sína
dýru verði og oftar en
ekki gleypa blöðin þessar
sögur með húð og hári.
Með í kaupunum fylgja
síðan myndir af konunum
léttklæddum.
Ástarsaga á 1,7
milljónlr króna
Nýverið setti ung kona
sig í samband við breskt
blað og vildi selja ástar-
'sögu. Hún og Gassi voru í
aðalhlutverkunum en
vinur Gassa að auki. í
þessari „fjölmennu
veislu” gerðist vitanlega
margt og mikið og flest
kom það á prenti
nokkrum dögum síðar.
Fyrir söguna vildi konan
fá um 1,7 milljónir króna.
Vorum við ekki fjög-
ur í rúminu?
Þegar blaðamaður
hringdi í Gassa og spurði
hann út í „fjölmennið i
veislunni” gerði hann að
gamni sínu sem oftar og
sagði: „Bíddu hægur, vor-
um við ekki fjögur í rúm-
inu frekar en þrjú.”
Var ekki viðstaddur
fæðingu erfingjans
Samband Gassa og
kærustunnar Sheryl var
stormasamt en hún er
fráskilin tveggja barna
móðir. í tvö ár reyndi
Gassi að fá hana til að
eignast með sér barn og á
endanum gaf Sheryl eftir.
Það átti síðar eftir að
koma í ljós að Gassi hafði
ekki mjög mikinn áhuga á
barninu og enn minni
áhuga á Sheryl. Lengi vel
vonaðist Sheryl eftir því
að Gassi yrði viðstaddur
fæðinguna en á dögunum,
þegar sveinninn kom í
heiminn, lét Gassi hvergi
sjá sig.
„Ég vonaðist eftir því
fram á siðustu stundu að
Gassi myndi koma þjót-
andi inn um dyrnar og
halda í höndina á mér á
þessum erfiða tíma. Hann
lét hins vegar ekki sjá sig.
Seinna frétti ég að á sama
tíma og ég var að eiga
barnið var hann að spila
snóker og drekka með
vinum sínum.
Ég hef komist að þeirri
niðurstöðu að Gascoigne
elskaði mig aldrei. Hann
elskar kannski barnið
okkar en hann elskar mig
ekki. Þrátt fyrir það sem
hann hefur gert mér elska
ég hann og mun alltaf
gera,” sagði Sheryl.
Gassi mætti heim til
Sheryl skömmu eftir fæð-
inguna, gaf henni lítinn
gaum en færði barninu
stóran bangsa.
-SK
AlanHansen^
„Auðvitað náði Bob Paisley frábær-
um árangri, árangri sem enginn fram-
kvæmdastjóri annar getur státað af í
ensku knattspyrnunni. Ég er ekki í
minnsta vafa um að hann væri fram-'
kvæmdastjóri í fremstu
röð í dag. Hann
var fæddur sig-
urvegari. Ég
i t mun minnast
| Bob Paisley
1 lengi og ekki
’ * síst fyrir eina
setningu sem
hann sagði oft
við okkur. Hún
var svona: „Það
fyrsta kemur fyrst
en annað aldrei.”
Kevin Keegan
„Þvílíkur framkvæmdastjóri. Nái ég
25% árangri miðað við hann þá mun
ég líta á mig sem sigursælan fram-
kvæmdastjóra. Bob Paisley auðveldaði
alltaf hlutina. Fyrir það og margt ann-
að elskaði ég hann. Hann var stórkost-
legur maður.”
„Skilningur Bobs Paisleys á knatt-
spyrnunni var alveg einstakur og
hans knattspyrna var mjög einfold.
Þessum einfaldleika kom hann til skila
til leikmanna. Það var ekki hægt að
láta sér líka illa við hann. Hann var
eins og elskulegur afi.”
1