Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Qupperneq 59
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996
afmælie
Kristján Páll Sigfússon
Kristján Páll Sigfússon kaup-
maður, Kleppsvegi 2, Reykjavík,
verður sjötíu og fimm ára á mánu-
daginn kemur.
Starfsferill
Kristján fæddist í Folakoti í
Folafæti í ísafjarðardjúpi en flutti
fjögurra ára með foreldrum sínum
og systkinum til ísafjarðar og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
á ísafirði 1937, flutti til Reykjavík-
ur 1939 og lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum 1941.
Kristján starfaði hjá Kristjáni H.
Jónssyni, kaupmanni á ísaflrði,
hjá Kaupfélagi ísfirðinga og loks
eitt sumar á Djúpbátnum.
í Reykjavík starfaði hann hjá
Veiðarfæraverslun Geysis í tvö ár,
var síðan útibússtjóri hjá Silla og
Valda að Háteigsvegi 2 í Reykjavík
í nokkur ár en hóf síðan eigin
rekstur verslunarinnar Herjólfs að
Grenimel 12 í Reykjavik og síðar i
Skipholti 70.
Kristján seldi Braga syni sínum
rekstur verslunarinnar fyrir u.þ.b.
tuttugu og fimm árum og hefur
unnið hjá honum síðan.
Kristján á sæti í fulltrúaráði
Sjálfstæðisflokksins, hefur starfað
lengi í bindindishreyfingunni, ver-
ið virkur meðlimur í Sam-Frímúr-
arareglunni, auk þess sem hann
hefur lengi starfað í félagsskap
Musterisriddarareglunnar á ís-
landi. Hann hefur sungið í ýmsum
kórum, s.s. Samkór Reykjavíkur,
auk þess sem hann söng á yngri
árum með Kirkjukór ísafjarðar-
kirkju.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 23.6. 1945 Guð-
björgu Lilju Guðmundsdóttur, f. í
Reykjavík 30.9. 1927. Foreldrar
hennar voru hjónin Bríet Ólafs-
dóttir og Guðmundur Jóhannsson
vélstjóri frá Hofi á Eyrarbakka en
þau eru bæði látin.
Börn Kristjáns og Guðbjargar
Lilju: Bragi G. Kristjánsson, f.
22.12. 1944, kaupmaður, kvæntur
Ernu Eiríksdóttur en þau eiga fjög-
ur börn, Áshildi, f. 12.2. 1966,
stjórnmálafræðing, Kristján Pál, f.
19.8. 1969, stjórnmálafræðing í
framhaldsnámi í Englandi, Styrmi
Þór, f. 22.9.1970, viðskiptafræðing í
framhaldsnámi í Skotlandi, og
Guðbjörgu Lilju, f. 1.2. 1979, nema;
María Anna Kristjánsdóttir, f.
25.12. 1948, starfar hjá Flugleiðum,
gift Jesus M. Sigfúsi Potenciano
menntaskólakennara og er sonur
þeirra Kristján Jesus Potenciano, f.
22.10. 1993.
Systkini Kristjáns eru Guðfinn-
ur, f. 14.4. 1918, bakarameistari;
Sveinn, f. 25.1. 1920, d. 29.1. 1920;
María, f. 21.8. 1922, d. 17.4. 1985,
húsmóðir; Þorgerður, f. 24.3. 1925,
d. 2.10. 1957, ljósmóðir; Garðar, f.
9.7. 1926, kaupmaður; Halldóra, f.
21.7. 1930, húsmóðir; Jenný, f. 13.7.
1933, deildarstjóri.
Foreldrar Kristjáns voru Sigfús
Guðfinnsson, f. 9.8. 1895, d. 6.2.
1980, skipstjóri á Djúpbátnum og
síðar kaupmaður í Reykjavík, og
María Anna Kristjánsdóttir, f. 8.10.
1896, d. 9.12. 1981, húsmóðir.
Ætt
Bróðir Sigfúsar var Einar Guð-
finnsson, útgerðarmaður í Bolung-
arvík. Systir Sigfúsar er Kristín,
móðir Jóns Páls Halldórssonar, for-
stjóra Norðurtangans á Ísafírði,
föður Halldórs Jónssonar yfirlækn-
is. Önnur systir Sigfúsar var Ingi-
björg, móðir Guðmundar Pálssonar
leikara, föður Hrafnhildar leikrita-
skálds. Sigfús var sonur Guðfinns,
b. í Hvítanesi í Ögurhreppi, Einars-
sonar, hreppstjóra í Hvítanesi,
bróður Helga lektors og sálma-
skálds, föður Jóns biskups. Einar
var sonur Hálfdánar, prófasts á
Eyri í Skutulsfirði, Einarssonar.
Móðir Guðfinns var Kristín, systir
Bergs Thorbergs landshöfðingja.
Móðir Sigfúsar var Halldóra Jó-
hannsdóttir frá Rein í Hegranesi í
Skagafirði.
María Anna var dóttir Kristjáns,
bróður Bergsveins kennara, föður
Sveins, prófessors í Berlín, og
Ragnars, fyrrv. aðalvarðstjóra í
Reykjavík. Kristján var sonur
Kristján Páll Sigfússon.
Sveins, b. í Sunndal, Kristjánsson-
ar, b. á Dunki í Hörðudal, Ólafsson-
ar. Móðir Kristjáns var Björg
Ólafsdóttir, b. á Hellu á Selströnd
við Steingrímsfjörð, Bjarnasonar.
Móðir Maríu var Pálína Halldórs-
dóttir frá Bæjum á Snæfjalla-
strönd, dóttir Maríu Rebekku
Kristjánsdóttur, Ebeneserssonar,
dbrm. í Innri-Hjarðardal í Reykja-
firði, langafa Höskuldar Jónssonar,
forstjóra ÁTVR.
Kristján og Guðbjörg taka á móti
gestum í AKOGES-salnum, Sigtúni
3, sunnudaginn 3.3. kl. 15.00-18.00.
Til hamingju Jóhanna Brynjólfsdóttir
með afmælið Wathne
2. mars
85 ára
Jóhanna K. Kristjánsdóttir,
Ólafsbraut 28, Snæfellsbæ.
80 ára
Indriði Guðjónsson,
Vogatungu 3, Kópavogi.
Margrét Jónsdóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
75 ára
Agnar Bjarnason,
Kambsvegi 37, Reykjavík.
Hallur Þ. Hallgrímsson,
Árhólum, Reykdælahreppi.
Jóna Annasdóttir,
Brekkugötu 1, Hvammstanga.
Guðmundur Stefán Eðvarsson,
Miðvangi 41, Hafnarfirði.
Guðrún Valmundsdóttir,
Heiövangi 2, Hellu.
70 ára
Katrín Guðgeirsdóttir,
Hamraborg 24, Kópavogi.
Vilhjálmur Valdimarsson,
Lindarbraut 2, Seltjarnamesi.
Richard Haukur Felixson,
Hábergi 30, Reykjavík.
60 ára
Erla Scheving Thorsteinsson,
Álandi 11, Reykjavík.
Rut Kristjánsdóttir,
Sólheimum 25, Reykjavík.
Helga Magnúsdóttir,
Bryðjuholti, Hrunamannahreppi.
50 ára
Tvíburarnir Sigfriður Þorsteins-
dóttir,
forseti bæjarstjórnar Akureyrar,
Ránargötu 30, Ákureyri, og
Þorsteinn Þorsteinsson,
umdæmisstjóri hjá Siglingamála-
stofnun,
Birkilundi 12, Akureyri,
urðu fimmtug sl. mánudag.
Sigfríður og Þorsteinn taka á móti
gestum í Oddfellowhúsinu við
Sjafnarstíg á Akureyri, í dag,
laugardaginn 2.3., frá kl. 20.30.
Helga Jónsdótt-
ir,
kaupmaður í
Horninu á Sel-
fossi,
Mánavegi 11,
Selfossi.
Eiginmaður
hennar er Gunn-
ar Björgvin Guð-
mundsson,
kaupmaður í Horninu.
Helga og Gunnar taka á móti gest-
um í Golfskálanum á Selfossi í
dag, laugardaginn 2.3., frá kl.
18.00-21.00.
Baldur Ólafsson,
Stakkanesi 12, ísafirði.
Anna Ragnheiður Friðjónsdóttir,
Suðurvíkurvegi 10B, Vík í Mýr-
dal.
Þórður Þorsteinsson,
Miðkoti I, Djúpárhreppi.
Júlía Baldursdóttir,
Esjubraut 19, Akranesi.
40 ára
Ólafur Öm Ólafsson,
Borgarbraut 39, Borgamesi.
Páll Sturluson,
Ásgarði 73, Reykjavík.
Tómas Jóhannesson,
Dverghamri 40, Vestmannaeyjum.
Svanhvít Björk Ragnarsdóttir,
Birkilundi 15, Akureyri.
Hekla Gunnarsdóttir,
Reykási 29, Reykjavík.
Halla Bogadóttir,
Breiövangi 9, Hafharfirði.
Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
Leiðhömrum 10, Reykjavík.
Guðrún Sigurðardóttir,
Fagrahjalla 86, Kópavogi.
Jóhanna Brynjólfsdóttir Wathne,
húsmóðir, listmálari og rithöfund-
ur, Lindargötu 61, 3. hæð, varð sjö-
tíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Jóhanna fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Skólavörðuholtinu.
Hún stundaði nám við Kvennaskól-
ann í Reykjavík, við Myndlistaskól-
ann í Reykjavík, stundaði síðar
myndlistarnám við Winnipeg
School of Art í Kanada og loks við
ríkisháskólann í Norður-Dakota í
Bandaríkjunum.
Jóhanna hefur þýtt og skrifað
um þrjátíu ára skeið í Barnablaðið
Æskuna auk þess sem hún hefur
teiknað myndir við sögur sínar.
Hún hefur lesið margar af sögum
sínum í Ríkisútvarpið auk þess
sem sögur hennar hafa verið lesnar
í sjónvarp með myndskreytingum
hennar.
Jóhanna hefur haldið nokkrar
málverkasýningar, m.a. í Bogasal
Þjóðminjasafnsins. Þá hefur Æsk-
an gefið út bók eftir hana.
Fjölskylda
Eiginmaður Jóhönnu var Ósvald
Wathne, f. 1.1. 1920, d. 1976, dóm-
túlkur í ensku, stjórnmálafræðing-
ur og endurskoðandi. Hann var
sonur Kristjáns Wathne, skrifstofu-
manns í Reykjavík, og k.h., Þór-
unnar Jónsdóttur Wathne húsmóð-
ur.
Dóttir Jóhönnu og Ósvalds er
Berglind, f. 1945, húsmóðir í New
York, gift Erni Viggóssyni verk-
taka og eiga þau þrjú börn.
Jóhanna átti sex systkin en fjög-
ur þeirra eru látin. Systkin hennar:
Bragi Brynjólfsson, nú látinn, bók-
sali í Reykjavík; Hulda Brynjólfs-
dóttir, nú látin, húsmóðir í Reykja-
vík; Magnús Brynjólfsson, nú lát-
inn, bókbindari og bókaútgefandi í
Reykjavík; Hrefna Brynjólfsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík; Svava
Brynjólfsdóttir, nú látin, húsmóðir
í Minneapolis í Bandaríkjunum;
Birna Brynjólfsdóttir, lengst af um-
sjónarkona á Sólheimum í Gríms-
nesi, nú búsett í Reykjavík.
Foreldrar Jóhönnu voru
Brynjólfur Magnússon, f. 25.7. 1884,
d. 6.8. 1969, bókbindari og bókaút-
gefandi 1 Reykjavík, og k.h., Katrín
Ósk Sumarrós Jónsdóttir, f. 7.12.
1891, d. 6.9. 1966, húsmóðir.
Ætt
Brynjólfur var sonur Magnúsar
Jónssonar úr Hjaltastaðaþinghá í
Jóhanna Brynjólfsdóttir Wathne.
Fljótsdal og Þóru Eyjólfsdóttur.
Katrín var dóttir Jóns,
steinsmiðs í Reykjavík, Eiríksson-
ar, b. á Högnastöðum, bróður Helga
í Birtingarholti, föður Ágústs,
alþm. í Birtingarholti, afa Helga
leikara og Ólafs biskups Skúlasona.
Helgi var einnig afi Jóhanns Briem
listmálara. Eiríkur var sonur
Magnúsar, alþm. í Syðra- Lang-
holti, Andréssonar og k.h., Katrín-
ar Eiríksdóttur, ættföður Reykja-
ættarinnar, Vigfússonar. Móðir
Katrínar Jónsdóttur var Jóhanna
Björnsdóttir.
UTSALA
s *
Ulpur - Ulpur
RAUTT LJOS
RAUTT LJOS/
- SIÐUSTU DAGAR
En meiri
afsláttur
Úlpur og ullarjakkar
á sértilboði
Mikill afsláttur
Stœrðir 36-52
Bílastœði við búðarvegginn
Mörkinni 6 (við hliðina á Teppalandi)
Sími 588-5518