Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 8
8
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
sælkerínn
Guðrún Agnarsdóttir forsetaframbjóðandi er sælkeri vikunnar:
Ovenjuleg fiskbaka
„Ég hef voðalega gaman af því að
elda mat og hef alltaf haft mjög gam-
an af því að matreiða og borða mat.
Ég hef alltaf haf gaman af því að
gera tUraunir i matargerð og prófa
eitthvað nýtt en einföld og vafninga-
lltil matargerð finnst mér best dag-
lega. Aðalatriðiö er að hafa gott hrá-
efni. Ég reyni að borða hoUt fæði
eftir föngum en leyfi mér auðvitað
líka tU hátíðabrigða og við sérstök
tækifæri að borða það sem mig
langar í,“ segir Guðrún Agnarsdótt-
ir forsetaframbjóðandi.
Guðrún er sælkeri DV að þessu
sinni og gefur uppskrift að óvenju-
legum en góðum fiskrétti fyrir 4-6.
Hún segir að rétturinn sé seðjandi
og drjúgur og standi fyrir sínu.
Hann sé glæsUegur þegar hann sé
borinn á borð. í hann megi nota
ýmsar tegundir af fiski, til dæmis
reyktan, og geti rétturinn verið
heppilegur til að nýta afganga. TU
hátíðabrigða megi bæta við hörpu-
skel, rækjum, kræklingi eða laxi.
Guðrún gefur einnig uppskrift að
Fiskblanda
25 g smjör eða smjörlíki
1 laukur fínt skorinn
100 g sveppir, sneiddir
225 g fiskur, soðinn og skorinn
salt og svartur pipar
Bakan
200 g smjördeig í pakka
dálítið af bræddu smjöri
ávaxtasalati.
Fisk- og sveppabaka
225 g af auðsoðnum hrísgrjónum
50 g smjör eða smjörlíki
1 laukur, fint skorinn
2 kúfaðar tsk. karrí
salt
Leggið hrísgrjónin í bleyti í heitu
vatni í 20-30 mínútur. Bræðið 50 g
smjör eða smjörlíki á pönnu og
steikið laukinn uns hann mýkist.
Hrærið karríduftinu út í og bætið
við 240 ml af vatni. Hreinsið hrís-
grjónin vel í sigti undir rennandi
vatni og bætið þeim síðan út í og lá-
tið maUa rólega í 10-15 mínútur þar
tU vatnið er horfið. Bragðbætið með
salti og látið kólna.
Búið síðan til fiskblönduna með
því að bræða 25 g smjör eða smjör-
líki á pönnu og steikja laukinn uns
hann er glær. Bætið sveppum út í
og blandið stutta stund yfir hitan-
um. Blandið síðan saman við fisk-
inn í skál. Bragðbætið með salti og
svörtum pipar og kælið.
Smyrjið eldfasta, djúpa skál
sem rúmar blönduna og þekið ,
með þunnflöttu deiginu. Setjið i
ýmist lag af hrísgrjónum eða
fiskblöndu tU skiptis en byrjið'
og endið með hrísgrjónum. Hafið
deigið nægilega stórt þannig að
hægt sé að sveipa því um blönduna
og loka skálinni og smyrjið öll sam-
skeyti með bræddu smjöri eða
smjörlíki.
Bakið í ofni sem hitaður hefur
verið að 190 gráðum í 45 mínútur.
Takið þá skálina út og hvolfið bök-
unni varlega úr henni á eldfast fat
og bakið áfram í 10-15 mínútur þar
til bakan er guUinbrún.
Með þessum rétti er gott að bera
fram ferskt salat.
strax í sítrónusafa til að verða ekki
brún. Bý tU lög úr 150 ml vatni með
100 g af sykri sem ég sýð og kæli.
Einnig má nota appelsínusafa úr
fernu. Blanda út í safa úr %-l
sítrónu, eftir magni ávaxta, og skef
síðan innan úr 1-2 ástríðuávöxtum
og blanda út í löginn sem ég helli
yfir ávaxtabitana," útskýrir Guð-
rún.
Þetta er léttur
og fremur
hollur en
gómsætur
matur sem
hentar vori
og sumri.
-GHS
Ávaxtasalat
„í ávaxtasalat nota ég þá ávexti
sem til eru á hverjum tíma. Oftast
blanda ég saman perum, eplum,
banönum, appelsínum, kíví, græn-
um og bláum vínberjum, melónum,
stundum jarðarberjum eða öðrum
ávöxtum. Ég flysja og sker ávextina
niður í smáa bita. Gæti þess að epli
og bananar
liggi
matgæðingur vikunnar
Þorskur með
soja og
engifer
Jónína S. Lárusdóttir
og Tryggvi Þórhallsson
hlutu aukaverðlaun í
uppskriftasamkeppni
Manneldisráös og Vöku-
Helgafells nýlega fyrir
ljúffenga uppskrift sína
að þorski í fati með soja
og engifer. Uppskriftin fer
hér á eftir.
800-900 g roðflett
þorskflök
% tsk. sjávarsalt
!4 tsk. pipar
2 stk. marin
hvítlauksrif
1-2 sm. rifið engifer
1 dl mysa (eöa hvítvín)
3 stk. vorlaukur
sojasósa
Verklýsing
Hitið ofninn í 200 gráð-
ur. Smyrjið fatið með
smjöri. Skerið fiskflökin í
fjögur stór stykki. Leggið
þau í ofnfast fat og dreifið
salti, pipar, hvftlauki,
engifer og vorlauki yfir.
Hellið mysunni og smá-
vegis sojasósu yfir, setjið
bökunar- eða álpappír
yfir fatið og látið malla
þangað til fiskurinn er til,
eða í 15-20 mínútur.
Rétturinn er borinn
fram með svörtum hrís-
grjónum og gufusoðnu
grænmeti, helst gulrótum
og brokkolí.
-GHS
Jóhanna Ragnarsdóttir hárgreiðslumeistari er matgæðingur vikunnar:
Humarsalat koli og
döðlurúlla á eftir
Jóhanna Ragnarsdóttir, hár-
greiðslumeistari á Akureyri, er mat-
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Jóhanna gefur þrjár uppskriftir að
sérlega bragðgóðum réttum, humar-
salati í forrétt, ofn-
bökuðum kola í aðal-
rétt og döðlurúllum
með kaffinu á eftir.
„Þetta getur bæði
verið fint og líka gott
þegar maður vill gera
sér pínu dagamun,"
segir Jóhanna.
eldfast mót og pínulitlu salti er stráð
yfir. Smjörbitum er raðað ofan á
hvert flak eða fiskbita. Álpappír er
breiddur yfir og bakað í 180 gráða
heitum ofni í um 30 mínútur. Síðustu
Kaperssósa
Humarsalat
150 g soðinn hum-
ar, pipraður
1- 2 harðsoðin egg
50 g kjörsveppir
nokkrir spergilbit-
ar
ögn af salti, pipar
og paprikudufti
2- 3 msk. rjómi
4 sítrónusneiðar
4 smjörristaðar
sneiðar af fransk-
brauði
Humarinn, eggin,
sveppimir og sperg-
illinn eru skorin nið-
ur í litla bita og
hrært saman við
majónes. Kryddað
með salti, pipar og pa-
prikudufti, bragðbætt
2 msk. smjörlíki
2/2 msk. hveiti
3-4 dl mjólk
2 dl kapers
1 msk. rjómi
1 tsk. smjör
Smjörlíkið er brætt,
hveitið er hrært út í
og þynnt út með
mjólkinni. Kapersið
er saxað og sett í
ásamt leginum.
Eggjarauðan er
hrærð með rjóma og
salti. Smjörbitinn er
settur út í sósuna.
Sósan er hrærð út í
eggjarauðuna,
smátt og smátt.
Döðlurúlla
- með kaffinu
á eftir
250 g döðlur
2 egg
% bolli sykur
1 msk. smjör
4 bollar Rice
Crispies
Jóhanna Ragnarsdóttir, matgæðingur vikunnar, gefur
humarsalati, ofnbökuðum kola og döðlurúllum. DV-i
uppskriftir að
mynd Sigurður Allt er sett 1 pott og
hrært saman. 4 boll-
með rjóma. Salatið er borið fram í
kampavínsglösum. Sítrónusneiðar
eru settar á kant glasanna og brauð-
ið er borið fram með.
Kolaráttur
Kola eða smálúðuflökum er raðað í
10 mínúturnar er heitum
kaperskornum stráð yfir og í soðið er
bætt smá safa af kapersinu og smá
hvítvíni ef vill. Skreytt með stein-
selju og sítrónu. Borið fram meö
soðnum kartöflum, blómkáli og sósu
eða soðið af fiskinum er notað meö.
um af Rice Crispies
er blandað út í. Hellt á bökunarpapp-
ír og búin til lengja. Kælt og hjúpað
meö súkkulaði.
Jóhanna skorar á Valgerði Hrólfs-
dóttur, bæjarfulltrúa á Akureyri.
-GHS
Taílenskur
matur er
heillandi
Taílenskur matur er einstak-
lega bragðgóður og heillandi og
um að gera fyrir íslendinga að
kynna sér hann og þreifa sig
áfram í matreiðslunni. Hér á eft-
ir fara tvær uppskriftir að sér-
i lega góðum réttum sem bæði er
hægt að nota báða í heila máltíð
eða annan hvorn í léttan en góð-
an málsverð.
Gríllspjót með hnetusósu
—fyrir fjóra
í þennan forrétt þarf um 350 g
af svínakjöti eöa meyru nauta-
kjöti og 8 tréspjót.
Kryddlögur
1 msk. sojasósa
1 msk. olia
y2 tsk. karrí
Jaröhnetusósa
50 g jaróhnetur
2 tsk. olía
30 g laukur
2 hvítlauksrif
1 ferskur, rauöur chili
‘/2 tsk. ferskt engifer
V2 ansjósuflak eöa y2 gaffalbiti
2 msk. fiskisósa
1,5 dl. kókosmjólk
Aöferöin
Kjötið er skorið í þunnar sneið-
ar. Blandiö kryddlöginn saman
og hellið yfir kjötið. Látið kjötið
bíða í að minnsta kosti tvo
klukkutíma. Þræðið kjötið upp á
spjót og pensliö með olíu.
Steikið lauk og hvítlauk í olíu.
Skiptið chili-ávextinum upp og
skafið fræin burt. Hellið öllum
efnunum í sósuna í matvinnslu-
vél og blandið saman í þykka
sósu. Bragðbætiö með salti.
Grillið spjótin eða steikið á
pönnu. Saltið varlega. Ferskt sal-
at er borið fram með réttinum.
Rækjusúpa
-fyrir fjóra
8-12 stórar rcekjur, hráar
10 dl. kjúklingasoö
4 msk. fisksósa
4 msk. sitrónusafi
8-8 sveppir
2 sítrónustilkar eöa
1 tsk. sitrónubörkur
y2ferskur rauöur chili
y2ferskur grcenn chili
20 g ferskt engifer
10 basilíkumblöö
Aðferðin ath.
Fjarlægið utan af rækjunum
og skiptið í miðju. Skerið ljósa
neðri hlutann af sítrónustilkun-
um í þunnar sneiðar. Skerið
chili í þunna hringi. Fjarlægið
fræin. Skerið engifer og sveppi
niður.
Byijið að laga súpuna um 10
mínútum áður en það á að bera
hana fram. Blandiö saman
kjúklingasoði, fisksósu,
sítrónusafa, sveppum, sítrónu-
stilkum og náið upp suöu. Bætið
út í chilipipar og rækjuhölum og
látiö súpuna sjóða viö lítinn hita
í fimm mínútur. Bætið basilík-
um út í og bragðbætið með salti.
Rsksósa
Fisksósa er kryddsósa sem er
notuð í marga taílenska rétti.
Hægt er að búa hana til með því
að sjóöa 1 ansjósu, eöa 1 gaffal-
bita, 1 msk. ansjósukraft eða
samsvarandi, 1 msk. sojasósu og
2 msk. vatn.
Sítrónustilkur
Erlendis eru sítrónustilkar
seldir í asískum matvörubúðum.
í staðinn fyrir sítrónustilka er
hægt að nota sítrónubörk. V2 tsk
sítrónuberki samsvarar 1 sítrón-
ustilk. -GHS