Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Side 10
10 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 Tvö bíó voru í harðri samkeppni í Hafnarfirði á blómatíma kvikmyndanna: Rútumar streymdu í bæinn með fólk á leið í bíó Hafnarfjörður á sér langa sögu sem blóbær og margir Hafnfiröing- ar muna eftir því þegar heilu stræt- isvagnarnir keyrðu suður í Hafnar- fjörð úr Reykjavík fullir af prúð- búnu fólki á leið á evrópskar og skandinaviskar stórmyndir og á vinsælustu myndirnar komu rútur alla leið frá Selfossi og öðrum þétt- býlisstöðum í nágrenninu. í þá daga voru sýndar myndir í tveimur bíó- um við Strandgötuna, Hafnarfjarð- arbíói, sem oft var kallað Árnabíó, og Bæjarbíói, sem Hafnarfjarðar- bær rak. Bæjarbíó er að mestu leyti enn í upprunalegu horfi en Hafnarfjarðar- bíó er því miður ekki svipur hjá sjón. Árni Þorsteinsson trésmiður stofnsetti Hafnarfjaröarbíó árið 1914 þegar hann keypti ibúðarhús við Kirkjuveg í Hafnarfirði, lét rífa það og byggja nýtt bíó sem hann starf- rækti árum saman, eða fram til 1943 þegar bíóið var flutt í stórhýsi við Strandgötuna. í gamla bíóinu voru í byrjun sýndar þöglar myndir, oftast fengnar frá bíóunum í Reykjavík, við undirleik píanóleikara. Sonur Árna, Niels, tók við bíó- rekstrinum að fóður sínum látnum og rak fram til 1987 að hann seldi Hafnarfjarðarbæ húsið og lóðina. í dag eru starfræktar verslanir og skemmtistaður í húsnæðinu. Bönd- in við bíóbransann eru því að miklu leyti rofin en Níels á þó enn ýmsa muni úr sýningarhaldinu, til dæmis gömul bíóprógrömm, sem voru prentuð fyrir hverja mynd, og svo átti hann elstu sýningarvélina á landinu sem faðir hans fékk árið 1914. Vélinni var því miður stoliö í innbroti í hús Níelsar í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Gekk í öll störf Níels Árnason bíóstjóri er nokk- urs konar þjóðsagnapersóna í Hafn- arfirði og órjúfanlegur hluti af bíó- sögu bæjarins. Eftir að bíóið var flutt á Strandgötuna rak Níels bíóið á neðstu hæð hússins en bjó sjálfur á efstu hæð. Hann gekk í öll störf í bíóinu, seldi miða, fór svo og reif af miðunum, seldi sælgæti og vísaði í sæti. Hann hafði þó yfirleitt ein- hverja aðstoð, miðasölustúlku og sýningarstjóra, og héldu þau bíóinu opnu þegar Níels sigldi til Danmerk- ur til að kaupa inn myndir en Dan- ir höfðu einkarétt á öllum myndum til íslands. Níels segist hafa flutt inn myndir frá 1951 til 1967 að sjónvarpið hóf út- sendingar. Á þeim tíma frumsýndi hann margar af helstu stórmyndum kvikmyndasögunnar og ýmsar fjöl- skyldumyndir með frægustu leikur- um Norðurlanda, til dæmis Max von Sydow, Ingrid Bergman, Viktor Sjöström, Ingrid Thulin, Gunnar Björnstrand, Bibi Andersson og fleiri frægum leikurum. Níels frum- sýndi til dæmis 14 myndir Ingmars Bergmans. Biskup skrifaði góða umsögn Meðal þeirra mynda Bergmans sem Níels frumsýndi voru myndirn- ar Að leiðarlokum, Barónessan frá -bíóin frumsýndu ýmsar stórmyndir, til dæmis helstu myndir Ingmars Bergman benzinsölunni, Andlitið, Eins og spegilmynd, Flísin í auga kölska og meistaraverkið Meyjarlindin, sem hlaut mikið umtal og gekk í margar vikur. Níels segir að myndin hafi verið umdeild enda fjallað um foður sem hefndi harma dóttur sinnar en þáverandi biskup, Sigurbjörn Ein- arsson, hafi skrifað góða umsögn um myndina í blöðin og því hafi hún gengið yel. Sú mynd sem lengst gekk í Hafn- arfjarðarbíó var frumsýnd um jólin árið 1958 og gekk samfelld í sex mánuði eða alveg fram á hvíta- sunnudag. Hún var dönsk fjöl- skyldumynd og hét Stýrimann Karl- sen og var svo vinsæl að fólk kom langt að til að sjá hana. En Níels sýndi ekki bara norrænar myndir í Hafnarljarðarbíói heldur fékk hann einnig til sýninga suðurevrópskar myndir. Hann sýndi þýsk-frönsku myndina Kusa mín og ég með franska gamanleikaranum Femand- el og rússnesku stórmyndina Hamlet eftir Shakespeare, svo nokkrar séu nefndar. Um ítölsku myndina Marcelino, pan y vino segir Níels að hún sé ein- hver „fallegasta mynd sem ég sýndi,“ og lagði hann þó alltaf metn- að sinn í að hafa góðar myndir til sýninga, sérstaklega í sambandi við jólamyndirnar, og frumsýndi hann alltaf danskar fjölskyldumyndir um jólin. Sjónvarpsútsendingarnar á sjö- unda áratugnum settu stórt strik í bíóreikninginn og segir Níels að þá hafi verið eins og sett hlið fyrir reksturinn. Ástandið versnaði þó fyrst illilega á níunda áratugnum þegar myndbandavæðingin gekk yfir. Tvö bíó í samkeppni Þegar blómaskeiðið var í kvik- myndasýningum í Hafnarfirði voru starfrækt tvö kvikmyndahús í bæn- um og bæði við sömu götuna, Strandgötu. Nokkru fjær á götunni rak bærinn Bæjarbíó og þar voru líka frumsýndar ýmsar stórmerkar kvikmyndir, til dæmis með Sophiu Loren. Samningar eiga sér nú stað milli bæjaryfirvalda og Kvikmynda- safns íslands um flutning safnsins í Bæjarbíó í Hafnarfirði en áður höfðu aðilar innan Kvikmynda- safnsins barist fyrir því að safnið fengi inni i Hafnaifjarðarbíói og um tíma voru líkur á að það tækist. Ef af flutningnum verður mun Kvikmyndasafnið hafa skrifstofuað- stööu á 1. hæð í gömlu bæjarútgerð- inni og geyma myndir í frysti- og kæligeymslum sem þar eru. Sýning- arsalurinn í Bæjarbíói er að mestu leyti í upprunalegri mynd og upp- runalega sýningarvélin á sínum stað en Leikfélag Hafnarfjarðar hef- ur sýnt í bíóinu undanfarin ár. Ætl- unin er að vera með reglulegar sýn- ingar á gömlum myndum í salnum en salurinn þar tekur um 200 manns í sæti. Sýningar í haust Að sögn Þórarins Guðnasonar, safnvaröar hjá Kvikmyndasafni ís- Fyrir hverja frumsýningu var gefið út bíóprógramm. Hér má sjá prógrammið með meistaraverki Ingmars Bergmans, myndinni Meyjarlindin, en hún var ein þeirra 14 Bergman-mynda sem voru frumsýndar í Hafnarfjarðarbíói. lands, er stefht að því að byrja hönnunarvinnu og ráða iðnaðar- menn í næsta mánuði þannig að unnt verði að hefja endurbætur á sýningarsalnum í Bæjarbíói sem fyrst og helst í sumar. Hann segist vonast til þess að hægt verði að flytja safnið í haust og hefja sýning- ar á myndum, sem safnið hefur und- ir höndum, um svipað leyti. Mein- ingin sé líka að starfrækja kvik- myndaklúbba. Kvikmyndasafn íslands hefur frá upphafi verið á hrakhólum með húsnæði. Safnið hefur nú skrifstofu- aðstöðu niðri á Laugavegi en fær að geyma myndir í fyrstigeymslum í gömlu mjólkurstöðinni. Þórarinn segir að það sé ekki hlaupið að því að fara með eða ná í filmur því að það taki dagpart og engin aðstaða til rannsókna eða vinnslu með filmurnar, menn fari ekki ótil- neyddir að sækja filmur í frost og því þurfi einhver góð ástæða að vera til þess. -GHS Níels Árnason frumsýndi ýmsar stórmyndir í Hafnarfjarðarbíói, til dæmis dönsku fjölskyldumyndina Stýrimann Karlsen sem gekk í sex mánuöi. DV-myndir GS i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.