Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 14
14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftan/erð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að biria aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Hversu hvítt er svart
Sá sem flettir nýrri ársskýrslu Landsvirkjunar án
þess aö þekkja málavexti, gæti freistazt til aö halda, að
fyrirtækið væri eins konar náttúruverndarsamtök, en
ekki orkufýrirtæki, sem hefur hagsmuna að gæta, sum-
part í andstöðu við þekkt náttúruverndarsamtök.
Þetta er ný stefna ímyndarfræða, sem hefur rutt sér til
rúms í Bandaríkjunum á allra síðustu árum. Þar taka
samtök hagsmunaaðila upp nöfn eins og Skógasamtökin,
Fenjasamtökin og Fossasamtökin og gefa út gróðursæla
litabæklinga til að villa á sér heimildir.
Áður reyndu fyrirtæki og hagsmunaaðilar að nudda
sér utan í vinsæl mál í þeirri von, að eitthvað af ljóman-
um færðist yfir á sig. Þannig auglýsa olíufélög, að þau
séu eins konar landgræðslu- og skógræktarfélög til að fá
fólk til að gleyma okri þeirra í skjóli fáokunar.
Algengast er, að fyrirtæki og hagsmunaaðilar reyni að
nudda sér utan í flokkaíþróttir á borð við handbolta og
fótbolta til að reyna að skapa sér ímynd frá alls óskyld-
um vettvangi. Nýtt er, að slíkir aðilar fari á leiðarenda
og reyni að skapa sér öfuga ímynd við veruleikann.
Aðferðafræðin er þó gömul. Henni hefur bezt verið
lýst í 1984, hryllingssögu George Orwell, þar sem her-
málaráðuneytið hét friðarmálaráðuneyti og pyndinga-
málaráðuneytið hét ástarmálaráðuneyti. Heimsbók-
menntirnar síast hægt inn hjá ímyndarfræðingunum.
Sú aðferð að segjast vera þverstæða sjálfs sín byggist
á tvenns konar forsendum. Annars vegar, að fólk sé al-
mennt bæði heimskt og leiðitamt, og hins vegar, að það
hafi ekki aðgang að réttum upplýsingum. Báðar forsend-
urnar eru óneitanlega til í töluverðum mæli.
Það kemur raunar fram í kosningum, að kjósendur
eru furðulega heimskir og leiðitamir. Úr því að hægt er
að draga -fólk endalaust á asnaeyrunum í almennum
stjórnmálum, þar sem umræða er mikil, er full ástæða
til að ætla, að það sé hægt í málum hagsmunaaðila.
Slíkir aðilar njóta þess stundum, að engin umræða og
engin fræðsla skyggir á möguleika þeirra til að móta
ímynd sína að eigin vali og jafnvel búa til ímynd, sem
gengur þvert á raunveruleikann. Nokkur hluti auglýs-
ingamarkaðarins er undir slíkum áhrifum.
Þannig hafa tóbaksframleiðendur annars vegar verið
að selja ímynd útivistar og félagslyndis til að dylja raim-
veruleika eiturs og flknar. Og þannig hafa þeir reynt að
hanna niðurstöður rannsókna og koma í veg fyrir að
niðurstöður óháðra rannsókna komist á almannafæri.
Almenningur á erfitt með að verjast ímyndum af
þessu tagi. Þekkingarforði ímyndarfræðanna fer sífellt
vaxandi, en neytendafræðsla og pólitísk fræðsla er af
skornum skammti. Engin efahyggja eða önnur varnar-
tækni neytenda og kjósenda er kennd í skólum landsins.
Stundum eru Qölmiðlar og einkum dagblöð að reyna
að gefa lesendum sínum færi á fræðslu af þessu tagi,
einkum í stjórnmálum, en minna í neytendamálum.
Yfirleitt túlka hagsmunaaðilar þessa fræðslu sem „gula“
pressu, æsifréttamennsku, sem ekki sé marktæk.
Þegar þessi leiðari notar ársskýslu Landsvirkjunar til
að sýna dæmi þess, hversu forstokkaðar ímyndarfræð-
ingar og umbjóðendur þeirra eru orðnir, verður það
vafalaust talið stafa af illum hvötum og óbeit á viðkom-
andi fyrirtæki. Þannig týnist málið úti í mýri.
Líklega fær lýðræðisfyrirkomulagið hægt andlát, því
að kunnátta og ósvífni misnotkunarmanna þess vex
margfalt hraðar en varnir skjólstæðinga þess.
Jónas Kristjánsson
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 DV
Sterk stað Prodis
að sigri unnum
í fyrsta skipti í sögu ítalska lýð-
veldisins verður helsti flokkur
ítalskra vinstri manna burðarás-
inn í ríkisstjóm eftir úrslit þing-
kosninganna á sunnudag. Þvert
ofan í kosningaspár um dautt jafn-
tefli tveggja flokkabandalaga í
kosningunum vann Ólifutréssam-
steypa vinstri- og miðflokka sann-
færandi sigur en meginstyrk sam-
steypunnar leggur Lýðræðislegi
vinstriflokkurinn til.
Sá flokkur er myndaður af þeim
meirihluta sem á sínum tíma
lagði niður Kommúnistaflokk ítal-
íu tU að taka upp merki jafnaðar-
stefnu. Leiðtogi og forsætisráð-
herraefni Ólifutréssamsteypunnar
er þó ekki Massimo D’Alema, for-
ingi Lýðræðislega vinstriflokks-
ins, heldur Romano Prodi sem
stýrir einu af flokksbrotunum sem
mynduðust við upplausn Kristi-
lega demókrataflokksins eftir að
leiðtogar hans féllu hver um ann-
an þveran fyrir mútuþægni og
hvers kyns fjármálaspillingu.
Kosningabaráttan varð í lokin
einvígi miUi Prodis og Silvios
Berlusconis sem leiddi flokk sinn
Áfram Ítalía til sigurs í síðustu
kosningum en féll úr forsætisráð-
herrasessi eftir sjö mánaða setu.
Nú stýrði hann Frelsisbandalagi
hægri- og miðflokka þrátt fyrir að
hann eigi að svara tU saka fyrir
vitneskju um mútugreiðslur stór-
fyrirtækja sinna. -
Enn reyndi Berlusconi að beita
fjölmiðlaveldi sínu, einkum sjón-
varpsrásunum, stjórnmálaframa
sínum til framdráttar en nú virð-
ist hlutdrægni fjölmiðlanna hafa
komið honum sjálfum í koll. Hún
minnti kjósendur á að hann hefur
engan lit sýnt á að efna fyrirheit
um að skilja sig frá fyrirtækja-
rekstrinum til að hindra hags-
munaárekstra.
Alger andstæða aflátungsins
Berlusconis er hagfræðiprófessor-
inn Prodi. Hann varð fyrst kunn-
ur fyrir að halda áfram að fara
helst ferða sinna á reiðhjóli eftir
að hann tók árið 1982 við yfir-
stjórn IRI, risafyrirtækis í ríkis-
eigu. Frá því starfi kemur hann
með hreint mannorö í fjármálum
og er þar að auki kunnur fyrir
náin tengsl við áhrifamenn í kaþ-
ólsku kirkjunni.
Ferðir Prodis í langferðabíl um
Ítalíu þvera og endilanga, til að
komast eftir fóngum í beint sam-
band við kjósendur, reyndust
áhrifameiri en sjónvarpsáróður
Berlusconis. Tilraunir hans til að
útmála Prodi sem lepp fyrir
háskalega kommúnista báru ekki
árangur.
Þar að auki setti Ólífutréssam-
steypan fram stefnuskrá í Evrópu-
málum, fjármálum, menntamálum
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
og atvinnumálum sem þótti trú-
verðugri en sundurleit vígorð
Frelsisbandalagsins. Kom líka á
daginn að verðmæti hlutabréfa á
kauphöllinni í Mílanó jókst um
þrjá af hundraði og gengi lírunnar
styrktist verulega við fregnina um
sigur Ólífutréssamsteypunnar.
Það sem einkum veldur því að
ítalskir fréttaskýrendur eru tekn-
ir að tala um að þáttaskil kunni að
vera að eiga sér stað í ítölskum
stjómmálum er að Ólífutréssam-
steypan getur gengið beint til
verks að mynda ríkisstjórn, án
þess að þurfa að kaupslaga við
aðra flokka, einatt marga og smáa,
eins og raunin hefur verið þau 48
undanfarin ár sem 54 ríkisstjórnir
hafa setið að völdum á Ítalíu. Sam-
steypan hefur að vísu ekki hrein-
an meirihluta nema í efri deild
þingsins en í neðri deildinni færir
Endurstofnaði kommúnistaflokk-
urinn henni stjórnarmyndunar-
umboð eins og um var samið þeg-
ar gengið var frá takmarkaðri
kosningasamvinnu þeirra. Þeim
stuðningi fylgja engin skilyrði en
upp frá því tekur Endurstofnaði
kommúnistaflokkurinn afstöðu til
mála sem frá ríkisstjórninni koma
á sínum eigin forsendum.
Ljóst er að flokkurinn er líkleg-
ur til að snúast gegn ýmsu í að-
haldssamri efnahagsstefnu stjórn-
ar Prodis en engar líkur eru þó á
að hún verði á flæðiskeri stödd, að
minnsta kosti ekki fyrst í stað.
Norðurbandalagið efldist í kosn-
ingunum, hefur meiri þingstyrk
en Endurstofnaði kommúnista-
flokkurinn, og hefur að ýmsu leyti
málefnatengsl við Ólífutrésbanda-
lagið. Enn fremur er ljóst að
smærri miðflokkar í Frelsisbanda-
laginu eru allt annað en ánægðir
með sinn hag í þeim félagsskap
þar sem meðal annars er að Fmna
arftaka nýfasista. Flokkar þeirra
Prodis og Lambertos Dinis, sem
stýrir embættismannastjórninni
sem setið hefur síðan Berlusconi
hrökklaðist frá, stofnaði eigin
flokk rétt fyrir kosningar og gekk
í Ólífutréssamsteypuna, hafa
verulegt aðdráttarafl fyrir þá sem
farnir eru að ókyrrast í Frelsis-
bandalaginu.
Romano Prodi (t.v.) ásamt Lamberto Dini, fráfarandi forsætisráðherra, á
lokafundi í kosningabaráttu Ólífutréssamsteypunnar í Róm.
Símamynd Reuter.
skoðanir annarra
\ Um stundvísi lækna
„Þetta hlýtur að vera arfleifð frá þeim tíma þeg-
! ar allir bukkuðu sig og beygðu fyrir yfirvaldinu
: þegar læknar krefjast þess enn aö fá að ráðskast
með tíma okkar að vild. Nú hefúr Gudmund Hernes
; heilbrigðisráðherra kveðið upp úr með það að sjúkl-
[ ingar geti krafist þess af læknum sínum að þeir séu
! stundvísir. En margir læknar mótmæla þessu. Á
j sama tima krefur Ullevál sjúkrahúsið þá sjúklinga
um greiðslu sem ekki mæta á umsömdum tima. Það
er i sjálfu sér ekkert um það að segja. En það ætti
: líka að gflda á báða bóga.“
Úr forustugrein Dagbladet 22. apríl.
Leyndarhjúpur á sínum stað
„Þrjú ár eru liðin frá því James Woolsey, for-
stjóri CIA, lofaði að stofnun hans mundi yfirfara og
j opinbera skjöl um leynilegar aðgerðir njósnara í
j kalda stríðinu. Bandaríkjamönnum er samt mein-
aður aðgangur að skjölum um Svínaflóainnrásina
misheppnuðu á Kúbu fyrir 35 árum og jafnvel at-
burði sem urðu fyrir enn fleiri árum. Þar á meðal
er valdaránið sem Bandaríkjamenn skipulögðu og
kom íranskeisara aftur tO valda 1953. Tafirnar sem
hafa orðið á því að svipta leyndarhjúpnum af skjöl-
unum eru skammarlegar.“
Úr forustugrein New York Times 23. apríl.
Ágreiningur um skilmála
„Allir vilja vopnahlé. Ágreiningurinn er um skil-
málana. Bandaríkjamenn einbeita sér að því að
betrumbæta samkomulag frá 1993 þar semúsraelar
og Hizbollah féllust á að skjóta ekki á óbreytta borg-
ara. Rússar og Frakkar leggja tfl vopnahlé sem ekki
er jafn fastnjörvað. Þeir vilja biðja ísrael um að
kalla her sinn frá suðurhluta Líbanons í skiptum
fyrir loforö um rólegheit í norðurhluta ísraels."
Úr forustugrein Washington Post 24. aprfl.