Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 20
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 20 jsyiðsljós Hvaö eiga Courteney Cox, Angela Bassett og Jamie Lee Curtis sameig- inlegt? Jú! Þær eru allar forfallnir aðdáendur Badgley Mischka- sam- kvæmisfatnaðar. Ekki færri en sex- tíu stórstjömur og eiginkonur kvik- myndamógúla klæddust fatnaði frá þeim við afhendingu síðustu ósk- arsverðlauna. Mark Badgley og James Mischka, sem báðir eru 35 ára, hafa unnið saman í 8 ár og búið saman i 10 ár. Fatnaður þeirra þykir meðal þess vinsælasta í dag og hafa leik- og söngkonur eins og Tori Spelling, Paula Abdul og Lea Thompson klæðst hönnun þeirra við verð- launaafhendingar nýlega. Angela Bassett og Winona Ryder voru líka í þeim hópi sem klæddust Badgley og Mischka-kjólum, skreyttum silki, perlum og tjulli, við óskarsverð- launaafhendinguna. Prinsessur með auraráð „Það er yndislegt að klæðast „el- egans“ fatnaði,“ segir Theri Hatcher, leikkona úr Lois og Clark sjónvarpsþáttunum, en hún hefur lengi haldið mikið upp á Badgley og Mischka-fatnað. „Manni líður eins og prinsessu að klæðast kjólum þeirra," bætir hún við. Auraráð þeirra sem velja Badgley og Mischka-kjóla þurfa líka að vera eins og hjá prinsessu því hver flík kostar á bilinu 200 tii 350 þúsund krónur. Er þá verið að tala um perl- um skreytta kjóla en ekki saman- saumaða kartöflupoka. „Renniiás og þú ert glæsileg er hugmyndafræði okkar í hnot- skum,“ segir Badgley. „Þú átt ekki að þurfa að streða til að líta vel út að kvöldi til,“ hnýtir hann við. Badgley byrjaði að fást við fata- hönnun sem bam þegar hann bjó í Oregonríki í Bandarikjunum. Faðir hans var framkvæmdastjóri í stór- verslun og móðir hans húsmóðir. Nú sér tvíburasystir hans um mark- aðssetningu og sölu á framleiðslu bróður síns og samstarfsmanns hans á vesturströndinni. „Ég minnist þess að teikna konur og fatnað áður en ég kunni að skrifa," segir Badgley. Eftir að hann útskrifaðist úr menntaskóla lagöi hann stund á listir í Oregonháskóla en nam síðan við Parson hönnunar- skólann í New York. Úr frelsi í helsi Þar hittust þeir Mischka sem kynntist fatahönnun á allt annan hátt. Mischka á tvo yngri bræður. Hann ólst upp í Malibu en þegar hann var tólf ára varð hann fyrir menningaráfalli þegar faðir hans, sem var sölustjóri, og móðir hans ákváðu að flytjast til New Jersey. „í Malibu gengum við með hálsfestar með litað hár en í New Jersey var - stjörnurnar klæðast fatnaði Badgley og Mischka undirtektir. „Fólk hélt að Bad- gley Mischka væri einhver gömul rússnesk kona,“ segir Badgley og hlær. En i kjölfar næstu sýningar höfðu stórfyrirtæki eins og Bam- ey’s, Neiman Marcus og Saks Fifth Avenue samband við þá og þeir fengu fyrstu frægu kúnnana sem vom Joan Rivers og Whitney Houston. Nú er líf þeirra félaga lítið annað en vinna og aftur vinna. Þeir era samt ánægðir þvi þeir era að fást við það sem þeir gera best. Badgley og Mischka hafa komið sér vel áfram í starfi sínu og þykja nú meðal vinsælustu fatahönnuða vestanhafs. allt litlaust og við gengum í skyrt- um með hneppt upp í háls.“ Badgley var meðal hæstu nem- enda í sínum árgangi og hlaut að launum styrk til framhaldsnáms í Riceháskólanum. Þar lagði hann stund á efnaverkfræði og hugði á frama í gervilimahönnun. „Ég ætl- aði að verða eins listrænn og ég gæti á vísindalegu sviði,“ segir hann. Þegar upp var staðið varð sköpunargleðin öðru yflrsterkari og hann skráði sig í listnám við Par- son. Eftir að þeir útskrifuðust árið 1985 réð Mischka sig til vinnu hjá Willi Smith, sem er þekktur hönn- uður vestanhafs, og Badgley réð sig sem hönnuð hjá Donnu Karan. Tveimur áram seinna stofnuðu þeir saman fyrirtæki með hjálp fjöl- skyldna sinna. Gömul rússnesk kona „Eftir að hafa unnið fyrir aðra langaði okkur að eyða kröftum okk- ar saman og starfa sjálfstætt,“ segir Mischka. Ári seinna héldu þeir sýn- ingu á framleiðslu sinni við litlar Storstjörnur eins og Lea Thompson, Laura Leighton og Teri Hatcher dá hönnun Badgley og Mischka. Aðalleikarinn úr X-Files: F A lausu aftur! David Duchovny, sá hinn sami og leikur aðalhetjuna í X- Files, sem sýnd var i Sjón- David Duchovny, leikarinn sem íslendingar muna eftir úr X- Files, er hættur við kærustuna sína, Perrey Reeves. varpinu í vetur, er aftur á lausu eftir að hafa verið með Perrey nokkurri Reeves. Talsvert er síðan David og Perrey hættu saman enda sáust síðast saman á Emmy- verðlaunaafhendingunni í haust. Þeim hefur bara tekist að halda því leyndu þar til nú. Upp á síðkastið hefur David þó sést með ýmsar fegurðar- dísir upp á arminn í Hollywood en hann hefur þó ekki fundið sér neina fasta vinkonu ennþá. .. .að hjónin Jamie Lee Curt- is og Christopher Guest hefðu ættleitt ungbarn, dreng sem hlotið hefur nafnið Thomas Haden. Nú hefur dóttir þeirra hjóna, Annie, eignast bróður. . . .aö töframaðurinn David Copperfield, sem jafnframt er eiginmaður Claudiu Schiffer, hefði gert sér lítiö fyrir og greitt tæplega 15 milljónir fyrir Batman-bíl, eða Batmobile, úr samnefhdri kvikmynd. Bílinn ætlar hann að setja á eigið safn muna úr kvikmyndum en Copperfield hefur verið með- limur í Batman-klúbbi frá 10 ára aldri. . . .að Sean Penn og fyrram eiginkona hans og bamsmóðir, Robin Wright, hefðu tekið sam- an á ný. Þau sáust koma sam- an, hönd í hönd, til verðlauna- afhendingar í Los Angeles ný- lega. . . .að hjartaknúsarinn Brad Pitt hefði nýlega látið hafa eftir sér að hann væri tiltölulega lé- legur í bólinu. „Ég er undir meðallagi," á Brad að hafa látið hafa eftir sér. Tilefni ummæl- anna voru þau að hann var kos- inn kynþokkafyllsti karlmaður í tímariti vestanhafs. I. . .að Tom Cruise hefði sýnt sannkallaða hetjulund á dögun- um þegar hann aðstoðaði 23 ára stúlku sem ölvaður ökumaður hafði ekið á á hraöbraut. Öku- maðurinn hafði stungið af og Íkom Tom stúlkunni til hjálpar og hringdi á sjúkrabíl og borg- aði síðan sjúkrahússreikning- inn hennar. mmtffimmm—n—»ibi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.