Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Síða 31
39 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 „í dag er ég mjög hamingjusamur og sáttur við lífið og bjartsýnn á að lækning finnist. Ég er ákveðinn í að vera við- staddur þegar hún finnst með því að lifa lífinu þannig að ég sé sáttur við mig og geti horft framan í hvern dag.“ nýverið er Percy, ásamt öðrum HIV- jákvæðum, í tilraunahópi með nýtt lyf sem gefið hefur góða raun í bar- áttunni gegn alnæmi. í raun er um að ræða lyfjaþrennu en lyfin eru enn á tilraunastigi. Þau hafa gefið mjög góða niðurstöðu hjá flestum erlendis en á íslandi verður ekki greint frá árangri lyfjanna fyrr en í haust. Áður hafði Percy tekið inn lyfið retrovir með ágætisárangri. Blendin gleði „Ég er að taka þessa lyfjaþrennu inn og byggja mig upp til þess að vera viðstaddur þegar full lækning finnst. Ég er ákveðinn í því að vera hér þegar að því kemur en til þess þarf ég að vinna í mínum málum og leggja í pottinn. Ég get ekki bara ætlast til þess af öðrum. Með sam- vinnu mun þetta ganga upp. Þegar fréttir af þessari nýju lyfiaþrennu komu í febrúar var ég fyrst vantrú- aður á þær. Það hafa komið lyf áður sem ekki hafa gengið upp. Þegar maður heyrði svo meira af þessu fylltist maður gleði og von um að þetta væri eitthvað sem gerði gagn og skipti máli þannig að þegar eitt- hvað enn betra kæmi þá yrði maður líka með. Þetta er blendin gleði því það er lítið vitað um endanleg og langtíma- áhrif þessarra lyfia. Mér finnst samt að maður eigi að vona það besta. Maður á að vera bjartsýnn og trúa því að þarna sé eitthvað gott á ferð- inni. Að öðrum kosti held ég það þýði ekkert að taka þetta. Ég er samt að reyna að vera raunsær, annars verður fallið svo hátt. Um leið má maður ekki loka alla gleði inni í sér. Það er mjög erfitt að finna meðalveginn - það er rosaleg vinna og það er ekki alltaf hægt að ætla fólki að finna þennan meðal- veg. Maður hlýtur að sveiflast dálít- ið. Ég er samt mjög bjartsýnn." Samtökin skiptu höfuð- máli Samtökin ’78 voru stofnuð 1978 og segir Percy þau hafa skipt höfuð- máli fyrir samkynhneigða, réttinda- baráttu þeirra og breytingu á við- horfum almennings gagnvart þeim. „Þeir einstaklingar sem stofnuðu Samtökin unnu heilmikið afrek. Það hefur tekið heillangan tíma að þróa þessa starfsemi og eftir að hún komst í núverandi húsnæði, fyrir tæpum áratug, hefur hún tekið stakkaskiptum. Aðspurður hvort hann hefði orð- ið var við fordóma gagnvart sam- kynhneigðum þegar hann fluttist til Reykjavíkur árið 1978 segir Percy svo vera. „Ég var aldrei beint í þessu sam- félagi og get því vart dæmt um það. Auðvitað heyrði maður samt um það. Auðvitað heyrði maður um ár- ásir á homma, uppsagnir úr vinnu og að hommar og lesbíur væru rek- in úr íbúðum sínum. Þetta var allt í gangi og skelfilegt að svona hlutir gerist einungis vegna kynhneigðar fólks. Það eimir enn eftir af þessu í dag þótt það hafi mikið breyst. Við vorum samt að tala um það um dag- inn að hlutirnir hefðu samt tekið miklum breytingum undanfarin tvö ár. Þetta er allt orðið svo venjulegt - það er öllum svo vel við okkur,“ segir Percy og brosir í kampinn. Hann segir að í dag séu það lík- lega hans eigin fordómar gagnvart sjálfum sér sem sé erfiðast að glíma við. „Ég er auðvitað alinn upp í gagn- kynhneigðu samfélagi og mér var ætlað að lifa gagnkynhneigðu lífi. Allt í einu uppgötvaði ég að ég gæti það ekki. Ég þarf auðvitað að vinna úr mínum eigin fordómum og er enn að því. Ég þarf stundum að taka á til að hrinda þessu frá mér.“ Percy segir að það hafi verið árið 1978 sem hann viðurkenndi að hann var hommi. „Gullna árið 1978 þegar allt gerðist. Ég kynntist Sigurði Rúnari, sambýlismanni mínum, fluttist til Reykjavíkur og Samtökin voru stofnuð,“ segir Percy. Ákveðið sorgarferli „Það má segja að þetta hafi verið barátta, að sætta sig við hvernig maður er. I dag er þetta meira orðið vinna og eðlilegur partur af því að lifa eins og hjá mörgum öðrum sem eru að reyna að sætta sig við hvern- ig þeir eru. Mér finnst það hafa gengið ágætlega, sérstaklega eftir að ég var í stjórn Samtakanna sl. 2 ár. Því fylgdi aukinn sýnileiki og Sam- tökin urðu pólitískari." „Með auknum sýnileika þá sér fólk að samkynhneigðir eru ekkert frábrugðnir öðrum í útliti og nokk- uð venjulegir. Það sem hefur líka hjálpað til er að samfélagið er opn- ara í eðli sínu. Fólk veit um Sam- tökin ’78 og félagar í Samtökunum hafa farið mikið út í skólana. Ungt fólk í dag er óhræddara við að við- urkenna þessar tilfinningar sínar ef svo ber við.“ Percy segir þó meiri feimni við að koma úr felum úti á landi. Það sem komi honum hins vegar á óvart er hve viðbrögð foreldra ungs fólks, sem er að koma úr felum, eru lík þeim sem hann kynntist þegar hann kom úr felum. „Það er kannski ekkert skrítið. Því þetta eru börnin og við erum öll alin upp í samfélagi þar sem við eig- um að ganga ákveðinn veg. Svo allt í einu ætlar einhver að víkja úr leið. Þetta er því ákveðið áfall. Sumir segja að þetta sé ákveðið sorgarferli -.bæði hjá unglingnum og foreldr- unum.“ Stórt skref stigið Percy segir stórt skref stigið í mannréttindamálum homma og lesbía ef tvö frumvörp, sem liggja fyrir Alþingi núna, verði samþykkt. Annars vegar er um að ræða frum- varp til laga um staðfesta samvist samkynhneigðra, sem veitir homm- um og lesbíum sömu veraldlegu réttindi, að undanskilinni ættleið- ingu, kirkjulegri vígslu og tækni- frjóvgun, og hjónabandið gefur öðr- um þjóðfélagsþegnum. Hitt frum- varpið fiallar um breytingu á hegn- ingarlögum sem bannar með lögum að samkynhneigðir séu smánaðir eða þeim hótað opinberlega vegna kynhneigðar sinnar. „Auðvitað hefði ég viljað sjá okk- ur fá full réttindi á við aðra en þetta er stórt skref í átt að fullum réttind- um. Þetta er hins vegar bara fyrsta skrefið. Við hljótum að þurfa að vinna áfram seinna að fullum rétt- indum en þetta er mjög merkilegt skref. Ef þetta fer í gegn þá göngum við lengra en hin Norðurlöndin,“ segir Percy. Hann segist hins vegar undrandi á afstöðu kirkjunnar til fyrrnefnda frumvarpsins. Þar komi fram að hún vilji ekki veita samkynhneigð- um kirkjulega vígslu en komi til sambúðarslita vilji hún að þessi hópur leiti til sín með sáttatilraunir í huga. „Ég túlka þetta sem einhvern misskilning. Það verður að vera annað hvort eða. Ég er að vona að þetta verði tekið út úr frumvarpinu en þegar kirkjan sér að sér og viður- kennir okkur sem aðra þá komi þetta inn.“ Fordómar fyrir hendi Þrátt fyrir að margt jákvætt hafi verið að gerast í málefnum samkyn- hneigðra og í baráttunni gegn al- næmi þá gagnrýnir hann harðlega það skilningsleysi sem stjórnvöld sýni hugtakinu forvörnum. Til dæmis hafi vart heyrst minnst á al- næmi undanfarin misseri í áróðurs- og varnaðarskyni til ungs fólks. Samkynhneigðir séu meðvitaðir um hættuna á smiti en gagnkynhneigð- ir séu ekki jafn vel á verði og áður. Endp hefur komið í ljós að þeir sem greinast með alnæmi komi fiestir úr hópi gagnkynhneigðra en ekki homma eins og var. Percy segir einnig slæmt hve þeir sem eru neikvæðir gagnvart sam- kynhneigðum eigi auðveldan að- gang að fiölmiðlum. „Að lesa um sig, eins og ég var að lesa um mig um daginn, er agalegt. Þar sagði ákveðinn maður að ef þetta frumvarp til laga um staðfest- ar samvistir færi í gegn þá væri það aðför að kristinni trú og aðför að líf- inu. Hann tengdi mína ást við HIV- smit og sagði að það þyrfti líka að hugsa um þann kostnað sem færi í að viðhalda líf: og heilsu þessa fólks. Mér finnst skelfilegt að lesa þetta um mig og mínar tilfinningar. Ég taldi þetta fyrst ekki svaravert en það er á mörkunum að maður geti lesið svona um sjálfan sig án þess að svara. Auðvitað lesa þetta allir. Það að tala um mig í krónum og aurum og segja að ég sé aðför að lífinu er svo stórt og svo mikið að manni verður orðfall. Það lýsir frek- ar þeim sem sagði það en þeim sem það er sagt um. Þetta á samt greið- an aðgang að fiölmiðlum. Mér finnst það skelfilegast. Það sem hefur hins f vegar komið í ljós er að við erum ; svo upplýst þjóð að þetta hefur haft góð áhrif fyrir okkur því fólk fyllist skelfingu þegar það les svona lagað því þarna er gengið of langt. En því miður hafa sumir svona skoðun. Auðvitað verða þeir að fá að hafa hana en ég verð þá að fá tækifæri til að mótmæla henni því ég lít ekki á sjálfan mig sem aðför að lífinu.“ Sambúðin skipti megin- máli Percy er hálfsænskur, á sænska móður, og bjó í Svíþjóð um 20 ára skeið. Hann er tæknifræðingur og hefur búið í Reykjavík síðan 1978. Sama ár kynntist hann sambýlis- manni sínum, Sigurði Rúnari, og kallar hann árið ’78 „Gullna árið“ . enda Samtökin Jíka stofnuð þetta ár. „Sambúð okkar hefur verið góð og hefur skipt meginmáli fyrir mig og eiginlega allt. Sigurður sýndi ’ mér ómetanlegan stuðning þegar verst lét. Hann hjálpaði mér að fást við tilfinningalíf mitt og það hjálp- aði mér líka að fólk sem er í kring- um okkur lítur á okkur sem gamla settið sem hefur verið saman í allan þennan tíma. í dag er ég mjög ham- ingjusamur og sáttur við lífið og bjartsýnn á að lækning finnist. Ég er ákveðinn í að vera viðstaddur þegar hún finnst með því að lifa líf- inu þannig að ég sé sáttur við mig og geti horft framan í hvern dag.“ -PP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.