Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
Samvinnuferðir-Landsýn og Jafningjafræðslan:
Vímulausar ferðir
fyrir ungt fólk
Til þess að hvetja til frekari um-
ræðu og auka almenna þátttöku
ungs fólks í starfi Jafningjafræðsl-
unnar svokölluðu hefur ferðaskrif-
stofan Samvinnuferðir-Landsýn
ákveðið að leggja Jafningjafræðsl-
unni lið, sem og öðru áhugasömu
ungu fólki, með því að sjá um ferðir
innanlands fyrir ungt fólk. Boðið
verður upp á ferðir utaniands á sér-
stöku verði fyrir alla þá sem aflað
hafa sér réttinda til þess að taka
þátt, í samræmi við hugmyndir um
samstarfið.
Miðað er við að þeir þátttakendur
í starfi Jafningjafræðslunnar sem
farið hafa í þrjár ferðir innanlands
öðlist rétt til þess að taka þátt í sér-
stökum ferðum erlendis á mjög lágu
verði. Boðið verður upp á dagskrá
fyrir þátttakendur i umræðuhópun-
um undir handleiðslu landsþekktra
fararstjóra.
Allt sem til þarf er vilji til að taka
þátt í starfi Jafningjafræðslunnar,
t.d. með sjálfboðastarfi og með því
að vera vímulaus í ferðum á vegum
hennar. Stefnt er að slíkum ferðum
í haust. Sérstakur starfsmaður
ferðaskrifstofunnar hefur umsjón
með verkefninu og hefur með
skráningu í ferðirnar að gera.
Verkefnið var kynnt á átta stöðum á landinu i gær. Heigi Pétursson kynnti samvinnuna hér í Reykjavík. DV-mynd S
Álft með vetursetu í Skagafirði í 10 ár:
Komin heim að bæ fyrir
októberhretið í fyrra
DV, Sauðárkróki:______________________
„Hún veit sínu viti, það er alveg
ábyggilegt. Hún kemur alltaf hingað
heim undir áður en versnar á
haustin þótt það hafi verið gott
langan tíma á undan. Heldur sig síð-
an hérna heima við þangað til fúll-
ur bati er kominn á vorin,“ segir
Guðmundur Vilhelmsson, bóndi á
Sævarlandi í Skefilsstaðahreppi í
Skagafirði.
Þetta er tíundi veturinn sem álft
ein hefur haft þar vetursetu og seg-
ir Guðmundur hana orðna vel
freka. Þegar hún kemur vill hún fá
sinn mat og engar refjar. Hún hefur
greinilega meiðst á fæti og það er
ástæðan til þess að hún hefur orðið
eftir í stað þess að fylgja hinum álft-
unum til heitari landa að vetrinum.
„Hún gaf sig lítið að heimafólki
fyrstu tvo veturna en eftir að
Regína systir mín fór að gefa henni
hefur hún komið hingað heim reglu-
lega til að fá í svanginn. Hún er
ekki vönd á mat en þykir þó sumt
betra en annaö, er til dæmis sólgin
í hangikjöt. Þótt hún sé í félagsskap
annarra álfta virðist hún ekki sam-
lagast þeim vel og er svolítið ein á
báti.
Þegar batinn kemur að vorinu fer
hún hér út á víkina og út á Land-
endann. Síðan liggur leiðin upp í
dalinn en hún fer venjulega ekki
mjög langt því hún virðist orðin
heimakær. Það bregst siðan ekki að
hún er mætt áður en fer að versna
að haustinu, var til dæmis komin
hingað heim á bæ fyrir októberhret-
ið í fyrrahaust," sagði Guðmundur.
Nemendur sigruðu kennara
í tilefni 20 ára afmælis Fjölbrautaskóla Suðurlands 13. april gafst fólki tækifæri að koma ■ skólann og kynnast starf-
inu þar. Skólinn er einn stærsti vinnustaður á Suðurnesjum. Ýmis skemmtiatriði voru og m.a. var spurningakeppni
milli kennara og nemenda og sigruðu nemendur og gefur það vel til kynna hve góð kennsla er í skólanum. Myndin
er frá þeirri keppni. Sigurvegararnir til hægri. DV-mynd ÆMK
Fara með skeiðhesta í Grímsey
skeiða yfir heimskautsbauginn
„Við ætlum að vera með kapp-
reiðar í Grímsey í sumar og skeiða
norður fyrir heimskaustsbaug,“ seg-
ir Sigfús Ólafur Helgason, formaður
Hestamannafélagsins Léttis á Akur-
eyri.
„Það hefur dregist að markaðs-
setja landsmótið sem verður haldið
á Melgerðismelum í Eyjafirði sum-
arið 1998. Grímsey er i Eyjafjarðar-
sýslu og við ætlum að hefja mark-
aðssetninguna myndarlega.
Mótið verður haldið laugardag-
inn 22. júní. Við erum búnir að fá
öll tilskilin leyfi. Sveitarstjórn
Grímseyjar tók vel í hugmyndina og
ferðaskrifstofur hafa gefið verðlaun.
Þetta á að vera mikil uppákoma og
við búumst við miklum mannfjölda.
Við ætlum að fara með fjóra til
sex skeiðhesta. Ekki hefur enn ver-
ið ákveðið hverjir það verða en þeir
verða góðir. Ekki er heldur búið að
ákveða vegalengdina en heim-
skautsbaugurinn nær yfir flug-
brautina.
Það er vitað að ef hestarnir liggja
á sprettinum verður sett Grímseyj-
armet og hugsanlega heimsmet. Við
reiknum með að hafa samband við
Heimsmetabók Guinnes.
Við ætlum einnig með tvo B-
flokks hesta sem glæsilegar konur
munu sýna og að auki tvo hesta til
að geta boðið eyjarskeggjum á bak.
Svo slúttum við með allsherjar
grillveislu. Það má búast við að
þetta verði mikill viðburður," segir
Sigfús Ólafur að lokum. -E. J.
Fundu ársgamalt bam grátandi úti á götu:
Nafn á úlpu
vísaði á foreldrana
„Það virðist sem enginn sakn-
aði drengsins. Hann var bara
grátandi úti á götu þegar við
hjónin komum að og það kostaði
síðan töluverða vinnu að hafa
uppi á foreldrunum," segir gam-
all lögregluþjónn sem á dögunum
rakst á ársgamalt yfirgefið bam á
götu í Kópavogi.
Lögreglumaðurinn var þar á
ferð ásamt konu sinni. Þau sáu að
við svo búið mátti ekki standa.
Konan tók að sér að hugga barn-
iö meöan lögreglumaðurinn
hringdi í fyrrum starfsfélaga
sína.
Lögreglan kom á staöinn að
vörmu spori en enginn í nágrenn-
inu virtist sakna bams. Þá var
farið að reyna að spyrja dreng-
innn hver hann væri og hvar
hann ætti heima. Það bar engan
árangur.
Þá fannst nafn skrifað á úlpu
drengsins og hann kannaöist við
sað heita því nafni. Þá var leitað
með aöstoð þjóðskrár hverra
manna bam með þessu nafni gæti
verið. Það kom í Ijós að drengur-
inn átti heima þama í nágrenn-
inu og faðirinn kom að sækja
hann á lögreglustöðina.
„Mér og konu minni blöskraði
alveg að sjá að smábam var í
reiöileysi úti á götu og það var
eins og foreldrunum væri alveg
sama. Það saknaði enginn drengs-
ins,“ sagöi lögreglumaðurinn
gamli.
-GK
Stykkishólmur:
Fjör á fundi um ný-
sköpun og atvinnumál
DV, Stykkishólmi:__________________
„Nýjar hugmyndir um nýsköpun
og atvinnumáT var yfirskriftin að
fundi á Hótel Stykkishólmi sem
haldinn var þar 18. apríl. Það voru
Efling Stykkishólmi, Stykkishólms-
bær, Rotary- og Lionsklúbburinn,
sem fyrir fundinum stóðu, en erindi
flutti Jón Erlendsson verkfræðing-
ur hjá Upplýsingaþjónustu Háskóla
íslands.
Jón rakti maðal annars hug-
myndir sínar um nýja framtíðarsýn
í atvinnumálum, þar sem meginá-
hersla er lögð á framtak, símenntun
og nýsköpun. Skoðanir hans hafa að
nokkru leyti náð eyrum stjórnvalda
og verkalýðsfélaga en hugmynd
hans um skylduvirkni atvinnu-
lausra mun koma fram í frumvarpi,
sem verður lagt fram á Alþingi
mæsta haust. Jón lagði einnig
áherslu á svokallaða framtaks-
fræðslu í skólum, þar sem mark-
visst yrði unnið að því að efla frum-
kvæði nemenda, en slíkt átak mun
hafa skilað góðum árangri í Noregi.
Að sögn Ingibjargar Þorsteins-
dóttur, framkvæmdastjóra Eflingar,
var fundurinn mjög vel sóttur og
urðu líflegar umræður að loknum
fyrirlestri Jóns. Sturla Böðvarsson
þingmaður sat ásamt Jóni fyrir
svörum. BB
Skemmtibáti stolið
í Kópavogi
Opnum 15 feta skemmtibáti var
um miðjan dag í gær stolið frá húsi
við Skemmuveg í Kópavogi. Bátur-
inn stóð á kerru sem var hlekkjuð
föst. Var klippt á keðjuna og bátn-
um ekið burt. Ekkert hefur spurst
til hans síðan og biður lögreglan
alla sem gætu gefið upplýsingar um
bátshvarfið að gefa sig fram.
-GK