Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Qupperneq 34
42
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
Guðmundur Rafn Geirdal forsetaframbjóðandi í DV-yfirheyrslu:
■
Þetta er ekki grínframboð
„Ég byrjaði að hugsa þetta þegar
ég frétti að Vigdís ætlaði ekki að
óska eftir endurkjöri. Lokaákvörð-
un kom kvöldið eftir að umfjöllun
um fylgi við Pálma Matthíasson
hafði verið í fréttum DV. Ég hlusta
mikið á innri skilaboð. í þetta skipt-
ið var það sterk tilfinning sem
bylgjaðist um mig frá hvirfli til ilja
og hélst alveg stöðug í einn og hálf-
an klukkutíma. Það var engin fyrir-
staða. Þegar ég fann að ákvörðunin
var komin skrifaði ég uppkast að
fréttatilkynningu. Lét hana síðan
bíða i um eina viku til að hlusta eft-
ir ytri merkjum. Þá hringdi í mig
þáverandi ráðuneytisstjóri mennta-
málaráðuneytisins, sem ég hef litið
á sem einn af mínum helstu ráðgjöf-
um undanfarin ár, og hann lagði til
að ég myndi bjóða mig fram, án þess
að vita að ég væri búinn að ákveða
mig. Þetta þótti mér nægjaniega
skýrt og tilkynnti því framboð."
- Hvað hefur þú fram yfir aðra
frambjóðendur?
„Það er einkum andlega ræktin
sem ég stunda og hef gert undanfar-
in ár. Hún gengur út á að efla það
góða í sálinni, eins og kærleika,
réttlætiskennd og heiðarleika. Ég
hef gert þetta í það langan tíma að
ég finn fyrir árangri innra með mér.
Með sama áframhaldi get ég ekki
séð annað en að það batni. Þetta
passar við ímynd forsetaembættis-
ins, sem er ímynd um allt það æðsta
sem við höfum sem þjóð.“
- Hverjar verða þínar áherslur
á Bessastöðum ef þú nærð kjöri?
„Það er aðallega að halda áfram
að stunda þessa innri rækt af kappi
og nota það til að efla hreinleika
embættisins. Það verði síðan
lýsandi fordæmi öðrum til eftir-
breytni."
- Telur þú að forsetinn eigi að
beita oftar neitunarvaldi á laga-
setningu Alþingis?
„Já, og þá bæði útfrá áskorunum
frá fólkinu sem kýs hann og sam-
visku sinni. Ef samviskan segir að
það sé skynsamlegra að skrifa ekki
undir ákveðin lög þá á ekki að gera
það.“
Framkvæmdir á Bessa-
stöðum ber að stöðva
- Hvert er þitt álit á þeim
mikla kostnaði sem hefur orðið á
endurbótunum á Bessastöðum?
„Ég tel að þar hafi verið farið
langt umfram eðlileg mörk og vil að
þetta verði leiðrétt hið fyrsta. Fram-
kvæmdir ber að stöðva eða hægja á
þeim þar til Alþingi hefur farið yfir
þetta. Gerð verði ný kostnaðaráætl-
un, henni verði fylgt og hún sé inn-
an núverandi fjárlaga. Forsetaemb-
ættið þarf að gefa fordæmi um að-
hald og sparnað."
- Hvaða skoðun hefur þú á
orðuveitingum forsetans? Því
hefur verið haldið fram að þar sé
verið að verðlauna embættis-
menn fyrir að mæta í vinnu sína.
„Ég er hlynntur því að embættis-
maður sem hefur sinnt sínu starfi
vel fái fyrir það viðurkenningu.
Hins vegar myndi ég vilja
betrumbæta orðalagið á orðuveit-
ingunum. Til dæmis vísar hugtakið
riddarakross í riddara sem var her-
maður á miðöldum og þjálfaður í að
drepa fólk. Við erum hins vegar
þjóð friðar með engan her og því
þyrfti að frnna nýtt hugtak, t.d. frið-
arkross eða ríkiskross."
Guðmundur Rafn Geirdal.
- Náir þú ekki kjöri, litur þú
svo á að erfltt verði fyrir þig að
hverfa til fyrri starfa?
„Ég hugsa að mín staða verði orð-
in ansi breytt. Ég er orðinn miklu
kynntari meðal þjóðarinnar en áður
og nýr vettvangur hefur hugsanlega
opnast fyrir mér. Ég gæti t.d. skrif-
að bækur um mín hugðarefni og
tekið þátt í að gera sjónvarpsþætti
um einstök málefni, verið formaður
einhverjar nefndar um framtíðar-
stefnumál forsetaembættisins."
- Ertu hlynntur því að forset-
inn veiti áfengi og tóbak í veisl-
um sínum og móttökum?
„Nei, ég vil að því sé alfarið hætt.
Strax verði byrjað að minnka þetta
eins og kostur er, án þess að móðga
einn eða neinn. Til dæmis mætti
byrja á því að bjóða upp á heilsu-
drykki og heilsusamlegt meðlæti. Ef
einhver vill sitt vin, tóbak eða kaffi
og kökur þá sé það veitt í sérstöku
hliðarherbergi eða við hliðarborö."
- Ertu hlynntur inngöngu ís-
lands í Evrópusambandið?
„Nei. Ég hef margoft skrifað Dav-
íð Oddssyni bréf þar sem ég lista
niður samanburð á stöðu okkar sem
þjóðar og stöðu Evrópusambands-
ins. Við komum betur út í þeim
samanburði eins og hvað varðar at-
vinnuleysi. Eftir ýmis vandamál
innan Evrópusambandsins á síð-
ustu tveimur árum eins og stríðið í
fyrrum Júgóslavíu erum við mun
betur stödd. Með sama áframhaldi
gætum viö verið betur stödd en ESB
um aldamótin, þegar tími væri kom-
inn á að ákveða þetta og við mynd-
um velja að vera áfram sjálfstæð.“
- Á forsetinn að vera þjóðkjör-
inn?
„Já, mér finnst það. Hann á að
vera málsvari fyrir hið beina lýð-
ræði þar sem fólk velur sér sinn
æðsta yfirmann, alia vega virðing-
arlega séð, og fólkið finni að það
sjálft ráði því hver sé kjörinn.
Yfirheyrsla
Bjöm Jóhann Bjömsson
Stjórnkerfi sem byggist upp á þenn-
an veg verða friðsamari og fólk sátt-
ari við sitt hlutskipti."
- Lítur þú á embætti forsetans
sem öryggisventil fyrir lýðræðið
í landinu?
„Já, ég myndi segja það tvímæla-
laust. Málskotsrétturinn til þjóðar-
innar leiðir til þess og er mikilvæg-
ur, sérstaklega í ljósi þess að alþing-
ismenn hafa verið visir til þess að
beita alls konar bolabrögðum til að
ná málum fram. Sem dæmi nefni ég
EES-samninginn og hvernig Jón
Baldvin nánast barði hann í gegn-
um stjórnkerfið, jafnvel á meðan
landbúnaðarráðuneytið og stór
hluti fólks óttaðist um að samning-
urinn hefði slæmar afleiðingar og
núverandi forseti frestaði undirrit-
un um stundarsakir."
- Ertu hlynntur því að sameina
beri embætti forseta og forsætis-
ráðherra, líkt og er í Bandaríkj-
unum?
„Nei, ég tel óviðeigandi að mikið
vald sé allt á einni hendi. Tel eðli-
legt að forsætisráðherra fari með
valdið og forsetinn með virðing-
una.“
Kostar mig 100
til 500 þúsund
- Hver er áætlaður kostnaður
við þitt framboð?
„Ég er með þær tölur í huga núna
að framboðið kosti á bilinu 100 til
500 þúsund krónur. Það sem ég hef
greitt í auglýsingar er líklega um 80
þúsund krónur. Ég gæti ímyndað
mér að fram til 24. maí, þegar ég á
að skila inn meðmælendalista, þá
verði ég búinn að verja 200-300 þús-
und krónum i heildarkostnaö. Síðan
i júní sé ég ekki hvað ég þarf að
eyða meiru. Þá opnast fjölmiðla-
heimurinn ef maður er orðinn al-
vöru forsetaefni. Ég hef tekið eftir
því að fólk kýs ekki endilega þann
sem hefur sig mest í frammi. Fólk
kýs Ólaf Ragnar í skoðanakönnun-
um þótt hann hafi ekkert haft sig í
frammi."
- Hvemig íjármagnar þú bar-
áttuna?
„Ég fjármagna þetta alfarið sjálf-
ur. Síðan hefur ríkisstjórnin sam-
þykkt að hún greiði kostnaðinn að
hluta eða fullu sem fer beint i kosn-
ingabaráttuna þannig að væntan-
lega fæ ég þetta allt til baka.“
- Sumir vilja meina að þitt
framboð sé grínframboð. Hvað
viltu segja við því?
„Þetta er ekki grínframboð. Ég er
í þessu af fullri alvöru."
Með 15 meðmælendur
- Hvernig gengur að safna und-
irskriftum?
„Það gengur hægt og er aðallega
sjálfum mér að kenna. Mér gengur
illa að fara út á götu að safna eða að
biðja einhvern að safna fyrir mig.
En um ieið og ég tala við fólk þá
skrifar það samstundis undir. Ég
tek eftir að fólki finnst það meira en
sjálfsagt. Þannig að ég gæti ímynd-
að mér að ef ég kemst loksins af
stað þá gangi þetta hratt og vel fyr-
ir sig og klárist."
- Geturðu upplýst hvað þú ert
kominn með marga meömælend-
ur? (spurt sl. miðvikudag - innsk.
blm.)
„Já, það eru fimmtán."
- Fari svo að þú náir ekki til-
settum fjölda meðmælenda og
getir því ekki talist fullgildur
frambjóðandi, ertu þá reiðubú-
inn til þess hér og nú að lýsa yfir
stuðningi við einhvern að hinum
frambjóðendunum?
„Nei, mér finnst þetta allt mjög
frambærilegt fólk. Ég myndi styðja
þau öll sem eina heild. Þau eru búin
að bjóða sig fram til þjónustu við
þjóðfélagið á háu stigi. Þegar ég var
á fyrsta sameiginlega framboðsfund-
inum með Guðrúnunum tveimur í
Háskóla íslands á dögunum fannst
mér við vera nánast eins og ein-
eggja þríburar."
Á að vera með hvít-
hreint mannorð
- Er eitthvað í þinni fortíð sem
gæti skaðaö þig í embætti sem
forseti?
„Ég á að vera með alveg hvít-
hreint mannorð, lagalega séð og sið-
ferðilega. Hins vegar var gerð ansi
sterk árás á mig fyrir nokkrum
árum þegar mínir eigin nemendur
skrifuðu undir kæru Neytendasam-
takanna til Rannsóknarlögreglu rík-
isins. Þó svo að þessu hafi verið vís-
að frá ríkissaksóknara með bréfi þá
grunar mig samt að Gróa á Leiti
gæti á einhvern hátt nýtt sér þetta.“
- Nú veit ég að þú sendir þess-
um nemendum bréf í að minnsta
kosti þrígang á síðasta ári. Þar
kemur m.a. fram að þeir hafi haft
í morðhótunum við þig, þú getir
ekki mælt með þeim sem nuddur-
um og þeir hafi ekki útskrifast
formlega frá þér. Hvers vegna
sendir þú þessi bréf?
„Ég sendi bréfin til að reyna að
vekja nemendurna til vitundar um
hvað þeir gengu langt út af braut
sem ég tel heilbrigða, siðferðilega
séð, og hvort þeir hafi í sér það
hjartalag að geta leiðrétt sig. Mér
heyrist utan af mér að það hafi ekki
gerst og bréfaskrifin hafi jafnvel
leitt til aukinnar andstöðu við mig.
Nema að einn nemandi hringdi og
sagðist vilja draga sig út úr þessu
öllu og að hún hafi verið þvinguð til
undirskriftar."
- Ætlarðu að halda þessum
bréfaskriftum áfram?
„Það gæti farið svo, já.“ -bjb