Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 35
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
43
Prófessor á reiðhjóli verður næsti forsætisráðherra Ítalíu eftir kosningasigur vinstriflokkanna
Prodi þykir miklu líkari sókn-
arpresti en stjnmmálamanni
Romano Prodi, næsti forsætisráðherra Ítalíu, fagnar sigri í þingkosningunum á Ítalíu sl. sunnudag. Ólífubandalag mið- og vinstriflokka, undir forustu Prod-
is, vann óvæntan sigur á hægriflokkunum undir forustu Silvios Berlusconis fjölmiðlakóngs. Símamynd Reuter
„Hann er maður sem hefur mjög
gaman af þvl að ljúka því verki sem
hann hefur byrjað á.“
Þannig lýsir Flavia Prodi eigin-
manni sínum, hinum 56 ára gamla
Romano Prodi, forsætisráðherraefni
Ólífubandalagsins, kosningabanda-
lags mið- og vinstriflokkanna, sem
hann leiddi til óvænts sigurs í þing-
kosningunum á Ítalíu síðastliðinn
sunnudag.
Stjórnmálaspekúlantar standa al-
veg á gati þegar kemur að því að
skýra hvernig Prodi fór að því að
sigra fjölmiðlakónginn Silvio
Berlusconi, sem gegndi forsætisráð-
herraembættinu um skeið eftir síð-
ustu kosningar, og Frelsisbandalag
hans sem samanstendur af mið- og
hægriflokkum.
Vildi vera aðeins
kvikindislegri
Varla eru atil ólíkari menn en
þessir tveir. Berlusconi er þekktur
sjarmör og ólgandi af sjálfsöryggi.
Prodi liggur aftur á móti fremur
lágt rómur, hann silast áfram og er
allt að því óframfærinn. Það hefur
orðið til þess að ýmsir stjórnmála-
skýrendur hafa líkt honum við lát-
lausan sóknarprest. Og í blaðavið-
tali, sem birtist skömmu fyrir kosn-
ingarnar á sunnudag, sagði Prodi
aðspurður um hverju hann vildi
helst breyta í fari sínu, að hann
mundi vilja vera kvikindislegri en
hann er.
Hvað um það, þá virðist því sem
stendur fátt geta komið í veg fyrir
að þessi hægláti hagfræðiprófessor
með litla reynslu af stjórnmálum
muni hverfa frá rólyndislífinu inn-
an háskólaveggjanna og setjast í
þann stól sem ítölskum stjórnmála-
mönnum hefur reynst hvað erfiðast
að verma meira en nokkra mánuði í
senn. Það mun þó ekki verða fyrr en
einhvern tíma í næsta mánuði.
Fyrst verður nýkjörið þing að koma
saman. Það gerist 9. maí og síðan
verður Oscar Luigi Scalfaro forseti
að fela Prodi umboð til stjómar-
myndunar.
Ekki í framboði til að
verða leikari
Prodi, sem gengur undir viður-
nefninu II Professore, eða prófessor-
inn, heima fyrir sætti gagnrýni fyr-
ir að vera of litlaus og of óframfær-
inn til að stjórna landinu sem er
þekkt fyrir allt annað en lognmollu
á stjórnmálasviðinu. Það voru eink-
um liðsmenn Frelsisbandalagsins
sem höfðu sig í frammi á þeim vett-
vangi.
í viðtali við Reuters fréttastofuna
fyrr í mánuðinum gerði Prodi lítið
úr persónuleikamálinu og sagðist
þess fullviss að hávaðalaus still
hans í stjórnmálum mundi blífa.
„Ég er ekki í framboði til að
verða leikari. Starf mitt mun ekki
felast í því að standa uppi á sviði
heldur í því að stjórna landinu,"
sagði Prodi. „Ég held að landsmenn
kjósi stöðuglyndi fram yfir leik-
ræna tilburði."
Níu vikna rútuferð um
landið þvert og endi-
langt
Prófessorinn sem hefur aldrei
gegnt kjörnu embætti varði mestum
hluta níu vikna langrar kosninga-
baráttunnar um borð í langferðabíl
á þeytingi landshorna í milli og
flutti ítölskum kjósendum boðskap
sinn.
„Sjáðu til, ég er búinn að taka
þátt í stjórnmálastarfi í eitt ár,“
sagði hann í viðtalinu. „Ég byrjaði á
núlli við að byggja upp breiðfylk-
ingu. Samkvæmt skilgreiningunni
ættum við að tapa.“
Erlent fréttaljós
á laugardegi
Tvær meginástæður voru fyrir
því að Prodi var kjörinn til að leiða
Ólífubandalagið í kosningunum.
Fyrsta skal nefna trú hans, en
hann er rammkaþólskur, og náin
tengsl við fyrrum Kristilega
demókrataflokkinn sem fór með
völd í landinu í áratugi áður en
hneykslis- og spillingarmál af marg-
víslegu tagi snemma á tíunda ára-
tugnum eyðilögðu hann.
Tengsl Prodis við rómverskka-
þólsku kirkjuna urðu líka til þess
að margir kaþólikkar gengu til liðs
við Ólífubandalagið þar sem stærsti
flokkurinn er Lýðræðissinnaði
vinstriflokkurinn sem varð til á
rústum gamla kommúnistaflokks-
ins.
Síðari ástæðan fyrir valinu á
Prodi sem foringja Ölífubandalags-
ins er einörð afstaða hans í fjármál-
um. Hann er einn fremsti hagfræð-
ingur Ítalíu og í ofanálag gegndi
hann stjórnarformennsku í ríkis-
rekna hlutabréfasjóðnum, IRI, um
langt árabil.
Prodi hefur einnig hvað eftir ann-
að lýst yfir stuðningi sínum við
Evrópusambandið og sagði að ef
hann yrði forsætisráðherra mundi
hann einsetja sér að ná fram mark-
miðum ESB í efnahags- og peninga-
málum.
„Italía er glötuð ef hún stendur
utan Evrópusamfélagsins," sagði
hann.
Áður en hann hóf afskipti af
stjórnmálum á síðasta ári lifði
Prodi fremur rólegu lífi með fjöl-
skyldu sinni í Bologna þar sem löng
hefð er fyrir stjórn vinstrimanna.
Auk prófessorsstöðu við háskólann
þar gegndi Prodi einnig starfl sem
forstöðumaður virtrar spástofnunar
um efnahagsmál.
Gekk að eipa æskuvin-
konu sína ur sókninni
Prodi, sem fæddist nærri Reggio
Emilia í hinu auðuga Emilia
Romagna héraði, lagði stund á hag-
fræði í kaþólska háskólanum í
Mílanó og lauk þaðan prófi árið
1961. Hann stundaði jafnframt nám
við hinn virta London School of Ec-
onomics. Prodi gekk að eiga Flaviu
Franzoni, æskuvinkonu sína úr
sömu sókn, og saman eignuðust þau
tvo syni, sem nú eru 24 ára og 21
árs.
Árið 1974 var Prodi gistiprófessor
við Harvard háskólann í Bandaríkj-
unum en við heimkomuna til Ítalíu
tók hann að sér starf forstjóra út-
gáfufyrirtækisins II Mulino.
Prodi er ekki með öllu ókunnug-
ur ríkisstjórnarsetu því hann sat í
embætti iðnaðarráðherra í fimm
mánuði 1978 til 1979 í skammlífri
ríkisstjórn kristilega demókratans
Giulios Andreottis sem nú situr á
sakamannabekk, ákærður fyrir
tengsl við mafiuna.
Prodi segir að þessi stutta reynsla
sín í ráðherraembætti, svo og
stjórnarformennska í IRI á árunum
1982 til 1989, geri hann vel hæfan til
að fara með stjórn landsins.
„Til að ná kjöri þarf maður að
hafa reynslu í flóknu stjórnkerfi af
einhverri tegund. Ég held að ég hafi
öðlast hana þegar ég var ráðherra
og gegndi stjórnarformennsku í IRI
í átta ár og fór fyrir samsteypu með
rúmlega hálfa milljón starfs-
manna,“ sagði Prodi.
Reiðhjólinu lagt í bili
Að stjórnarformennskunni í IRI
lokinni sneri hann svo aftur heim
til rauða bæjarins Bologna og fyrri
starfa við háskólann. En þegar tæki-
færið til að leiða Ólífubandalagið í
kosningunum gafst var Prodi ekki
seinn á sér að leggja reiðhjólinu
sem hann ferðaðist á í Bologna og
leggja land undir fót í kosningabar-
átturútunni. Og hann hefur aldrei
iðrast þess að hefja afskipti af
stjórnmálum þótt hann hafi mátt
þola persónulegar árásir fyrir.
Byggt á Reuter og Guardian
Silvio Berlusconi og Romano Prodi takast í hendur fyrir kappræður í italska sjónvarpinu skömmu fyrir kosningarn-
ar. Prodi hefur boðið kosningabandalagi Berlusconis annan stól þingforseta. Símamynd Reuter