Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
Gerður Benediktsdóttir hefur framleitt íslensk jurtasmyrsl í 25-3Ú ár:
Hálfgerðir galdrar að
sjóða smyrsl úr jurtum
Sérlega gott
fyrir
psoriasis-
sjúklinga
Náttúruleg smyrsl og fegrunar-
vörur úr íslenskmn lækningajurt-
um hafa komist í tísku undanfarin
ár enda hefur framboðið á þeim
aukist stöðugt en framleiðsla inn-
lendra fegrunarlyfia er ekki ný af
nálinni, eins og halda mætti. Gerð-
ur Benediktsdóttir nuddari hefur til
dæmis framleitt sín eigin, náttúru-
legu smyrsl til að nota í nuddinu í
25-30 ár, sérstaklega úr vallhumal
og birki, og segir hún að þessar jurt-
ir jafnist fyllilega á við fegrunar- og
heilsuvönn- úr erlendum jurtum,
sérstaklega smyrsl úr vallhumli.
„Ég byrjaði voðalega ung að
vinna með jurtir. Ég átti heima
austur á landi þegar dóttir mín fékk
þvagfærasýkingu og þá gaf mér
gömul kona, sem var voðalega mik-
ið í grösum, fyrstu uppskriftina að
tei, sem ég bý ennþá til. Svo fór ég
að fikra mig áfram með þetta og
þótti hálfgöldrótt. Þegar ég fór
meira út í nuddið fór ég að búa til
smyrslin mín sjálf því að það var
ekki svo þægilegt að panta olíur og
þess háttar úr Reykjavík," sagði
Gerður og sló á létta strengi, kvaðst
eflaust hefðu verið brennd á báli ef
hún hefði verið uppi á öðrum tím-
um.
humlinum í hástert sem lækninga-
jurt. Hún segir að vallhumallinn sé
ein elsta lækningajurt íslendinga og
jafnist fyllilega á við vörur úr Aloe
Vera-jurtinni. Vallhumallinn sé
bólgueyðandi, lini verki og hafi góð
áhrif á blóörásina. Gerður segir að
örlítið morfín sé í jurtinni og þess
vegna hafí hún þessi góðu áhrif.
Húðin hitni þegar smyrslið er boriö
á líkamann og verður húðin mjög
mjúk á eftir, að sögn Gerðar.
Birkiolían er hins vegar sérstak-
lega góð fyrir psoriasis-sjúklinga og
fólk með kláða. Gerður segir að með
því að bera birkismyrsl á húðina
örvist blóðrásin, sogæðabólgur
minnki, exem lagist og sár grói.
Þurrkur á höndum og fótum, kláði
og bamaexem hafi einnig læknast.
Smyrslið er, að hennar sögn, sérlega
gott við lyfjakláða og Gerður segist
mæla með birkismyrsli á húðina
eftir bað, ljós og sól.
Þrána ekki
Jurtirnar
Gerður opnar glas með birkiolíu
og leyfír blaðamanni að draga að
sér þá góðu lykt sem er af olí-
unni af náttúrulegum
ástæðum. Hún útskýrir
að birkibörkur sé lát-
inn liggja í olíunni til
að olían dragi í sig
góða eiginleika og
lykt úr
berkinum. Hún segist geta geymt
smyrslin sín í hita því að þau þráni
ekki og sýnir hvar þau eru geymd í
gluggakistu, beint fýrir ofan ofninn.
Eigum að nýta
náttúruna meira
„Þetta smyrsl er öskaplega gott á
böm. Smyr'slið liggur ekki utan á
húðinni, eins og til dæmis vaselín,
heldur fer inn í húðina. Mýkt húð-
arinnar helst og sýrustig hennar
verður rétt á náttúrulegan hátt.
Vallhumallinn hefur þá eiginleika
að ekki er hægt að fá betra bmna-
smyrsl. Við nýtum okkur náttúruna
alltof lítið, mun minna en við ætt-
um að gera,“ segir Gerður.
Gerður segir að hún sé að verða
uppiskroppa með smyrslin sín enda
farið að vora og bráðum fari að
koma tími til að tína jurtir á nýjan
leik. Sjálfsagt hefur það haft áhrif
að birkið var slæmt í fyrravor, mik-
ið um lús eða orma, og þvi
ekki hægt að tína það hvar
sem var.
-GHS
mega ekki bíða
Á hverju vori lokar Gerður nudd-
stofunni sinni og fer út á land til að
tína vallhumal þegar hann er sem
sterkastur. Hún fær góðar vinkonur
sínar fyrir austan til að hjálpa sér
við tínsluna auk þess sem fjölskyld-
an hefur góðan skilning á þessari
starfsemi. Birkið fær Gerður oft-
ast í Grímsnesinu enda segist
hún ekki geta tínt það neins
staðar nærri Reykjavík. Þegar
tínslunni er lokið fer Gerður
beint heim að sjóða niöur því að
jurtimar mega ekki bíða.
„Ég verð að búa þetta til á sumr-
in og tíni jurtimar við viss skilyrði.
Ég verð að sjóða þetta allt saman
niður strax,“ segir Gerður um fram-
leiðsluna. Hún framleiðir og setur á
glös birkiolíu, smyrsl úr vallhumli
með 100% jurtafeiti í grunninn og
það sem hún kallar gæðasmyrslin
sín en þau eru unnin úr þurrkuðum
vallhumli og birki. Það síðastnefnda
notar hún í nuddinu en birkiolíuna
og vallhumalsmyrslið selur hún.
Stundum býr hún til smyrsl úr
jurtablöndu en þó aldrei
fleiri en þremur jurtum í
einu.
Engin litar- eða
lyktarefni em í
framleiðslunni hjá
Gerði önnur en þau
náttúrulegu.
„Vallhumallinn
er lyktarlaust blóm Natturuleg smyrsl eru komin í tísku enda framboðið á þeim farið að aukast verulega. Jurta-
og því er engin lykt smyrsl eru þó ekki ný af nálinni og hefur Gerður Benediktsdóttir til dæmis framleitt sín eig-
af smyrslinu," segir in nuddsmyrsl í 25-30 ár. Hún segir að þessi smyrsl, sem eru unnin úr vallhumli og birki,
Gerður og hæ’lir vall- höfði mikið til ungra kvenna. DV-mynd BG
KENWOOD
krciftm; gϚi, ending
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568-8840
VARNARLIÐIÐ - LAUST STARF
Kennari viö A.T. Mahan High School
á Keflavíkurflugvelli
Um er að ræða kennslu 12 til 18 ára bandarískra unglinga um
menningu og sögu íslands.
Viðkomandi þarf þar af leiðandi að vera vel að sér í landafræði,
bókmenntum og sögu landsins.
Mjög góðrar kunnáttu í ensku er krafist, bæði töluðu máli og skrifuðu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 21. ágúst nk.
Skriflegar umsóknir á ensku berist til Varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, ráðningadeild, Brekkustíg 39,
260 Reykjanesbæ, eigi síðar en 10. maí 1996.
DV - umbrot
Frjáls fjölmiölun óskar eftir að
ráöa umbrotsmann í afleysingar.
Kunnátta á Quark Xpress í Macin-
tosh og PhotoShop nauðsynleg.
Æskilegt er aö viðkomandi sé vanur
(vön) og hafi gott auga fyrir hönnun,
"lay-out".
Upplýsingar eru veittar á ritstjórn
DV mánudaginn 29. maí milli
kl. 18 Og 20 (ekki í síma).
BEIRA UIHALD Ofi VELIIBsAN
EINSTAKT
FÆÐUBÓTAREFNI SEM
BYGGIR ÞIG VEL UPP
EIN MEÐ ÖLLU!
Sendum í póstkröfu
Eeilsu-
orniö
Skipagötu 6, 600 Akureyri
Sími/fax 462 1889
Kornmarka&urlnn, Laugaveg! 27
Heilsuhúsl&, Kringlunnl
Hollt og gott, Skagaströnd
A DEDLD • GERVIGRASIÐ LAEGARDAL
Sunnudagur 28. apríl kl. 17:00
Fylkir - Valur
Sunnudagur 28. apríl kl. 20:30
Þróttur - Fram
B DEILD • LEIKj\ISVÖLLLR
Sunnudagur 28. apríl kl. 18:30
KSÁÁ - Víkingur
Sunnudagur 28. apríl kl. 20:30
Fjölnir - Léttir