Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Blaðsíða 24
32 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996 Sviðsljós Michael Jackson mót- mælir Bandaríski blökkusöngvarinn Michael Jackson lætur ekki bjóöa sér hvaö sem er. Nú eru það þýsk skattalög sem fara fyrir brjóstiö á honum. Lög þessi gengu í gildi í janúar og kveða á um að erlendir skemmtikraftar greiði skatta af öllum tekjum sínum, ólíkt heima mönnum sem geta dregið ýmsan kostnað frá. Þess vegna hefur Michael aHýst fyrirhuguðum tón- leikum í Þýskalandi í sumar. Sean Penn með konu sinni Nýbökuð hjónin Sean Penn og Robin Wright ætla ekki að láta sér nægja að vera saman eftir klukkan fimm þegar þau snúa heim úr vinnu, heldur ætla þau líka að vinna saman. Heimildir herma að það verði í mynd eftir handriti Johns sáluga Cassavetes Það er Nick Cassavetes, sonur Johns, sem leikstýrir. Jodie Foster verðlaunuð Jodie Foster verður verölaunuð eina ferðina enn fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar í næsta mánuði þegar svoköUuð kristals- verðlaun verða veitt. Þau eru fyr- ir konur. Aðrar konur sem fá við- urkenningu eru m.a. Anjelica Hu- ston og Angela Bassett. Bob Dylan í hugleiðingum Kvikmyndafélag Bods Dylans stórsöngvara íhugar' nú að gera kvikmynd um ævi ofurhugans og mótorhjólakappans Evels Kni- evels, sem hefur það m.a. sér til frægðar unnið að hafa brotið hvert einasta bein í skrokknum, og það oftar en einu sinni. Þátttakendur i keppninni Ungfrú alheimur 1996 stilla sér upp á sundlaugarbarmi í Las Vegas. íslenski þátttakandinn, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, er þriðja frá hægri í annarri röð. Ungfrú alheimur verður krýnd 17. maí næstkomandi. Símamynd Reuter Alheimsfegurðardísir Brátt líður að því að Ungfrú al- heimur eða Miss Universe verði val- in úr hópi 78 fóngulegra stúlkna frá öllum heimshomum. Úrslitin verða kunngjörð 17. maí næstkomandi við hátíölega athöfn í Las Vegas, hinni ljósumprýddu spilaborg í eyðimörk Nevadaríkis í Bandaríkjunum. Keppendur eru þegar mættir á staðinn en aðdragandi úrslitanna felst í alls kyns undirbúningi þar sem dómnefndir meta hæfni kepp- enda á ýmsum sviðum auk útlits. ís- lendingar eiga fulltrúa í keppninni en það er Hrafnhildur Hafsteins- dóttir, 20 ára, sem kjörin var Ungfrú ísland í fyrra. „Það var yndisleg tilfmning þegar nafnið mitt var kallað upp,“ sagði Hrafnhildur í viðtali við DV eftir krýninguna á Hótel íslandi. Og nú er að bíða og sjá hvort þessi yndis- lega tilfinning eigi eftir að fara um Hrafnhildi í Las Vegas 17. maí. Þungun Pamelu veldur skrýtnum draumförum: Tommy sendir hana á geð- sjúkrahús Stóra stundin nálgast óðfluga hjá Pamelu Anderson sem mun eignast sitt fyrsta barn í júní. Meðgangan hefur gengið ágætlega þótt undan- farið hafi undarlegar draumfarir vakið henni ugg. Þannig hefur hana dreymt hvað eftir annað að hún eigi í samskiptum við Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, og Tommy Lee, eiginmann sinn. Hún sagði bandarísku tímariti frá draumförunum. Hana dreymdi að Tommy hefði farið með sig í af- mælisveislu Reagans. En þegar líð- ur á drauminn kemur í ljós að Rea- gan er alls ekki Reagan og að Tommy hefur í raun komið henni fyrir á geðsjúkrahúsi. Hún segist hlaupa út en þar hitti hún fyrir langar raðir af konum sem allar eru berar fyrir neðan mitti og biðja framan við Búddalíkneski. Þegar Pamela reynir að flýja flnnur hún ekki annað en LEGO-leikfangabíl. Hún reynir að komast inn í hann en getur það ekki þar sem hún vill ekki eyðileggja bflinn og maginn er of stór. Loks þegar Tommy segir að hann þurfi að fara frá henni um tíma vaknar Pamela. Sálkönnuður segir draumana tákna að skemmtanaiðnaðurinn virki þrúgandi á Pamelu og hún sé orðin afar þreytt á Hollywood- glaumnum. Sáli segir að Reagan sé tákn fyir miklar kröfur í lífl Pamelu auk þess sem Tommy sé mjög ráð- andi. Sáli segir háifnöktu konurnar tákna að Pamela hafi sjálf setið nak- in fyrir en það hafi mögulega gerst gegn vilja hennar. En hvað sem draumförum Pamelu líður þá er hún staðráðin í að fæða barnið heima í baðkarinu sínu, þrátt fyrir viðvaranir lækna. Þungun Pamelu er víða umfjöllunarefni. Hér er hún í viðtalsþætti Jays Len- os í Bandaríkjunum og tekur við lítilli treyju úr hendi hans. Pamela Anderson hefur haft skrýtnar draumfarir síðustu mánuði en hún á að fæða í júní og er staðráðin í að gera það í baðkarinu heima hjá sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.